Morgunblaðið - 11.12.2006, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 11.12.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2006 37 úr vesturheimi Sama verð 500 kr. Frekari upplýsingar um afgreiðslustaði er að finna á landflutningar.is fyrir alla jólapakka hvert á land sem er Við erum sérfræðingar í matvælaflutningum Hámarksþyngd 50 kg, hámarksstærð 0,14 m³ (t.d. 52x52x52 cm) SKÚTUVOGUR KJALARVOGUR SÆBRAUT B R Ú A R V O G U R K L E P P S M Ý R A R V E G U R H O L T A V E G U R Við erum hér BARKARVOGUR LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900 Glæsilegt úrval úra og skartgripa Töff Þ ESSI nýja staða kom skemmtilega á óvart og ég hef notið hverrar mínútu þessa fyrstu daga,“ segir Curtis Olaf- son eftir að hafa setið þriggja daga skipulagsfund ríkisþings Norður- Dakóta í Bismarck í liðinni viku. Þingstörf hefjast svo að nýju 3. jan- úar og standa til 20. apríl. Óvanaleg leið á þingið Norður-Dakóta er skipt upp í 47 kjördæmi. Á þinginu eru 47 þing- menn í öldungadeild og 94 í full- trúadeild eða einn öldungadeild- arþingmaður og tveir fulltrúadeildarþingmenn frá hverju kjördæmi. Repúblikanar eru með meirihluta í báðum deildum. Curtis er öldungadeildarþingmaður 10. kjördæmis, sem nær yfir Cavalier og stærsta hluta Pembinasýslu og Tow- nersýslu í norðausturhluta ríkisins. Þingmenn frá kjördæmum með jafna tölu voru kosnir til fjögurra ára 2004 en þingmenn í kjördæmum með oddatölu voru kosnir til fjög- urra ára í nóvember sem leið. Í kosningunum 2004 var repúblik- aninn Tom Trenbeath kjörinn öld- ungadeildarþingmaður 10. kjör- dæmis, en fyrir skömmu sagði hann stöðunni lausri þar sem hann hafði verið ráðinn aðstoðardóms- málaráðherra. „Steve Holm, formaður kjör- nefndar, hafði samband við mig og spurði hvort ég hefði áhuga á að hlaupa í skarðið,“ segir Curtis. „Ég hafði skamman umhugsunarfrest og velti því fyrir mér hvernig ég ætti að geta þetta vegna anna. Björk, kona mín, benti mér á að hugsa frekar um hvað ég þyrfti að gera til þess að geta tekið að mér þetta verkefni og þá fóru hjólin að snúast og það hratt. Með hennar hjálp og íslensku hug- viti tókst okkur að binda svo um hnútana að málið gekk upp.“ Kjörnefndin taldi tvo menn koma til greina, ræddi við báða fyrir liðna helgi og í kjölfarið var kosið á milli þeirra og fékk Curtis sex atkvæði en hinn eitt. „Ég sagði við Steve Holm að ég gerði þetta fyrir hann og hann gæti þá tekið í traktorinn fyrir mig í staðinn,“ segir Curtis. Íslendingar og afkomendur þeirra hafa mikið látið að sér kveða í Norð- ur-Dakóta eins og annars staðar þar sem þeir hafa búið í Vesturheimi. Rose Marie Myrdal frá Mountain var t.d. ríkisstjóri og margir hafa setið á þingi, einkum fyrr á árum, en þó hafa aðeins fáir þeirra verið öld- ungadeildarþingmenn. Að minnsta kosti 13 manns af íslenskum ættum sátu á ríkisþingi Norður-Dakóta fyr- ir 1926, en þá var skipan þess með öðrum hætti en nú. Þessir menn voru Eiríkur Hjálmarsson Berg- mann, Skapti Brynjólfsson, Stefán Eyjólfsson, Árni Björnsson, Jón Þórðarson, Pétur Skjöld, Joseph Walter, Jón Jónsson, Páll Jóhann- esson, J.K. Ólafsson (sonur hans er Magnús Olafson, heiðursfélagi Þjóð- ræknisfélags Íslendinga), J. West- dal, Guðmundur Freeman og Barði Skúlason. Pólitíkin heillar Foreldrar Curtis voru Valdimar og Lovísa Olafson. Foreldrar Valdi- mars voru Ólafur Ólafsson frá Hvammi í Eyjafirði og Friðrika Steinunn Möller frá Möðruvöllum. Foreldrar Friðriku voru Guð- mundur Júlíus Jónasson úr Skaga- firði og Elisabet Gestson sem fædd- ist í Norður-Dakóta. Eiginkona Curtis er Björk Eiríksdóttir. Curtis hefur tekið virkan þátt í fé- lagsmálum. Hann er formaður Ís- lendingafélagsins í Mountain, for- maður félags Lögbergs-Heimskringlu í Banda- ríkjunum (Lögberg-Heimskringla USA Inc.), stjórnarmaður í fjáröfl- unarnefnd blaðsins Lögbergs- Heimskringlu í Winnipeg og stjórn- armaður í Þjóðræknisfélagi Íslend- inga í Norður-Ameríku, svo fátt eitt sé nefnt. Hann hefur verið formaður og varaformaður kjörnefndar repú- blikanaflokksins í 10. kjördæmi en aldrei boðið sig fram í kosningum. „Það hefur aldrei hvarflað að mér að gefa kost á mér í kosningum, en þetta er spennandi starf og ég ætla að bjóða mig fram til áframhaldandi starfa þegar kjörtímabilinu lýkur eftir tæplega tvö ár,“ segir Curtis. Kynbætur Fjölskyldan hefur stundað naut- griparækt vestra í meira en 120 ár og Curtis hefur náð góðum árangri á því sviði. Hann er mikill Íslendingur í sér og hefur á nýliðnum árum bent ýmsum framámönnum í landbúnaði á kosti þess að kynbæta íslenska nautgripi með bandarískum fóst- urvísum. Curtis hefur rætt um að rækta upp nýjan stofn á einangruðu svæði eins og t.d. Hrísey og segir að menn þurfi ekki að óttast sjúkdóma- hættu. „Sérfræðingar hér vestra hafa sagt mér að meiri hætta sé á að verða fyrir loftsteini en að smit verði vegna kynbóta með fósturvísum,“ segir Curtis. Hann segir að margir Íslendingar hafi tekið vel í tillögur sínar en ráðamenn hafi ekki sýnt þeim mikinn áhuga. „Þeir verða kannski frekar tilbúnir að tala við mig sem þingmann en naut- gripabónda,“ segir hann. Þingmaður Curtis Olafson, öldungardeildarþingmaður, á skipulagsfundi ríkisþings Norður-Dakóta í Bismarck í liðinni viku. Frá nautgripunum óvænt á þing Norður-Dakóta Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Kynning Hjónin Curtis Olafson og Björk Eiríksdóttir eru afar stolt af upp- runa sínum og nota hvert tækifæri til að kynna hann. Nautgripabóndinn Curtis Olafson er óvænt nýr öldunga- deildarþingmaður á þingi Norður-Dakóta í Bandaríkjunum. Hann er ættaður úr Eyjafirði og býr á bænum þar sem afi hans og amma settust að í Edinburg 1893. Steinþór Guð- bjartsson ræddi við nýja þingmanninn. steinthor@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.