Morgunblaðið - 12.10.2006, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Garðabær | Klukkan 10 árdegis í
dag opnar IKEA stærstu verslun
landsins í Kauptúni 4 í Garðabæ, við
Reykjanesbrautina, sunnan við Víf-
ilsstaði. „Jólin byrja snemma hjá
okkur,“ segir Jóhannes Rúnar Jó-
hannesson, framkvæmdastjóri
IKEA, og það fer ekki framhjá nein-
um sem kemur í verslunina.
Góð aðkoma, næg bílastæði
og mikið vöruúrval
Í gær var allt á fullu í nýja versl-
unarhúsnæðinu. Starfsmenn voru að
þrífa, taka til, mála, setja vörur í hill-
ur. Gera allt tilbúið fyrir stóru stund-
ina. Aðrir sinntu sínum störfum í
versluninni við Holtagarða og
skelltu þar í lás fyrir fullt og allt að
loknum vinnudegi. Sú verslun til-
heyrir nú sögunni og nýr kafli hefst
þegar fólki verður hleypt um nýja
innganginn í Garðabænum í dag.
„Verslunin við Holtagarða var
orðin allt of lítil fyrir okkur og hafði
sprengt alla aðstöðu utan af sér, að-
gengi og bílastæði,“ segir Jóhannes
Rúnar. Gólfflötur nýju verslunarinn-
ar er um 20.600 fermetrar og hefur
sölurýmið nær þrefaldast frá því
sem áður var. Að sama skapi hefur
vöruúrvalið aukist til muna og er nú
boðið upp á um 7.000 vörutegundir.
Svonefndar vörustúkur eru 55 sam-
anborið við 20 áður og um 850 bíla-
stæði eru við verslunina en við allar
verslanirnar í byggingunni við
Holtagarða eru um 400 bílastæði.
„Húsið og umhverfið eru aðlöguð að
þörfum viðskiptavinanna,“ segir Jó-
hannes Rúnar. Hann rifjar upp að
IKEA á Íslandi hafi byrjað í 500 fer-
metra húsnæði í Skeifunni 1981, haft
um 3.000 fermetra húsnæði í Húsi
verslunarinnar í Kringlunni frá 1987
til 1994 og síðan verið í nær þrefalt
stærra rými við Holtagarða. „Við
fáum um 1,3 milljónir gesta á ári og
gerum ráð fyrir að þeim fjölgi með
betri og stærri verslun, betra að-
gengi og fleiri bílastæðum,“ segir Jó-
hannes Rúnar. Hann bendir á að
gestafjöldinn þýði að hver íbúi á höf-
uðborgarsvæðinu og næsta nágrenni
komi sex til sjö sinnum í verslunina á
ári sem sé met hjá samsteypunni.
Hugsa fyrir öllu
Víða í versluninni geta gestir feng-
ið upplýsingabækling, málband, blað
og blýant til aðstoðar við kaupin,
skrifa til dæmis niður upplýsingar
um ákveðna vöru og hvar hana sé að
finna sé hún á sjálfsafgreiðslu-
lagernum. Sérstakt barnasvæði og
læstir skápar fyrir viðskiptavini eru
á neðri hæðinni og 250 manna veit-
ingastaður á efri hæðinni auk þess
sem kaupa má smárétti og sænskar
matvörur við útganginn. „Við reyn-
um að hugsa fyrir öllu,“ segir Jó-
hannes Rúnar.
Jólin eru komin hjá IKEA í Garðabæ
Morgunblaðið/RAX
Íbúðir Fimm mismunandi stórar íbúðir með öllu hafa verið settar upp á annarri hæð hinnar nýju verslunar IKEA í
Garðabæ. Þar geta viðskiptavinir séð hvernig koma má hlutum fyrir á hagkvæman hátt og fengið ýmsar hugmyndir.
Sjálfsafgreiðsla Í mörgum tilfellum ná viðskiptavinir í vörurnar á sjálfs-
afgreiðslulagerinn sem er vel skipulagður og merkingar vísa rétta veginn.
IKEA opnar
stærstu verslun
landsins í dag
Í HNOTSKURN
» IKEA á Íslandi byrjaði íum 500 fermetra húsnæði í
Skeifunni 4. apríl 1981.
»Verslunin er opin alladaga vikunnar, frá klukk-
an 10–20 á virkum dögum, 10–
18 á laugardögum og 12–18 á
sunnudögum.
Þrif Starfsmenn höfðu í nógu að
snúast við að gera allt tilbúið fyrir
opnun verslunarinnar í dag.
