Morgunblaðið - 11.12.2006, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2006 29
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
Glæsilegt úrval
úra og skartgripa
Glæsileg
kvenúr
Í grein eftir mig sem birtist í
Morgunblaðinu fyrir nokkru var
minnst á þá miklu áherslu sem er
lögð á bóknám á grunnskólastigi.
Af hverju hafa grunnskólanem-
endur ekki val á fjölbreyttu námi sem
býr þá undir að takast á við nám á
öðrum brautum en bóknáms-
brautum? Af hverju eru ekki til lista-
og handverksgrunnskólar þar sem
þær greinar eru kjarnagreinar? Svör
við spurningum af þessu tagi hafa
ekki fengist nema í því
formi að slíkar náms-
brauir séu of dýrar fyrir
menntakerfi okkar. Í lok
nóvembermánaðar mun
menntamálaráðuneytið
standa fyrir málþingi
um „framtíðarsýn
grunnskólans“ og ný
grunnskólalög. Þetta er
gert til að ná sem bestri
framtíðarsýn í mál-
efnum grunnskólans.
Geta grunnskólakenn-
arar vænst þess að í
framtíðinni verði breyt-
ing á áherslum í námi
grunnskólanemenda með fjölbreyttu
vali námsbrauta?
Faglegur metnaður
Íslenskir skólamenn á öllum skóla-
stigum eiga þess kost að skoða skóla
vítt og breitt um heiminn og geta
þannig fylgst með skólaþróun í víðara
samhengi. Í boði er að skoða rík-
isskóla, sérskóla og einkaskóla, allt
eftir því hverju menn sækjast eftir.
Pistlahöfundur kynnti sér ýmsa skóla
á Englandi í námsleyfi sínu. Sá skóli
sem nefndur er hér er einkaskólinn
Frensham Heights í Farnham í Sur-
rey-héraði. Umfjöllun um hann er
sett hér fram vegna þeirra breiðu
menntunarmöguleika sem hann veit-
ir. Markmið skólans er að efla hæfi-
leikasvið hvers og eins. Þetta módel
kann að þykja óraunhæft hér á landi
en við getum lært af uppbyggingu og
áherslum þess og metið þann hug-
myndalega farveg sem liggur til
grundvallar skólastarfinu. Skólinn er
heimavistarskóli og sækja hann nem-
endur úr héraðinu, öðrum héruðum
og jafnvel öðrum löndum. Aðalbygg-
ing skólans er gamalt herrasetur um-
kringt skógi og opnum svæðum.
Ýmsar aðrar byggingar eru á svæð-
inu sem mynda einskonar þorp á
staðnum eins og leikskólabygging,
myndlistardeild og leikhús.
Samfellt nám
Skólinn er sam-
felldur, námið er heild-
stætt, nemendur geta
hafið nám þriggja ára í
forskóla og lokið þaðan
stúdentsprófi. Útivist-
arsvæðið er oft notað
til kennslu í ýmsum
greinum. Þar fara líka
fram annálaðar vorhá-
tíðir þar sem nem-
endur sýna hæfni sína
á ýmsum sviðum fyrir
foreldra og aðra gesti.
Aðalsmerki skólans
er að veita nemendum
sínum breiða og faglega menntun.
Allir nemendur læra grunnfögin og
íþróttir, vísindi og listir. Á efri stigum
velja þeir síðan þær námsgreinar sem
hugur þeirra stendur til og halda
áfram að sérhæfa sig í þeim og taka
síðan samræmd próf og lokapróf í
þeim greinum. Í þessari grein er að-
allega vikið að myndlist, hönnun, ljós-
myndun, tónlist og sviðslistum.
Myndlista- og hönnunardeildin
Deildin er til húsa í listamiðstöð-
inni á svæðinu. Heimsóknir lista-
manna í deildina og ferðir á sýningar
og söfn gefa nemendum aukinn skiln-
ing og sterkari stöðu til eigin sköp-
unar. Í listamiðstöðinni fer fram
kennsla í margskonar myndgerð,
hönnun, textíl, mótun og leirmótun,
einnig er bókasafn og sérrými til
listasögukennslu.
Ásamt því að kenna tæknileg
vinnubrögð er mikil áhersla lögð á
eigin hugmyndavinnu og rannsókn-
arvinnu á tengdum fyrirbærum tákna
og heimspekilegra og listsögulegra
atburða. Hugmyndamappan er stór
hluti af ferlinu því í hana skrá nem-
endur hugsanir sínar og hugmyndir.
