Morgunblaðið - 12.10.2006, Side 16

Morgunblaðið - 12.10.2006, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Í TILLÖGUM nefndarinnar felast m.a. verulegar breytingar á lögum og reglum um á hvaða svæðum verð- ur leyft að rannsaka og nýta orku- auðlindir. Nefndin leggur einnig til að gjald verði tekið fyrir nýtingu auðlinda á eignarlöndum ríkisins og á þjóðlend- um og að hægt verði að velja á milli umsækjenda um rannsóknar- og nýtingarleyfi með uppboði. Lykilatriði í tillögum nefndarinn- ar er að Alþingi samþykki ekki síðar en 2010 lög eða þingsályktun um sér- staka verndar og nýtingaráætlun fyrir auðlindir í jörðu og vatnsafl til raforkuframleiðslu. Áætlunin yrði til t.d. 25 ára í senn og endurskoðuð reglulega. Meirihluti nefndarinnar leggur til að þar til sú áætlun tekur gildi, verði farið eftir sérstökum reglum um úthlutun á rannóknar- og nýtingarleyfum sem m.a. þýðir, að sögn formanns nefndarinnar, að ekki verða veitt rannsóknarleyfi vegna Skaftárveitu, virkjunar í Brenni- steinsfjöllum eða í Gjástykki, fram til ársins 2010, nema að undan- gengnum rannsóknum og mati og með samþykki Alþingis. Farvegur til þjóðarsáttar Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra, sagði á blaðamannafundinum að með skýrslu nefndarinnar væri náð merkilegum áfanga í mikilvægum málaflokki. Í tillögum nefndarinnar væri sannarlega fólginn farvegur til þjóðarsáttar. Tillögurnar yrðu að sjálfsögðu teknar til athugunar hjá ríkisstjórninni og sagði hann að stefnt væri að því að frumvarp sem byggði á tillögum nefndarinnar yrði samþykkt á yfirstandandi þingi. Karl Axelsson, formaður nefndar- innar, sagði að um niðurstöður nefndarinnar hefði náðst sam- komulag um stærstu þættina ef frá væri talið það álitaefni hvaða auð- lindanýtingu eigi að heimila fram til 2010. Karl sagði ljóst að nefndarmenn hefðu gengið til starfa með afar mis- munandi skoðanir. „Í þeirri viðleitni að ná sameigin- legri niðurstöðu um meginatriðin í tillögugerð okkar þá er alveg ljóst að einstakir nefndarmenn hafa þurft að slá af kröfum sínum og við höfum um fjölmörg atriði þurft að ná málamiðl- unum.“ Verkefni nefndarinnar voru fyrst og fremst þríþætt; í fyrsta lagi hvaða framtíðarstefnu ætti að marka um verndun og nýtingu auðlinda í land- inu, í öðru lagi að taka afstöðu til þess hvað ætti að heimila þangað til sú stefna tæki gildi og í þriðja lagi hvaða aðferðum skyldi beitt til að velja á milli umsókna um rannsóknir og nýtingu á þeim kostum sem á annað borð verður heimilað að nýta. Karl sagði að með því að með sam- þykkja verndar- og nýtingaráætlun árið 2010 myndi þjóðin öðlast skýra og gagnsæja mynd af því hvaða val- kostir væru til staðar. Mönnum yrði þá alveg ljóst hvaða staði ætti að vernda og hverja ætti að nýta en hingað til hefði mörgum þótt skorta á að sú mynd væri skýr. Við gerð áætlunarinnar yrði haft víðtækt samráð og í þeim tilgangi yrði skip- aður starfshópur með fulltrúum ráðuneyta, fagstofnana, fulltrúa orkufyrirtækjanna, náttúruverndar- samtaka og sveitarfélaga. Áætlunin yrði ennfremur gerð með tillti til niðurstaðna rannsókna og mats á hugsanlegum virkjunar- kostum í skýrslu um niðurstöður 1. áfanga rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma og niður- stöðu rannsókna og mats 2. áfanga rammaáætlunarinnar sem áætlað er að liggi fyrir árið 2009. Starfshóp- urinn myndi skila forsætisráðherra tillögum sínum eigi síðar en 1. janúar 2010 og í ársbyrjun þess árs yrði lagt fyrir Alþingi frumvarp um verndar- og nýtingaráætlun til framtíðar. Lausn í millibilsástandi Rúmlega þrjú ár eru þar til áætl- unin gæti í fyrsta lagi tekið gildi og því var nauðsynlegt fyrir nefndina að útkljá hvernig rannsóknar- og nýt- ingarleyfi yrðu veitt fram að því. Í skýrslu nefndarinnar kemur fram að í gildi eru sjö rannsóknar- leyfi vegna jarðhita, þar af tvö vegna hitaveitna og taldi meirihluti nefnd- arinnar að leyfishafar ættu að fá að halda áfram rannsóknum í samræmi við gildandi lög. Öðru máli gegnir um umsóknir um rannsóknarleyfi sem nú liggja á borði iðnaðarráðuneytisins en þær eru alls 21, tólf vegna jarðhitarann- sókna og níu umsóknir vegna vatns- aflsrannsókna. Meirihluti nefndarinnar taldi að veita megi ný rannsóknar- og nýt- ingaleyfi fyrir kostum sem falla í um- hverfisflokk a í fyrsta áfanga rammaáætlunar um nýtingu