AKUREYRI
ANNA María Sigvaldadóttir og
Magnús Bjarnason taka við rekstri
verslunarinnar í Grímsey um kom-
andi helgi og ætla að nefna hana
Búðina. Áður hét verslunin Gríms-
kjör. Það er því tryggt að versl-
unarrekstur leggst ekki af í eynni
þegar fráfarandi kaupmenn, Guð-
rún Sigfúsdóttir og Brynjólfur
Árnason, láta af störfum.
Anna María hefur starfað annað
slagið við verslunina og þekkir því
nokkuð til starfseminnar. Hún
sagði að einhver breyting yrði á af-
greiðslutímanum og hann eitthvað
styttur yfir veturinn. Þó verður op-
ið alla daga, nema sunnudaga, bæði
fyrir og eftir hádegið. Afgreiðslu-
tíminn verður lengdur fyrir jólin og
vöruúrvalið aukið þá.
Leita að bestu kjörum
„Ég ætla að reyna að hafa sam-
bærilegt vöruúrval og verið hefur,“
sagði Anna María. Hún hefur verið
að ræða við birgja og kanna mögu-
leika á innkaupum til verslunarinn-
ar. Eins hefur verið rætt um sam-
starf við stærri verslunarkeðjur, en
ekkert hefur enn verið ákveðið í
þeim efnum.
„Við erum að leita að bestu kjör-
um og leita eftir tilboðum, ég ætla
að reyna að vera grimm í því. Við
fáum blöðin með tilboðunum í landi
og sjáum vörur auglýstar á lægra
verði en heildsalar geta boðið. Þótt
maður sé lítill þarf að reyna að
gera eitthvað fyrir viðskiptavinina
hér heima. Afgreiðslumaður
Flugfélags Íslands kom til okkar
með þær fréttir að félagið myndi
bjóða okkur ríflegan afslátt af
flutningsgjöldum alla leið frá
Reykjavík og hingað. Það auðveld-
ar okkur að vera með ferskara
grænmeti og aðra slíka vöru,“
sagði Anna María.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Kaupmenn Hjónin Magnús Þór Bjarnason og Anna María Sigvaldadóttir eru nú að taka við rekstri verslunarinnar
í Grímsey og ætla að nefna verslunina Búðina. Þau hafa meðal annars gert út Sædísi EA 54.
Nýir kaupmenn í Grímsey
FYRSTI SNJÓR vetr-
arins féll á Akureyri í
fyrrakvöld en und-
anfarna daga hefur
veðrið dansað hina hár-
fínu línu milli hausts og
veturs eins og ung kona
orðaði það á bloggsíðu
sinni nú fyrr í vikunni.
Gunnþór Hákonarson
hjá Framkvæmdar-
miðstöð Akureyr-
arbæjar sagðist ekki
hafa þurft að ræsa menn
út vegna þessa en aðeins
hefði verið sandborið.
Akureyrarbær er með
samninga um snjó-
mokstur við nokkra ein-
staklinga og fyrirtæki
sem verða að bregðast
við með hálftíma fyr-
irvara þegar kallið kem-
ur. Þurfi hins vegar ekk-
ert að moka fást engar
tekjur. Menn eru því í
startholunum á Ak-
ureyri þegar Vetur kon-
ungur lætur á sér kræla fyrir al-
vöru.
Að sögn lögreglunnar á Akureyri
hafa engin óhöpp verið tilkynnt sem
rekja má til hálkunnar, enda segir
hún það sjaldan gerast í fyrstu snjó-
unum. Það keyri allir svo varlega á
sumardekkjunum þegar fyrsti snjór-
inn kemur en þegar vertardekkin
eru komin undir fari menn að spýta í
og þá byrji óhöppin að dynja yfir.
Vetrardekkin undir bílana
Starfsmaður Dekkjahallarinnar á
Akureyri segir að þar á bæ hafi ver-
Flottur snjókall Salka og Bríet,
nemendur í Brekkuskóla, voru afar
ánægðar með snjóinn.
Hárfín lína milli
hausts og veturs
Eftir Ragnhildi
Aðalsteinsdóttur
ið byrjað að skipta yfir í vetrardekk
fyrir viðskiptavini strax í gærmorg-
un og mikið hafi verið að gera allan
daginn.
Sem fyrr kætist unga fólkið yfir
snjónum á meðan þeir sem eldri eru
skammast yfir að þurfa nú að skafa
af bílunum. Í Brekkuskóla á Akur-
eyri var mikið fjör hjá krökkunum
sem skemmtu sér í snjókasti og
bjuggu til snjókalla.
Ljósmynd/Ragnhildur Aðalsteinsd.