Morgunblaðið - 12.10.2006, Page 60
60 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
NÝJASTA STÓRVIRKIÐ FRÁ OLIVER STONE. STÓRMYND SEM LÆTUR ENGAN ÓNSNORTIN.
SÖNN SAGA UM HUGPRÝÐI OG ÓTRÚLEGA MANNBJÖRG.
NICOLAS CAGE SÝNIR STÓRLEIK Í MYNDINNI.
eee
BBC
eeee
EMPIRE
/ KRINGLAN
BEERFEST kl. 5:45 - 8 - 10:10 B.i.12.ára.
JACKASS NUMBER TWO Forsýning kl. 8 B.i.12.ára.
HARSH TIMES kl. 10:20 B.i. 16.ára.
BÖRN kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.12.ára.
UNITED 93 kl. 6 B.i.14.ára.
eee
LIB, TOPP5.IS
eee
ROLLING STONE
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku og ensku tali !
GLÆNÝ TEGUND AF
FERÐAMÖNNUM
Ekki missa af fyndnustu Walt
Disney teiknimynd haustins.
www.haskolabio.is • Miðasalan opnar kl. 17HAGATORGI • S. 530 1919
NICOLAS CAGE SÝNIR STÓRLEIK Í MYNDINNI.
eee
BBC
eee
ROLLING STONE
eeee
EMPIRE
eeee
TOPP5.IS
ÞEGAR FRÉTTIR AF DAUÐA DÍÖNU PRINSESSU SKÓKU HEIMSBYGGÐINA, DRÓ HENNAR
HÁTIGN ELÍSABET II DROTTNING SIG TIL HLÉS INNAN VEGGJA BALMORE KASTALA.
EINN ÓVÆNTASTI GLEÐIGJAFI ÁRSINS
eeee
SV, MBL
„LEIKURINN EINSTAKUR OG
UMFJÖLLUNAREFNIÐ ÁHUGAVERT.“
eee
MMJ, KVIKMYNDIR.COM THE QUEEN ER ÞRISTUR
eee
EGB, TOPP5.IS
LOKASÝNINGARTILBOÐ 400 KR.
BJÓLFSKVIÐA
eee
H.J. - MBL
eeee
blaðið
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku tali !
GLÆNÝ TEGUND AF FERÐAMÖNNUM
WORLD TRADE CENTER kl. 5:30 - 8:30 - 10:10 B.i.12.ára
ZIDANE kl. 8
THE ROAD TO GUANTANAMO kl. 8:10 - 10:20 ÁN TEXTA B.i.16.ára
THE QUEEN kl. 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
BJÓLFSKVIÐA kl. 6 B.i.16.ára
PIRATES OF THE CARI... 2 kl. 8:15 Tilboð 400kr. B.i.12.ára
SIGURVEGARI
kvikmyndahátíðin í Berlín
BESTI LEIKSTJÓRINN
ÖRFÁAR SÝNINGAR!
EINN AF BESTU
KNATTSPYRNUMÖNNUM SÖGUNNAR
Munið afsláttinn
Árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Hreinræktun hunda og katta
ÉG vil aðeins ræða um hreinræktun
á hundum og köttum. Þegar fólk er
að rækta hunda og ketti finnst mér
gróðarsjónarmið ráða þar öllu. Mér
finnst það vera á ábyrgð hunda- og
kattafélagsins að tilkynna þessa
starfsemi til skattayfirvalda, þannig
að fólk sem stendur í þessari rækt-
un borgi skatta af starfseminni.
Það fólk sem síðan kaupir þessi
hreinræktuðu dýr vill svo bara
kaupa læður eða tíkur til þess að
það geti svo í framtíðinni grætt pen-
inga sjálft. Fólki, sem gerir þetta,
finnst ekki vænt um dýrin heldur
vill það bara græða peninga.
Það er kominn tími til að um
þetta séu sett lög, þannig að fólk
fari að borga skatta af þessari starf-
semi líkt og aðrir borgarar þurfa að
greiða skatt af launum sínum. Það
verður þá kannski til þess að fólk
hættir að rækta hunda og ketti bara
til þess að græða á því, heldur
vegna þess að því þyki vænt um
dýrin.
Hugsið um hag dýranna en ekki
ykkar eigin. Breytið lögunum strax.
Dýravinur.
Hver er ábyrgur?
ERUM það við þegnarnir eða ein-
hver æðri? Ég er að höfða til þess
sem gera þarf til að halda of-
framboði fíkniefna frá ungdóminum
og of mörgum öðrum.
