Morgunblaðið - 12.10.2006, Síða 45

Morgunblaðið - 12.10.2006, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 45 hjá þér, þú varst alltaf til í að leika við mig og oftast fórum við í búð- arleik sem mér fannst svakalega skemmtilegt. Þú varst líka alltaf til í að fara með mér út á róló eða við fór- um út á Mikló ég á hjóli eða línu- skautum og þú labbaðir með. Við fórum líka oft út í bókabúð og í Kringluna þar sem þú lést allt eftir mér og keyptir það sem mig langaði í. Hjá þér fékk ég líka að baka kökur sem að ég bjó til upp úr mér og skemmtilegast fannst mér að fá að gista hjá ykkur afa og vera hjá ykk- ur í fríum. Þú varst alveg einstök amma og ég á eftir að sakna þín mik- ið. Þín Alma. Í dag kveðjum við okkar kæru mágkonu Ölmu Pálmadóttur. Þökk- um henni samverustundir á liðnum árum. Margs er að minnast þegar komið er að hinstu kveðjustund sem ekki verður rakið hér. Nú hverfur sól í haf og húmið kemur skjótt. Ég lofa góðan Guð, sem gefur dag og nótt, minn vökudag, minn draum og nótt. Þú vakir, faðir vor, og verndar börnin þín, svo víð sem veröld er og vonarstjarna skín, ein stjarna hljóð á himni skín. Lát daga nú í nótt af nýrri von og trú í myrkri hels og harms og hvar sem gleymist þú á jörð, sem átt og elskar þú. Kom, nótt, með náð og frið, kom nær, minn faðir hár, og legðu lyfstein þinn við lífsins mein og sár, allt mannsins böl, hvert brot og sár. (Sigurbjörn Einarsson.) Kæri bróðir Ólafur, sendum þér og börnum þínum, Þóri, Lindu og fjölskyldum þeirra innilegustu sam- úðarkveðjur. Bergþóra, Jóna, Erna, Helga og fjölskyldur. Elsku systir. Þú hverfur svo snögglega af sjónarsviðinu að eftir stöndum við hnípin og hálfrugluð. Efst í huga mér á stund sem þess- ari er þakklæti fyrir allar góðu stundirnar okkar saman, en þó fyrst og síðast fyrir að hafa átt þig að. Þeir eru trúlega ekki margir sem tækju að sér þrjú yngri systkin eftir fráfall móður og reyndust þeim jafnvel og þú gerðir, og þú sjálf þá aðeins 16 ára. Í huga mér varðst þú mamman sem mig langaði til að eiga, því mamma var svo lengi mikið veik áð- ur en hún dó, að kynni mín af henni voru mjög takmörkuð. Þú hafðir einstakt lag á því að fá okkur systkini þín ofan af vitleys- unum. Eins og þegar þeir Stebbi og Búji sátu heila kvöldstund og biðu eftir því að bólgna upp eins og hrognin sem þeir höfðu borðað. Þú hafðir sagt þeim að þeir kæmust kannski ekki inn um dyrnar aftur, ef þeir færu út. Árið sem þú fórst suður í skóla, var fljótt að gleymast því þú komst aftur og þá með Óla þinn og svo fljótlega Þóri, fallegasta barn í heimi. Ég hafði þá ekki gert mér grein fyrir því að ég ætti yngri bróð- ur, Þórð, sem hafði farið í fóstur til ömmu, Öllu og Helga, svo til strax eftir fæðingu. Þórir varð því litli bróðir minn, allir aðrir í kring áttu fullt af systkinum. Þau voru yndisleg árin þrjú sem þið voruð hjá okkur. En svo kom að því að þið ungu hjón- in þurftuð að vera út af fyrir ykkur og við þrjú ásamt pabba fluttum til Öllu og Helga, þeirra þáttur í upp- eldinu verður seint þakkaður frekar en ykkar Óla. Alltaf stóð fallega og snyrtilega heimilið ykkar opið fyrir okkur hin- um og einhverju sinni er við systk- inin vorum í heimsókn hafði bæst í hópinn lítil sæt prinsessa – Linda. Sú var ekki síður ráðsnjöll en móð- irin. Varla þriggja ára lýsti hún því yfir að Þórir hefði borðað nammi í heil fimm ár áður en hún fæddist svo hún átti sko skilið að fá meira en hann. Sú litla hafði vinninginn að því mig minnir. Og enn og aftur tókstu mig að þér þegar ég hóf framhaldsskólanám. Í