Morgunblaðið - 11.12.2006, Side 42
42 MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Dr. Adrienne Heijnen, mannfræð-ingur við Háskólann í Árósum,
fjallar í máli og myndum um grímu-
hefðir Grænlendinga og hvernig
þeir nota grímur í daglegu lífi.
Fyrirlesturinn er í Norræna hús-
inu þriðjudaginn 12. des. kl. 20 og er
í boði Stofnunar Vilhjálms Stefáns-
sonar og Kalak, vinafélags Græn-
lands og Íslands. Allir velkomnir.
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Á Veggnum í Þjóðminjasafninustendur yfir jólasýning með
myndum tvíburabræðranna Ingi-
mundar og Kristjáns Magnússona.
Myndirnar fanga anda jólanna á
sjöunda áratugnum. Margt í þeim
ætti að koma börnum í jólaskap og
fullorðna fólkið þekkir þar vafa-
laust hina sönnu jólastemningu
bernsku sinnar.
Einn af öðrum tínast spennu-sagnahöfundarnir í Þjóð-
menningarhúsið á aðventunni og
skjóta áhlýðendum skelk í
bringu með hrollvekjandi upp-
lestri úr nýjum verkum sínum.
Allir eru þeir þátttakendur í
upplestrarseríunni Jólahrollur í
hádeginu sem hefst þriðjudaginn
12. desember. Upplesturinn fer
þannig fram að alla dagana til og
með Þorláksmessu 23. desember kemur einn höfundur eða staðgengill
hans og les kafla úr nýútkominni spennusögu sinni. Lesturinn hefst kl.
12.15 alla dagana. Að honum loknum býðst áhlýðendum súputilboð í veit-
ingastofu Þjóðmenningarhússins. Sérstök athygli er vakin á því að Kon-
ungsbók sú sem bók Arnaldar Indriðasonar er nefnd eftir er engin önnur
en Konungsbók Eddukvæða, handrit frá um 1270 sem sýnt er á sýningunni
Handritin í Þjóðmenningarhúsinu. Leiðsögumaður Þjóðmenningarhússins
verður á staðnum, gestum til nánari upplýsingar.
Tónlist
Dómkirkjan | Jólatónleikar Tónlistarskól-
ans í Reykjavík verða haldnir í Dómkirkj-
unni þriðjudag 12. des kl. 20. Hljómsveitir
og kammerhópar skólans leika verk eftir
Mozart, Paisiello, Corelli og fleiri.
Grafarvogskirkja | Kammerkórinn Vox
academica flytur þætti úr Messíasi e.
Händel og Magnificat e. Bach í Grafar-
vogskirkju föstudaginn 15. desember kl.
20. Ásamt kórnum koma fram fimm ein-
söngvarar og hljómsveitin Jón Leifs came-
rata. Stjórnandi er Hákon Leifsson. Miða-
verð 3.000/2.500 í forsölu. Sími
899 7579/ 864 5658.
Hafnarborg | Ég man þau jól – Jólatón-
leikar 13. desember kl. 20. Flutt verða
gömlu góðu amerísku jólalögin sem þekkt
eru með Frank Sinatra, Bing Crosby, Tony
Bennet, Mahaliu Jackson o.fl. í djass- og
swing-útsetningum. Lög eins og White
Cristmas, Christmas Song, Have yourself
a merry little Christmas og mörg fleiri.
Langholtskirkja | Söngsveitin Fílharmónía
heldur aðventutónleika í Langholtskirkju
þriðjudag kl. 20. Flutt verða verk tileinkuð
Maríu mey auk jólalaga frá ýmsum lönd-
um. Einnig verður frumflutt nýtt verk eftir
stjórnanda kórsins, Magnús Ragnarsson.
Einsöngvari er Hulda Björk Garðarsdóttir
og organisti er Kári Þormar.
Salurinn, Kópavogi | Mánudag 11. desem-
ber kl. 20: Síðustu tónleikar Miklós
Dalmay þar sem hann leikur píanósónötur
Mozarts eins og hann hefur gert síðustu
mánudagskvöld. Píanósónötur nr. 14–18
verða á dagskránni. Nánar á heimasíðu
okkar. Miðaverð: 2.000/1.600 kr. í s:
570 0400 og á salurinn.is.
