Morgunblaðið - 12.10.2006, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
FLEST fólk sem glímir við alvar-
lega geðsjúkdóma á borð við geð-
klofa getur náð bata en venjulega
er ekki mikið um þessa staðreynd
fjallað, að sögn franska sálfræð-
ingsins Alains Topors, sem kemur
hingað til lands í dag á vegum Geð-
hjálpar.
Topor mun á morgun og á laug-
ardag halda fyrirlestra þar sem
hann fjallar meðal annars um hvað
sé bati við alvarlegum geðrösk-
unum, hversu algengt sé að fólk nái
bata og hvað virki í bataferli. Topor,
sem starfar í Svíþjóð, stýrir um
þessar mundir rannsóknar- og þró-
unarteymi í Stokkhólmi sem vinnur
að langtímarannsókn á ein-
staklingum sem greinst hafa með
geðrof.
Sjúklingar beita ýmsum
aðferðum til að ná bata
Topor segir mikilvægt að reyna
að svara þeirri spurningu hvernig
hægt sé að hjálpa fólki sem greinst
hefur með alvarlegar geðraskanir
til þess að ná bata. Hann segir að
sjúklingarnir geti sjálfir hafi áhrif á
og fólk beiti mismunandi leiðum til
að reyna að ná bata. Til að reyna að
draga úr sjúkdómseinkennum
stunda sumir félagsstörf. „Slíkt
kann að verða til þess að raddir
sem þetta fólk kann að heyra innra
með sér trufla það minna en ella,“
segir Topor. Aðrir dragi sig hins
vegar í hlé vegna þess að þeim
finnist sjúkdómseinkenni ágerast
þegar þeir eru í félagsskap annarra.
Enn öðrum reynist vel að stunda
útivist, skrifa ljóð eða reyna með
öðrum hætti að tjá tilfinningar sín-
ar.
Topor segir afar mikilvægt að
hlutverk sjúklingsins sjálfs í eigin
bataferli sé viðurkennt. Það sé ekki
hægt að lækna fólk með lyfjum eða
annarri tækni. Slíkt geti hjálpað en
ekki veitt varanlega lausn.
Fjölskyldan mikilvæg
fyrir þá sem eru veikir
Þá segir hann að fjölskyldur geð-
sjúkra geti reynst mikilvægur hluti
af bataferli hinna sjúku. Með því að
leggja til húsaskjól, mat eða pen-
inga eða hreinlega vera til staðar
fyrir hinn veika geti þær hjálpað
viðkomandi. „Stundum, þegar hin-
um veika líður ekki vel, er afar mik-
ilvægt að einhver sé til staðar sem
sýnir væntumþykju,“ segir Topor.
Hann segir að það hafi einnig
reynst sumum sem glíma við geð-
sjúkdóma vel að eiga gæludýr.
Rannsóknir sem hann hafi tekið
þátt í hafi sýnt að gæludýraeign
geti hjálpað með ýmsum hætti. „Við
komumst að þessu í rannsóknum
okkar. Við tókum löng viðtöl við
fólk og í ljós kom að sumum fannst
það hjálpa sér að eiga gæludýr,“
segir hann. Gæludýrin séu háð eig-
endum sínum og það kunni að
hjálpa sjúklingum sem eru vanir því
að þurfa mikið að treysta á aðra að
hugsa um dýrin.