Því lengur sem þeir vinna að þeim því
áhugasamari verða þeir í öllu vinnu-
ferlinu. Hver og einn þróar sína per-
sónulegu sýn og verkin verða fjöl-
breytt og eru unnin í alls konar
efnivið. Nemendur halda sýningar og
taka þátt í að hanna búninga og sviðs-
myndir í samvinnu við leikhús og
hönnunardeild skólans.
Ljósmyndun hefur verið kennd allt
frá stofnun skólans. Í skólanum er
stórt stúdíó ásamt myrkraherbergi
og vel útbúnu kennslu- og sýning-
arrými. Á hverju ári lýkur hópur
nemenda prófi í ljósmyndun og hafa
sumir þeirra náð því að verða þekktir
á því sviði.
Sviðslistir
Nýbyggt glæsilegt leikhús er á
svæðinu og fékk arkitekt hússins við-
urkennd verðlaun fyrir það. Sveitar-
félagið fær einnig afnot af því fyrir
leikstarfsemi síma. Leikhúsið er ekki
stórt en mjög fullkomið og sambæri-
legt við önnur atvinnuleikhús. Þar er
leiklistin kennd sem og klassískur
dans, sem hefur sitt eigið stúdíó.
Nemendur fá tækifæri til að skapa
sín verk, taka þátt í fjölbreyttum leik-
og tónlistaruppfærslum, danssýn-
ingum, búningagerð og sviðs-
myndagerð ásamt því að fara í heim-
sóknir og á sýningar í atvinnuleikhús.
Tónlistarbrautin
Á tónlistarbraut eru kórar, kamm-
erkór, yngribarnakór, fullskipuð
hljómsveit, strengjasveit og djass-
band. Deildin hefur mjög gott orð-
spor og hefur aðdráttarafl vegna
gæða kóranna og hljómsveitarinnar.
Einkatímar í söng og hljóðfæraleik
eru á stundatöflu og allt að 20 gesta-
kennarar koma og starfa þar, margir
þeirra þekktir listamenn á sínu sviði.
Ungu tónlistarnemarnir leika oft í
nágreninu og fara í árlegar tónleika-
ferðir.
Mannauður
Eftir að hafa gengið um skólann og
talað við nemendur og kennara varð
maður þess áskynja að breiðir
menntunarmöguleikar og faglegur
metnaður elur af sér ánægðari og
sterkari einstaklinga. Listnámið
kemur af stað hugmyndalegu og frjóu
ferli sem opnar nýjar víddir. Sköp-
unarkrafturinn leiðir nemendur inn í
þeirra eigin töfraheim. Töfraheim
sem veitti þeim skilning á eigin getu
og frumleika. Ef börn og unglingar fá
tækifæri til að stunda nám sem eflir
skapandi hugsun og styrkir hæfileika
þeirra þá er það ávinningur fyrir
hvern einstakling – það er mann-
auður framtíðarinnar.
Breiðir menntun-
armöguleikar
Sólveig Helga Jónasdóttir
skrifar um námsframboð » Af hverju eru ekki tillista- og handverks-
grunnskólar þar sem
þær greinar eru kjarna-
greinar?
Sólveig Helga
Jónasdóttir
Höfundur er myndlistarkennari
og sérkennari.
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
VIÐ hjónin ákváðum að fara á þriðju
Frostrósatónleikana okkar til þess
að upplifa góða jólastemningu frá
frábæru tónlistarfólki. Við keyptum
sæti á Netinu á svæði B og þar stóð
að sætin væru í stúku og greiddum
við litlar 18.000 krónur fyrir.
Við urðum því miður fyrir miklum
vonbrigðum og komum ekki heim í
miklu jólaskapi vegna hræðilegrar
skipulagningar tónleikahaldara.
1) Öll sætin voru á gólfi og því
fengum við ekki stúkusætin sem við
töldum okkur hafa greitt fyrir og átti
það við um fleiri sem voru að vand-
ræðast við komu sína hvar stúkusæt-
in væru eiginlega.
2) Tónleikarnir byrjuðu með suði
og ískri sem hélt áfram eftir að byrj-
að var að spila og syngja enda voru
þarna risastórir rokkhátalarar (þeir
sömu og á Rock Star-tónleikunum)
sem henta engan veginn fyrir þessa
tegund tónlistar og höfðu sumir á
orði að stemningin væri eins og á 17.
júní … ískur og lélegur hljómburður.
