Morgunblaðið - 12.10.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.10.2006, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag Yf i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 34 Staksteinar 8 Umræðan 34/42 Veður 8 Bréf 42 Úr verinu 17 Minningar 43/47 Erlent 18/19 Staðurstund 50/56 Menning 20/21 Af listum 53 Höfuðborgin 22 Leikhús 54 Akureyri 22 Myndasögur 56 Austurland 23 Dægradvöl 57 Landið 23 Bíó 58/61 Daglegt líf 24/31 Dagbók 60/61 Forystugrein 30 Ljósvakamiðlar 62 * * * Innlent  Davíð Oddsson, fyrrverandi for- sætisráðherra, dregur í efa að sími Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrr- verandi utanríkisráðherra, hafi verið hleraður. Hann segir að símar for- sætis-, utanríkis- og dóms- málaráðherra hafi verið athugaðir reglulega með tilliti til mögulegra hlerana. » 4  Nefnd, sem falið var að móta framtíðarsýn um verndun og nýt- ingu auðlinda í jörðu og vatnsafls, leggur m.a. til að gjald verði tekið af auðlindunum og valið á milli um- sækjenda um nýtingu með upp- boðum. » 16  Samkomulag Íslands og Banda- ríkjanna um varnarmál var und- irritað í Washington í gær. Condo- leezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði við undirrit- unina að Ísland myndi njóta bestu mögulegu varna. Geir H. Haarde forsætisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra undirrituðu samninginn fyrir Ís- lands hönd. » Miðopna Erlent  Meira en 650.000 óbreyttir borg- arar hafa beðið bana af völdum stríðsátaka í Írak frá því að Banda- ríkjamenn og Bretar réðust inn í landið í mars 2003. Þetta er nið- urstaða rannsóknar sem íraskir læknar og bandarískir vísindamenn hafa gert og gerð er grein fyrir í nýjasta hefti læknaritsins Lancet. » 18  Að minnsta kosti tveir fórust þegar eins hreyfils flugvél var flogið á 20. hæð íbúðarhúss á austurhluta Manhattan í New York í gær. Ekk- ert bendir til að um hryðjuverk hafi verið að ræða en orrustuþotur voru sendar á loft yfir bandarískum borgum þegar fregnir bárust af slys- inu. » 1  Tólf manns fórust þegar farþega- lest og vöruflutningalest lentu í árekstri í þorpinu Zoufftgen í Frakklandi, um 1,6 km frá landa- mærunum að Lúxemborg. Far- þegalestin var að koma frá Lúx- emborg og var á leið til borgarinnar Nancy þegar hún mætti flutn- ingalestinni. » 19  Kommúnistastjórnin í Norður- Kóreu lýsti því yfir í gær, að litið yrði á harðar refsiaðgerðir af hálfu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem „stríðsyfirlýsingu“, jafnframt því sem hún hótaði að gera frekari tilraunir með kjarnavopn léti Banda- ríkjastjórn ekki af þrýstingi sínum á að gripið yrði til refsiaðgerða. George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði tilraunirnar hins vegar ógn við heimsfriðinn. » 1 Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær rúmlega hálfsextugan karlmann, Jón Pétursson, í fimm ára fangelsi fyrir ítrekaðar nauðganir og hrottalegar líkamsárásir gegn fyrr- verandi unnustu sinni auk frekari líkamsárása gegn annarri konu sem var sambýliskona hans um tíma. Er þetta með allra þyngstu dómum sem kveðnir hafa verið upp í nauðgunar- málum hérlendis. Brotin voru framin sumarið 2005 og í febrúar á þessu ári. Ákærði var dæmdur til að greiða konunum tvær milljónir króna í miskabætur og um 1,5 milljónir króna í annan sakarkostnað. Dómurinn taldi brot ákærða gegn konunum sérlega hrottafengin og hefði hann farið fram gegn þeim í krafti líkamsburða sinna. Árásirnar voru algerlega tilefnislausar að mati dómsins sem tiltók sérstaklega að ákærði hefði misnotað aðstöðu sína gegn konunum og að þær hefðu verið honum háðar, þó einkum önnur þeirra. Nýtti ákærði sér það gróf- lega hversu hún var honum háð, að vandamenn hennar voru erlendis og hún sjálf ótalandi á íslensku. Árásir