heila þrjá vetur átti ég skjól hjá ykk- ur og lifði eins og blómi í eggi. Þú tókst virkan þátt í því sem ég var að gera og varst svo stolt af því þegar mér gekk vel. Elsku Alma. Þökk fyrir allt, líka það sem ekki kemst fyrir hér. Það er vissa mín að þér hefur verið vel tekið á fjarlægri strönd. Óli, Þórir, Linda og fjölskyldur, fagrar og skemmti- legar minningar veita mikla huggun og af þeim veit ég að mikið er til. Sigurbjörg Dan Pálmadóttir. Ég er ein þeirra sem urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Ölmu. Hún varð mér strax mjög kær og finnst mér nú erfitt að þurfa að kveðja. Þegar ég kynntist manninum mín- um, Degi, fyrir rúmum 10 árum kynnti hann mig fljótlega fyrir ömmu sinni Ölmu og afa Óla. Hún var honum mjög kær og lýsti hann henni sem mjög sérstakri ömmu. Ég skildi það síðar þegar ég hafði kynnst þessari skemmtilegu konu hvers vegna hún var honum svo kær. Ég gleymi seint þeirri stundu þegar ég hitti þau hjónakorn í fyrsta sinn. Þá stóð þessi glæsilega, tignarlega og glaðlega kona í anddyrinu og tók á móti mér með opinn faðminn. Það var eins og ég hefði þekkt hana alla tíð. Árin liðu og kynntist ég henni mun betur. Okkar samskipti voru góð á allan hátt og á ég margar góð- ar minningar um hana. Hún reyndist mér ávallt góð og fannst mér alltaf notalegt og skemmtilegt að vera í kringum hana. Í hvert skipti sem ég hitti hana minnti hún okkur Dag á hversu frá- bær við værum. Hún hugsaði vel til okkar og var stolt yfir því hvað okk- ur gekk vel í lífinu. Fyrstu árin var hrifning mín slík að ég talaði oft um hana og hafði gaman af því að segja skemmtilegar sögur af henni. Hún reyndist mér og mínum vel. Hún tók til dæmis systur minni, Tinnu, ákaflega vel. Hún spurði oft um hana og spurði hvort hún ætlaði ekki að kíkja fljótlega í heimsókn. Í matarboðin sem hún hélt bauð hún henni sérstaklega. Systir mín leit mjög upp til hennar og þótti afar vænt um hana. Það var alltaf svo gaman að koma í heimsókn til þeirra hjóna. Fyrstu ár- in okkar Dags fengum við turdildúf- urnar oft að gista hjá þeim. Þessar helgar eru mér mjög eftirminnilegar þar sem gestrisni Ölmu var engri lík. Hún hugsaði um okkur frá morgni til kvölds og passaði upp á að öllum liði vel. Fyrir mér voru þessar heim- sóknir ævintýri líkastar. Ég leit mjög upp til þessarar konu og fannst mikið til hennar koma. Hún var ein þeirra persóna í lífi mínu sem mér þótti afskaplega vænt um. Hún var hin fullkomna amma og var Dagur maðurinn minn heppinn að eiga hana sem slíka. Ég kveð þessa yndislegu konu með söknuði og bið góðan Guð að varðveita hana og styrkja þá sem eftir lifa. Hjördís Dögg Grímarsdóttir. Mig langar að minnast Ölmu Pálmadóttur með nokkrum orðum. Hún var besta vinkona móður minnar, og þar af leiðandi höfðum við verið samferða alla tíð, heimur- inn verður tómlegur án hennar. Mér hlýnar um hjarta við að rifja upp ótal minningarbrot frá liðnum 50 árum sem við höfum þekkst, frá fyrsta skóladegi mínum á Akranesi þegar ég fór til hennar eftir skóla til að sýna henni skólatöskuna mína og nýju úlpuna, allar götur síðan hef ég haft þörf fyrir að bera undir hana það sem ég hef gert, hvort sem það var handavinna, ný innréttað heimili eða nýr maður? Í sjötugsafmæli móður minnar sagði Alma við Þor- björn, nýbakaðan eiginmann minn, mikið er ég ánægð með að vera svona ánægð með þig, svona tilsvör átti hún ein til. Alma var í mínum huga alla tíð skörungur, hafði mjög fágaðan smekk og var með myndarlegri kon- um, það tóku allir eftir henni. Ég er svo þakklát