Morgunblaðið - 12.10.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 277. TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
SMÁRALIND
ER 5 ÁRA
OPIÐ
TIL KL 21
KVÖLD
FRÁ ENGU EHF.
STJÓRNARFORMAÐURINN BARÐI JÓHANNS-
SON BYGGIR EKKI SKÝJABORGIR >> 20
LOSTÆTI
RÓMANTÍKIN Í
SLÁTURGERÐINNI
FITA FYRIR HEILA >> 28
Eftir Skapta Hallgrímsson
í Washington
GEIR H. Haarde forsætisráð-
herra og Valgerður Sverrisdóttir
utanríkisráðherra undirrituðu í
gær samkomulag Íslands og
Bandaríkjanna um varnarmál
ásamt Condoleezzu Rice, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, við há-
tíðlega athöfn í utanríkisráðuneyt-
inu í Washington. Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra var
viðstaddur. Þá hittu íslensku ráð-
herrarnir þrír varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, Donald
Rumsfeld, í Pentagon. Áður en
samkomulagið var undirritað
sagði Rice að með því væru þjóð-
irnar að aðlagast nýjum veruleika
með breytingu á sambandi sínu,
„öryggissamkomulagi sem hefur
verið okkur mjög mikilvægt“. Hún
sagði breytingarnar ekki tákna
skerðingu á öryggi Íslands.
Tryggt væri að Íslendingar
myndu hafa bestu mögulegu varn-
ir, óháð því hvaða ógnir kynnu að
koma fram, hvort sem það væru
glæpir eða hryðjuverk, náttúru-
hamfarir eða önnur vandamál.
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra sagði að viðræður þjóðanna
hefðu verið langar og strangar en
hann teldi niðurstöðuna viðunandi
og hún yrði báðum þjóðum til góðs
um ókomin ár.
Geir sagði við Morgunblaðið eft-
ir athöfnina að Rice hefði undir-
strikað, eins og reyndar aðrir
framámenn sem íslensku ráðherr-
arnir hafa hitt að máli í Wash-
ington, að Bandaríkjamenn
myndu leggja áherslu á að fylgja
eftir ákvæðum um áframhaldandi
viðræður þjóðanna og nefndi
reglubundnar viðræðar um æfingar
og samstarf lögreglu og landhelgis-
gæslunnar á Íslandi við samsvarandi
stofnanir í Bandaríkjunum. „Þetta
eru hlutir sem verður að byrja að
vinna í strax. Undirskriftin er mikill
áfangi en síðan þarf að fylgja þessu
öllu eftir og hér hafa menn lagt
áherslu á að greiður aðgangur verði
að réttum aðilum hér fyrir vestan í
framhaldinu.“
Rice til Íslands
Condoleezza Rice upplýsti við
undirritunina í gær að sér hefði verið
boðið í opinbera heimsókn til Íslands
og reiknaði með að koma sem fyrst,
en ekki lægi fyrir hvenær af því gæti
orðið.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Samkomulag Valgerður Sverrisdóttir, Geir Haarde, Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og Björn Bjarnason í Washington í gær.
Samningur um varnir
Íslands undirritaður
Rice segir samkomulagið ekki verða til þess að öryggi Íslands skerðist
Í HNOTSKURN
»Forsætisráðherra sagðieftir að varnarsamning-
urinn var undirritaður að
viðræður um hann hefðu
verið langar en niðurstaðan
væri viðunandi.
»UtanríkisráðherraBandaríkjanna sagði að
Íslendingar myndu hafa
bestu mögulegu varnir,
óháð því hvaða ógnir kynnu
að koma fram.
Rice segir | Miðopna
Washington. AFP. | Kommúnistastjórn-
in í Norður-Kóreu lýsti því yfir í gær,
að litið yrði á harðar refsiaðgerðir af
hálfu öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna sem „stríðsyfirlýsingu“, jafn-
framt því sem hún hótaði að gera
frekari tilraunir með kjarnavopn léti
Bandaríkjastjórn ekki af þrýstingi
sínum á að gripið yrði til refsiaðgerða.
Á sama tíma varaði George W.
Bush Bandaríkjaforseti norður-kór-
esk stjórnvöld við því, að tilraunir
landsins með kjarnavopn væru ógn
við friðinn sem myndi hafa „alvarleg-
ar afleiðingar“. Bush forseti tók hins
vegar fram, að Bandaríkjastjórn
myndi leggja áherslu á að leysa deil-
una við samningaborðið fremur en að
beita hervaldi gegn Norður-Kóreu.
Enn er eftir að staðfesta að Norð-
ur-Kórea hafi í raun gert tilraun með
kjarnavopn aðfaranótt mánudags en
grunur um sprengingu í fyrrinótt
reyndist ekki á rökum reistur.
Sammála um nauðsyn aðgerða
Engu að síður hafa yfirlýsingar
stjórnarinnar í Pyongyang um til-
raunirnar valdið spennu og hafa Jap-
anar þegar bannað innflutning á vör-
um frá Norður-Kóreu. Þá sagði John
Bolton, sendiherra Bandaríkjanna
hjá Sameinuðu þjóðunum, að banda-
rísk stjórnvöld myndu leggja fram
drög að nýrri ályktun um N-Kóreu í
öryggisráðinu í dag sem vonir stæðu
til að yrði samþykkt í dag eða á morg-
un.
Í yfirlýsingu frá Kim Jong-Il, leið-
toga N-Kóreu, sagði hins vegar, að
refsiaðgerðir myndu koma í veg fyrir
að stjórn hans gæti snúið aftur að
samningaborðinu.
Hóta frekari tilraunum
Kim er tamt að tefla | 18
New York. AFP. | Að minnsta kosti tveir fór-
ust þegar eins hreyfils flugvél var flogið á
íbúðarhús á austurhluta Manhattan í New
York í gær. Ekkert bendir til að um hryðju-
verk hafi verið að ræða en orrustuþotur
voru sendar á loft yfir nokkrum bandarísk-
um borgum þegar fregnir bárust af slysinu.
Seint í gærkvöldi fullyrtu bandarískir
fjölmiðlar, að íþróttastjarnan Cory Lidle,
sem var kastari í New York Yankees-hafna-
boltaliðinu, hefði verið flugmaður vélarinn-
ar. Leikur grunur á, að bilun hafi orðið í
eldsneytiskerfi hennar.
AP
Reykur Eldur logaði í nokkrum íbúðum
háhýsisins eftir áreksturinn í gær.
Flugslys á
Manhattan
Genf. AFP. | Jan Egeland, sem samhæfir
hjálparstarf Sameinuðu þjóðanna, sagði í
gær mikla skelfingu ríkja í Írak, ofbeldið
og hefndarárásirnar færu stigvaxandi, nú
þegar 100 Írakar létu lífið og yfir 1.000
flýðu heimili sín dag hvern.
„Átök trúarhópa og hernaðaraðgerðir
hafa leitt til þess, að 315.000 manns hafa
yfirgefið heimili sín á síðustu átta mán-
uðum,“ sagði Egeland í gær.
Að hans sögn eru fórnarlömbin einkum
lögreglumenn, dómarar, lögfræðingar,
blaðamenn og konur, sem láta lífið í svo-
kölluðum „heiðursmorðum“, en 1,2 til 1,5
milljónir íraskra flóttamanna hafist nú við
í öðrum ríkjum.
Á sama tíma birti læknaritið Lancet
rannsókn, þar sem komist er að þeirri nið-
urstöðu að 650.000 manns hafi týnt lífi í
Írak frá því að innrás var gerð í landið í
marsmánuði 2003. | 18
Segir ástandið í
Írak skelfilegt