Mörg fyrirtæki og sveitarfélög
hafa styrkt baráttu Svavars Sig-
urðssonar sem berst fyrir fíkniefna-
lausu Íslandi. En ríki og Reykjavík-
urborg, sem hafa handa í milli mest
fé, hafa síðan Svavar hóf sitt sjálf-
boðastarf lítið sem ekkert komið að.
Þessir aðilar eyða stórum fjár-
munum og miklu mannafli í að fást
við afleiðingarnar. Í stað þess að
gera lögreglu og tolli starf sitt ár-
angursríkara.
Þetta virðist vera allt á ábyrgð
Svavars og almættisins sem tók
málið í sínar hendur að eigin frum-
kvæði. Svo þegar hann hefur stund-
að þessi mál í 12 ár og lagt allt sitt
persónulega til málefnisins fer for-
setinn í auglýsingaferð með einum
lyfjaframleiðendarisanum að því er
virðist helst þeim til stuðnings.
En við borgararnir og aðrir vel-
unnarar eru þeir einu sem láta eitt-
hvað til málefnisins rakna. Við erum
borgarar ríkisins og það verður ekki
annað en það sem við gerum úr því.
Hugsið ykkur ef æðsti draumur
Svavars yrði að veruleika og lög-
regla og tollur fengju til afnota
gegnumlýsingartæki eins og þeir
hafa í Svíþjóð. Það tæki virkar
þannig að gámar og bílar eru gegn-
umlýstir og kemur þá í ljós á auga-
bragði hvort eitthvað misjafnt sé á
ferðinni. Þá er líka hægt að grípa
inn í ferlið áður en efnið kemst á al-
mennan markað. Æsku vorri og
þjóð til heilla.
Ég læt þessi skrif mín duga í bili
en hvet menn til að taka höndum
saman í þessari velferðarbaráttu.
En það heyrist frá mér aftur um
hvers eðlis og hvernig skannerinn
virkar sem Svavar er að vinna að.
Erling Smith.
Árgangur 1974 úr Fellaskóla
VIÐ ætlum að hittast kæru skóla-
félagar úr Fellaskóla eða árgangur
1974. Endilega kíkið á blog.central-
.is (leit og endurfundir) eða hafið
samband við Önnu Lilju Rafnsdótt-
ur í síma 862-5508 eða Röggu í síma
846-2525. Reynum nú að koma öll
saman.
Ragga.
Leiðrétting – röng kennitala
Í PISTLI í Velvakanda í gær, mið-
vikudag, var gefin upp röng kenni-
tala á söfnunarreikningi fyrir Ómar
Ragnarsson.
Rétt reikningsnúmer og kennitala
er: 0101-26-101717, kt: 611085-0529.
Hver smíðar gardínukappa?
HVER smíðar gamaldags gard-
ínukappa (sem bogna til endanna)
eftir teikningum. Þeir sem gætu lið-
sinnt mér vinsamlega hafið sam-
band í síma 846 0922.
Nokia-sími týndist í miðbænum
NOKIA 6230i-sími, svartur og grár,
týndist í miðbæ Reykjavíkur 22.
september sl. Ef einhver hefur
fundið símann vinsamlega hafið
samband í síma 899 0560.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
90ára afmæli. Ídag, 12. októ-
ber, er níræð Guðný
Pálsdóttir, Lind-
arsíðu 4, Akureyri.
80ára afmæli. Ígær, 11. októ-
ber, varð Freyja Leó-
poldsdóttir áttræð. Í
tilefni af tímamót-
unum mun hún taka á
móti ættingjum og
vinum í Listhúsinu í
Laugardal nk. föstu-
dag milli kl. 17 og 19.
Kunningi Víkverjahnussaði yfir ný-
lagðri vegarklæðningu
á dögunum og kvað
hana vera ódýra og
rennislétta sem gæfi
ekkert grip þegar
frysti. Þetta væri
„Black Ice“ eins og
varnarliðsmenn munu
einhverntíma hafa
kallað svart og slétt
malbik í frostum. Vík-
verja þótti þetta um-
hugsunarefni nú í vetr-
arbyrjun. Eins þótti
honum umhugs-
unarvert hvort það
ættu að vera eingöngu
dekkin á bílum sem önnuðust veg-
grip eða grófari og dýrari klæðning?
