Morgunblaðið - 12.10.2006, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 41
UMRÆÐAN
ELDRI borgarar vilja geta notið
lífsins á efri árum. Helstu áhyggjur
þeirra um framtíðina beinast að því
að samfélagslegur
stuðningur sé ekki til
staðar þegar heilsa
brestur og sjálfsbjarg-
arhæfni skerðist.
Krafa þeirra er að
þeim sé gert kleift að
lifa eins eðlilegu lífi og
hægt er við breyttar
aðstæður og að sjálf-
ræði þeirra og mann-
gildi sé virt.
Skert þjónusta
Nýlega fékk ég sím-
tal frá mætri konu
sem sagði farir sínar ekki sléttar.
Maður hennar er nýkominn heim
af sjúkrahúsi eftir erfiða sjúkdóms-
legu og hefur fengið heimahjúkrun
kvölds og morgna, sem hefur gert
þeim kleift að njóta samvista á eig-
in heimili, þrátt fyrir veikindi hans.
Þau hafa verið ánægð með þá að-
stoð sem þau hafa fengið og góð
persónuleg tengsl myndast milli
þeirra hjóna og starfsmanna sem
koma á vegum heimahjúkrunar.
Þau búa í nágrannasveitarfélagi
Reykjavíkur.
Nú eru hins vegar blikur á lofti.
Vegna hagræðingar hefur þjónusta
á kvöldin og um helgar verið færð
frá heimabyggðinni til miðstöðvar
heimahjúkrunar í Reykjavík. Í stað
þess að njóta aðstoðar kunnuglegra
andlita um kvöld og helgar kæmu
sífellt nýir aðilar til að hjálpa þeim.
Þess utan fengi maðurinn fyrst að-
stoð á hádegi um helgar til að
klæðast og aðstoð við að hátta
stuttu eftir kvöldmat
alla daga. Þetta vilja
þau skiljanlega ekki
sætta sig við og hafa
afþakkað aðstoðina.
Virðing og öryggi
Á höfuðborgarsvæð-
inu sér Miðstöð
heimahjúkrunar um
heimahjúkrun á veg-
um heilsugæslunnar á
svæðinu. Starfsmenn
hafa kvartað undan
óhóflegu álagi og aldr-
aðir hafa bent á að
mikil mannaskipti í þjónustunni
geri hana ópersónulega og verk-
hæfða. Heimaþjónusta þarf að
byggja á persónulegum tengslum,
virðingu í samskiptum og stuðla að
öryggi þeirra sem hana fá. Það er
ljóst að taka verður skipulag
heimahjúkrunar á höfuðborg-
arsvæðinu til endurskoðunar svo
hún nái tilgangi sínum. Frábært
starfsfólk heimahjúkrunar gæti
með breyttu skipulagi notið sín enn
betur í störfum sínum.
Flókið kerfi
Heimahjúkrun er á höndum rík-
isins, en félagsleg heimaþjónusta
er á vegum sveitarfélaganna. Þeir
sem njóta þessarar þjónustu þurfa
að eiga samskipti við fleiri en einn
þjónustuaðila, sem gerir lífið flókn-
ara. Stjórnmálamenn og fagaðilar
hafa rætt um það um áratugaskeið
að sameina þessa tvo þjónustuþætti
á eina hendi. Samhæfing á þjón-
ustu milli þessara kerfa er í dag
bæði kostnaðarsöm og tímafrek.
Aðeins á Akureyri og Höfn í
Hornafirði hafa þessir tveir þjón-
ustuþættir verið sameinaðir, sem
tilraunaverkefni, með góðum ár-
angri og til hagsbóta fyrir skjól-
stæðingana.
Þörf á endurskoðun
Orð og yfirlýsingar duga
skammt ef þeim er ekki fylgt eftir.
Nú þarf að sameina þessa þjón-
ustuþætti og minnka flækjustigið.
Það er stefna stjórnvalda að efla
heimaþjónustu við aldraða til að
styðja þá til að vera heima hjá sér
eins lengi og nokkur kostur er.
Skipulag þjónustu í heimahúsum
þarf að taka til gagngerrar endur-
skoðunar og leggja manngildi,
sjálfræði og öryggi til grundvallar
þjónustunni.
Eflum þjónustu við
aldraðra í heimahúsum
Ásta Möller skrifar um
málefni eldri borgara »Heimaþjónusta þarfað byggja á per-
sónulegum tengslum,
virðingu í samskiptum
og stuðla að öryggi
þeirra sem hana fá.
Ásta Möller
Höfundur er alþingismaður.
