Morgunblaðið - 12.10.2006, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 33
r. Hann
viðstaddir
slendinga
efði verið
amstarfið
eimsstyrj-
varnar-
i verið í
amkomu-
ndirstaða
mvinnu á
mála. Og
skilningur
d að und-
irrita útvíkkar og dýpkar þetta
samband á nokkrum sviðum, en
grundvallarbreytingin, að sjálf-
sögðu, er sú, að bandarískar her-
sveitir munu framvegis ekki hafa
varanlega viðdvöl á Íslandi,“ sagði
Geir.
Geir sagði jafnframt að reynt
hefði verið „að smíða nýja umgjörð
sem tekur þessa staðreynd með í
reikninginn og reynt að tryggja, að
við getum séð um varnir okkar, að
við getum veitt Bandaríkjamönnum
aðgang þegar þörf krefur, og öðr-
um þjóðum Atlantshafsbandalags-
ins (Nató), skyldu slíkar aðstæður
koma upp. Jafnframt munum við í
þessu sameiginlega samkomulagi
eiga samvinnu að því er lýtur að al-
þjóðlegri glæpastarfsemi, landa-
mæraeftirliti, gagnhryðjuverkaað-
gerðum, lögreglustörfum, strand-
gæslu og svo mætti áfram telja líkt
og [Rice] utanríkisráðherra tók
fram.
Því erum við mjög sátt. [Valgerð-
ur Sverrisdóttir] utanríkisráðherra
er hér með mér til að staðfesta
þetta samkomulag. [Björn Bjarna-
son] dómsmálaráðherra, sem ber
ábyrgð á löggæslu og strandgæslu
á Íslandi, er einnig hér til að undir-
strika það mikilvægi sem við tengj-
um þessu samkomulagi,“ sagði for-
sætisráðherra.
Geir þakkaði Rice og samninga-
liði hennar fyrir með þeim orðum
að hann vonaði að þetta væri ekki
„upphafið að endinum“ heldur
„endirinn á upphafinu“.
Samband við rétta aðila
Geir og Valgerður áttu stuttan
fund með Rice utanríkisráðherra
áður en skrifað var undir sam-
komulagið. „Það var ágætur fund-
ur,“ sagði Geir við Morgunblaðið.
„Við töluðum bæði um þessi tíma-
mót í samstarfi ríkjanna og annað
sem er í gangi þessa dagana. Ég
var mjög ánægður með athöfnina
þegar skrifað var undir og það sem
hún sagði þar.“ Geir sagði Rice hafa
undirstrikað, eins og reyndar aðrir
framámenn sem íslensku ráðherr-
arnir hafa hitt að máli í Wash-
ington, að Bandaríkjamenn muni
leggja áherslu að fylgja eftir
ákvæðum um áframhaldandi við-
ræður þjóðanna og nefndi reglu-
bundnar viðræður um æfingar og
samstarf á milli lögreglu og land-
helgisgæslunnar á Íslandi við sam-
svarandi stofnanir í Bandaríkjun-
um. „Þetta eru hlutir sem verður að
byrja að vinna í strax. Undirskriftin
er mikill áfangi en síðan þarf að
fylgja þessu öllu eftir og hér hafa
menn lagt áherslu á að greiður að-
gangur verði að réttum aðilum hér
fyrir vestan í framhaldinu,“ sagði
Geir Haarde við Morgunblaðið.
Íslensku ráðherrarnir þrír, Geir,
Valgerður og Björn, hittu einnig
Donald Rumsfeld varnarmálaráð-
herra á fundi í Pentagon, banda-
ríska varnarmálaráðuneytinu. „Það
var líka mjög góður fundur. Við
ræddum um mörg atriði sem tengj-
ast samstarfinu um varnarmál og
hvernig á að fylgja samkomulagi
þjóðanna frekar eftir,“ sagði Geir
Haarde.
endinga munu
ögulegar varnir
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
irrita samkomulagið um varnarmál og Valgerður Sverrisdóttir fylgist með.
VALGERÐUR Sverrisdóttir utan-
ríkisráðherra segir Condoleezzu
Rice, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, hafa tekið vel í þá hug-
mynd að skoða möguleika á gerð
fríverslunarsamnings og fjárfest-
ingasamnings á milli Íslands og
Bandaríkjanna.