3) Tvö risatjöld voru sitthvor-
umegin við sviðið og á öðru tjaldinu
var allt í eðlilegum lit en á hinu tjald-
inu voru allir rauðir.
4) Á milli tónleikasvæðisins og
veitingasölunnar hékk aðeins tjald
og eftir hlé bárust hljóð frá veitinga-
sölunni inn í salinn þegar verið var að
ganga frá eftir söluna.
5) Ekki virtist vera samræmi í
auglýsingum þar sem tónleikarnir
voru bæði kynntir sem fimmtu tón-
leikar Frostrósa og einnig sem
„Frostroses“ og ekki var hægt að sjá
hvort um væri að ræða íslenska eða
erlenda tónleika nema bara af land-
fræðilegri staðsetningu þar sem öll
lagaheiti og kynningar á milli laga
voru á ensku (lög eins og „Sitji guðs
englar“ misstu algjörlega marks
sungin á útlensku).
6) Tónlistarfólkið stóð sig í alla
staði mjög vel en öll umgjörð og
skipulagning var til mikillar skamm-
ar. Of stutt var á milli auka-
tónleikanna og aðaltónleikanna svo
mikið bílastæðavandamál skapaðist
og hljómburðurinn var hræðilegur
og ekkert heyrðist í tónlistarfólkinu
sjálfu, aðeins uppmögnuð hljóð úr
hátölurum.
Þetta var því eins og að horfa á
tónleika-dvd-disk í sal fullum af fólki,
glasaglamri, lélegu útsýni og bíla-
stæðavandamálum.
Það er ekki ásættanlegt að hafa
borgað þetta miðaverð miðað við
hljómburð og aðra umgjörð. Hefðum
við hjónin verið sátt við að borga
1.800 krónur fyrir svona tónleika en
ekki 18 þúsund fyrir tvo miða.
Við hjónin munum ekki fara aftur
á Frostrósatónleika fyrr en þeir
verða aftur smærri í sniðum og meiri
áhersla lögð á gæði en ekki græðgi.
SVEINN GARÐARSSON,
Þrastarási 14, Hafnarfirði.
Fyrir hvern voru
þessir tónleikar?
Frá Sveini Garðarssyni:
VIÐ GREIN minni í Morgunblaðinu
19. nóv. sl. sem ég kallaði „Ofsókn-
irnar halda áfram“ fékk ég margs-
konar viðbrögð sem öll hnigu í sömu
átt utan ein. Forstjóri Trygg-
ingastofnunarinnar kallaði mig á
beinið eins og sagt var norðanlands.
Í viðtali við mig
kvaðst hann í
mörgu vera mér
sammála, en það
væri misskiln-
ingur að halda að
stofnunin réði því
sem hún væri að
framkvæma.
Starfsfólk hennar
væri einungis að
framfylgja lögum
og reglum, en fengi í staðinn látlaus-
ar skammir og líflátshótanir.
Ég hlaut vissulega að taka þessar
athugasemdir til greina, en spurði
sjálfa mig hver eða hverjir það væru
þá sem ofsæktu gamla fólkið? Svörin
fengust fljótlega þegar yfir fjölmiðla
og Alþingi helltust fyrirspurnir
vegna endurgreiðslukrafna Trygg-
ingastofnunarinnar. Þá held ég að
flestir hafi áttað sig á því, að það eru
heilbrigðisráðherra, ríkisstjórn og
þingmenn sem fyrst og fremst
standa fyrir ofsóknunum.
Það sem helst vakti athygli mína
við þessar umræður um málefni
eldra fólks var botnlaus fáfræði og
einfeldni þeirra sem málum ráða.
Það var engu líkara en enginn hefði
athugað fyrirfram hvað reglugerðir
og lagafyrirmæli hafa í för með sér.
Auðvitað lofuðu flestir sem lögðu orð
í belg að gera allt fyrir gamla fólkið.
Kosningar fara hins vegar í hönd og
allir vita hversu vel má treysta kosn-
ingaloforðum.
Í öllu þessu moldviðri held ég að
enginn hafi andmælt þeirri úreltu
ranglætisreglu að spyrða hjón sam-
an við útreikninga Tryggingastofn-
unar. Ég hélt að allar þingkonurnar
myndu rísa upp og mótmæla þessu,
því að þeir sem mest tapa á þessu
óréttlæti eru giftar konur. Við ykk-
ur, þingkonur, vil ég segja þetta:
Það eru ömmur ykkar, mæður,
tengdamæður og aðrar konur, ykkur
nátengdar ættar- eða hug-
sjónaböndum, sem þetta kemur
verst við. Ég hvet ykkur til að at-
huga seðlana sem þær fá frá Trygg-
ingastofnun mánaðarlega til að
ganga úr skugga um þetta. Þið þyk-
ist alltaf vera að berjast fyrir launa-
jafnrétti kynjanna. Þið athugið ekki
að vegna þess að þessar konur voru
allajafna á lægri launum en eig-
inmenn þeirra er þeim mismunað
fyrir það á efri árum.