fyrir föstudags- eftirmiðdag sem við Alma áttum heima hjá mér í júni síðastliðnum ásamt móður minni, systur og Ingu Siggu vinkonu þeirra, þá var mikið hlegið og haft gaman. Kæra vinkona ég þakka fyrir að hafa fengið að vera samferða þér, það verður stórt skarð sem þú skilur eftir í huga okkar sem þekktum þig. Elsku Óli, Þórir og Linda, tengda- börn og barnabörn, mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Birna Sigurðardóttir. Það er margs að minnast um hana Ölmu okkar „niðri“ eins og við köll- uðum þau sómahjónin Ólaf og Ölmu. Í 25 ár bjuggum við foreldrar okkar og fjögur systkin í sama húsi og þau á Kjartansgötunni. Alma var skemmtileg kona og barngóð með af- ar stórt hjarta sem alltaf var gaman að hitta og spjalla við. Þau voru lag- hent og smekkleg hjónin og samhent í umhirðu hússins og garðsins. Þær voru ófáar stundirnar með henni Ölmu í kjallarastiganum, garðinum eða þvottahúsinu að spjalla um heima og geima. Hún fylgdist alltaf með því sem við vorum að gera og sýndi okkur væntumþykju og áhuga. Ekki ósjaldan gleymdust lyklar heima og þá var farin leynileið í gegnum þvottahúsgluggann og milli- hurðin opnuð með hnífnum sem Alma hafði komið fyrir á handhæg- um stað fyrir okkur krakkana. Aldr- ei nokkurn tíma var eins og þau heyrðu brambolt og hávaða sem fylgdi okkur örugglega fjórum börn- um. Þvert á móti talaði hún alltaf um að við værum svo ofsalega góð og vel uppalin að hún hefði aldrei nokkurn tíma orðið vör við hávaða af neðri hæðinni! Þetta finnst mér lýsa Ölmu best og svona munum við hana fjöl- skyldan. Hún var mikil gæðakona. Þegar foreldrar okkar voru flutt af Kjartansgötunni rifjaði Alma upp ófáar uppákomur og skemmtilegheit úr samveru okkar í húsinu allan þennan tíma. Það var mikil eftirsjá eftir nágrönnunum niðri Ölmu og Ólafi. Við sendum Ólafi, Lindu, Þóri og fjölskyldum innilegar samúðar- kveðjur. Þóra Margrét Pálsdóttir. Alma langamma mín var mjög góð við mig. Við gerð- um oft eitthvað skemmtilegt saman. Langamma mín var alltaf góð við alla. Hún gaf manni oft sínalkó og spælt egg. Hún gaf manni fallegar jólagjafir á jólunum og páskaegg á páskunum. Ég og Alma frænka mín gistum stundum hjá langömmu og það var mjög gaman og hún naglalakkaði okkur stund- um. Sigrún Amina. HINSTA KVEÐJA Blóm vaxa, blómstra, visna, fölna og deyja. Ragnheiður var blóm. Blóm sem hvorki visnaði né föln- aði. Blóm sem dó. Sagt er að enginn viti hvað átt hefur fyrr en misst hef- ur. Hjarta mitt segir að Ragnheiður sé undantekningin sem sannar regl- una. Af hverju? Blómaunnendur njóta blómanna þar sem þau standa tíguleg, gefa frá sér mjúkan ilm og baða umhverfi sitt fögrum litum. Að sama skapi skildu persónutöfrar, lífsgleði, bros og hlýja hennar engan eftir ósnortinn. Enda finnur maður mikinn styrk í faðmlagi frá öllu því góða og heiðarlega fólki sem staðið hefur Ragnheiði næst. Hver stund talaði sínu máli. Ég hringdi til að athuga meðmæli fyrir Ragnheiði þegar hún kom í at- vinnuviðtal hjá mér í Skipholtinu fyrir fimm árum. Reyndur atvinnu- rekandi sagði: „Ég hef verið með at- vinnurekstur í um 40 ár. Þú færð að- eins einu sinni starfskraft eins og Ragnheiði í vinnu. Þitt er valið en eitt get ég sagt þér; þegar ég lokaði mínum rekstri stóð hún enn mér við hlið og hjálpaði mér að þrífa og ganga frá og skellti í lás fyrir mig. Hún brást mér aldrei.