Topor kveðst þeirrar skoðunar að
margar þeirra stofnana sem fólk
með alvarlegar geðraskanir leitar
til hjálpi því ekki að ná bata. „Fólk
þarf að fá það á tilfinninguna að það
geti sjálft breytt lífi sínu og verið
virkir þátttakendur í því,“ segi
hann. Sjúklingar sem dveljist á lok-
uðum stofnunum venjist því að aðr-
ir geri hlutina fyrir það. Þar sé
einnig mörgum sjúklinganna tjáð að
þeir glími við sjúkdóm sem muni
fylgja þeim ævilangt og að þeir
muni þurfa að taka lyf það sem eftir
er ævinnar. „En þetta er ekki rétt,“
segir Topor. Mikill meirihluti sjúk-
linganna geti náð bata og margir
þeirra muni ekki þurfa að taka lyf
alla ævi. „Það er mikilvægt að vekja
vonir hjá þessu fólki um að það geti
komist yfir sjúkdóminn. Ef fólki er
tjáð að það sé haldið sjúkdómi sem
vari ævilangt, að það muni þurfa á
lyfjum að halda alla ævi og geti ekki
eignast fjölskyldu, lifað kynlífi,
stundað nám eða búið í eigin hús-
næði er ekki verið að hjálpa því,“
segir Topor. Slík skilaboð geti orðið
til þess að fólk missi vonina þótt
sumum takist að ná sér á strik að
nýju. Topor bendir á að það sem
skipti máli sé hið góða í lífinu. Allir
vilji geta notið þess sem lífið hefur
upp á að bjóða og því sé það slæmt
þegar vonir fólks um að geta notið
lífsins séu að engu gerðar.
Fyrrum sjúklingar vinna með
þeim sem glíma við veikindi
Topor segir þá þróun hafa orðið í
Skandínavíu undanfarin ár að fólk
sem glími við alvarlegar geðrask-
anir stígi í auknum mæli fram á
sjónarsviðið og lýsi bata sínum, en
þetta sé af hinu góða. Á vinnustað
sínum sé núorðið ráðið fólk til
starfa sem áður hafi glímt við alvar-
legar geðraskanir. Þetta sýni þeim
sem enn eru veikir fram á að þrátt
fyrir sjúkdóminn geti þeir átt
möguleika á bata.
Spurður hversu margir sem
veikjast af geðsjúkdómum geti náð
bata segir Topor að það hafi verið
rannsakað mikið. Rannsóknir á
fólki sem greinst hafi með geðklofa
sýni að á bilinu 50–66% þess nái
bata.
Flestir með geðrask-
anir geta náð bata
Heldur fyrirlestra Alain Topor.
Sjúklingar geta sjálfir haft mikil áhrif á bataferli sitt
Í HNOTSKURN
»Alain Topor tók virkanþátt í afstofnanavæðingu
geðheilbrigðiskerfisins í Sví-
þjóð.
»Hann hefur skrifað fjöl-margar bækur um félags-
sálfræði og bataleiðir fyrir
fólk með alvarlega geðsjúk-
dóma.
»Topor stýrir nú rann-sóknar- og þróunarteymi í
Stokkhólmi.
GUÐRÚN
Bjarnadóttir sál-
fræðingur býður
sig fram í 5.–6.
sæti á framboðs-
lista Samfylking-
arinnar í Suðvest-
urkjördæmi. Hún
hefur verið virk í
stjórnmálum frá
árinu 1974 og set-
ið í ýmsum nefnd-
um og ráðum hjá Hafnarfjarðarbæ,
m.a. sem varaformaður barnavernd-
arnefndar á síðasta kjörtímabili.
Í fréttatilkynningu segir að áhersla
Guðrúnar í stjórnmálum hafi jafnan
verið á mannsæmandi afkomu og að-
stæður fólks, einkum að öll börn alist
upp við skilyrði sem gefa þeim tæki-
færi til að blómstra. Guðrún hefur frá
árinu 2000 verið sálfræðingur á Mið-
stöð heilsuverndar barna en var lengi
sérkennari og talmeinafræðingur í
Hafnarfirði, Reykjavík og víðar. Á ár-
unum fyrir 2000 kenndi hún sálfræði
og uppeldisfræði í Menntaskólanum
við Hamrahlíð. Guðrún lauk doktors-
prófi í skólasálfræði frá Pennsylvania
State University.
Gefur kost á
sér í 5.–6. sæti
Guðrún
Bjarnadóttir
SVEINN Krist-
insson, bæjar-
fulltrúi á Akra-
nesi, gefur kost á
sér í 1. sæti á lista
Samfylkingarinn-
ar í Norðvestur-
kjördæmi.
