Morgunblaðið - 11.12.2006, Síða 16
16 MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
Glæsilegt úrval
úra og skartgripa
Fegurð
ÚT ER komin bókin Landið
okkar með ljósmyndum Sig-
urgeirs Sigurjónssonar. Bókin
kemur einnig út á ensku, Fo-
und in Iceland. Sigurgeir hefur
gefið út fjölda ljósmyndabóka
sem selst hafa um allan heim.
Í bókinni lýkur Sigurgeir
upp fjársjóðum íslenskrar
náttúru og sýnir náttúru Ís-
lands í sinni fjölbreytilegustu
mynd.
Sigurður Steinþórsson jarðfræðingur ritar ít-
arlegan skýringartexta en inngangur er eftir
Andra Snæ Magnason rithöfund.
Bókin er 223 blaðsíður.
Bókaútgáfa
Landið okkar með
augum Sigurgeirs
Sigurgeir Sig-
urjónsson
LIST- og sagnfræðingurinn
Þóra Kristjánsdóttir verður
með sérfræðileiðsögn í Þjóð-
minjasafninu á morgun, þriðju-
dag. Táknmálstúlkur verður
með í leiðsögninni sem hefst
klukkan 12.10.
Erindið og leiðsögnin nefn-
ast Hin mörgu andlit Maríu í
Þjóðminjasafninu. Þóra byrjar
í fyrirlestrasal safnsins en
gengur svo með gestum um
safnið og bæði sýnir og segir frá Maríu mey í
tengslum við safnkostinn.
Þóra starfar sem sérfræðingur í kirkjulist og
listgripum fyrri alda í Þjóðminjasafninu.
Leiðsögn
Hin mörgu andlit
Maríu meyjar
Þóra Kristjáns-
dóttir.
SÖNGKONAN Hafdís Huld
kemur fram ásamt hljómsveit
sinni í tónlistarþættinum C’est
Lenoir á frönsku útvarpsstöð-
inni France Inter í dag. Þátt-
urinn er vel þekktur í Frakk-
landi en þar kemur vikulega
fram ein hljómsveit. Margar af
frægustu hljómsveitum heims
hafa spilað í þættinum, til
dæmis Radiohead, Franz
Ferdinand, Kieser Chiefs,
Nick Cave, og PJ Harvey.
Þetta mun vera í annað sinn sem Hafdís kemur
fram í þættinum því að árið 1997 kom hún þar
fram ásamt hljómsveitinni Gus gus.
Útvarpsþáttur
Hafdís Huld í
frönsku útvarpi
Hafdísi Huld.
WINSTON Churchill er þekktastur
fyrir margt annað en afrek sín á
sviði myndlistar. Það er þó stað-
reynd að Churchill málaði sér til
skemmtunar og
verður eitt verka
hans boðið upp af
uppboðshald-
aranum Sot-
herby’s í London
í dag.
Verkið er olíu-
málverk og nefn-
ist View of Tin-
herir. Myndina
málaði Churchill í Marokkó þar sem
hann dvaldist gjarnan við skriftir
auk listsköpunarinnar.
Áætlað er að tæpar 40 milljónir ís-
lenskra króna fáist fyrir verkið en
málverk eftir Churchill hafa áður
selst á yfir 40 milljónir.
Uppgötvað nýlega
Það er Kitty nokkur Winn sem er
eigandi verksins en hún er barna-
barn bandaríska hershöfðingjans
George Marshall. Verkið hefur hald-
ist í fjölskyldu hershöfðingjans síðan
Churchill gaf honum það persónu-
lega árið 1953.
Eignin á verkinu hefur þó farið
leynt því að sögn Sarah Thomas hjá
Sotherby’s var ekki vitað um tilurð
verksins fyrr en nýlega.
Það er viðeigandi að þeir Chuchill
og Marshall hershöfðingi hittust ein-
mitt fyrst í Marokkó, árið 1943.
Churchill minntist hershöfðingjans
með hlýhug í endurminningum sín-
um og sagði hann „síðasta merka
Bandaríkjamanninn“.
Churchill hóf að mála seint á lífs-
leiðinni og leit einungis á það sem
áhugamál. Að sögn Thomas varð
hann betri með árunum auk þess
sem má greina í verkum hans áhrif
frá vinum hans í málarastéttinni.
Málverk Churcills verður boðið
upp í London í dag.
