Morgunblaðið - 06.10.2006, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006 51
menning
STOKKHÓLM-saxófónkvartett leikur stóran
þátt í Norrænum músíkdögum í ár. Kvart-
ettinn var tilnefndur til Norrænu tónlist-
arverðlaunanna á síðasta ári og er fyrir löngu
orðinn þekktur víða um veröld fyrir sérstæðan
flutning sinn á nútímatónlist. „Við vorum á
opnunartónleikunum í gær, erum í dag kl.
15.00 með opið námskeið og fyrirlestur í
Listaháskólanum þar sem við opinberum
leyndardóma saxófónsins og svo eru aðal-
tónleikarnir á morgun,“ segir Jörgen Petters-
son sem skipar Stokkhólm-saxófónkvartett
ásamt Sven Westerberg, Leif Karlborg og Per
Hedlund. Þeir hafa oft áður tekið þátt í Nor-
rænum músíkdögum og segja það mjög mik-
ilvæga tónlistarhátíð. „Svona hátíðir efla
tengslanetið innan tónlistarheimsins, þær eru
eins og messa þar sem maður kynnist öðrum
tónlistarmönnum, hlustar á það sem er að ger-
ast og kemur fróðari heim.“
Raftónlist með saxófónleik
Stokkhólm-saxófónkvartett spilar aðallega
nútímatónlist og er þekktur fyrir skemmti-
legar útsetningar. „Á morgun spilum við verk
eftir fimm norræn tónskáld. Við frumflytjum
t.d. verk eftir Per Magnus Lindborg frá Nor-
egi og svo flytjum við verk eftir Kjartan Ólafs-
son sem við frumfluttum í Suður-Afríku í sum-
ar. Öll þessi fimm verk eru mjög ólík, það sem
er svo áhugavert við nútímatónlist er að hún
býr yfir svo mörgum stílum. Nokkur þessara
verka verða flutt með raftækni, en raftónlist er
oft í verkunum sem við flytjum og fer vel með
saxófónspili,“ segir Petterson og bætir við að
þeir séu alltaf að vinna með nýjum tón-
skáldum. „Við höfum komist í kynni við mikið
af nútímatónskáldum og höfum frumflutt
óteljandi ný verk. Það er okkur mikilvægt að
vinna náið með tónskáldunum þegar við erum
komnir með verkið í hendurnar og þróa það í
rétta átt. Við semjum ekki sjálfir en mörkin á
milli þess að semja og flytja eru stundum ekki
skýr því maður verður að bæta svo miklu við
tónlistina.“
Kvartettinn var stofnaður árið 1969 af Sven
Westberg en í þeirri mynd sem hann er í núna
hefur hann spilað í 22 ár, eða síðan Pettersson
gekk til liðs við hann. Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem þessir sænsku tónlistarmenn koma
til Íslands því þeir spiluðu hér á Myrkum mús-
íkdögum fyrir tíu árum síðan og komust þá í
kynni við íslensk tónskáld sem þeir hafa síðan
flutt verk eftir víða um heim.
Tónleikar kvartettsins fara fram á morgun,
laugardag, kl. 17.00 í Listaháskóla Íslands.
Nútímasaxófónleikur frá Svíþjóð
Stokkhólm-saxófónkvartett leikur á tónlistarhátíðinni Norrænum músíkdögum á morgun
Saxófónn Meðlimir Stokkhólm-saxófónkvartetts segja Norræna músíkdaga mikilvæga til að
bæta tengslanet tónlistarmanna og sjá hvað er að gerast í tónlistarheimi nágrannalandanna.
Outlander 4X4
Öflug tveggja lítra 136 hestafla vél
Staðalbúnaður:
• Sítengt aldrif
• Álfelgur
• Vindskeið
• Þakbogar
• Skyggðar rúður
• ABS hemlalæsivörn
• Mikil veghæð, 19,5 cm
26.116 kr. á mánuði
2.495.000 kr.
Flottur sportjeppi
á frábæru verði
Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 · HEKLA, Borgarnesi, sími 437 2100 · HEKLA, Ísafirði, sími 456 4666
HEKLA, Reyðarfirði, sími 470 5100 · HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 · HEKLA, Selfossi, sími 482 1416
HEKLA, Laugavegi 174, sími 590 5000
www.hekla.is, hekla@hekla.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Miðað við 30% útborgun og gengistryggðan bílasamning SP til 84 mánaða.