Morgunblaðið - 11.12.2006, Page 40
40 MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Höfum fengið til sölumeðferðar heila u.þ.b. 2.500 fm fasteign afar vel stað-
setta og með traustum 15 ára leigusamningum. Eignin er byggð árið 2004 og
er mjög glæsileg og í afar góðu ásigkomulagi. Nánari uppl. veitir Guðmundur
Th. Jónsson.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
HEIL HÚSEIGN
Að vanda býður Þjóðminja-safnið upp á fjölbreyttadagskrá í tilefni jólanna. Ínótt kemur fyrsti jóla-
sveinninn til byggða, en í fjölda ára
hafa jólasveinarnir haft fyrir sið að
heilsa upp á börnin í Þjóminjasafn-
inu um leið og þeir koma til borgar-
innar. Rúna K. Tetzschner er kynn-
ingarstjóri Þjóðminjasafnsins: „Í
Myndasalnum og í sýningarrýminu
sem við köllum Torgið höfum við
opnað jólasýninguna Sérkenni
sveinanna. Þar er lítið jólahús með
alls kyns munum sem tengjast jóla-
sveinunum, s.s. aski Askasleikis og
hrossabjúgum Bjúgnakrækis. Þetta
hjálpar börnunum að skilja hvað hin
skrítnu nöfn jólasveinanna merkja,“
segir Rúna. „Einnig efnum við til
ratleiks um safnið í desember. Jóla-
kettir hafa verið faldir víða um safn-
ið og börnin geta fundið þá ef þau
fylgja vísbendingunum. Á fyrstu
hæð er einnig ljósmyndasýningin
Hátíð í bæ þar sem sýndar eru
myndir Ingimundar og Kristjáns
Magnússona af jólahaldi á 7. ára-
tugnum, þar má meðal annars sjá
litlujólin í íslenskum grunnskólum.“
Hápunktur jóladagskrár Þjóð-
minjasafnsins í augum barnanna
eru þó tvímælalaust daglegar heim-
sóknir jólasveinanna í safnið: „Þetta
eru hinir einu sönnu íslensku jóla-
sveinar og þeir klæða sig þjóðlega
eftir því,“ segir Rúna. „Stekkjar-
staur er fyrstur, og bregður á leik
með börnunum 12. desember kl. 11.
Svo koma þeir bræður hver á fætur
öðrum, daglega kl. 11, en þeim þyk-
ir gott að vera í Þjóðminjasafninu
þar sem er að finna alls kyns þjóð-
legt dót sem þeir kannast vel við frá
sínum yngri árum.“
Þótt jólasveinarnir og foreldrar
þeirra Grýla og Leppalúði hafi verið
hálfgerðar barnafælur á öldum áður
segir Rúna jólasveinana vera mikla
barnavini í dag, og þurfi krakkarnir
ekki einu sinni að óttast Grýlu og
Leppalúða, sem hafi mildast mjög
með árunum.
Sama dag og Stekkjarstaur heim-
sækir safnið mun Þóra Kristjáns-
dóttir listfræðingur leiða gesti um
Þjóðminjasafnið og fjalla um „Hin
mörgu andlit Maríu“: „Staldrað
verður við alls kyns myndir og lík-
neski sem finna má af Maríu á
grunnsýningu safnsins, en María
var ákaflega vinsæl á Íslandi í kaþ-
ólsku og jafnvel löngu eftir siða-
skipti,“ segir Rúna. „Leiðsögnin
hefst kl. 12.10 og mun táknmáls-
túlkur vera með í för. Þjóðminja-
safnið leggur áherslu á að gera
safnið aðgengilegt fyrir alla og
hlaut nýlega viðurkenningu Sjálfs-
bjargar fyrir gott aðgengi fyrir
alla.“
Þjóðfræðingurinn Terry Gunnell
mun síðan flytja fyrirlestur um ís-
lensku jólin og siði þeim tengda 21.
desember. „Það verður án vafa
mjög gaman að hlusta á Terry, en
hann mun flytja fyrirlesturinn á
auðskiljanlegri ensku,“ segir Rúna
að lokum.
Nánari upplýsingar um Þjóð-
minjasafnið, afgreiðslutíma, sýn-
ingar og safnkost og jóladagskrá
safnsins er að finna á www.thjod-
minjasafn.is. Aðgangur er ókeypis
að jólasveinauppákomum og sýn-
ingum á fyrstu hæð safnsins.
Hátíð | Þjóðminjasafnið er fyrsta stopp
jólasveinanna og nóg um að vera á aðventu
Jólalegt í Þjóð-
minjasafninu
Rúna K.
Tetzschner
fæddist í Reykja-
vík 1967. Hún
lauk stúdents-
prófi frá Mennta-
skólanum í
Reykjavík 1988
og stundaði nám
í íslensku við Há-
skóla Íslands. Rúna hefur starfað
við Þjóðminjasafnið frá 1996, sem
sérfræðingur á rannsókna- og varð-
veislusviði frá 1998 og kynningar-
stjóri frá 2006. Rúna hefur einnig
starfað sjálfstætt sem listakona og
hefur látið frá sér ljóða- og barna-
bækur og fyrir skemmstu fræðiritið
Nytjar í nöfnum.
Kalvin & Hobbes
KALVIN, KOMDU. VIÐ ERUM
AÐ FARA ÚT Í BÚÐ MÁ
HOBBES
KOMA
MEÐ?
NEI, HANN
VERÐUR HEIMA EN ÉG VIL
AÐ HANN
KOMI MEÐ!!
EF MAÐUR FINNUR
ENGIN RÖK ÞÁ TALAR
MAÐUR BARA HÆRRA
Kalvin & Hobbes
VERKTAKINN SAGÐI AÐ ÞAÐ
MUNDI KOSTA 20.000 kr. AÐ
LAGA ÞETTA
HEIMSKI
KRAKKI!
ÞETTA ER ALLT HLUTI
AF ÞVÍ AÐ ALA UPP BARN, ER
ÞAÐ EKKI?
MM...
SÉRÐU NOKKUÐ EFTIR ÞVÍ AÐ
HAFA EIGNAST KALVIN?
GERIR ÞÚ
ÞAÐ?
ÉG SPURÐI ÞIG FYRST. OG
ÞAÐ VAR EKKI MÍN HUGMYND
ÉG MAN BARA
EFTIR ÞVÍ AÐ HAFA
STUNGIÐ UPP Á ÞVÍ
AÐ KAUPA TVEGGJA-
SÆTA SPORTBÍL EN
ÞÚ SAGÐIR...
Kalvin & Hobbes
KALVIN, TRÚIR
ÞÚ Á GUÐ?
ÞAÐ HLÝTUR AÐ VERA
EINHVER SEM ER AÐ
GERA LÍFIÐ MITT ERFITT
Risaeðlugrín
© DARGAUD
HANN HEFUR EINN VEIKLEIKA
BALALALALALAL!!!
HANN ER AFSKAPLEGA SIÐPRÚÐUR
GUÐ MINN
GÓÐUR! ÉG ER
NAKINN!!
NÚNA GETUM
VIÐ ANDAÐ RÓLEGA.
ÞAÐ TEKUR DÁLITLA
STUND FYRIR
FJAÐRIRNAR AÐ VAXA
ÓNEFNDUR stríðsmálaður kínverskur leikari tekur hér smákríu fyrir
frumsýningu á enskri útgáfu kínversku óperunnar Monkey King sem
frumsýnd var í Sjanghaí um helgina.
Reuters
Stund milli stríða