Gjöf til
Marshalls
hershöfð-
ingja
Málverk eftir Winst-
on Churchill boðið
upp í London
Málverk Eitt af síðari verkum úr smiðju
Winston Churchills.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
HINN 14. desember verður opnuð
ljósmyndasýning í Brussel í Belgíu
þar sem sýndar verðar myndir sem
argentínski ljósmyndarinn Martin
Santander tók á Íslandi á tímabilinu
frá júlí til október á þessu ári. Sýn-
ingin verður haldin í hinu virta IS-
ELP-safni í Brussel, en þar mun
Santander sýna 55 til 60 ljósmyndir.
„Ég kom fyrst til Íslands árið 1986
þegar ég millilenti þar í tvo klukku-
tíma. Þá lofaði ég sjálfum mér að
koma aftur, sem og ég gerði, en ekki
fyrr en 20 árum síðar,“ segir Sant-
ander, sem er fæddur í Argentínu
árið 1964 en hefur búið í Belgíu und-
anfarin ár. „Ég kynntist nokkrum
Íslendingum í Brussel og það hvatti
mig enn frekar til dáða. Ljósmynda-
fyrirtækið Leica gaf mér svo tæki-
færi til þess að gera það sem ég vildi
gera, og ég vildi fara til Íslands. Þeir
voru mjög hrifnir af því og fannst
þetta mjög áhugavert verkefni.“
Vildi ekkert vita
Santander kom þrisvar til lands-
ins á árinu, en fyrst þegar hann kom
hafði hann aldrei séð landið almenni-
lega með eigin augum. „Ég vildi
ekkert vita um landið, ég vildi ekki
vera með fyrirfram ákveðnar hug-
myndir um hvað ég ætlaði að gera.
Ég vildi bara leyfa þessu að koma af
sjálfu sér,“ segir Santander sem tók
myndir út um allt land, meðal ann-
ars á Vestfjörðum, Reykjanesi og í
Skagafirði. „Ég fór líka í Land-
mannalaugar þar sem ég svaf bara í
bílnum mínum. Ég vildi fá það á til-
finninguna að ég væri uppi fyrir þús-
und árum,“ segir hann hlæjandi.
Íslendingar frábærir
Á sýningunni verða fjölmargar
myndir af íslenskri náttúru, en Sant-
ander tók sér einnig góðan tíma í að
mynda íslensku þjóðina. „Ég mynda
mikið af fólki, en umhverfið skiptir
miklu máli því það hefur svo mikil
áhrif á fólk. Ég efast um að Íslend-
ingar væru eins og þeir eru ef þeir
hefðu til dæmis verið í Portúgal all-
an þennan tíma. Þetta harð-
neskjulega loftslag og erfiða líf sem
Íslendingar hafa lifað í gegnum ald-
irnar hefur haft sín áhrif. Ég dáist
að því hvað þið eruð gott fólk eftir að
hafa gengið í gegnum svo erfiða
tíma,“ segir Santander sem var
djúpt snortinn af þeim móttökum
sem hann fékk á Íslandi. „Íslend-
ingar eru alveg frábærir, þeir eru
opnir, hlýir, örlátir og vingjarnlegir.
Ísland verður hluti af mér það sem
eftir er, það er öruggt.“
Bók um Ísland
Santander tekur einungis svart-
hvítar myndir og prentar þær með
gamla laginu. Verkin á sýningunni
eru öll í stærri kantinum, þau
stærstu 180 x 120 sentimetrar. Þá er
Santander einnig að leggja drög að
ljósmyndabók um Ísland sem hann
vonar að geti komið út á næsta ári.
Hann segir því vel koma til greina að
koma aftur til Íslands til að vinna að
fleiri verkefnum í framtíðinni. „Ekki
alveg í bráð kannski, en mig langar
að koma aftur eftir nokkur ár. Mig
langar hins vegar að koma með sýn-
inguna til Íslands. Ég hef ekki enn
komið mér í samband við söfn en það
stendur til. Það er það minnsta sem
ég get gert fyrir Íslendinga,“ segir
ljósmyndarinn að lokum.
Það verður Stefán Haukur Jó-
hannesson, sendiherra Íslands í
Belgíu, sem opnar sýninguna, en
hún stendur yfir til 13. janúar.
Ljósmyndarinn sem féll fyr-
ir íslenskri þjóð og náttúru
Sumar Börn fá sér sundsprett í Sundlauginni á Suðureyri í júlí.
Hinn argentíski Martin Santander sýnir ljósmyndir frá Íslandi í Brussel
Friður Að veiðum við Borgarnes.
Íslandsvinur „Ísland verður hluti
af mér það sem eftir er, það er
öruggt.“
www.martinsantander.com
www.iselp.be