Morgunblaðið - 06.10.2006, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
Yf i r l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 34/36
Veður 8 Forystugrein 32
Staksteinar 8 Bréf 36
Viðskipti 14 Minningar 38/46
Úr verinu 14 Myndasögur 56
Erlent 16/17 Dagbók 57/61
Höfuðborgin 20 Víkverji 60
Akureyri 20 Velvakandi 61
Austurland 26 Staðurstund 58/59
Landið 21 Leikhús 54
Daglegt líf 22/29 Bíó 58/61
Menning 18, 50/56 Ljósvakamiðlar 62
* * *
Innlent
Stefnt er að því að staðfesta nýtt
skipurit lögreglustjóra höfuðborg-
arsvæðisins innan nokkurra vikna.
Hjá nýju embætti lögreglustjóra
verður lögð áhersla á sýnilega lög-
gæslu. » Miðopna
Hæstiréttur hefur staðfest úr-
skurð um að Hrunaheiðar séu þjóð-
lenda en ekki eignarland prestsset-
urs. Þar með var hrundið kröfum
Prestssetrasjóðs sem krafðist þess
að úrskurður óbyggðanefndar yrði
felldur úr gildi. » 4
Rekstrartekjur borgarsjóðs hafa
ekki dugað fyrir almennum rekstr-
argjöldum undanfarin fjögur ár. Á
sama tíma hefur eigið fé minnkað
um 13,4 milljarða króna og má rekja
lækkun þess til uppsafnaðs rekstr-
arhalla á tímabilinu, að því er fram
kemur í skýrslu sem endurskoð-
unarsvið KPMG hefur unnið fyrir
Reykjavíkurborg og lögð var fram á
fundi borgarráðs í gær. » 6
Síðustu tvær helgar hafa verið
tekin um 50 tonn af hrafntinnu úr
Hrafntinnuskeri en hún verður not-
uð til viðgerða á klæðningu Þjóðleik-
hússins. Efnið er tekið innan frið-
landsins að Fjallabaki sem friðlýst
var 1979. » Forsíða
Erlent
NATO tók í gær við yfirstjórn er-
lendra hersveita í austurhluta
Afganistans en þar með lúta allar er-
lendar hersveitir í landinu yfirstjórn
hershöfðingja Atlantshafsbanda-
lagsins. Breytingin sem varð í gær
felur í sér að tíu þúsund manna
bandarískt herlið í austurhluta
landsins fer undir stjórn NATO. »
16
Siðanefnd fulltrúadeildar Banda-
ríkjaþings hóf í gær rannsókn á
hneykslinu í kringum vafasama
tölvupósta fyrrverandi þingmanns-
ins Marks Foleys til 16 ára vikapilts
á þinginu. Dennis Hastert, leiðtogi
repúblikana í fulltrúadeildinni, neit-
aði aftur á móti að segja af sér vegna
meintrar vitneskju hans um málið.
» Forsíða
Viðskipti
Og Vodafone og Vodafone Group
hafa samið um nánara samstarf og
verður Og Vodafone að Vodafone.
Fá GSM-notendur aðgang að Voda-
fone Passport-þjónustu en hún leyfir
þeim að nota GSM-síma í útlöndum
á sama verði og hér heima. » 14
MEIRIHLUTI sveitarstjórnar
Skagafjarðar samþykkti í gær að í
aðalskipulagi sveitarfélagsins verði
gert ráð fyrir og sýnd möguleg svæði
til virkjunar Héraðsvatna, þ.e. við
Skatastaði og Villinganes. Minnihlut-
inn greiddi atkvæði gegn tillögunni. Í
meirihluta eru fjórir framsóknar-
menn og fulltrúi Samfylkingar. Í
minnihluta eru þrír sjálfstæðismenn
og fulltrúi VG.
Ofangreind tillaga var samþykkt
af fulltrúum Framsóknarflokks og
Samfylkingar í skipulags- og bygg-
ingarnefnd 19. september sl. og lá
fundargerð nefndarinnar fyrir sveit-
arstjórn til samþykktar. Ákvað sveit-
arstjórnin í gær að greiða sérstak-
lega atkvæði um tillöguna.
Bjarni Jónsson, fulltrúi VG, óskaði
eftir því í upphafi sveitarstjórnar-
fundarins að afgreiðslu málsins yrði
frestað því þrátt fyrir ítrekaðar
beiðnir sínar hefði hann ekki enn
fengið afrit af bréfi Skipulagsstofn-
unar vegna óskar sveitarfélagsins
um leyfi til að auglýsa aðalskipulagið.
Forseti sveitarstjórnar lagði fram
frávísunartillögu sem var samþykkt
með 5 atkvæðum gegn 3.
Bjarni kvaðst í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi vera að íhuga að
kæra þessa málsmeðferð til félags-
málaráðuneytisins.
