Morgunblaðið - 11.12.2006, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2006 9
FRÉTTIR
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Gjafakortin vinsælu
Leðurkápur
Leðurjakkar
Mánudagur 11.12.
Súrsætur pottur og buff.
Þriðjudagur 12.12.
Spínatlasagna sí sí sí vinsælt.
Miðvikudagur 13.12.
Thailenskur pottur m. núðlusalati.
Fimmtudagur 14.12.
Tortillas og chillipottur.
Föstudagur 15.12.
Indveskar vefjur m. mangó chutney.
Helgin 16.-17.12.
Hnetusteik m. waldorfsalati.
Nýbýlavegi 12, Kóp. Sími 554 4433.
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-16.
Langömmukjólarnir
komnir aftur
j l i
i
GERT hefur verið samkomulag um
uppbyggingu annars áfanga Skugga-
hverfisins milli 101 Skuggahverfis
hf. og Íslenskra aðalverktaka hf., en í
þessum áfanga rísa fimm íbúðarhús,
þrjár til nítján hæðir, þar sem verða
tæplega 100 nýjar íbúðir samtals.
Byggingarsvæðið afmarkast af
Skúlagötu, Frakkastíg, Lindargötu
og Vatnsstíg. Hæsta byggingin mun
standa við Vatnsstíg og verður hún
19 hæðir. Þá munu tvær lægri bygg-
ingar standa við sömu götu, sem
verða annars vegar átta hæða og
hins vegar þriggja hæða. Við Lind-
argötu verða síðan tvær byggingar,
önnur þriggja hæða en hin ellefu
hæða. Húsasamstæðurnar verða
tengdar saman neðanjarðar með
bílageymslum á þremur hæðum, en
samtals verða rúmlega 250 bílastæði
í öðrum og þriðja áfanga verksins.
Íbúðirnar í húsunum eru af mis-
munandi stærð eða allt frá 67 fer-
metrum og upp í rúmlega 300 fer-
metra að stærð. Í flestum húsunum
verða aðeins tvær íbúðir á hæð, sem
þýðir að í flestum þeirra verður út-
sýni til þriggja átta. Sérstök hljóð-
einangrun verður á milli hæða og er
lofthæð íbúðanna 2,7 metrar. Burð-
arkerfi húsanna er steinsteypt,
ásamt því sem útveggir eru einangr-
aðir að utan og klæddir með bæði
flísum, málmi og timbri.
Samtals telur gólfflötur nýju
húsanna tæpa 16 þúsund fermetra,
auk bílageymslu sem verður hálft
sjötta þúsund fermetra. Hönnuðir
Skuggahverfis eru hinir dönsku
Schmidt, Hammer & Lassen, ásamt
íslensku arkitektastofunni Horn-
steinum.
Uppbygging reitsins er í þremur
áföngum og verða þar samtals 250
íbúðir þegar hann er fullbyggður, að
sögn Einars I. Halldórssonar, fram-
kvæmdastjóra 101 Skuggahverfis.
Heildarkostnaður við verkið er áætl-
aður 7–8 milljarðar króna. Í fyrsta
áfanga voru 79 íbúðir, í 2. áfanga 97
eins og fyrr sagði og í 3. áfanga 74
íbúðir. Gert er ráð fyrir að 2. áfanga
verði lokið eftir tvö ár og verkinu að
fullu árið 2010.
Einar sagði að gert væri ráð fyrir
að sala á íbúðunum hæfist í apríl-
mánuði, en forsala á stærstu íbúð-
unum hæfist fyrr.
Tæplega 100 íbúðir í 2.
áfanga 101 Skuggahverfis
HEILBRIGÐISSTOFNUN Þing-
eyinga sendi nýlega ljósmóður og
hjúkrunarfræðing til Afganistans
þar sem þær stóðu m.a. fyrir
námskeiðum fyrir ljósmæður.
Þær höfðu einnig með sér sér-
stakar sjúkratöskur sem inni-
halda bráðnauðsynlegan búnað
vegna fæðinga, sem þær færðu
þarlendum heilbrigðisstarfs-
mönnum að gjöf. Kostnaður
vegna sjúkratasknanna, sem nam
700 þúsund krónum, var greiddur
af Zonta-hreyfingunni á Íslandi.
Meðfylgjandi mynd var tekin þeg-
ar Guðrún Hansdóttir, svæð-
isstjóri Zonta á Íslandi, lengst til
hægri, afhenti Friðfinni Her-
mannssyni, framkvæmdastjóra
Heilbrigðisstofnunarinnar, féð. Á
myndinni eru einnig frá vinstri
Afganistanfararnir Eva Laufey
Ólafsdóttir ljósmóðir og Erna
Óladóttir hjúkrunarfræðingur.
