Morgunblaðið - 06.10.2006, Qupperneq 25
mælt með
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006 25
Sérfræðingar
í saltfiski
Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl.
Fyrir verslanir:
Til suðu:
saltfiskbitar blandaðir
gellur
gollaraþunnildi
Til steikingar:
saltfiskbitar blandaðir
saltfiskkurl
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
gellur
Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti:
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar
saltfiskkurl
Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem:
ýsuhnakka
rækjur
þorskhnakka
steinbítskinnar og bita
Sími: 466 1016
ektafiskur@emax.is
Norrænir tónlistardagar
Norrænir tónlistardagar standa
nú sem hæst í Reykjavík. Hátíðin
var fyrst haldin í Kaupmannahöfn
fyrir 118 árum og hefur allar götur
síðan verið miðpunktur í norrænu
tónlistarlífi og jafnframt einn mik-
ilvægasti vettvangur fyrir nýja nor-
ræna tónlist. Mörg af helstu tón-
skáldum Norðurlanda í dag eiga
verk á hátíðinni og meðal flytjenda
eru tónlistarmenn í fremstu röð.
Dagskrá hátíðarinnar má finna á
www. nordicmusicdays.is.
Fjölmiðlamótið
í knattspyrnu
Fjölmiðlamótið í knattspyrnu fer
fram í Fífunni í Kópavogi milli kl. 13
og 17 á laugardag. Þar etja kappi
frambærilegustu sparkendur hinna
ýmsu miðla og upplagt fyrir gesti og
gangandi að virða ljósvaka- og
blaðamenn fyrir sér í nýju ljósi.
Hefð er fyrir því að fast sé leikið á
mótinu og því sjá fremstu dómendur
landsins um að keppendur haldi sig
á mottunni. Fréttablaðið vann Fjöl-
miðlabikarinn í fyrsta sinn í fyrra og
lætur hann eflaust ekki baráttulaust
af hendi.
Útivist
Haustið er uppáhaldstími margra
en það er nú gengið í garð með til-
heyrandi litadýrð. Veður er milt og
stillt þessa dagana og því tilvalið að
njóta útivistar með fjölskyldu og vin-
um. Fólk á höfuðborgarsvæðinu er
hvatt til að drekka haustið í sig um
helgina, til dæmis við Esjurætur á
Kjalarnesi. Þar er stórbrotnar
fjörur að finna og útsýni yfir sundin
blá og borgina er hvergi betra, að
nóttu sem degi. Sé fólk í skapi fyrir
hreyfingu er upplagt að rölta hinn
sívinsæla Brautarholtshring.
Landnámssetrið
Fyrir þá sem taka bíltúr fram yfir
útivist er tilvalið að renna í Borgar-
nes og sækja heim Landnámssetrið.
Þar er að finna bráðskemmtilegar
og fræðandi sýningar um landnám
Íslands og Egils sögu. Einnig má
hafa góðan beina í veitingasal set-
ursins. Á Landnámssetrinu hefur
margrómuð sýning Benedikts Erl-
ingssonar, Mr. Skallagrímsson,
gengið fyrir fullu húsi frá í vor en
uppselt er á allar sýningar í þessum
mánuði. Sýningin verður tekin upp á
ný næsta vor.
Hundasýning
Árleg haustsýning Hundarækt-
arfélags Íslands fer fram nú um
helgina í reiðhöll Fáks í Víðidal og
hefst klukkan kl. 9.00 árdegis báða
dagana. Sýningin er sú langstærsta
sem haldin hefur verið á Íslandi og
eru tæplega 700 hundar skráðir til
leiks af rúmlega 70 tegundum.
Sérstök athygli er vakin á því að
síðdegis á laugardag mun Hunda-
ræktarfélag Íslands heiðra afreks-
og þjónustuhunda ársins.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Morgunblaðið/Sverrir
San Francisco. AP. | Hótelgestir skilja
eftir sig fleira en sokka og blaða-
bunka í hótelherbergjunum því að
rannsókn hefur leitt í ljós að mikið
er af veirum á sjónvarpsfjarstýr-
ingum, slökkvurum og jafnvel penn-
um eftir að kvefað fólk hefur skráð
sig út.
Sýklarannsóknin fór fram áður en
herbergin voru þrifin, þannig að
ekki er líklegt að mörgum ferða-
mönnum stafi hætta af veirunum.
Hættan getur samt verið fyrir hendi
ef herbergisþrifin felast aðeins í því
að skipta um lök og þurrka af bað-
karinu.
„Við vonum svo sannarlega að
hreingerningafólkið hafi vandað
sig,“ sagði Owen Hendley, barna-
læknir sem kynnti niðurstöður rann-
sóknarinnar á fundi samtaka banda-
rískra örverufræðinga.
Undrandi á niðurstöðunni
Hættan einskorðast ekki við hót-
elin því mörgum yfirsést oft að
hreinsa ýmsa hluti sem fólk með
kvefpest hefur snert. „Við vitum að
veirur geta lifað á yfirborði hluta í
langan tíma – lengur en í fjóra
daga,“ sagði Birgit Winther, sér-
fræðingur í háls-, nef- og eyrna-
sjúkdómum við Virginíu-háskóla.
Vísindamennirnir rannsökuðu
nasaveirur sem valda um helmingi
kvefpesta, einkum meðal barna. Þeir
fengu fimmtán menn, sem voru með
kvef, til að gista á hóteli eina nótt og
rannsökuðu hluti sem fólkið sagðist
hafa snert. Nasaveirur fundust á um
það bil þriðjungi hlutanna. „Við vor-
um undrandi á því hversu margar
veirur við fundum,“ sagði Winther.
Veirur fundust á sjö af fjórtán
dyrahúnum og sex af fjórtán penn-
um. Sex af fimmtán slökkvurum,
sjónvarpsfjarstýringum og vatns-
krönum voru með veirur, svo og
fimm af fimmtán símum. Veirurnar
leyndust einnig á kaffivélum og
vekjaraklukkum.
Sýklarnir geta leynst víða
Morgunblaðið/Ásdís
Varasamt Veirur fundust á sjö af 14 dyrahúnum og sex af 14 pennum.
heilsa