Í bókunum fulltrúa í minnihluta
kom fram undrun á afstöðu fulltrúa
Samfylkingar í ljósi yfirlýstrar
stefnu flokksins um að vernda jökuls-
árnar undir slagorðinu „Fagra Ís-
land“.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, for-
seti sveitarstjórnar og fulltrúi Sam-
fylkingar, lét bóka að mikilvægt væri
að halda öllum virkjunarmöguleikum
opnum í fyrirliggjandi drögum að að-
alskipulagi. „Drögin að aðalskipulag-
inu eiga að fara til umræðu og Skag-
firðingar eiga að fá tækifæri til þess
að láta álit sitt í ljósi varðandi þessa
virkjunarkosti. Ekki er ástæða til
þess að þrengja þessa möguleika fyrr
en vilji Skagfirðinga liggur fyrir.“
Virkjanir í aðalskipulag
Fulltrúi VG í sveitarstjórn Skagafjarð-
ar íhugar að kæra málsmeðferðina
Morgunblaðið/BFH
Virkjun Kláfur er yfir Austari Jökulsá, skammt frá Skatastöðum í Austur-
dal í Skagafirði þar sem rætt hefur verið um að byggja vatnsaflsvirkjun.
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra hefur falið Vegagerðinni að
leita eftir samningum við Flugfélag
Íslands um ríkisstyrkt flug milli
Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Til
stendur að semja tímabundið meðan
útboð til lengri tíma er undirbúið.
Í fréttatilkynningu frá samgöngu-
ráðuneytinu í gær segir að vegna
eindreginna óska Eyjamanna, sér-
staklega varðandi aukið sætafram-
boð, sé ljóst að Flugfélag Íslands er
eini flugrekandinn sem tilbúinn er
með flugvélakost sem mætir þessum
óskum. Því hafi samgönguráðherra
falið Vegagerðinni að hefja samn-
ingaviðræður við Flugfélag Íslands
til að koma til móts við þessar óskir
heimamanna.
Minnt er á það í tilkynningunni að
í framhaldi af ákvörðun Landsflugs
um að hætta áætlunarflugi til Vest-
mannaeyja frá 25. september hafi
ríkisstjórnin ákveðið að hefja und-
irbúning að ríkisstyrktu flugi á flug-
leiðinni. Til bráðabirgða yrði samið
við flugrekstraraðila um tímabundið
áætlunarflug með fjárhagslegum
stuðningi.
Hætti árið 2001
Flugfélag Íslands hætti áætlunar-
flugi til Vestmannaeyja árið 2001 og
var sú ákvörðun liður í umfangsmikl-
um sparnaðaraðgerðum en að
óbreyttu stefndi í 300 milljón króna
tap árið 2001, að því er fram kom í
viðtali við Jón Karl Ólafsson, þáver-
andi forstjóra félagsins, sem tekið
var þegar tilkynnt var um aðgerð-
irnar. Varðandi flug til Vestmanna-
eyja sagði Jón Karl að þar hefði ríkt
hörð samkeppni við ríkisstyrktar
ferjusiglingar með Herjólfi og flug
lítilla véla á Bakkaflugvöll í A-Land-
eyjum. Félagið hafi ekki átt annan
kost en velta kostnaðarhækkun út í
verðlagið en þá hefði umferð aukist
bæði um Bakkaflugvöll og með Herj-
ólfi.
Semji við Flugfélag Íslands
um tímabundið flug til Eyja
Í HNOTSKURN
» Þegar Flugfélag Íslandshætti áætlunarflugi til
Vestmannaeyja árið 2001
hafði félagið haldið uppi áætl-
unarflugi þangað í 50 ár.
» Árið áður tapaði félagið380 milljónum.
» Áætlunarflug til Hafnar íHornafirði var einnig lagt
niður 2001.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
FREYJA Haraldsdóttir mun á næst-
unni heimsækja framhaldsskóla og
fræða nemendur og starfsfólk um
málefni fatlaðra. Freyja nefnir fyr-
irlestrana Það eru forréttindi að
lifa með fötlun. Menntamálaráð-
herra og félagsmálaráðherra hafa
ákveðið að styrkja Freyju vegna
verkefnisins. Í gær var opnaður
vefur verkefnisins. Markmið Freyju
með fyrirlestrunum eru m.a. að
opna augu nemenda fyrir heimi
fatlaðs fólks, skapa grundvöll um-
ræðu við starfsfólk um skóla fyrir
alla og benda á að með réttri þjón-
ustu og viðhorfum sé ekkert böl að
lifa með fötlun.
Freyja er mikið líkamlega fötluð.
Hún útskrifaðist sem stúdent frá
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í
desember á síðasta ári.
Morgunblaðið/Ásdís
Forréttindi að lifa með fötlun
STOFNLEIÐ fimm (S5), sem tengir
Árbæjar- og Seláshverfi við mið-
borgina, hóf akstur á ný í morgun
samkvæmt ákvörðun stjórnar
Strætós bs. Vagnarnir munu aka
sömu leið og ekin var áður en leið S5
var aflögð á liðnu sumri.
Ekið verður á annatímum virka
daga frá kl 6.30 til kl. 9.00 á morgn-
ana og aftur frá kl. 14.30 til 18.00 síð-
degis, að því er segir í frétt frá
Strætó bs. Árdegis aka vagnarnir að
hringtorgi við Hádegismóa á leið
sinni frá miðborginni en síðdegis
koma vagnarnir að hringtorginu á
leið sinni úr hverfinu niður í bæ. Nýr
viðkomustaður hefur bæst við akst-
ursleiðina, austast á Bæjarhálsi, á
móts við hringtorg sem tengir Suð-
urlandsveg, Hádegismóa og Selás.
Vagnar leiðar S5 aka milli Árbæj-
ar og Seláss og áfangastaða á borð
við Kringlusvæðið, LSH-Hring-
braut, Háskóla Íslands og miðborg-
ina án þess að skipta þurfi um vagn.
Leið S5
endurvakin