Morgunblaðið - 11.12.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2006 39
menning
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
ÞAÐ hefur mikið gerst á sviði raf-
tónlistar og óhljóðalistar á Íslandi á
undanförnum árum. Hljóðlistahóp-
urinn Stilluppsteypa hefur þar ver-
ið í broddi fylkingar og ýmsir aðrir
hljóðlistamenn hafa sömuleiðis ver-
ið mjög áberandi og mætti þar
nefna Curver Thoroddsen, Jóhann
Jóhannsson og DJ Musician. Ný-
verið komu út þrír hljómdiskar sem
heyra undir þessa senu með ís-
lenskum og erlendum flytjendum.
Þetta eru diskarnir Angel & Hildur
Gudnadottir in Transmediale sem
er samstarfsverkefni Hildar Guðna-
dóttur, Dirks Dresselhaus og Ilpos
Väisänens, Demon Jukebox með
hljómsveitinni Evil Madness og
The Sleeping Moustache með Sig-
tryggi Berg Sigmarssyni, Steven
Stapleton og fleirum.
Umbreyttar sellóstrokur
Raftónlistarmaðurinn þýski Dirk
Dresselhaus, einnig þekktur sem
Schneider TM, og sellóleikarinn
Hildur Guðnadóttir hafa á und-
anförnum árum leitt saman hesta
sína í nokkrum verkefnum. Í fyrra
gerðu þau hljómdiskinn Good So-
und sem inniheldur þrjú tónverk
byggð á sellóstrokum og slætti,
þungum rafhljóðum og allsherjar
hljóðnið. Á hljómdiskinum in
Transmediate eru Hildur og Dres-
selhaus komin saman enn á ný og
að þessu sinni njóta þau aðstoðar
Ilpos Väisänens frá Finnlandi en
hann skipar annan helminginn í dú-
ettinum Pan Sonic. Upptökurnar á
diskinum eru frá tónleikum þríeyk-
isins sem fóru fram árið 2004 í
berlínska klúbbnum Transmediale.
Þarna flytja þau frumsamin verk af
svipuðum meiði og þau sem Good
Sound inniheldur. Hildur strýkur
úr sellóstrengjunum margs konar
hljóð en Dresselhaus og Väisänen
leiða þau inn í tækjahrúgald þar
sem þeir teygja hljóðin og beygja.
Dresselhaus og Väisänen eru engir
aukvisar í raftónlistarsenunni en
þeir eru að margra mati á meðal
áhrifamestu raftónlistarmanna í
Evrópu og þótt víðar væri leitað.
Djöfullegar drunur
Sigtryggur Berg Sigmarsson er
einn af meðlimum Stilluppsteypu
en líkt og aðrir í hljóðlistarsenunni
hefur Sigtryggur nokkur járn í eld-
inum. Á plötunni Sleeping Mous-
tache er hann í slagtogi við Jim
Haynes, R.K. Faulhaber, M.S.
Waldron og Steve Stapleton. Þessi
kvintett framkallar djöffullegar
drunur með alls konar ólíkum
hljóðum í bland. Steve Stapleton er
eitt af stærri nöfnum hljóðlist-
arsenunnar en hann er einna
þekktastur fyrir að starfrækja
hljómsveitina Nurse With Wound
sem var ein fyrsta hljómsveitin sem
gaf út óhljóðalist.
Og enn af djöfullegum drunum.
Það er óhætt að kalla hljómsveitina
Evil Madness „súpergrúppu“ ís-
lenskrar hljóðlistar en hana skipar
bróðurpartur starfandi íslenskra
hljóðlistamanna. Sveitin var stofnuð
af Stilluppsteypu en þeir fengu svo
til liðs við sig Jóhann Jóhannsson,
BJ Nilsen, DJ Musician, Curver
Thoroddsen og Pétur Eyvindsson.
