Morgunblaðið - 22.09.2006, Page 56
56 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÉG REYNDI AÐ KYSSA HANA
GÓÐA NÓTT...
HITTI EKKI OG KYSSTI
FLUGUBANANN HENNAR Í
STAÐINN...
NÚNA ERU FYLLINGARNAR Í
GÓMNUM MÍNUM FARNAR AÐ
NÁ SPÆNSKRI ÚTVARPSSTÖÐ
EN GAMAN,
ÉG VAR EINMITT
AÐ HUGSA AÐ
MIG LANGAÐI TIL
ÞESS AÐ DANSA
PÍNU SALSA
HVAÐ
VAR ÞETTA?
HVAÐ
VAR HVAÐ?
MÉR
FANNST
ÉG HEYRA
EITTHVAÐ
VIÐ
ÚTIDYRA-
HURÐINA
KALLI HEFUR HAFT OF
MIKIÐ AÐ GERA UNDAN FARIÐ.
HANN ER ORÐINN KLIKKAÐUR
LANGAR EINHVERN Í
LOÐIÐ BARN?
HÆ KALVIN. VEISTU HVAÐ
VERÐUR GERT Í LEIKFIMI?
ÞAÐ VERÐUR GLÍMA
BÚÐU ÞIG UNDIR
AÐ LÍKAMI ÞINN
VERÐI ÞAKINN
BRUNASÁRUM EFTIR AÐ ÉG
SKÚRA DÚKINN MEÐ LJÓTA
ANDLITINU Á ÞÉR
ÞAÐ EINA SEM ÉG
LÆRI Í LEIKFIMI Í
SKÓLANUM ER HVERNIG
HANDAKRIKINN Á
SKÓLAFANTINUM LYKTAR
HELGA HEFUR
ALDREI VERIÐ
SVONA REIÐ
ÁÐUR
AF
HVERJU
SEGIRÐU
ÞAÐ?
HÚN ER AÐ HENDA
SPARISTELLINU!
ÉG HEF
SVO MIKLAR
ÁHYGGJUR AF
HONUM LÆKNIR.
HANN HÆTTIR
ALDREI AÐ
SKRIFA
EKKERT MÁL
FRÚ SHAKESPEARE,
ÉG GEF HONUM
BARA PÍNU
RÍTALÍN OG
HANN VERÐUR
EINS OG ALLIR
HINIR
KRAKKARNIR
ÞAÐ VERÐA
7500 kr.
HVAÐ ÆTTI ÉG AÐ GERA?
ÉG ÞOLI EKKI HVAÐ HANN
GERÐI VIÐ HÁRIÐ Á MÉR
ÉG ÆTTI AÐ NEITA AÐ BORGA!
ÉG ÆTTI AÐ FÁ AÐ TALA VIÐ
YFIRMANNINN HANS! ÉG ÆTTI AÐ
MINNSTA KOSTI EKKI AÐ GEFA
HONUM NEITT ÞJÓRFÉ!
9000 kr.
TAKK
ADDA!
EN ÉG VIL
EKKI AÐ
HONUM LÍKI
ILLA VIÐ MIG
ER ALLT
Í LAGI MEÐ
ÞIG?
FYRST VAR ÉG
BARINN AF GERFI
NASHYRNINGI OG
SÍÐAN FÉKK ÉG
BITA Í FANGIÐ
JÁ, ÞAÐ ER ALLT Í
LAGI MEÐ MIG
ÞÚ
BARÐIR
HANN OF
FAST
WILLARD
ÞAÐ ER EKKI MÉR
AÐ KENNA AÐ
KÓNGULÓIN ER AUMINGI
Heyrnar- og talmeinastöðÍslands verður með opiðhús á morgun, laug-ardaginn 23. september.
Heyrnar- og talmeinastöðin (HTÍ)
er til húsa á Háaleitisbraut 1 (Val-
höll), 3. og 4. hæð, en á 1. hæð verður
kynning á nýjustu framförum í gerð
heyrnartækja.
Guðrún Gísladóttir er fram-
kvæmdastjóri HTÍ: „Okkur þótti
tímabært að vekja athygli á starf-
semi Heyrnar- og talmeinastöðvar,
ekki síst til að sýna fólki hvaða nýju
möguleikar eru til staðar fyrir þá
sem eiga erfitt með heyrn,“ útskýrir
Guðrún, en á laugardag verður hægt
að fræðast um nýjustu tækni í
heyrnartækjum sem og hjálp-
arbúnað sem í boði er fyrir heyrn-
arskerta, heyrnarlausa og fólk með
skerta talgetu.
„Gífurlegar framfarir hafa orðið í
gerð heyrnartækja undanfarin ár.
Ein merkasta framförin felst í staf-
rænum heyrnartækjum, en gömlu
heyrnartækin mögnuðu allt hljóð
jafnmikið sem olli því að hverskyns
umhverfishljóð voru mjög truflandi
fyrir notendur heyrnartækjanna.