Sveinn er kenn-
ari að mennt og
var skólastjóri á
Ströndum, á Snæfellsnesi og einnig
kennari í Dölum og á Akranesi. Hann
varð varabæjarfulltrúi á Akranesi
1990 en var kjörinn bæjarfulltrúi
1994. Síðustu tvö kjörtímabil gegndi
hann ýmist starfi formanns bæjarráðs
eða forseta bæjarstjórnar á Akranesi.
Hann hefur verið virkur þátttakandi í
félagsmálum og stjórnmálum frá
unga aldri og sinnt margvíslegum
verkefnum á þeim vettvangi.
Fyrir utan margvísleg trúnaðar-
störf fyrir bæjarstjórn Akraness hef-
ur Sveinn setið í stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur og einnig í stjórn Faxa-
flóahafna sem fulltrúi Akraneskaup-
staðar. Hann hefur einnig setið í ýms-
um nefndum á vegum Samtaka
sveitarfélaga.
Sveinn
gefur kost á
sér í 1. sætið
Sveinn Kristinsson
AUÐUR Lilja
Erlingsdóttir,
formaður Ungra
vinstri grænna,
hefur ákveðið að
gefa kost á sér í
forvali Vinstri-
hreyfingarinnar
– græns fram-
boðs í Reykjavík-
urkjördæmunum
og Suðvestur-
kjördæmi 2. desember nk. Auður
sækist eftir 2. sæti í forvalinu.
Auður Lilja hefur setið í stjórn
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs í Reykjavík og sat jafn-
framt í kosningastjórn VG fyrir síð-
ustu borgarstjórnarkosningar. Auk
starfa sinna fyrir VG hefur hún
starfað í Stúdentaráði, stjórn Stúd-
entaráðs og situr nú í stjórn Fé-
lagsstofnunar stúdenta.
Auður Lilja mun útskrifast með
meistaragráðu í opinberri stjórn-
sýslu frá Háskóla Íslands í lok
þessa mánaðar, en áður var hún út-
skrifuð sem stjórnmálafræðingur
frá sama skóla. Á næstunni opnar
Auður Lilja vefsíðu sína, www.aud-
urlilja.is.
Gefur kost á
sér í 2. sætið
Auður Lilja
Erlingsdóttir
LÁRA Stefáns-
dóttir á Akureyri
býður sig fram í 2.
sæti Samfylking-
arinnar í Norð-
austurkjördæmi.
Lára er fram-
kvæmdastjóri
Tölvuskólans
Þekkingar sem
starfar í Reykja-
vík og á Akureyri. Hún er nú 1. vara-
þingmaður flokksins í kjördæminu, í
stjórn Samfylkingarinnar á Akur-
eyri og hefur starfað í ýmsum nefnd-
um og ráðum á vegum flokksins.
Lára er kerfisfræðingur með
meistarapróf í menntunarfræðum.
Hún hefur starfað sem vinnumaður í
sveit, við skógrækt, fiskvinnslu og
innflutning á raflagnaefni.
Lengst hefur hún starfað í tölvu-
geiranum, fyrst í almennri tölvu-
þjónustu, þá forritun en síðar við
kennslu, fyrirlestra og ráðgjöf hér
heima og erlendis um notkun upplýs-
ingatækni í skólastarfi, sérstaklega
Netsins.
Auk þess hefur Lára starfað í nor-
rænum og íslenskum nefndum og
komið að gerð námsskráa í upplýs-
ingatækni fyrir skóla.
Gefur kost á
sér í 2. sætið
Lára Stefánsdóttir
♦♦♦ ♦♦♦
TILLÖGUR nefndar iðnaðarráðherra um
frestun útgáfu rannsóknarleyfa hafa lítil áhrif
á starfsemi orkufyrirtækjanna í nánustu fram-
tíð, að mati talsmanna þeirra.
Gjástykki stendur út af
Agnar Olsen, framkvæmdastjóri verkfræði-
og framkvæmdasviðs Landsvirkjunar, sat í
nefnd iðnaðarráðherra fyrir hönd Samorku.