GIGTARFÉLAG
ÍSLANDS
30 ára 9. okt.
Gigtarfólk - Gigtarfólk- Gigtarfólk
Við göngum í dag
Gengið frá Lækjartorgi upp á Skólavörðuholt
undir kjörorðinu „Gigtin gefur“.
Við stöndum fyrir dugnað, einurð og útsjónarsemi.
Úrræði við gigtarsjúkdómum er fjárfesting.
Við erum fleiri en margur heldur.
* Hægt er að koma inn í gönguna við Bergstaðastræti.
„Af stað“ er kjörorð dagsins um allan heim.
Verum sýnileg, tökum fjölskylduna með.
Skráning er á skrifstofu Gigtarfélagsins og á
Lækjartorgi. Allar frekari upplýsingar er að fá
á skrifstofu GÍ í síma 530 3600.
Gigtarfélag Íslands
17:00 - Safnast saman á Lækjartorgi
17:20 - Upphitun fyrir gönguna
17:30 - Gengið upp Bankastr. og Skólavörðust. *
18:10 - Göngufólki er boðið að hlusta á stutt
orgelverk í Hallgrímskirkju, Hörður
Áskelsson spilar
Ótrúleg helgartilboð
aðeins - 20 sæti
Helgarferð til
Tallinn
18. október
frá kr. 29.990
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Fegursta borg Eystra-
saltsins. Heimsferðir bjóða
ótrúlegt tilboð á síðustu
sætunum í helgarferðum til
Tallinn í Eistlandi
18. október. Gríptu þetta
frábæra tækifæri á helgarferð til þessarar einstöku borgar á
frábærum kjörum. Fjölbreyttir gistimöguleikar í boði í miðborginni.
Glæsileg 4ra stjörnu gisting.
Verð kr.29.990 - helgarferð
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli
með morgunverði í 4 nætur á Hotel
Domina Inn Ilmarine ****.
Í ÞÆTTINUM Ísland í dag
fimmtudagskvöldið 21. september
var Guðlaugur Þór Þórðarson,
stjórnarformaður Orkuveitu
Reykjavíkur, minntur
á að Hengilssvæðið
væri undirlagt virkj-
unarframkvæmdum
þakið rörum, vírum
og drasli. Stjórn-
arformaðurinn tók af
öll tvímæli um að
Orkuveita Reykjavík-
ur myndi ganga vel
frá eftir sig og bætti
jafnframt við að
Orkuveitan hafi þegar
tekið til hendinni og
fjarlægt um hundrað
tonn af alls kyns
drasli sem aðrir hefðu skilið eftir
sig á svæðinu áður en Orkuveitan
kom þar til sögunnar. Hann sagði
Orkuveituna stefna að því að gera
Hengilssvæðið að útivistarsvæði
sem nýttist sem allra flestum. Eða
með hans eigin orðum: „Það er al-
gjört markmið hjá okkur og við
erum að leggja mikið á okkur
hvað það varðar að sjá til þess að
við lítum svo á að við tökum þetta
svæði í fóstur og við ætlum að
ganga þannig frá því að það verði
til fyrirmyndar sem útivist-
arsvæði.“ Orkuveita Reykjavíkur
hefur þannig markað sér þá stefnu
að starfa í sátt við umhverfið og
almenning í landinu og stjórn-
arformaðurinn er bjartsýnn á að
það takist.
Tvær jarðvarmavirkjanir hafa
þegar risið á Hengilssvæðinu,
Nesjavallavirkjun og Hellisheið-
arvirkjun, og sitt sýnist hverjum
um hvernig til hafi tekist frá um-
hverfissjónarmiði. Margir hafa
fundið að því að Hellisheið-
arvirkjun sé áberandi og fátt hafi
verið gert til þess að draga úr
þeirri sjónmengun sem óneit-
anlega fylgir virkjuninni. En
virkjunin er þegar risin og því
verður ekki breytt hvað sem fólki
kann að finnast um hana. Öðru
máli gegnir hins veg-
ar um fyrirhugaðar
virkjanir á Ölkeldu-
hálsi og við Hvera-
hlíð. Í þessum sama
sjónvarpsþætti benti
framkvæmdastjóri
Landverndar á að ef
virkjað verði við Öl-
kelduháls væri að
sínu mati „talsvert
miklu fórnað“ og víst
er að háspennulínur
sem lagðar yrðu frá
virkjuninni um Heng-
ilssvæðið austan- og
sunnanvert að Hellisheiðarvirkjun
myndu valda mikilli sjónmengun.