vatns- afls og jarðvarma og þeim kostum í umhverfisflokki b sem ekki voru gerðar sérstakar athugasemdir við vegna umhverfisverðmæta. Ekki skuli veita ný leyfi til rannsókna eða nýtingar á öðrum kostum til raforku- öflunar nema að undangengnum rannsóknum og mati og með sam- þykki Alþingis. Aðspurður sagði Karl að þau svæði í umhverfisflokki b sem féllu í þennan flokk væru Brennisteinsvirkjun og Skaftárveita. Samkvæmt þessu yrði ekki heldur veitt rannsóknarleyfi í Gjástykki þar sem ekki hefði verið fjallað um það svæði í 1. áfanga rammaáætlunar. Að lokum lagði nefndin til grund- vallarbreytingu á afgreiðsluferli um- sókna um rannsóknar- og nýtingar- leyfi. Í tillögum hennar er gert ráð fyrir að á landi í einkaeigu ráði land- eigandi sjálfur hvort og við hvern hann semur um rannsókn og nýtingu auðlindar en í slíkum tilvikum þurfi engu að síður að uppfylla almenn lagaskilyrði og afla tilskilinna leyfa. Þá lagði hún til að úthlutun rann- sókna- og nýtingarleyfa færist frá iðnaðarráðuneyti til Orkustofnunar. Framvegis yrði auglýst eftir leyfum til rannsókna og nýtingar á auðlind- um í jörðu og vatnsafli á eignarlönd- um ríkisins og í þjóðlendum og sett yrðu lágmarksskilyrði um fjárhags- legt bolmagn og þekkingu umsækj- enda. Lagði nefndin einnig til að gjald verði tekið fyrir nýtingu auð- linda í þjóðlendum og landi í ríkis- eigu. Ef fleiri en einn sækja um verði tekið hagstæðasta tilboði, og yrði í bæði tekið mið af hæstu fjárhæð en einnig umhverfsissjónarmiðum. Sú meginregla gildi að rannsóknarleyfi feli í sér forgang til nýtingar. Gjald fyrir nýtingu auðlinda og val- ið milli umsækjenda með uppboði Nefnd sem falið var að móta framtíðarsýn um verndun og nýtingu auð- linda í jörðu og vatnsafls kynnti tillögur sínar á blaðamannafundi í gær. Morgunblaðið/Golli Niðurstaða Karl Axelsson, formaður nefndar um verndun og nýtingu auðlinda í jörðu og vatnsafls til raforkuframleiðslu, og Jón Sigurðsson iðnaðar- ráðherra á blaðamannafundi um skýrslu nefndarinnar í gær. Jón sagði að með skýrslunni væri merkilegum áfanga náð í mikilvægum málaflokki. Í HNOTSKURN » Formaður nefndarinnarlagði áherslu á að nefndin hefði ekki lagt blessun sína yf- ir ákveðna virkjunarkosti eða hafnað öðrum, eingöngu lagt fram tillögur um hvaða virkj- anakosti mætti skoða nánar fram til ársins 2010, að því gefnu að öll önnur leyfi væru til staðar. » Tíu manns voru skipaðir ínefndina og skrifuðu þrír undir með fyrirvara.                                                                      NEFNDIN náði ekki saman um hvaða auðlindanýtingu ætti að heimila fram til ársins 2010 þegar mörkuð hefur verið framtíð- arstefna um auðlindanýtingu. Þrír nefndarmanna skrifuðu því undir skýrslu nefndarinnar með fyr- irvara um þann þátt og gerðu grein fyrir afstöðu sinni í sérstakri bók- un. Í bókun Agnars Olsen segir að flokkun Grændals í flokk c í 1. áfanga rammaáætlunar hafi byggst á að rannsóknarborholur yrðu í Grændalnum sjálfum en í úrskurði um mat á umhverfisáhrifum frá 2003 hefði ekki verið gerð at- hugasemd við rannsóknir og nýt- ingu með borun utan dalsins. Því ætti að heimila rannsóknir í Græn- dal enda yrðu þær framkvæmdar í samræmi við fyrrnefndan úrskurð. Þá taldi hann að veita ætti leyfi til rannsókna í Gjástykki enda hefðu opinberar stofnanir og aðrir lög- bundnir umsagnaraðilar veitt sam- þykki sitt. Hjörleifur B. Kvaran bókaði að ekki ætti að takmarka útgáfu rann- sóknarleyfa á þessu tímabili utan miðhálendis, enda væru margir kostir í rammaáætluninni ekki full- kannaðir. Þá væri eðlilegt að gefið yrði út rannsóknarleyfi vegna Grændals, með sömu rökum og Agnar vísaði til. Agnar og Hjörleifur voru til- nefndir í nefndina af Samorku. Í bókun Kolbrúnar Halldórs- dóttur alþingismanns segir m.a. að enn hafi Alþingi ekki tekið pólitíska afstöðu til rammaáætlunarinnar og henni sé auk þess ólokið. Verkefn- isstjórn um áætlunina hefði sjálf sagt að uppröðun virkjanakosta væri háð þeim annmörkum að gögnum væri í mörgum tilvikum ábótavant eða vantaði algjörlega. Rammaáætlun væri því engan veg- inn nothæf sem grundvöllur ákvarðana. Jóhann Ársælsson, þingmaður Samfylkingarinnar, lagði fram bókun en skrifaði undir skýrsluna án fyrirvara. Þrír nefndarmenn skrif- uðu undir með fyrirvara

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.