Morgunblaðið - 06.10.2006, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006 35
UMRÆÐAN
www.si.is
Fjárhagslega hvata þarf til rannsókna- og þróunarstarfs innan
fyrirtækja líkt og Norðmenn, Svíar, Frakkar og fleiri hafa tekið
upp. Besta leiðin til þess er að koma á fót endurgreiðslukerfi
vegna viðurkenndra rannsókna- og þróunarverkefna.
Endurgreiðslur eiga að geta numið allt að 20% kostnaðar en
með tilteknu þaki. Skattkerfið verði nýtt í þessu samhengi
þannig að þau fyrirtæki sem greiða tekjuskatt fá afslátt en
þau sem ekki greiða skatt fá endurgreiðslur. Kerfið er sniðið
að norskri fyrirmynd sem ber heitið SkatteFUNN.
Úr stefnu Samtaka iðnaðarins
Tekið er við skráningu á fundinn á netfangið
skraning@si.is eða í síma 591 0100
Samtök iðnaðarins hafa fengið Ragnhild
Rønneberg, framkvæmdastjóra SkatteFUNN
í Noregi, til að kynna þetta athyglisverða kerfi
og reynsluna af því - en hátt í sex þúsund
rannsókna- og þróunarverkefni norskra
fyrirtækja njóta góðs af því um þessar mundir.
Sjá nánar áskorun til ríkisstjórnarinnar,
stefnu SI og tillögur á www.si.is
Morgunverðarfundur Samtaka iðnaðarins
þriðjudaginn 10. október
á Grand Hótel frá 8:30 til 10:00
- Ávinningur fyrir alla -
Endurgreiðsla
vegna rannsókna-
og þróunarstarfs
Á NÆSTU misserum er ráð-
gerð mikil uppbygging í landi
Leirvogstungu og Helgafells í
Mosfellsbæ. Þar hafa tún og engi
breyst í húsalóðir. Uppbyggingin í
landi Helgafells liggur nær ann-
arri byggð og aðalútivistarsvæði
Mosfellsbæjar sem liggur upp með
Varmá. Því þarfnast skipulagning
hennar að gæta að því að raska
ekki þeim verðmætum sem fyrir
eru. Upp með Varmá er hest-
húsabyggð, íþróttamiðstöð, Hlé-
garður, Brúarland, Álafosskvos og
Reykjalundur. Á þessu belti liggur
margt af því sem íbúum Mosfells-
bæjar þykir vænt um og gegna
hlutverki sem sögustaðir og úti-
vistarsvæði..
Viðfangsefni bæjaryfirvalda er
að tryggja greiða leið úr og í nýju
hverfin, ásamt því að samgöngu-
kerfið gefi góða heildarmynd fyrir
bæinn. Núverandi skipulags-
hugmyndir setja tengibraut með
umferð allt að 10 þúsund bíla á
dag um Álafosskvos, með miklu
raski á þeirri veröld sem er þar,
út af fyrir sig, og margir líta á
sem eitt af skemmtilegum sér-
kennum bæjarins. Tengibrautin
með sínum mikla umferðarþunga á
síðan að fara undir Vesturlands-
veginn, en hann verður hækkaður
upp um sex metra, þar sem nú er
hringtorg við Álafossveg. Að halda
áfram í átt að miðbænum. Tengi-
brautin heldur síðan áfram með-
fram Hlégarði í átt að miðbænum.
Styrkur Mosfellsbæjar felst í
nálægð við náttúru, ekki síst
göngustígum upp með Varmánni
og fellunum í kring. Þar liggja
sóknarfæri í að þróa fallegan úti-
vistarbæ. Það er ekkert sjálfgefið
að þessum verðmætum þurfi að
fórna þó að byggð þéttist. Því er
eiginlega öfugt farið, að eftir því
sem fleiri byggingar koma inn á
túnin á sveitabæjunum sem áður
voru, þeim mun brýnna er að
halda í og vernda græn svæði og
útivistarmöguleika fólks í Mos-
fellsbæ. Það er ekki bara spurning
um hvort Varmáin sé á nátt-
úruminjaskrá (sem hún reyndar er
og hefur númerið 139) eða ekki,
heldur hvort við viljum upplifa
ríkidæmið sem felst í nálægðinni
við náttúruna. Veit ekki hvernig
Laugardalur, Fossvogur eða
Hellisgerði flokkast með tilliti til
náttúruverndarlaga. Eitt er víst
að það er mikil samstaða um að
vernda þessi svæði til að tryggja
lífsgæði þess fólks sem þau nýtir.
Ekki er langt síðan að borg-
arstjórn Reykjavíkur hætti við
fyrirhugaðar húsbyggingar í
Laugardal.
Ef ekki er rétt haldið á spil-
unum þá gæti miðbær Mosfells-
bæjar og tengslin við Varmárs-
væðið þróast líkt og miðbær
Kópavogs gerði á sínum tíma.
Sundurskorin af steinsteyptum
samgöngumannvirkjum. Hinn
möguleikinn er að þróa tengi-
brautir inn á stofnleiðir í jaðri
byggðar og leyfa hjarta bæjarins
að slá með sínum djúpa og rólega
takti, eins og t.d. í Hafnarfirði.
Lega tengibrautar í gegnum Ála-
fosskvos er klárlega ekki besta
lausnin þegar Helgafellshverfi er
tengt við Vesturlandsveg. Greini-
legt er að mikill þrýstingur hefur
verið á að leysa málið hratt og
stokkið á að útfæra vegstubb sem
teiknaður var inn á aðalskipulag
fyrir rúmum tuttugu árum síðan.
Þá hefur hann trúlega verið settur
inn sem möguleiki fyrir sum-
arbústaði frekar en
umferð mörg þús-
und bíla á hverjum
degi.
Tveir betri kostir
eru ókannaðir þ.e.
að leggja und-
irgöng undir Vest-
urlandsveg við Ásl-
and og/eða að færa
Þingvallavegamót
nær Mosfellsbæ og
láta mislæg gatna-
mót þar. Þau gætu
þjónað Leirvog-
stunguhverfi, umferð í Mosfells-
dal og á Þingvöll, ásamt Helga-
fellshverfi. Leið íbúa
Helgafellshverfis yrði 2 – 300
metrum lengri í miðbæ Mosfells-
bæjar, en á móti kemur að þeir
væru ekki skornir frá upplifun á
náttúru og sögu sem er
á Varmársvæðinu. Það
hljóta að vera allra
hagsmunir að endur-
skoða þessi áform og
tryggja framtíðarmögu-
leika Mosfellsbæjar til
vaxtar, sem bær í sveit.
Sérstaklega eru það
hagsmunir verktaka og
framkvæmdaaðila að
tryggja gæði í skipu-
lagningu á umhverfi
þess fólks sem setjast
mun að í þessu sérlega
fagra byggingarlandi, mót suðri
og sól. Það gerir íbúðirnar sölu-
legri.
Að vernda og efla
ímynd Mosfellsbæjar
Gunnlaugur B. Ólafsson skrifar
um skipulagsmál í Mosfellsbæ
» Það hljóta að veraallra hagsmunir að
endurskoða þessi áform
og tryggja framtíð-
armöguleika Mosfells-
bæjar til vaxtar …
Gunnlaugur B Ólafsson
Höfundur er í stjórn Varmársamtak-
anna í Mosfellsbæ.
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík
Fréttir
í tölvupósti