Morgunblaðið - 12.10.2006, Blaðsíða 56
56 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ELLEN, ÉG HEF
ÁKVEÐIÐ AÐ ÉG ÆTLA
ÚT AÐ BORÐA MEÐ ÞÉR
EF ÞÚ GRÁTBIÐUR
MIG
HAHAHA
HAHA
HAHAHAHA
HAHAHA
ÖFUGA
SÁLFRÆÐIN ER
EKKI AÐ VIRKA
ÞÚ SAGÐIR
ÞAÐ SIGMUND
TIL HVERS
ER ÞESSI LITLA
VINDMILLA?
HÚN Á AÐ LOSA
OKKUR VIÐ SKORDÝR
ÞEGAR VINDURINN BLÆS
ÞÁ SNÝST HÚN OG FÆR
JÖRÐINA TIL ÞESS AÐ TITRA
MÍN HLIÐ AF SKÓGINUM
ER GRÓÐRI VAXIN
OG FALLEG...
ÞÍN HLIÐ ER FULL
AF RUSLI. ÞÍN
HLIÐ ER MIKLU
LJÓTARI EN MÍN
EN ÞÍN HLIÐ
ER MINNI
KONAN MÍN MÍN SAGÐI
AÐ ÉG MÆTTI EKKI LENGUR
FARA MEÐ HEIMSKU VINUM
MÍNUM Á BARINN
ÞANNIG
AÐ ÉG VARÐ
AÐ STÍGA
NIÐUR
FÆTINUM
OG HVAÐ
GERÐI
HÚN?
HÚN STEIG
BARA Á FÓTINN
Á MÉR!
HVERNIG GET ÉG
FARIÐ ÚT Í
ALMENNINGSGARÐ
MEÐ EYRUN Á
MÉR LÍMD?
ÞETTA ER EKKERT
MÁL, ÞÚ SETUR BARA
BÓMULL Á EYRUN
HVAÐ Á ÉG
EIGINLEGA AÐ
VERA?
PARTÝDÝR
MÉR FINNST ÞAÐ
MIKILVÆGT AÐ KIDDA LÆRI AÐ
ÚTLITIÐ ER EKKI ÞAÐ SEM SKIPTIR
MÁLI Í FARI KVENNA...
ÞESS VEGNA
FÓR ÉG Á
BÓKASAFNIÐ OG
NÁÐI Í BÓK UM FRÆGAR
KONUR Í SÖGUNNI
NÆSTA KONA ER BRÍET
BJARNHÉÐINSDÓTTIR
ÞAÐ ER EINS
GOTT AÐ ÉG
LÍT EKKI ÚT
EINS OG HÚN
FRAMLEIÐANDINN
VILL AÐ KÓNGULÓAR-
MAÐURINN SÉ Í
MYNDVERINU Í DAG
FARÐU
VARLEGA
PETER
ÞÚ VEIST HVAÐ
NASHYRNINGURINN
ER HÆTTULEGUR
OG ÞAÐ SEM VERRA ER
AÐ ÉG ER VISS UM AÐ HANN
VILJI DREPA MIG
Heilablóðfall – algengi,greining og meðferð erheiti námskeiðs semkennt verður hjá Endur-
menntunarstofnun Háskóla Íslands í
haust.
Umsjónarmenn námskeiðsins eru
læknarnir Sigurlaug Sveinbjörns-
dóttir og Einar Valdimarsson en þau
eru bæði sérfræðingar í heila- og
taugasjúkdómum.
„Námskeiðið er einkum ætlað
heilbrigðisstarfsmönnum sem koma
nálægt meðferð og ummönnun heila-
blóðfallssjúklinga,“ útskýrir Sig-
urlaug en námskeiðið var áður hald-
ið árið 2002. „Margar starfsstéttir
taka þátt í umönnun heilablóðfalls-
sjúklinga og mikilvægt að halda
námskeið með reglulegu millibili þar
sem frætt er um nýjustu aðferðir í
greiningu og meðferð heilablóð-
falls.“
Árlega fá um 700 einstaklingar á
Íslandi einkenni heilablóðfalls eða
tímabundinnar blóðþurrðar í heila:
„Heilablóðfall getur leitt til mismik-
illar fötlunar og er mikilvægt að
greina ástæður blóðfallsins og
bregðast rétt við til að sjúklingurinn
fái sem mestan og hraðastan bata,“
segir Sigurlaug.
Námskeiðið varir í heilan dag og
er dagskráin tvískipt: fyrir hádegi er
fjallað um læknisfræðileg atriði; or-
sakagreiningu og meðferð heilablóð-
falls á ýmsum stigum. Eftir hádegi
er einkum fjallað um umönnun,
þjálfun og bata.
Einar M. Valdimarsson heldur tvo
fyrirlestra: Sá fyrri er um orsaka-
greiningu heilablóðþurrðar en miklu
skiptir að greina orsök heilablóðfalls
rétt svo koma megi í veg fyrir að
blóðþurrð endurtaki sig. Seinni fyr-
irlestur Einars er um svokallaðar
heilablóðfalls-viðbragðseiningar
sem starfræktar eru við sjúkrahús
víða um heim. „Rannsóknir hafa ver-
ið gerðar undanfarin ár sem sýna að
best er að heilablóðfallssjúklingar
hljóti meðferð hjá sérstökum heila-
blóðfalls-teymum. Þannig má lækka
dánarhlutfall, og auka líkur á bata.“
Albert Páll Sigurðsson mun ræða
um bráðameðferð við slagi og Sig-
urlaug Sveinbjörnsdóttir um fyr-
irbyggjandi meðferð. Þá mun Ólafur
Kjartansson röntgenlæknir fjalla
um myndgreiningu við uppvinnslu
heiablóðfalls.
