Morgunblaðið - 11.12.2006, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2006 35
Félagslíf
MÍMIR 6006121119 III
HEKLA 6006121119 IV/V
GIMLI 6006121119 I
I.O.O.F. 19 18712118 F.L.
IOOF 10 18712118 O*
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Stillholti
16-18, Akranesi, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Háteigur 8, fastanr. 210-2385, Akranesi, þingl. eig. Sigurður Már
Harðarson, gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður, Íbúðalánasjóður og
Vátryggingafélag Íslands hf, fimmtudaginn 14. desember 2006 kl.
14:00.
Kirkjubraut 2, mhl. 01-0201, fastanr. 228-2788, Akranesi, þingl. eig.
Galtagil ehf, gerðarbeiðendur Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og
Tollstjóraembættið, fimmtudaginn 14. desember 2006 kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Akranesi,
9. desember.
Esther Hermannsdóttir, ftr.
Fundir/Mannfagnaðir
Sjálfstæðisfélag
Skóga- og Seljahverfis
í Reykjavík
Aðalfundur
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Skóga- og Selja-
hverfis verður haldinn í Álfabakka 14, 3. hæð,
félagsheimili sjálfstæðisfélaganna í Breiðholti,
þriðjudaginn 19. desember kl. 20.
Stjórnin.
Sjálfstæðisfélag
Grafarholts
Aðalfundur 2006
Aðalfundur Félag sjálfstæðismanna í Grafar-
holti verður haldinn þriðjudaginn 12. desember
kl. 20.30 í Ingunnarskóla.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Gestur fundarins verður Hanna
Birna Kristjánsdóttir forseti
borgarstjórnar og formaður
Skipulagsráðs Reykjavíkurborgar.
Stjórnin.
Raðauglýsingar
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla - akstursmat.
Gylfi K. Sigurðsson
Suzuki Grand Vitara,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
BMW 116i,
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '06
892 4449/557 2940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '06,
696 0042/566 6442.
Mótorhjól
JÓLATILBOÐ
Síðustu vespurnar nú á 129 þús.
götuskráðar. Besta jólagjöfin
fyrir unglinginn, heimilið eða
húsbílinn.
Varahlutir og þjónusta á staðnum.
Vélasport
Sölusímar 578 2233 og 845 5999.
Vélasport
Sölusímar 578 2233 og 845 5999.
Þjónusta og viðgerðir.
Sími 822 9944.
Hjólbarðar
Matador ný vetrardekk. Tilboð
4 stk. 195/65 R 15 + vinna 31.900 kr.
Kaldasel ehf. ,
Dalvegur 16b, Kópavogur,
s. 544 4333.
Smáauglýsingar 5691100 5691100
FRÉTTIR
TÆKNI- og verkfræðideild Háskól-
ans í Reykjavík og Lagnakerfamið-
stöð Íslands hafa gert með sér
samning um rekstur og umsjón Há-
skólans í Reykjavík á starfsemi,
fasteignum og búnaði Lagnakerfa-
miðstöðvar Íslands á Keldnaholti.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg-
arstjóri og jafnframt formaður LKÍ,
og Kristján Ottósson, framkvæmda-
stjóri LKÍ, undirrituðu samninginn
sl. fimmtudag, ásamt fulltrúum frá
Háskólanum í Reykjavík, dr. Guð-
finnu S. Bjarnadóttur rektor og
Bjarka A. Brynjarssyni, forseta
tækni- og verkfræðideildar HR.
Markmið samningsins er að
tryggja áframhaldandi rekstur og
uppbyggingu Lagnakerfamið-
stöðvar Íslands, auka nýtingu henn-
ar og þróa ný áherslusvið í starfsemi
stofnunarinnar. Með samningnum
tekur Háskólinn í Reykjavík að sér
að sjá um allan rekstur, fasteignir og
tækjabúnað stofnunarinnar og að
þjóna skólum landsins við uppbygg-
ingu kennslufræða í lagnatækni,
endurmenntun lagnamanna, iðn-
aðarmanna, hönnuða í atvinnulífinu
og opinberra stofnana í lagnatækni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samningurinn undirritaður Kristján Ottósson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Guðfinna S. Bjarnadóttir við undir-
ritun samnings Háskólans í Reykjavík og Lagnakerfamiðstöðvarinnar í síðustu viku.
Lagnakerfamiðstöð undir HR
SVEINN Ein-
arsson leikstjóri
varði doktors-
ritgerð sína við
hugvísindadeild
Háskóla Íslands
25. nóvember sl.