Er þetta hin klassíska spurning um
hvernig deila skuli ábyrgðinni milli
hins opinbera og vegfarenda? Eða er
verið að bjóða vegfarendum upp á
ódýrt og flughált malbik? Eitt er þó
víst, dekkin hjá ýmsum eru ekki upp
á marga fiska og síst til fyr-
irmyndar. Dekkin á bíl Víkverja eru
t.d. komin á síðasta snúning og hann
stendur nú frammi fyrir tveim kost-
um, þ.e. að kaupa ný (ónegld) vetr-
ardekk á næstunni eða leggja bíln-
um fram á vorið. Strætisvagna og
reiðhjól má líka nota. Einnig mælir
Víkverji með afar snjöllu ráði sem er
bæði ódýrt og þægi-
legt: Sníkja far með
öðrum og helst láta þá
keyra sér alveg upp að
dyrum. Þegar menn fá
sig fullsadda af þessari
heimtufrekju má finna
sér næsta fórnarlamb
og svo koll af kolli
þangað til öruggt er að
fyrsti „vinurinn“ er bú-
inn að steingleyma
matröðinni og gengur í
gildruna aftur. Víst er
að spara mætti rekstr-
akostnað bifreiðar sem
nemur hundruðum þús-
unda króna á ári með
þessu snilldarbragði og
kaupa sér eitthvað fallegt fyrir and-
virðið. Víkverji þarf að flísaleggja
baðið heima hjá sér og þar gæti 150
þúsund kall t.d. nýst vel.
x x x
Í Ártúnsbrekkunni er ekki enn bú-ið að gera við vegriðið sem beygl-
aðist rækilega í árekstri vegna ofsa-
aksturs ungmennis fyrir mörgum
vikum. Hvers vegna er ekki mann-
virkið lagað? Ef annað eins atvik
ætti sér stað myndi fólk ekki sleppa
jafn vel og síðast. Með hliðsjón af því
að ekkert lát er á hraðakstri í borg-
inni finnst Víkverja þetta undarlegt í
meira lagi.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569
1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er fimmtudagur
12. október, 285. dagur
ársins 2006
Orð dagsins: En hann frelsar hinn bágstadda með
bágindum hans og opnar eyru þeirra með þreng-
ingunni. (Jb. 36, 15.)
Fanginn Mark Chapman, semheimurinn þekkir sem bana-
mann Bítilsins og listamannsins
Johns Lennons, hefur verið neitað
um reynslulausn í fjórða skiptið sök-
um þess hve glæpur hans var „und-
arlegur“. Chapman, sem er 51 árs,
mun því, að minnsta kosti, dúsa á
bak við lás og slá næstu tvö árin fyr-
ir að hafa skotið Lennon til bana
þann áttunda desember árið 1980.
Sérstök fangelsisnefnd fór yfir
mál Chapmans en komst að þeirri
niðurstöðu að það væri ekki í al-
mannaþágu að
honum yrði sleppt
lausum. Nefndin
veitti því þó at-
hygli að Chapman
hafi sýnt af sér
góða hegðun í
fangelsinu.
Chapman hafði
átt við geð-
sjúkdóm að stríða áður en hann
myrti Lennon. Hann mætti fyrir
nefndina, sem skipuð er þremur ein-
staklingum, í Attica-fangelsinu í
gær.
Fram kemur í ákvörðun nefnd-
arinnar að hún hafi áhyggjur af því
hversu undarlegur glæpurinn, sem
var gerður af ráðnum hug, hafi ver-
ið. Það væri því ekki í almannaþágu
að veita Chapman reynslulausn.
Fólk folk@mbl.is
Ný könnun hefur leitt í ljós aðbreskir karlmenn kjósa síður
að konur séu með sílíkonbrjóst. 85%
karlmanna á aldrinum 18 – 34 ára
sögðu að þeim væri ekki vel við
fegrunaraðgerðir og sögðu að þeim
fyndist það fráhrindandi ef konur
hefðu farið í slíka aðgerð. 1.600
karlmenn voru spurðir og sögðu
15% þeirra að þeir tækju ekki eftir
því hvort kona hefði farið í fegr-
unaraðgerð.
Tímaritið More lét gera þessa
könnun og talskona þess segir að
nær væri að konur eyddu peningum
sínum í eitthvað annað en stór sílí-
konbrjóst. Því sé það misskilningur
að karlar vilja konur með slík
brjóst, og nefnir þar fyrirsætuna
Jordan sem dæmi.
Þá voru þátttakendur spurðir
hvaða þekktu konu þeir löðuðust
helst að og nefndi 51% söngkonuna
Cheryl Tweedy úr sveitinni Girls
Aloud, en 24% leikkonuna Scarlett
Johansson og 10% fyrirsætuna
Kate Moss. 9% nefndu Jordan.
Könnunin kom greinilega víða við
þar sem karlarnir voru einnig
spurðir að því hvort þeir horfðu á
klámefni og sögðust 49% gera það
en aðeins 10% sögðust ekki gera
það. 4% sögðu að kærasta þeirra
bannaði þeim það.