Morgunblaðið - 12.10.2006, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 29
sum þeirra hlakka til að fá nýtt
slátur á haustin. Kannski leggjum
við þessa sláturgerð af þegar
börnin verða farin að heiman.“
Sláturgerðin er vel skipulögð
og greinilegt á handtökunum að
þarna er vant fólk á ferðinni. Þau
segja enga sérstaka verkaskipt-
ingu viðhafða, allir hafi einhvern
tímann gert öll verkin. Skyndi-
lega skellur á stjórnarkreppa eitt
augnablik með tilheyrandi hróp-
um og köllum en á því er tekið
með fimlegum fíflagangi og allt
fellur í ljúfa löð eftir gott hláturs-
kast.
Sviðahausaveisla
Þau segjast vera íhaldssöm í
sláturgerðinni og nota alltaf sömu
uppskriftina sem er frá Ingi-
björgu móður Kristínar Þóru.
„Við prófuðum einu sinni að
daðra við nýjung og settum hvít-
lauk í lifrarpylsuna en krökk-
unum fannst það ekki gott svo við
höldum okkur við þessa gömlu
góðu, hún stendur fyrir sínu. Við
höfum ekki dregið úr mörnum
eins og margir virðast gera vegna
mikils ótta við dýrafitu. Við vitum
sem er að heilinn í börnum þrosk-
ast ekki nema þau fái fitu. Auk
þess er áríðandi að viðhalda
mýktinni hjá okkur fullorðna fólk-
inu.“
Sláturgerð er mikil búbót, enda
er heimagert slátur ódýr matur.
„Annar innmatur og sviðin eru
líka herramannsmatur og við
bjóðum ættingjum til sviðahausa-
veislu á hverju hausti. Svo er
þetta allt saman óskaplega hollt
og lífrænt, því ekki eru eiturefni
eða viðbætt aukaefni í lömbunum
sem koma af fjallinu.“
Allt vill lagið hafa Fyrst er mör, blóði, mjöli og öðru tilheyrandi blandað saman í bala, síðan fyllt á keppina, saumað fyrir og þeir loks frystir eða soðnir.
Áratugareynsla Jón Júlíus segir reynsluna skapa réttu tilfinninguna fyrir
því magni sem fara skal í hvern kepp af blóðmör.
NÚ þegar hausta tekur og lands-
menn verða áþreifanlega varir við
myrkrið ætlar Rafsól að efna til
svokallaðra perudaga, sem standa
munu út mánuðinn. Verslunin býð-
ur þá viðskiptavinum sínum aðstoð
við val á réttum ljósaperum og
verða allar perur seldar á sér-
stökum afslætti. Boðið verður upp á
ráðgjöf varðandi orkusparnað í
inni- og útiljósum svo og varðandi
alla almenna lýsingu á heimilum.
Oft vill það brenna við að keyptar
eru rangar perur. Algengast er að
styrkleiki perunnar sé ekki réttur,
annaðhvort of mikill fyrir ljósið eða
of lítill og lýsingunni er því ábóta-
vant. Einnig kemur það fyrir að
fólk velur skrúfugang á peruna
sem passar ekki fyrir ljósið og ekki
er alltaf vitað um lengdir flúorper-
unnar. Verslunin Rafsól er til húsa í
Skipholti 33.
Perudagar
Blóðmör
(dugar fyrir fimm slátur, eða 25
keppi)
2 l blóð
½ l vatn
2 msk. salt
1 tsk. pipar
1 tsk. timjan
3 bollar rúgmjöl
3 bollar heilhveiti
5 bollar haframjöl
3 bollar rúsínur
1–1,25 kg mör
Blóðið sigtað, vatn sett saman
við, síðan krydd og mjöl og mör
sett út í síðast. Hrært vel saman
með höndunum.
Slátur skal sjóða í 2–3 klst. við
hæga suðu. Best er að bera það
fram með nýjum kartöflum,
soðnum gulrófum og soðnum
gulrótum. Eftir að blóðmörinn
hefur verið soðinn, steikja sumir
hann í sneiðum á pönnu og sykra
jafnvel.
Lifrarpylsa
(dugar fyrir fimm slátur, eða 25
keppi)
2,5 kg lifur
10 nýru
3 matsk salt
1 matsk pipar
1 bolli sykur
1 ¾ l mjólk
1 bolli hveiti
2 bollar heilhveiti
1 bolli rúgmjöl
7–8 bollar haframjöl
1–1,25 kg mör
Lifur og nýru hakkað saman,
krydd, sykur og mjólk sett út í,
hrært saman, öllu mjöli bætt út í
og mörnum blandað saman við
að lokum.
Hollur hversdagsmatur
Við höfum ekki dreg-
ið úr mörnum eins og
margir virðast gera
vegna mikils ótta við
dýrafitu. Við vitum
sem er að heilinn í
börnum þroskast
ekki nema þau fái
fitu. Auk þess er
áríðandi að viðhalda
mýktinni hjá okkur
fullorðna fólkinu.