Nýju tækin greina betur manns-
röddina frá bakgrunnshljóðum og
magnar því þau hljóð sem notandinn
þarf að heyra, en ekki hin sem
myndu aðeins trufla.“
Guðrún nefnir einnig svokölluð
FM-tæki: „Sú tækni nýtist sér-
staklega á fyrirlestrum, í mannfögn-
uðum og veislum, eða bílum, þar sem
heyrnarskertir eiga oft erfitt með að
nota heyrnartæki sín. FM-tæknin
felst í því að móttökubúnaður í
heyrnartæki nemur sendingar frá
hljóðnema sem t.d. kennari eða fyr-
irlesari talar beint í, og skvaldur og
skruðningar því ekki magnaðir upp í
heyrnartækinu.“
Árlega heimsækja Heyrnar- og
talmeinastöð um 15.000 ein-
staklingar, en stöðin veitir einnig
þjónustu á Akureyri: „Um 70%
þeirra sem nýta sér þjónustu okkar
eru 70 ára og eldri, en um 20% eru
börn sem koma hingað til heyrn-
armælingar eða til skoðunar hjá tal-
meinafræðingi. Flest barnanna
heyra eðlilega, en í dag þurfa um 170
börn hér á landi að nota heyrn-
artæki.“
Guðrún segir Heyrnar- og tal-
meinastöð einnig vilja nota tækifær-
ið til að bæta viðhorf almennings til
notkunar heyrnartækja: „Öllum
finnst okkur sjálfsagt að nota gler-
augu þegar við eldumst, en þegar
kemur að því að þörf er á að nota
heyrnartæki er viðkvæðið hjá mörg-
um að svo gamlir séu þeir ekki enn
orðnir. Að því leyti mega þeir full-
orðnu taka börnin sér til fyr-
irmyndar, en heyrnarskert börn eru
flest með öllu laus við „komplexa“
vegna heyrnartækjanna sinna og
ganga um keik með skærblá eða
heiðrauð heyrnartæki eins og ekkert
væri eðlilegra.“
Opið hús Heyrnar- og talmeina-
stöðvar er frá 12 til 16. Allir eru vel-
komnir og tekur starfsfólk vel á móti
gestum og sýnir aðstöðu stofnunar-
innar. Leitast verður við að svara
öllum fyrirspurnum og einnig verður
hægt að bóka tíma í heyrnarmæl-
ingu ef þess er óskað. Nánari upp-
lýsingar má finna á slóðinni
www.hti.is.
Heilsa | Opið hús hjá Heyrnar- og
talmeinastöð Íslands á laugardag
Guðrún Gísla-
dóttir fæddist á
Akureyri 1958.
Hún lauk rekstr-
arfræðingsnámi
frá Viðskiptahá-
skólanumá bif-
röst 1994, og BS-
gráðu í við-
skiptafræði frá
sama skóla 2002. Árið 2004 lauk
Guðrún MS-prófi í stjórnun og
stefnumótun frá HÍ. Guðrún var
starfsmannastjóri hjá Securitas um
nokkurt skeið, deildarstjóri hjá
Samskipum og fjármálastjóri Nes-
skipa. Hún tók við starfi fram-
kvæmdastjóra Heyrnar- og tal-
meinastöðvar Íslands 2003. Guðrún
er gift Halli Leópoldssyni verktaka
og eiga þau eina dóttur.
Nýjasta nýtt í
heyrnartækjum
Valdaránið í Taílandi á dög-unum virðist lítið hafa truflað
daglegt líf íbúa þar í landi. Sömu
sögu er þó ekki
að segja um
Nicolas Cage
sem var að
vinna að has-
armynd í
Bangkok þegar
taílenski her-
inn hrifsaði til
sín völdin.
Þegar kvik-
myndatökulið
Cage frétti af valdaráninu var
leikaranum vippað uppá hótel en
starfslið var látið halda kyrru fyr-
ir á sviðsmyndinni, m.a. til að
gæta gervi-skotvopna sem notuð
voru við tökur.
Myndin, sem fengið hefur enska
titilinn Time to Kil,l skartar Hong
Kong-stjörnunum Danny Pang og
Oxide Pang og er endurgerð á
mynd þeirra frá 1999 sem hafði
enska titilinn Bangkok Dangerous.
Að sögn fréttamiðla hefur Cage
einkaþotu til reiðu ef hann telur
sig knúinn til að yfirgefa landið
með hraði.
Draumatengdasonur allra for-eldra, Vilhjálmur Breta-
prins, ætlar að ganga í herinn, að
fordæmi yngri bróður síns Harry.
Einhvern tíma á næsta ári mun
hann dvelja í
sex mánuði í
þjálfunarbúð-
um, og eftir
ársþjónustu í
hernum mun
hann meðal
annars vænta
þess að starfa
fyrir flugher-
inn og sjóher-
inn. Samhliða herþjónustu hyggst
prinsinn gegna ýmsum minnihátt-
ar viðvikum á opinberum vett-
vangi vegna tignar sinnar og
kynna sér betur opinbera stjórn-
sýslu og góðgerðarmál til að búa
sig undir þau opinberu störf sem
hann mun helga sig að lokinni
herþjónustu.
Búið er að ganga frá skilnaðiVina-stjörnunnar Matt Le-
Blanc og eiginkonu hans Marissu
eftir þriggja
ára hjónaband.
Hafa Matt og
Marissa fallist
á jafnt forræði
yfir Marínu,
tveggja ára
dóttur þeirra,
en leikarinn,
sem hafði ákaf-
lega góðar
tekjur af leik sínum í sjónvarps-
þáttunum vinsælu, ber fjárhags-
lega ábyrgð á menntun dótt-
urinnar og umönnun, og þarf að
greiða mánaðarlega upphæð sem
samsvarar rúmlega einni milljón
króna í meðlag.
Fólk folk@mbl.is