“ Þetta reynd- ust vera orð að sönnu. Ragnheiður brást mér heldur aldrei. Ég reyndi mitt bezta til að bregðast henni ekki og líklega er það þess vegna sem reksturinn hefur blómstrað. Hún var stoð og stytta og allt í öllu, veitti gleði, var uppörvandi, lífsglöð, alltaf jákvæð, með hreint og fallegt hjarta og stóð mér við hlið þar til hún var kölluð til æðri verka. Það er víst að nú er himnaríki enn fallegra þar sem bros hennar og viðhorf til umhverfis síns og annarra lýsir nú upp aðrar vistarverur. Ég fæ víst ekki tækifæri til að gefa Ragnheiði minni meðmæli þar enda er þess ekki þörf þar sem persóna hennar talar sinni tungu þar sem hún er nú. Hún var fyrsti starfs- maðurinn sem ég réð til vinnu. Ég mun njóta innblásturs hennar allt mitt líf og ávallt gera mitt bezta til að bregðast henni ekki. Ragnheiður Björnsdóttir ✝ RagnheiðurBjörnsdóttir fæddist í Reykjavík 10. júní 1951. Hún lést af slysförum sunnudaginn 1. október síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Langholts- kirkju 9. október. Valdi, Bjarki, Vigdís og allir þeir sem eftir sitja, allt þetta góða fólk hefur fundið fyll- ingu í nærveru Ragn- heiðar og saknar hennar. Ég hugsa hlýtt til ykkar allra og veit að þið finnið styrk í brosinu hennar sem lifir innra með okkur. Ég er hrærður og þakklátur fyrir að ég hafi fengið að hafa Ragnheiði mér við hlið heil fimm ár í blíðu og stríðu. Ýmir Björgvin Arthúrsson. Í dag kveðjum við hinstu kveðju vinkonu okkar Ragnheiði Björns- dóttur. Það er svo margt sem kemur upp í hugann, margar góðar og skemmti- legar minningar, minningar sem við munum geyma hjá okkur um ókomin ár. Það var alltaf gaman að ferðast með Lillu og Valda. Eins og þegar við sigldum um Ísafjarðadjúpið og Breiðafjarðareyjarnar, þar áttum við alveg frábærar stundir saman. En ferðin sem er mér kær er þegar ég og Lilla fórum austur á Djúpavog á Pickupinum að sækja karlana okk- ar. En þeir höfðu þá verið að sigla hringinn um landið. Við töluðum og hlógum alla leiðina í heila fimm tíma, það var ekki þögn í eina mínútu. Það fyndna var að allir þeir sem við mættum blikkuðu ljósunum á okkur og við sem vorum með ljósin kveikt. En við tókum því bara þannig að við værum svo miklar gellur og þess vegna væri verið að blikka. En annað kom á daginn þegar við vorum næst- um komnar á leiðarenda. Þá tókum við eftir því að við vorum búnar að vera með kveikt á kösturunum og höfðum blindað alla þá sem við mættum. Við fórum alveg í hláturs kast þegar við föttuðum að við vor- um nú ekki eins miklar gellur og við héldum. Það var einróma samþykki að segja körlunum okkar ekkert frá þessu. Með þessum fátæklegu orðum kveðjum við þig, kæra vinkona, og þökkum fyrir samfylgdina. Far þú í friði, elsku Lilla. Valda og fjölskyldunni allri send- um við Óskar, Birna og Kristófer samúðarkveðjur. Birgitta. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upp- lýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður enfrestur rennur út. Minningargreinar Helluhrauni 10, 220 Hf., sími 565 2566, www.englasteinar.is Englasteinar Fallegir legsteinar á góðu verði Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, f. 19. desember 1926, andaðist á heimili sínu, Skjóli, Kleppsvegi 64, laugardaginn 30. september. Jarðsungið verður frá Laugarneskirkju föstu- daginn 13. október kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Félags aðstandenda Alzheimers-sjúklinga. Sveinn Rúnar Hauksson, Björk Vilhelmsdóttir, Óttar Felix Hauksson, Guðný Þöll Aðalsteinsdóttir, Sigríður G. Hauksdóttir, Evald Sæmundsen, Sigfús Guðfinnsson, Andrea Henk, Guðmundur Guðfinnsson, Lena María Gústafsdóttir, María Þ. Guðfinnsdóttir, Hörður Hauksson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.