Sveitin er undir miklum áhrifum af
hryllingsmyndatónlist og leynir það
sér ekki á frumburðinum Demon
Jukebox. Þarna er mikið notast við
orgel og hljóðgervla sem hoppa á
milli djöfullegra stefja innan um
myrkar drunurnar.
Lítil en sterk sena
Curver Thoroddsen, hljóð-
listamaður og meðlimur Evil Mad-
ness, segir að þrátt fyrir að áhug-
inn á hljóðlistarsenunni hér heima
sé ekki gríðarlega mikill þá sé ís-
lensk hljóðlist án nokkurs vafa á
heimsmælikvarða.
„Hún er vel sambærileg því sem
er að gerast erlendis,“ segir Cur-
ver, „Hljóðlistamenn hér eru held-
ur ekkert endilega að einbeita sér
að íslenskum markaði. Auðvitað er
spilað heima en flestir af þessum
listamönnum spila mikið úti. Jó-
hann Jóhannsson er t.d. búinn að
fara út um allt, eins Stilluppsteypa
og DJ Musician.“
Þó að hljóðlistasenan hér sé ekki
stór virðist hún vera nokkuð sterk
og hefur á undanförnum árum ver-
ið að færast meir upp á yfirborðið.
Hljómdiskarnir sem hér voru
nefndir eru gott dæmi um þá þró-
un.
Af hljóðlistum
Morgunblaðið/Ásdís
Engill Hildur Guðnadóttir spilar á selló á Angel & Hildur Gudnadottir in
Transmediale sem tekinn var upp á klúbbi í Berlín árið 2004.
Morgunblaðið/Billi
Virkur Sigtryggur Berg Sigmarsson, liðsmaður Stillusteypu, spilar meðal
annars ásamt Steve Stapelton á plötunni The Sleeping Moustache.
Þó að hljóðlistasenan hér sé ekki
stór virðist hún nokkuð sterk og
hefur á undanförnum árum verið
að færast meir upp á yfirborðið
DANSVERKIÐ Ice „oh“ lation er
samið út frá upplifun danshöfundar
af því að vera gestur á Íslandi. Andr-
eas Constantinou er Kýpurbúi sem
hefur búið í Lundúnum um árabil en
dvelur nú hérlendis. Verkið skír-
skotar til upplifunar hans á fámenn-
inu hér á landi og þeirri einangrun
sem oft fylgir búsetu á nýjum slóð-
um, framandi honum. Dansverkið
var sýnt á sviði í nýjum og glæsi-
legum húsakynnum Klassíska list-
dansskólans við Grensásveg. Dans-
arinn Guðrún Óskarsdóttir lá líflaus
en uppstillt á gólfi sviðsins og tveir
skjáir römmuðu inn dýpt sviðsins
ásamt síma og hvítum ferhyrndum
kassa. Verkið hófst á því að dans-
arinn lyfti sér löturhægt frá gólfinu
og fikraði sig áfram í átt að kass-
anum. Hreyfingar hennar lýstu ótta-
blandinni virðingu. Hún faldi sig
undir kassanum sem huldi hana að
hluta. Síminn hringdi og þögult óp
sást á andliti hennar. Útlitið eða
formið á hreyfingunum var einfalt
og tært og tókst Gurúnu Ósk-
arsdóttur að koma hugmyndum höf-
undar fagmannlega til skila. Dans-
inn og leikurinn ásamt kassanum
sem miðpunkti og símanum sem út-
gangspunkti mynduðu augljósa tog-
streitu sambands og sambandsleys-
is. Það var góð stígandi í verkinu,
sem var hæfilega langt, stílfært og
fágað. Svið Klassíska listdansskól-
ans rammaði inn verkið en sviðið á
eflaust eftir að hýsa ófá dansverk
framtíðarinnar. Það var þakklátt að
sjá þetta unga atvinnufólk kynna list
sína af fagmennsku. Þau mega una
glöð við árangur erfiðisins.