hans gegn henni þóttu sérstaklega svívirðilegar þar sem þær voru liður í því að kúga hana og undiroka. Var hann sakfelldur af ákæru fyrir að hafa slegið hana margoft víðsvegar um líkamann og sparkað í hana á heimili þeirra aðfaranótt 26. júlí. Síð- ar um sumarið ruddist hann í heim- ildarleysi heim til hennar og kýldi hana margsinnis í andlit og líkama og sparkaði í hana. Viðbárur ákærða fráleitar Ofbeldi hans gegn seinni konunni sem framið var í febrúar var lang- vinnt en hann hélt henni nauðugri í íbúð sinni svo klukkustundum skipti og nauðgaði henni í þrígang. Dóm- urinn taldi fráleitar þær viðbárur mannsins að ítrekað samræði við konuna hefði farið fram með sam- þykki hennar. Sannað var að hann hefði ráðist á hana, rifið í hár hennar, slegið andliti hennar í gólfið og dreg- ið hana á hárinu inn í svefnherbergi þar sem hann barði hana ítrekað í höfuðið, sparkaði í hana, reif úr föt- um og nauðgaði. Í næstu hrinu dró hann konuna aftur inn í svefnher- bergi og nauðgaði og í síðustu hrin- unni dró hann hana enn inn í svefn- herbergi þar sem hann þuklaði líkama hennar og þegar hún grátbað hann um að hætta reif hann í hana og nauðgaði henni. Í dómi segir að hin grófu brot mannsins gegn konunum báðum hafi haft miklar sállíkamlegar afleiðingar í för með sér og ætti hann sér engar málsbætur. Fyrri konunni var ákærði dæmdur til að greiða 800 þúsund krónur í miskabætur. Seinni konunni voru dæmdar 1.200 þúsund krónur í miskabætur. Málið dæmdu héraðsdómararnir Pétur Guðgeirsson dómsformaður, Helgi I. Jónsson og Ingveldur Ein- arsdóttir. Verjandi var Hilmar Ingi- mundarson hrl. og sækjandi Sigríður Elsa Kjartansdóttir, saksóknari hjá ríkissaksóknara. 5 ára fangelsi fyrir margar nauðganir Einn allra þyngsti dómur sem fallið hefur í nauðgunarmáli „ÞAÐ er mér mikil ánægja að vera kominn hingað aftur tuttugu árum eftir fund, sem markar, að mínu viti, mikil tímamót í samtímasögu þessa mikilfenglega lands ykkar,“ sagði Mikhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi leið- togi Sovétríkjanna, við komuna til landsins í gær. Hann heldur fyrirlest- ur í Háskólabíói í dag til þess að minnast þess að 20 ár eru liðin síðan leiðtogafundur hans og Ronalds Reagans, þáverandi Bandaríkjafor- seta, fór fram í Höfða. Aðspurður sagði Gorbatsjov fund- inn á sínum tíma hafa haft gríðarlega mikla þýðingu. „Við þurftum að leysa heiminn úr viðjum kjarnorkukapp- hlaupsins,“ sagði Gorbatsjov og rifj- aði upp að að fundi loknum hefði George Schultz lýst því yfir að fund- urinn hefði verið misheppnaður sök- um þess að ekki hefði tekist að ná samkomulagi um afvopnun, en sjálf- ur hefði hann talið fundinn marka mikilvæg þáttaskil þar sem hann sýndi að leiðtogum Sovétríkjanna og Bandaríkjanna var alvara í ósk sinni um afvopnun. Að mati Gorbatsjovs hafði upplausn Sovétríkjanna þau áhrif á ráðamenn Bandaríkjanna að þeir ofmetnuðust. „Þannig hefur mál- um verið háttað um langa hríð, hins vegar sé ég ákveðin merki þess að sí- fellt fleiri eru að átta sig á því að ekki sé farsælt að eitt land ráði lögum og lofum í heiminum,“ sagði Gorbatsjov og tók fram að hann sæi þess æ fleiri merki að Bandaríkjamenn óskuðu sjálfir ekki lengur eftir því að gegna hlutverki alheimslögreglu. Gorbatsjov var að lokum inntur eftir viðbrögðum við morðinu á Önnu Politkovskayu, blaðakonu á Novaya Gazeta, sem Gorbatsjov er einn eig- enda að. Sagðist hann harma dauða hennar, enda væri um að ræða mik- inn missi þar sem hún hefði verið einn besti penni blaðsins. Sagðist hann hafa miklar áhyggjur af stöðu frjálsra fjölmiðla í heimalandi sínu. Morgunblaðið/Sverrir Afmæli Mikhaíl Gorbatsjov við komuna til landsins í gær. Hann flaug með einkavél Björgólfs Thors Björgólfs- sonar, forstjóra Novator. Hér sést hann heilsa Jóni Kristni Snæhólm, aðstoðarmanni borgarstjóra Reykjavíkur. Leiðtogafundurinn árið 1986 markaði þáttaskil Gorbatsjov minnist 20 ára afmælis fundarins hérlendis Í HNOTSKURN »Fundur Gorbatsjovs ogReagans í Höfða árið 1986 leiddi til þess að þeir undirrit- uðu gagnkvæmt afvopn- unarsamkomulag árið 1987. »Gorbatsjov hlaut frið-arverðlaun Nóbels árið 1990.                                  ! " # $ %            &         '() * +,,,                         fimmtudagur 12. 10. 2006 íþróttir mbl.is íþróttir Blikastúlkur í Evrópuleik gegn Arsenal í Kópavogi » 4 SÁRT TAP FYRIR SVÍUM „ÁN EFA BESTI LEIKUR LIÐSINS UNDIR MINNI STJÓRN,“ SEGIR EYJÓLFUR SVERRISSON Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is Eyjólfur sagði að vonbrigðin hefðu ekki leynt sér í búningsklefanum eftir leikinn. Þjálfarinn hrósaði sínu liði og taldi að réttlætinu hefði ekki verið fullnægt. „Sænska liðið lék alls ekki illa. Þeir eru einfald- lega í öðrum gæðaflokki en við eins t ð í d Við t þ í sér í leiknum. Höfðu heppnina með sér og svona er fótboltinn.“ Hvernig leið þér þegar Kim Kallström jafnaði leikinn úr auka- spyrnunni – mínútu eftir að Arnar Viðarsson hafði komið Íslandi í 1:0? „Mér leið alveg hræðilega.“ Fannst þér að liðið hefði getað gert betur í því tilviki? „Já. Kannski hefðum við átt að setja fleiri en einn leikmann í varn- arvegginn. Tilhlaupið hjá Kallst- röm gaf til kynna að hann ætlaði sér ekkert annað en að skjóta.“ Eyjólfur taldi að flest það sem hann lagði áherslu á fyrir leikinn á æfingum liðsins hefði gengið eftir. „Við ætlum að bera höfuðið hátt eftir þennan leik og byggja á því f i f tíði Liðið lék i lenska liðinu fyrr en hann gerði – þegar hann setti Marel Baldvins- son inn á og færði Eið Smára Guð- j h ft á ölli leikjunum, þrjú stig, meira eða minna en þú áttir von á áður en keppnin hófst? É ð l ið ð á þ í liðinu er ekki nógu mikill. Við er- um að vinna í því og þessi leikur var virkilega gott skref í þá átt.“ Íslendingar búast alltaf við miklu af Eiði Smára Guðjohnsen. Fannst þér hann leika undir getu? „Eiður var einfaldlega mjög þreyttur í leiknum. Hann hefur ekki leikið marga leiki í röð með sínu félagsliði og það kom niður á honum í þessum leik. Það virtist allt vera erfitt fyrir hann en með betri leikæfingu verður þetta ekk- ert vandamál hjá Eiði Smára.“ Þjálfarinn hrósaði Kristjáni Erni Sigurðssyni sérstaklega fyrir sitt framlag. „Kristján átti stórglæsilegan leik. Það er mjög jákvætt fyrir okkar lið að hann skuli koma svona t k i í þ tt á ý Þ ð Án efa besti leikur liðsins Ég er að sjálfsögðu ekki sáttur við úrslitin. Þetta var án efa besti leik- ur liðsins undir minni stjórn. Þjálf- ari sænska liðsins baðst afsökunar eftir leikinn á að hans lið hefði „stolið“ sigrinum,“ sagði Eyjólfur Sverrisson, þjálfari íslenska lands- liðsins, eftir 2:1-tapið gegn Svíum á Laugardalsvelli í gær. ÞAÐ er alltaf erfitt að leika gegn Íslendingum hér í Reykjavík - liðið er vel skipulagt og baráttan er alltaf til staðar. Við sköpuðum okkur ekki mörg færi en nýttum þau sem við fengum. Það var erfitt að finna smugur á ís- lensku vörninni. Það eru ekki alltaf sanngjörn úrslit í knattspyrnu og við getum verið sáttir við að hafa fengið þrjú stig á útivelli gegn Íslendingum,“ sagði Lars Lag- erbäck þjálfari sænska landsliðsins við Morgunblaðið í gær. „Íslendingar hafa ekki haft heppnina með sér fram til þessa í riðlakeppninni en liðið er öflugt þegar það nær sér á strik,“ bætti hann við. Heppnin með okkur Myndatexti hér Morgunblaðið/ÞÖK Vonbrigði Eiður Smári Guðjohnsen fyrirliði íslenska landsliðsins leyndi ekki vonbrigðum sínum í leikslok eftir 2.1- tap liðsins gegn Svíum á Laugardalsvelli í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.