Ritgerðin ber
heitið A People’s
Theatre Comes of
Age. A Study of the Icelandic
Theatre 1860–1920. Andmælendur
voru dr. Sveinn Yngvi Egilsson og
dr. Trausti Ólafsson. Athöfninni
stýrði Oddný G. Sverrisdóttir, for-
seti hugvísindadeildar.
Meginkenning Sveins í þessari rit-
gerð er sú, að íslenskt leikhús hafi
komist miklu fyrr til listræns þroska
atvinnumennskunnar en almennt
hefur verið talið. Hann skoðar hug-
tök eins og áhugaleiklist og atvinnu-
leiklist og kannar hvaða merkingu
svipuð hugtök á öðrum tungumálum
fela í sér. Í kjölfar þess setur hann
upp nokkur viðmiðunarmörk, sem
sýna að íslensk leiklist varð ekki at-
vinnuleikhús á einni nóttu, þegar
leikarar og aðrir leikhúsmenn fluttu
inn í Þjóðleikhúsið árið 1950 og byrj-
uðu að sýna þar.
Hann bendir á að mörgu öðru
þurfi að hyggja að í slíku þróun-
arferli en því einu hvort leikarar hafi
þá í fyrsta skipti getað lifað af list
sinni einni saman og að frá þeirri
stundu sé krafist formlegrar leik-
menntunar. Hann nefnir þá virðingu
sem frumherjar Leikfélags Reykja-
víkur nutu um sína daga, sem tók af
öll tvímæli um að bæði þeir og sam-
félagið, þar á meðal gagnrýnendur,
litu á þá sem listamenn. Opinber við-
urkenning fólst í styrkjum og meira
að segja heiðurslaunum til einstakra
leikara ekki síður en skálda og
myndlistarmanna, sem og að rök fyr-
ir því að reisa Þjóðleikhús hefðu
meðal annars verið þau að íslensk
leiklist væri listrænt séð komin á það
þroskastig, að leikhúsfólkið bæði
ætti skilið Þjóðleikhús og væri fært
um að standa undir þeim væntingum
sem til slíks húss yrðu gerðar.
Undanfari alls þessa ferils er mikil
og öflug áhugaleikstarfsemi um allt
land á árunum frá 1860, svo mikil að
undrum sætir. Á næstu áratugum er
leikið í um 50 bæjum og plássum um
allt land, í flestum skólum og mjög
víða til sveita. Sigurður málari Guð-
mundsson kom einmitt heim frá
námi við listaakademíuna í Kaup-
mannahöfn árið 1860. Hann varð
einn frumkvöðla íslensks leikhúslífs
og mætti í raun kalla hann fyrsta ís-
lenska leikhúsmanninn, þar sem
hann ætlar leiklistinni veigameiri
hlut en þann að vera afþreying ein.
Hann leit á hana sem vopn í sjálf-
stæðisbaráttu þjóðarinnar og taldi
að ein af stoðum sjálfstæðrar menn-
ingar væri innlend leikritun.
Það tímabil sem ritgerðin fjallar
um er því litað þeim þjóðfélagslegu
og pólitísku breytingum sem Ísland
gekk í gegnum á þessum sextíu árum
fram að fullveldi og samþykkt al-
þingis um að reisa Þjóðleikhús.
Sveinn Einarsson fæddist í
Reykjavík 18. september 1934. Hann
lauk stúdentsprófi frá MR 1954 og
fil. cand. í almennum bókmenntum,
heimspeki og leiklistarsögu frá
Stokkhólmsháskóla 1958. Hann
stundaði framhaldsnám í sam-
anburðarbókmenntum og leik-
húsfræðum við Sorbonneháskóla
1958–9 og 1961 og í leikhúsfræðum
við Stokkhólmsháskóla 1961–63 og
lauk þaðan fil. lic.-gráðu 1964. Síðar
dvaldi hann við nám í Oxford og
Kaupmannahöfn.
Sveinn var fyrsti leikhússtjóri
Leikfélags Reykjavíkur 1963–72,
þjóðleikhússtjóri 1972–83, dagskrár-
stjóri innlendrar dagskrár í Sjón-
varpinu 1989–93 og menningar-
ráðunautur í menntamálaráðu-
neytinu með hléum allt frá 1983.
Hann var settur forstöðumaður
Þjóðmenningarhúss 2002–2005.
Sveinn hefur starfað sem leikstjóri
og rithöfundur um áratuga skeið.
