Morgunblaðið - 12.10.2006, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 21
TÓNLEIKAR, fjölskylduhátíð, málþing, dans-
sýningar, myndlistasýningar, bókmenntakynn-
ingar og kvikmyndasýningar. Þetta er meðal
þeirra fjölmörgu dagskrárliða sem verða á boð-
stólum á Kanadískri menningarhátíð sem Kópa-
vogsbær stendur fyrir dagana 14.–22. október.
Hátíðin er haldin samvinnu við við lista- og menn-
ingarstofnanir bæjarins og sendiráð Kanada á Ís-
landi, ásamt fleiri aðilum, og verður sjónum m.a.
beint að menningu kanadískra frumbyggja í nú-
tímanum.
Aðstaða bæjarins nýtt til
að kynna menningu annarra þjóða
Þetta er í þriðja sinn á jafnmörgum árum sem
haldin er hátíð í Kópavogi sem beinist að menn-
ingu eins tiltekins lands. Hefðinni var hrundið af
stað með spænskri hátíð og í fyrra var sjónum
beint að rússneskri menningu. Gunnar I. Birg-
isson bæjarstjóri segir það svo vera í skoðun að
líta austur til Kínverska alþýðulýðveldisins að ári.
Að hans sögn hafa hátíðirnar aukist að umfangi ár
frá ári og verið mjög vel sóttar.
Gunnar útskýrir að hugmyndafræðin sé sú að
nýta þá aðstöðu sem Kópavogsbær hefur upp á að
bjóðatil að kynna menningu annarra þjóða, þ.e. í
Listasafni Kópavogs – Gerðarsafni, Salnum, bóka-
safninu o.s.frv.
Nefndar menningarstofnanir koma mikið við
sögu þá rúmu viku sem hátíðin stendur yfir. For-
seti Íslands opnar þrjár sýningar í Listasafni
Kópavogs – Gerðarsafni á laugardaginn en þar
með hefst hátíðin formlega.
Sýningarnar eru ólíkar en tengjast allar með
einum eða öðrum hætti frumbyggjamenningu
Kanada. Á þeirri fyrstu getur að líta þrívíð verk
inúíta af mönnum, dýrum og ýmsum furðuverum.
Á sýningu Myron Zabol eru svo sviðsettar port-
rettmyndir af írokesaindíánum og á þriðju sýning-
unni eru verk eftir Carl Beam sem unnin eru með
blandaðri tækni upp úr ljósmyndum.
Michael Ondaatje meðal gesta
Þá verður fjölbreytt tónleikadagskrá á boð-
stólum í Salnum. Þar ber hæst tvenna tónleika pí-
anóleikarans Angelu Hewitt þar sem hún flytur
verk eftir Bach, Beethoven, Rameau og Chabrier.
Óperusöngkonan Mary Lou Fallis snýr aftur ásamt
meðleikara sínum, Peter Tiefenbach, en góður
rómur var gerður að heimsókn þeirra í Salinn vorið
2005. Þá mun fjöllistahópurinn Red Sky flytja æv-
intýri úr sagnaheimi Cree-indíána og inúítarnir
Tracy Brown og Kendra Tagoona verða með
barkasöng og trommudans.
Á bókasafninu verður athyglin dregin sér-
staklega að kanadískum bókmenntum og ber þar
hæst stefnumót við rithöfundinn Michael Ondaatje.
Þá verða sýndar kanadískar kvikmyndir alla daga
hátíðarinnar. Og er margt ótalið.
Af öðrum dagskrárliðum má nefna málþing um
tengsl íslenskra landnema og frumbyggja Kanada
og fjölskylduhátið, sem verður blásið til í Vetr-
argarðinum í Smáralind laugardaginn 21. október.
Hátíð | Fjölbreytt dagskrá á kanadískri menningarhátíð í Kópavogi
Eitthvað fyrir alla
Morgunblaðið/Kristinn
Metnaður Frá vinstri: Guðbjörg Kristjánsdóttir í Gerðarsafni, Hrafn Harðarson á Bókasafni Kópa-
vogs, Vigdís Esradóttir í Salnum, Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Björn Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri tómstunda- og menningarsviðs Kópavogsbæjar.
www.kopavogur.is
Fylgist með umfjöllun um
þessa bók í helgarútgáfunni
á Rás 2, nú á
laugardaginn kl. 11.00
“Geðveikislega fyndin” - Daily Telegraph
Lækjargata 2a sími 511-5001 opið alla daga frá 9.00 - 22.00
Helgar
tilboð
1.799,-
FYRSTA breiðskífa hljómsveit-
arinnar Skakkamanage, Lab of
Love, kom í verslanir í síðustu viku
og á laugardaginn mun sveitin
halda útgáfutónleika í Fríkirkjunni
í Reykjavík þar sem öll tólf lög plöt-
unnar verða leikin.
Á tónleikunum munu þeir Valdi-
mar Kolbeinn Sigurjónsson, Örvar
Þóreyjarson Smárason, Björn
Kristjánsson, og Benedikt Her-
mann Hermannsson, (Benni Hemm
Hemm) leggja sveitinni lið en flestir
þeirra komu við sögu á nýju plöt-
unni.
Eftir tónleikana verður svo sleg-
ið upp heljarinnar veislu í nágrenn-
inu þar sem hinni langþráðu útgáfu
verður fagnað með látum en þar
munu skífuþeytararnir Dj. Apfel-
blut og Bj. Össi halda gestum á
dansgólfinu.
Aðgangseyrir að þessu öllu sam-
an er átta hundruð krónur.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fjör Skakkamanage ætlar að spila í
Fríkirkjunni um helgina.
Skakka-
manage í
Fríkirkjunni
myspace.com/skakkamanage