„Í tengslum við þær breytingar
sem nú eru að verða á sam-
skiptum ríkjanna höfum við notað
tækifærið í þessari ferð til að
ræða önnur samskipti, sér-
staklega á viðskiptasviðinu, og ég
hef orðið vör við áhuga og vilja
bandarískra stjórnvalda á útvíkk-
un á samstarfi þjóðanna,“ sagði
Valgerður við Morgunblaðið í
Washington í gær.
„Starfssystir mín, Condoleezza
Rice, tók vel í þá hugmynd að
skoða möguleika á gerð fríversl-
unarsamnings og fjárfestinga-
samnings á milli ríkjanna og sömu
sögu er að segja af annarri starfs-
systur minni, Susan Schwab, sem
fer með utanríkisviðskiptamál. Ég
hef lagt áherslu á það sem utan-
ríkisráðherra að stuðla að því að
viðskipti við Bandaríkin aukist og
að styrkari stoðum verði skotið
undir viðskipti þjóðanna og á
fundinum með Schwab var ákveð-
ið að háttsettir embættismenn
myndu hittast reglulega með það
að markmiði að ryðja úr vegi við-
skiptahindrunum og auðvelda
þannig viðskipti, og á þá ákvörð-
un lít ég sem mikilvægt skref í
rétta átt,“ sagði Valgerður.
Í Washington Valgerður Sverrisdóttir, Condoleezza Rice, Geir Haarde
og Björn Bjarnason í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna í gær.
Tók vel í hugmynd um
fríverslunarsamning
á milli þjóðanna
arde og Condoleezza Rice takast í hendur í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna í Washington í gær.
Metum hlutverk
Íslands mikils
DONALD Rumsfeld, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna,
neitar því að hann hafi í mörg ár
viljað flytja bandaríska varn-
arliðið frá Íslandi. „Ég myndi
ekki orða það þannig,“ sagði
Rumsfeld þegar blaðamaður
Morgunblaðsins spurði hann um
þetta fyrir utan Pentagon, varn-
armálaráðuneytið í Washington, í
gær.
Rumsfeld sagði að Bush forseti
hefði óskað eftir því, þegar hann
kom til starfa í Hvíta húsinu, að
áherslum Bandaríkjanna á sviði
hermála yrði breytt frá því sem
nauðsynlegt þótti í kalda stríðinu
og starfsemin færð inn í 21. öld-
ina, eins og hann orðaði það. „Það
hefur þýtt að við höfum fært her-
afla frá mörgum löndum og slík-
ar breytingar eru alltaf erfiðar.
En við metum mikils sambandið
við Íslendinga, sem staðið hefur
yfir í 65 ár og erum mjög þakklátir
fyrir það mikilvæga hlutverk sem
Íslendingar léku á dögum kalda
stríðsins.“
Rumsfeld sagðist hafa átt góðan
fund með íslensku ráðherrunum í
gær, þar sem framhald hins góða
sambands þjóðanna hefði verið til
umræðu; í hvaða búning best væri
að klæða það í upphafi 21. ald-
arinnar, eins og hann tók til orða.
Reuters
Donald Rumsfeld
Þekkist boð um
að koma til Íslands
isráðherrann hefðu boðið sér til Ís-
lands og „ég hef lýst því yfir, að ég
myndi mjög gjarnan vilja koma.
Ég sé nokkra í hópi blaðamann-
anna sem ferðast með mér. Gerið
ykkur klára! Ég vona og hygg, að
við munum brátt fara til Íslands,“
sagði Condoleezza Rice.
Valgerður sagðist, í samtali við
Morgunblaðið, fyrst hafa nefnt
þetta við Rice þegar Rice hringdi í
hana fljótlega eftir að Valgerður
varð utanríkisráðherra, og síðan
aftur á fundinum í gær.
CONDOLEEZZA Rice, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, hefur
þekkst boð um að koma í opinbera
heimsókn til Íslands. Rice greindi
frá þessu þegar samkomulag þjóð-
anna um varnarmál var undirritað
í gær í utanríkisráðuneytinu í
Washington. Kvaðst Rice vonast til
að af því gæti orðið sem fyrst, en
ekki lægi fyrir hvenær það gæti
orðið.
Hún sagði í gær, þegar sam-
komulag þjóðanna var undirritað,
að forsætisráðherrann og utanrík-