Hann hefur einnig starfað við fjöl-
miðla, kennslu og skólastjórn, meðal
annars skipta útvarps- og sjónvarps-
þættir hans um ýmis efni hundr-
uðum. Hann hefur stýrt og setið í
stjórnum fjölmargra nefnda, ráða og
samtaka, hérlendis og erlendis, eink-
um á sviði menningar og lista, og
gegnt margvíslegum trúnaðar-
störfum. Var hann meðal annars for-
maður Leiklistarsambands Íslands í
nær tvo áratugi, sat í fram-
kvæmdastjórn Listahátíðar í
Reykjavík um árabil og gegndi þar
formennsku og sat lengi í stjórn
Norræna leiklistarsambandsins og í
stjórn norrænna leikhússtjóra. Hann
hefur gegnt margháttuðum nefnd-
arstörfum á vegum menntamála-
ráðuneytisins undanfarinn áratug og
verið formaður íslensku UNESCO-
nefndarinnar frá 1994.
Sveinn hefur flutt fyrirlestra um
íslenska menningu og leikhús á mál-
þingum og í háskólum víða um heim.
Hann hefur stjórnað um 90 leik- og
óperusýningum á sviði og í sjónvarpi,
innanlands og erlendis, og verið
stjórnandi leikflokksins Banda-
manna frá 1992. Sveinn á að baki
langan rithöfundarferil, hefur skrif-
að mikið um íslenska leikhússögu og
leiklist, er höfundur leikrita, sjón-
varpskvikmynda, útvarpsleikrita og
leikgerða og hefur ritað fjölda greina
um leiklist og menningarmál í tíma-
rit og blöð. Sveinn hefur hlotið fjölda
viðurkenninga fyrir störf sín.
Sveinn Einarsson er kvæntur
Þóru Kristjánsdóttur listfræðingi á
Þjóðminjasafni Íslands. Dóttir
þeirra er dr. Ásta Kristjana, heim-
spekingur, háskólakennari við San
Francisco State University.
Doktor í
hugvísindum
BORGARSKJALASAFN Reykja-
víkur býður nú öllum að senda raf-
ræn jólakort á vefnum sér að
kostnaðarlausu. Kortin eru flest
frá fyrri hluta 20. aldar og hægt
að senda með jólakveðju á yfir 25
tungumálum. Þetta er þriðja árið
sem Borgarskjalasafn býður upp á
rafræn jólakort og hafa þau mælst
mjög vel fyrir, segir í frétta-
tilkynningu.
Í fyrra voru 10 þúsund kort
send út í gegnum vef Borg-
arskjalasafns. Jólakortin eru úr
stóru póstkortasafni Sveinbjörns
Jónssonar sem Kristín S. Árna-
dóttir afhenti safninu vorið 2004
og spannar kortasafnið alla 20.
öldina.
Jólakortin er að finna á
www.reykjavik.is.
Gömul jólakort
í tölvupósti
GLITNIR og Landssamband hesta-
mannafélaga, LH, hafa gert með
sér samning til næstu tveggja ára
sem kveður á um að Glitnir verði
aðalsamstarfsaðili sambandsins.
Glitnir mun styrkja LH um 5 millj-
ónir króna á ári auk þess að leggja
til verðlaun og styrkja einstaka
viðburði á vegum sambandsins.
Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitn-
is, og Haraldur Þórarinsson, for-
maður LH, undirrituðu samstarfs-
samninginn í Reiðhöllinni í Víðidal.
Landssamband hestamanna-
félaga er samtök 46 hestamanna-
félaga með yfir tíu þúsund félags-
menn. Fjárstyrkur Glitnis verður
notaður til þess að styðja við lands-
lið hestamanna og verkefni til að
kynna börnum og unglingum ís-
lenska hestinn, m.a. á Æskulýðs-
degi Glitnis, sem haldinn verður í
fyrsta sinn árið 2007. Þá útvegar
Glitnir peningaverðlaun á mótaröð
Glitnis næsta sumar.
„Hestamennska er ein fjölmenn-
asta íþróttagrein á Íslandi og það
er okkur mikil ánægja að styðja
við uppbyggingu hestamennsku
með samstarfi við LH. Þannig
stuðlum við að heilbrigðri íþrótta-
starfsemi og útivist þar sem fjöldi
ungmenna kemst í nána snertingu
við þessar einstöku skepnur og
náttúru landsins,“ segir Bjarni Ár-
mannsson, forstjóri Glitnis, í til-
kynningu.
Haraldur Þórarinsson, formaður
Landssambands hestamanna-
félaga, segir að sambandið sé
þakklátt fyrir það áræði og fram-
sýni sem Glitnir sýni með stuðningi
sínum en samstarfið muni styðja
við uppbyggingu á hestamennsku
sem íþrótt, menningu og lífsstíl.
Glitnir sam-
starfsaðili LH