Morgunblaðið - 11.12.2006, Síða 20
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Kertagerðin hefur veriðfastur siður hjá okkur íheilan aldarfjórðung.Börnin okkar fimm eru
alin upp við þetta og nú eru
barnabörnin okkar sjö farin að
taka virkan þátt í því. Í gamla
daga voru gerð tólgarkerti fyrir
jólin. Við notum nú vax í staðinn
fyrir tólgina og má segja að þessi
skemmtilegi aldagamli íslenski sið-
ur, að steypa jólakerti, sé orðinn
ómissandi hjá okkur fyrir jólin,“
segir Björn Már Ólafsson augn-
læknir, sem stjórnar aðgerðum í
bílskúrnum sínum í Garðabæ.
Óhætt er að segja að kerta-
listaverkin renni út úr höndunum
á Birni áreynslulaust enda eru
hann og krakkarnir farin að búa
til hin fjölbreyttustu listaverk úr
vaxi og kveik, meðal annars að-
ventukransa, nýárskerti, jólakerti,
hjónakerti og allt að 25 arma
kertalistaverk. Hér fær ímynd-
unaraflið lausan tauminn. Kerta-
framleiðslan hefur aukist ár frá ári
og þess vegna tekur stór-
fjölskyldan sér nú orðið langa
helgi í kertagerðina. Á meðan
Björn stýrir framkvæmdum í
„kertaverksmiðjunni“ slær hús-
móðirin, Sigríður Ólafsdóttir, sér-
kennari við Flataskóla, taktinn í
eldhúsinu með því að töfra fram
súkkulaðikökur og annað gúmmel-
aði fyrir svanga litla munna, gesti
og gangandi.
„Við kynntumst þessum sið fyrst
á námsárunum úti í Svíþjóð fyrir
25 árum, en þar er hægt að kaupa
allt mögulegt til kertagerðar,
meira að segja sérhannaða vax-
potta. Æ síðan höfum við búið til
okkar eigin kerti og dugir fram-
leiðslan út árið,“ segir Sigríður.
Björn pantar allan vaxmassann í
gegnum netsíðu frá Suður-Svíþjóð
og fylgja kveikirnir með í pökk-
unum. Síðan er bara hafist handa,
en það þarf auðvitað að fara var-
lega því hitinn á vaxinu er um 70
gráður. „Ég nota tvær rafmagns-
hellur og tvo stóra potta í vatns-
baði. Vaxið er svo brætt í pott-
unum. Þræðirnir eru settir á spýtu
og hanga niður og svo er þeim
dýpt ofan í vaxið aftur og aftur,
kannski 20 til 30 sinnum, þar til
kertin eru orðin nógu sver og búin
að drekka í sig nógu mikið vax.
Vaxið er hvítt, en svo er ég með
nokkra liti í sérílátum, sem við
dýfum þeim í, ef við viljum lita
kertin að lokum. Vinsælt er að
gera kerti í fánalitunum og svo
eru krakkarnir með alls konar
hugmyndir og útfærslur,“ segir
Björn og bætir við að þessi kerti
leki aldrei.
Barnafólk og jólafólk
Þau hjónin eru sammála um að
þessi siður sé afskaplega skemmti-
legur. „Við erum bæði mikið jóla-
fólk og barnafólk,“ segir Sigríður.
Það er ekki aðeins fjölskylda og
vinir sem hafa tekið þátt í kerta-
Kóngakerti, hjónakerti,
aðventukerti og jólakerti
Flottheit Þórir heldur á kóngakerti og Marta á
hefðbundnari kertum. Kóngakertin rata gjarn-
an í jólapakka til vina og kunningja.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Potturinn Sóley og Marta dýfa kertunum sínum í 70 gráðu
heitt vaxið. En kertagerðin er vinsæl hjá krökkunum.
Listamaðurinn Björn hefur gert 18 arma kerti, en gerði að þessu
sinni tilraun með 25 arma kerti sem tókst með afbrigðum vel.
|mánudagur|11. 12. 2006| mbl.is
daglegtlíf
Chico er afar hárskrúðugur
persi og fyrir skömmu fóru eig-
endurnir með hann til hunda-
snyrtis í klippingu. »22
gæludýr
Rannsóknasetur verslunar-
innar áætlar að jólaverslunin
aukist nú verulega í ár frá
síðasta ári. » 23
fjármál
Úrvalið af jólakrönsum hefur áreiðanlega aldr-ei verið meira og þá má nota jafnt í borð-
og kertaskreytingar sem og vegg- og hurða-
skreytingar. Það hafa ekki allir tíma til þess að
föndra fyrir jólin en flestir hafa nokkrar mínútur
til þess að setja sitt mark á jólaskrautið. Þeir
kransar sem hér eru sýndir standa allir vel fyrir
sínu en með lítilli fyrirhöfn má líka gera þá per-
sónulegri, sem mörgum finnst skemmtilegt. Allt
sem til þarf er blómavír, borðar til þess að búa til
slaufur, jólakúlur með vír, könglar og annað
skraut sem sköpunarglöðum dettur í hug. Og svo
er bara að skreyta húsið með fjölnota jólakröns-
um.
Skreytum hús
með jólakrönsum
Glitrandi Nokkrar svartar, litlar hangandi
kúlur í mismunandi hæð inn í kransinum gætu
farið vel í þessum í mínimalískri stofu eða þá í
kransinum sjálfum og þá aðeins stærri en
silfruðu kúlurnar. 3.990 kr. Debenhams.
Flauelsmjúkur Áferð blaðanna er falleg
og liturinn jólalegur. Kransinn er hægt að
hengja upp eins og hann er eða þá að búa
til fallega slaufu og þá er hann sannkölluð
heimilisprýði. 4.875 kr. Ormsson.
Berjakransar Það getur verið fallegt að setja
stóra kransinn á kökudisk og raða smákökum
inn í hringinn. Þann minni má leggja á brúnir
glerskálar og fylla af ávöxtum. Stærri krans,
2.500 kr. og sá minni, 2.200 kr. Duka.