Hann sagði að varðandi það sem væri á döfinni
hjá Landsvirkjun væri það kannski Gjástykki
sem stæði útaf, með hliðsjón af tillögum meiri-
hluta nefndarinnar. Hann gerði því fyrirvara
við skýrslu hennar. „Ég taldi að það ætti að
heimila rannsóknir í Gjástykki vegna þess að
allir umsagnaraðilar, sveitarstjórnir og opin-
berar stofnanir, hafa veitt samþykki sitt fyrir
rannsóknum þar.“
Agnar sagði að skýrslunni fylgdi tillaga að
lagabreytingum. Framhaldið væri því í hönd-
um iðnaðarráðherra. Hann sagði að búið væri
að gera yfirborðsmælingar í Gjástykki og ætl-
unin hefði verið að rannsaka svæðið betur nú í
haust. Samkvæmt tillögunum fær Lands-
virkjun ekki rannsóknarleyfi fyrir Skaftár-
veitu til ársins 2010. Agnar sagði að Skaftár-
veita væri ekki inni í orkuöflunaráætlun
Landsvirkjunar fyrir þá stóriðjuáfanga sem nú
eru til umræðu.
Engin áhrif á HS næstu árin
Tillögur um frestun útgáfu rannsóknarleyfa
í Brennisteinsfjöllum til 2010 hafa ekki áhrif á
áform Hitaveitu Suðurnesja um virkjanafram-
kvæmdir í nánustu framtíð, að sögn Júl-
íusar J. Jónssonar forstjóra.
„Hvað varðar álver í Helguvík höfum
við meira verið að horfa til Krísuvík-
ursvæðisins, heldur en Brennisteins-
fjalla, þannig að við höldum okkar striki
þrátt fyrir þetta,“ sagði Júlíus. „Ef við
fáum rannsóknarleyfi á Krísuvíkur-
svæðinu, fyrir utan það sem við erum
með, þá á það að geta dugað í það sem
við ætlum að vera búnir að gera á ár-
unum 2010 til 2011.“
OR fagnar sátt
„Við fögnum því alltaf hjá Orkuveitu
Reykjavíkur þegar hægt er að sætta sjónarmið
í þessum efnum,“ sagði Guðmundur Þór-
oddsson, forstjóri OR. Hann sagði að tillögur
nefndarinnar hefðu ekki mikil áhrif hjá OR í
nánustu framtíð, því þeir hefðu ekki ætlað inn á
ný svæði fyrr en eftir 2010. Þeir hefðu beðið
mjög lengi eftir niðurstöðu varðandi umsókn
um rannsóknarleyfi í Brennisteinsfjöllum og
verið hættir að gera ráð fyrir að fá svar í bráð.
„Við teljum það eitt af vandamálum í orku-
málum okkar Íslendinga hversu óljóst reglu-
gerðarumhverfið er og hve erfitt stjórnvöld
hafa átt með að taka afstöðu til ákveðinna um-
sókna um leyfi. Við teljum mjög gott ef út úr
þessu kemur ferli sem er skilvirkt og skilar
ákvörðunum fljótt.“
Guðmundur sagði að áform OR um orkuöfl-
un í nánustu framtíð væru fyrst og fremst á
svæðum þar sem þeir hefðu allar heimildir. Til-
lögurnar hefðu því ekki áhrif á starfsemina
næstu árin.
Guðmundur sagði að OR hefði gert þann fyr-
irvara að ganga ætti frá leyfisveitingu vegna
umsóknar OR um rannsóknarleyfi á svæðinu
ofan Grændals, í beinu framhaldi af Heng-
ilssvæðinu þar sem OR hefur rannsóknarleyfi.
Hann sagði að OR hefði farið fram á að rann-
sóknarleyfi sem búið var að úthluta þar með
skilyrðum, en er útrunnið, yrði endurútgefið.
„Við getum alveg fallist á þau skilyrði sem þar
voru sett. Það mundi styrkja stöðu okkar.“
Nefndartillögur hafa ekki áhrif á
orkufyrirtækin í nánustu framtíð
Agnar
Olsen
Júlíus J.
Jónsson
Guðmundur
Þóroddsson