STEINUNN BJARMAN,
eftirlaunaþegi.
Hver ofsækir
gamla fólkið?
Frá Steinunni Bjarman:
Steinunn Bjarman
SPARISJÓÐURINN hefur sett af
stað söfnunarátak til styrktar
ákveðnum verkefnum
átta frjálsra fé-
lagasamtaka á sviði
geðheilbrigðismála.
Markmið aðgerðanna
er að styðja við bætta
þjónustu við þá sem
stríða við geðræn
vandamál og vinna
gegn fordómum í
þeirra garð.
Í íslensku samfélagi
hefur færst í aukana
að fyrirtæki styrki
líknarfélög eða frjáls
félagasamtök sem sinna brýnum
samfélagsverkefnum. Svo sannarlega
er það af hinu góða að fyrirtæki bæði
veki athygli á mikilvægu starfi hinna
ýmsu félagasamtaka og styðji auk
þess starfsemina með söfnunum og
fjárframlögum. Með styrkveitingum
til félagasamtaka eru fyrirtækin að
sjálfsögðu að bæta ímynd sína skv.
faglegri ráðgjöf markaðsfræðinga.
En stjórnendur fyrirtækja verða að
gæta þess að ekki verði sífellt sömu
félagasamtökin fyrir valinu þegar til
styrkveitinga kemur. Hætt er við því
að fyrir valinu verði sömu fé-
lagasamtökin aftur og aftur ef mál-
efnið er líklegt til að vekja samúð
flestra. Þar af leiðandi verða ýmis fé-
lagasamtök sem sinnt hafa brýnum
málefnum, þótt hljótt fari til margra
ára, síður fyrir valinu og
sum geta lent alveg út af
borðinu.
Aukin umfjöllun á
liðnu ári um geðheil-
brigði hefur vakið at-
hygli á því að einn af
hverjum fjórum lands-
mönnum glímir við geð-
ræn vandamál einhvern
tímann á lífsleiðinni.
Sparisjóðurinn hefur
ákveðið að láta geðheil-
brigði landsmanna sig
varða og valið að styrkja
átta verðug verkefni á sviði geðheil-
brigðismála. Sparisjóðurinn er með
þessu söfnunar- og kynningarátaki
að slást í lið með öllum sem glíma við
vanda á geðheilbrigðissviði í barátt-
unni fyrir bættri geðheilsu og ekki
síst með kynningu og fræðslu um
málefnin, að grafa undan fordómum
sem oft á tíðum stafa fyrst og fremst
af vanþekkingu. Mörg þessara fé-
lagasamtaka á sviði geðheilbrigð-
ismála hafa í gegnum tíðina synt á
móti straumnum, því er fengur í því
að fyrirtæki eins og Sparisjóðurinn
skuli þora að gera slíkt hið sama, von-
andi verður það til eftirbreytni hjá
fleiri fyrirtækjum.
Við hvetjum því alla landsmenn til
að styðja gott framtak með því að
taka þátt í verkefninu „Þú gefur
styrk“. Vefsíðan er www.spar.is. Þar
er að finna upplýsingar um félögin
átta og verkefnin sem söfnunarátakið
rennur til. Sparisjóðurinn og við-
skiptavinir taka höndum saman. Við-
skiptavinir Sparisjóðsins þurfa ekki
að greiða neitt, bara velja félag til að
styrkja, og Sparisjóðurinn leggur þá
fram 1.000 kr. til félagsins. Auk þess
geta allir tekið þátt með frjálsum
framlögum.
Þú velur – Sparisjóðurinn gefur
Ingibjörg Karlsdóttir
fjallar um söfnunarátak
til geðheilbrigðismála
» Viðskiptavinir Spari-sjóðsins þurfa ekki
að greiða neitt, bara
velja félag til að styrkja,
og Sparisjóðurinn legg-
ur þá fram 1.000 kr.
Ingibjörg Karlsdóttir
Höfundur er félagsráðgjafi og for-
maður ADHD-samtakanna.
TENGLAR
..............................................
www.spar.is