Fágun og fagmennska
DANS
Klassíski listdansskólinn
Eftir Andreas Constantinou. Danslist:
Guðrún Óskarsdóttir. Tónlist: Wajid Ya-
seen, 2nd Gen, Sample from Bruce Nau-
mens Raw Materials, Sample from Tetra-
lógía. Vídeóverk: Andreas Constantinou.
Dansarar í vídeóverkinu: Andreas Con-
stantinou, Alice Tatge. Sviðsmynd: Gian-
luce Vincentini. Búningar og lýsing:
Andreas Constantinou. Laugardagur 9.
desember.
Ice „oh“ lation
Lilja Ívarsdóttir
Morgunblaðið/Ásdís
Dansari „Útlitið eða formið á hreyfingunum var einfalt og tært og tókst
Gurúnu að koma hugmyndum höfundar fagmannlega til skila.“
ROKKSVEITIN Noise hefur nú
verið starfandi um allnokkra hríð en
Wicked er önnur plata hennar. Það
er orðið löngu ljóst að markmið
Noise er ekki að finna upp hjólið,
heldur frekar að rokka eins duglega
og hægt er. Í þeim tilganginum not-
ast meðlimir við tónheim gamla góða
gruggsins, sem er auðvitað kjörinn
fyrir slíka starfsemi. Lögin því ein-
falt þriggja gripa rokk, söngurinn
hálfsunginn og hálföskraður og allt
byggt á grúvi og keyrslu.
Að hlusta á Wicked er svona eins
og að hlusta á Bleach með Nirvana.
Þetta er hrátt og hart grugg í þeim
anda sem umlék stefnuna áður en
hún varð almenningseign (og í beinu
framhaldi af því útvötnuð). Dálæti
Noise á téðri sveit fer heldur ekki
framhjá manni en sveitin er þó ekki
jafn rígbundinn á klafa hennar og á
fyrstu plötu sinni, Pretty Ugly, sem
út kom 2003.
Wicked er þannig nokkur framför
frá því
verki,
menn eru
klárlega að
leitast við
að pota ein-
hverju sem
kalla mætti
frumlegu í
lagasmíð-
arnar. Fyrri platan minnti nefnilega
pínlega mikið á Nirvana en ekkert
slíkt er að finna hér.
Opnunarlag plötunnar, „Ride the
Wave“, er þannig í fremur „hefð-
bundnum“ harðrokksstíl; trukkandi
bílskúrsrokk sem erfitt er að pinna á
einhvern einn áhrifavald. Næsta lag,
„Out of line“, dragnast áfram, er
borið uppi af surgandi og bjöguðum
gíturum. Kaflaskiptingar svolítið
sérstakar og söngpælingar
skemmtilegar. Sum lögin eru nokk
minimalísk, þar sem er keyrt á sama
stefinu aftur og aftur þar til það er
komið í lykkju. Þetta er áhrifaríkt
þegar vel tekst til (sjá t.d. „Fat-
head“). Þá verður að geta lagsins
„Hit & Run“, grípandi keyrslurokk-
ari þar sem engin grið eru gefin.
Einar, sem er hörku gítarleikari,
læðir svo innblásnum gítarsólóum
inn í lögin við og við. Gítarhljóm-
urinn á plötunni hæfir þá afstöðunni,
er rifinn og skítugur.
Í sumum lögunum keyrir ófrum-
leikinn fram úr hófi en á heildina lit-
ið tekst Noise prýðilega upp í því
sem lagt er upp með, að spila „bara“
rokk og ról.
Hart og hrátt
TÓNLIST
Geisladiskur
Noise skipa þeir Einar Vilberg (gítar,
söngur, píanó), Stefán Vilberg (bassi) og
Hörður Steinbergsson (trommur). Öll lög
eru eftir Einar utan að Stefán og Hörður
eiga hvor sitt lagið. Ragnar Zolberg og
Noise stýrðu upptökum. Noise gefa sjálf-
ir út.
Noise – Wicked
Arnar Eggert Thoroddsen
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
Glæsilegt úrval
úra og skartgripa
Flott