Línustæðin í tengslum við Öl-
kelduhálsvirkjun og Hverahlíð-
arvirkjun eru í umhverfismati og
ef leyfi fæst til að reisa virkj-
anirnar fylgir þeim gríðarlegt
víravirki á þessum hluta Heng-
ilssvæðisins fyrir utan önnur
mannvirki sem tilheyra slíkum
virkjunum.
Þessi framtíðarsýn Orkuveitu
Reykjavíkur á Hengilssvæðinu er
skelfileg. Virkjanir á Ölkelduhálsi
og við Hverahlíð munu gerbreyta
ásýnd austur- og suðurhluta
Hengilssvæðisins og afskræma
þetta fósturbarn Orkuveitunnar.
Stór og áberandi mannvirki munu
rýra útivistargildi og náttúrugæði
á Ölkelduhálsssvæðinu og við
Hverahlíð og háspennulínur og
möstur blasa við á Hellisheiðinni
hvert sem litið verður. Vandséð er
hvernig þessar umfangsmiklu
framkvæmdir samræmast þeirri
stefnu Orkuveitunnar að gera
Hengilssvæðið að útivistarparadís
og starfa í sátt við umhverfið og
almenning í landinu svo að ekki sé
minnst á ferðaþjónustuaðila sem
bjóða upp á skipulagðar göngu- og
hestaferðir á svæðinu og hafa
beina hagsmuni af útivistargildi
þess og náttúrugæðum.
Núna stendur yfir djúpbor-
anaverkefni sem lofar góðu um
það að hægt verði að margfalda
orkunýtingu á þeim svæðum sem
þegar hafa verið virkjuð. Vonir
eru bundnar við að verkefnið skili
árangri innan 10-15 ára. Fram-
kvæmdastjóri Landverndar spyr
hvort ekki sé rétt að halda að sér
höndum þangað til og láta ógert
að fara inn á ósnortin svæði með
tækni sem einungis nýtir 10 – 20%
af auðlindinni. Getur Orkuveitan
ekki beðið þangað til ný tækni
hefur verið þróuð sem gerir mönn-
um kleift að fullnýta þá orku sem
er að hafa á athafnasvæði Hellis-
heiðarvirkjunar? Hvers vegna þarf
að fórna náttúruperlum á borð við
Ölkelduháls og austan- og sunn-
anvert Hengilssvæðið fyrst aðrar
lausnir eru innan seilingar?
Það væri glámskyggni hjá
stjórnarformanni Orkuveitu
Reykjavíkur að ætla að sátt muni
ríkja milli Orkuveitunnar og al-
mennings ef Orkuveitan reisir fyr-
irhugaðar virkjanir við Ölkeldu-
háls og Hverahlíð. Sjálfur segir
hann að fátt fari jafn mikið í taug-
arnar á sér og háspennulínur þeg-
ar hann vill njóta útivistar og
náttúrufegurðar. Stjórnarformað-
urinn er ekki einn um það. Þeim
fjölgar stöðugt sem vilja standa
vörð um náttúru landsins og
vernda svæði eins og Ölkelduháls
sem er á náttúruminjaskrá. Verði
af þessari framkvæmd er líklegt
að hyldýpisgjá myndist milli
Orkuveitu Reykjavíkur og þess
ört vaxandi hóps Íslendinga sem
unna náttúru landsins og vilja
varðveita sem stærstan hluta
hennar ósnortinn.
Þegar fyrirhugaðar virkjanir
hafa verið reistar við Ölkelduháls
og Hverahlíð býður Orkuveita
Reykjavíkur upp á útivist á Heng-
ilssvæðinu í skugga háspennulína.
Ef marka má orð stjórnarfor-
manns Orkuveitunnar er harla
ólíklegt að gestir og gangandi á
svæðinu ef einhverjir verða muni
rekast á hann þar. Stjórn-
arformaðurinn, Guðlaugur Þór
Þórðarson, fer væntanlega eitt-
hvert annað til þess að njóta úti-
vistar í óspilltri náttúru.
Hengilssvæðið í fóstur hjá
Orkuveitu Reykjavíkur
Stefán Erlendsson skrifar
um virkjunarframkvæmdir
á Hellisheiði
» Getur Orkuveitanekki beðið þangað til
ný tækni hefur verið
þróuð sem gerir mönn-
um kleift að fullnýta þá
orku sem er að hafa á
athafnasvæði Hellis-
heiðarvirkjunar?
Stefán Erlendsson
Höfundur starfar sem leiðsögumaður
í hestaferðum á Hengilssvæðinu.