Eftir hádegishlé ræðir Marianne
E. Klinke um reynslu hjúkr-
unarfræðinga af vinnu með heila-
blóðfallssjúklingum. Margrét Magn-
úsdóttir fjallar um sjúkraþjálfun
heilablóðfallssjúklinga og Lillý
Sverrisdóttir um iðjuþjálfun þeirra.
Sigríður Magnúsdóttir talmeina-
fræðingur heldur erindið „Tjáning
og geta til þess að nærast“, Sólveig
Jónsdóttir fjallar um mat og ráðgjöf
taugasálfræðinga og Sigríður Guð-
mundsdóttir mun fjalla um hlutverk
félagsráðgjafa. Loks mun heilablóð-
fallssjúklingur segja frá reynslu
sinni af móttöku og meðferð á Land-
spítala.
Námskeiðið Heilablóðfall – al-
gengi, greining og meðferð verður
haldið 6. nóvember, frá 8 til 16.
Skráning og frekari upplýsingar eru
hjá Endurmenntunarstofnun Há-
skóla Íslands á vefsíðunni www.end-
urmenntun.is
Heilsa | Námskeið fyrir heilbrigðisstarfs-
menn hjá Endurmenntun HÍ í nóvember
Meðferð og grein-
ing heilablóðfalls
Sigurlaug
Sveinbjörns-
dóttir fæddist í
Reykjavík 1955.
Hún lauk stúd-
entsprófi frá MR
1975, Cand.Med.
gráðu frá HÍ
1981 og stundaði
framhaldsnám í
meðferð heila- og taugasjúkdóma í
Kaupmannahöfn og Lundúnum.
Sigurlaug hefur starfað við Land-
spítala, síðar LSH, síðan 1993. Hún
er nú yfirlæknir á skrifstofu
kennslu, vísinda og þróunar og sér-
fræðingur við taugasjúkdómadeild.
Sigurlaug á einn son.
Leikarinn oghjartaknús-
arinn George
Clooney segist
ekki geta boðið
sig fram til for-
seta Bandaríkj-
anna þar sem
hann hafi stundað
of mikið kynlíf
um ævina. Clooney segist hafa sofið
hjá alltof mörgum konum til að geta
boðið sig fram til embættisins.
„Ég hef mikinn áhuga á stjórn-
málum en ef ég stefndi að því að
bjóða mig fram til forseta kæmu
nokkrar bitastæðar sögur upp úr
kafinu,“ segir Clooney. ,,Ég hef líka
neytt of mikilla eiturlyfja og farið í
of mörg villt partí.“ Fleiri Holly-
wood-leikarar hafa lýst því yfir að
þeir muni ekki bjóða sig fram til for-
seta, þar af Robin Williams sem við-
urkenndi fyrir skömmu að hafa farið
í meðferð við áfengissýki. Williams
sagði orðrétt: ,,Ég gæti ekki boðið
mig fram til forseta, Bill Clinton er
Amish-maður í samanburði við mig.“
Williams telur þó að leikarinn
Jack Nicholson eigi að reyna fyrir
sér í stjórnmálum þar sem hann eigi
auðvelt með að tjá sig um fortíð sína.
,,Jack myndi segja: ,,Kynlífs-
hneyksli? Hvað viltu fá að vita? Ég
hef reynt allt. Tvisvar. Og ég á það á
myndbandi!“ sagði Williams og líkti
eftir Nicholson af alþekktri snilld.
BangShowbiz slúðurfréttaveitan
segir frá þessu.
Fólk folk@mbl.is
Bandaríska leikkonan EllenBarkin seldi skartgripi fyrir
rúmar 20 milljónir dollara á uppboði
í fyrradag, tæpa 1,4 milljarða króna,
en þá fékk hún að gjöf frá fyrrver-
andi eiginmanni sínum, millj-
ónamæringnum Ron Perelman.
Barkin og Perelman skildu fyrr á
árinu og sagði Barkin þá að hún ætl-
aði að losa sig við glingrið. Christiés
uppboðshúsið í New York bauð upp
skartgripina og voru þar m.a. 108
demantshringar, hálsmen og gripir
frá þekktum skartgripasölum á við
Bulgari og Tiffany.
Hæst verð fékkst fyrir skartgripi
frá merkinu JAR, Joel Arthur Ro-
senthal, 22,76 karata demants-
hringur seldist fyrir litlar 1,8 millj-
ónir dollara, tæpar 124 milljónir
króna. Einstaklingur hefur ekki
hagnast eins vel af sölu skart-
gripasafns síns seinustu 15 ár í
Bandaríkjunum.
Perelman, sem er 40. ríkasti mað-
ur Bandaríkjanna, keypti snyrti-
vörufyrirtækið Revlon á 9. áratugn-
um. Auður hans er metinn á sjö
milljarða dollara, um 480 milljarða
íslenskra króna.