Morgunblaðið/ÞÖK
Framtak Heilbrigðisstofnun Þingeyinga sendi 35 töskur fyrir ljósmæður til
Afganistans með rausnarlegum stuðningi Zonta-hreyfingarinnar.
Afhentu töskur í Afganistan
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ,
Neyðarlínan og ND á Íslandi, fyr-
irtæki sem sérhæfir sig m.a. í þróun
GPS-tækni á sviði eftirlits með akst-
urslagi, hafa ritað undir viljayfirlýs-
ingu um að vinna sameiginlega að
því að hérlendis verði unnt að taka
upp sjálfvirka hringingu úr bílum í
Neyðarlínuna og þróa notkun Saga-
hugbúnaðarkerfisins vegna inn-
heimtu veggjalda og eftirlits með
hvíldarákvæðum í umferðarlögum.
Í fréttatilkynningu segir að neyð-
arhringingarverkefnið gangi út á að
hringt verði sjálfvirkt úr bílum í
neyðarlínu ef slys verður og með
slíku símtali myndu viðbragðsaðilum
samstundis berast upplýsingar um
staðsetningu. Gæti það flýtt fyrir
réttum viðbrögðum, dregið stórlega
úr afleiðingum slysa og jafnvel
bjargað mannslífum.
Í viljayfirlýsingunni segir að skil-
greina skuli hvað gera eigi til að
koma á svonefndu E-Call-verkefni
hérlendis í samræmi við viljayfirlýs-
ingu Evrópusambandsins.
Vilja koma
á sjálfvirkri
neyðar-
hringingu
UM HELGINA var haldið upp á
það að nú eru liðin 100 ár frá því
að athafnamaðurinn Jóhannes
Reykdal gangsetti aðra virkjun
sína í Hamarskotslæknum í Hafn-
arfirði, einungis tveimur árum
eftir að sú fyrsta var gangsett.
Nú er verið að endurbyggja þessa
virkjun Jóhannesar og er reiknað
með því að virkjunin verði form-
lega gangsett í mars eða apríl
2007. Var athöfn haldin í undir-
göngunum undir Lækjargötu þar
sem stöðvarhús virkjunarinnar
verður, og var vatni hleypt á píp-
una og sá hluti mannvirkisins
vígður formlega.
Morgunblaðið/Kristinn
Vígsla Lúðvík Geirsson og Jóhannes Reykdal við nýja stokkinn.
Vatni hleypt
á pípuna
GUÐNÝ3 Hrund
Karlsdóttir, við-
skiptafræðingur
í Reykjanesbæ,
sest í 4. sæti á
lista Samfylking-
arinnar í Suður-
kjördæmi í stað
Ragnheiðar Her-
geirsdóttur, bæj-
arstjóra í Ár-
borg, sem hlaut
það sæti í prófkjöri en dró sig út
af listanum eftir að hún tók við
bæjarstjóraembættinu fyrir um
viku.
Guðný Hrund er fyrrverandi
sveitarstjóri á Raufarhöfn. Hún
tók ekki þátt í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar en er úr Reykjanesbæ
og dóttir Karls Steinars Guðna-
sonar, sem var alþingismaður Al-
þýðuflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi um margra ára skeið og
formaður Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavíkur.
Efstu tíu sæti lista Samfylking-
arinnar í Suðurkjördæmi vegna al-
þingiskosninganna í vor eru þá
þannig skipuð: 1. Björgvin G. Sig-
urðsson 36 ára alþingismaður,
Skarði, Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi, 2. Lúðvík Bergvinsson 42
ára alþingismaður, Vestmannaeyj-
um, 3. Róbert Marshall 35 ára
blaðamaður, Reykjavík, 4. Guðný
Hrund Karlsdóttir 35 ára við-
skiptafræðingur, Reykjanesbæ, 5.
Guðrún Erlingsdóttir 44 ára for-
maður Verslunarmannafélags
Vestmannaeyja, Vestmannaeyjum,
6. Jenný Þórkatla Magnúsdóttir 35
ára þroskaþjálfi, Reykjanesbæ, 7.
Árni Rúnar Þorvaldsson 30 ára
grunnskólakennari og forseti bæj-
arstjórnar, Hornafirði, 8. Torfi Ás-
kelsson 47 ára framkvæmdastjóri,
Árborg, 9. Guðlaug Finnsdóttir 25
ára leiðbeinandi, Sandgerði, 10.
Dagbjört Hannesdóttir 37 ára við-
skiptafræðingur, Þorlákshöfn.
Guðný Hrund
í 4. sæti í stað
Ragnheiðar
Guðný Hrund
Karlsdóttir
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
Fréttir
í tölvupósti