Skálholtskirkja | Skálholtskórinn heldur
aðventutónleika í Skálholtskirkju laugar-
daginn 16. des. Sigrún Hjálmtýsdóttir og
Óskar Pétursson, ásamt Kammersveit.
Tónleikarnir verða tvennir: Kl. 14 og kl. 17.
Aukatónleikar kl. 20.30. Miðasala er hafin
í síma 847 5057, verð 2.500 kr. Stjórn-
andi er Hilmar Örn.
Myndlist
Anima gallerí | Bjarni Sigurbjörnsson, Jón
Óskar og Kristinn Már. Til 23. des.
Artótek Grófarhúsi | Anna Hallin mynd-
listarmaður sýnir teikningar og myndband
á Reykjavíkurtorgi í Borgarbókasafni
Tryggvagötu 15. Til áramóta. Nánar á
www.artotek.is.
Aurum | Soffía sýnir teikningar sem eru
tilraun höfundar til að vinna úr sjónrænum
upplýsingum frá umhverfi og náttúru.
Soffía útskrifaðist frá myndlistardeild LHÍ
vorið 2006 og vinnur nú jöfnum höndum
að teikningum, gjörningum og dansi. Til 15.
des.
Café 17 (verlsunin 17) | Mæja sýnir 20 ný
málverk, flest eru lítil en hver mynd er
ævintýri út af fyrir sig. Álfar og litir eru
einkenni mynda Mæju. Allir velkomnir.
Café Mílanó | Ingvar Þorvaldsson er með
málverkasýningu. Sýnd eru 10 ný olíu-
málverk. Sýningin stendur til áramóta.
DaLí gallerí | Magdalena Margrét
Kjartansdóttir með sýningu á grafíkverk-
um sínum til 17. desember. DaLí gallerí er
opið föstudaga og laugardaga kl. 14–18.
Gallerí 100° | Sýning á myndlist í eigu
Orkuveitu Reykjavíkur. Opið virka daga kl.
8.30–16.
Gallerí Úlfur | Sigurdís Harpa Arnars-
dóttir opnar sýningu laugardaginn 9. des
kl. 16 og stendur sýningin út desember.
Opið virka daga frá 14–18.
Gallery Turpentine | Jólasýning Gallery
Turpentine „… eitthvað fallegt“ er sam-
sýning með listamönnum gallerísins auk
gesta. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ing-
ólfsson. Sýningin stendur til 18. des. Opið
er sem hér segir: þri.–fös. kl. 12–18, lau. kl.
12–16.
Gerðuberg | Gerðuberg á í safni sínu um
1.000 listaverk eftir börn sem unnin voru í
listsmiðjunum Gagni og gamni sem starf-
ræktar voru sumrin 1988–2004. Fyrirtæki
og stofnanir geta fengið leigð verk úr
safninu til lengri eða skemmri tíma. Sýn-
ingin stendur til 21. janúar.
Sýning á myndskreytingum í íslenskum
barnabókum 2006. Sýningin stendur til
21. janúar 2007. Tekið er á móti átta ára
skólabörnum í samstarfi við Borgarbóka-
safnið.
Hugarheimar – Guðrún Bergsdóttir sýnir
útsaum og tússteikningar. Ein allsherjar
sinfónía fjölskrúðugra lita og forma; eins
og íslensk brekka þakin berjum að hausti
eða brúðarklæði frá Austurlöndum. Verk
Guðrúnar vitna um hina óheftu tjáningu
sem sprettur fram úr hugarheimi hennar.
Sýningin stendur til 21. janúar. Sjá
www.gerduberg.is.
Hafnarborg | Ljósmyndarinn Spessi til 30.
desember. Verkin eru úr væntanlegri bók
sem mun bera titilinn „Locations“ og kem-
ur út nú fyrir jólin. Sýningin í Hafnarborg
hefur fengið sömu yfirskrift. Þarna er
fyrst og fremst um að ræða myndir af
stöðum sem bera ummerki mannfólksins.
Hafnarborg | Sigrún Guðjónsdóttir, Rúna,
með sýningu í Sverrissal og Apóteki. Á
sýningunni verða steinleirsmyndir og verk
unnin á pappír með akrýl, olíukrít, pastel
og bleki.
Hjá Marlín | Birgir Breiðdal, Biggi, sýnir til
23. desember.
Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir
sýnir í Menningarsal til 8. janúar.
Kaffi Sólon | Elena Fitts sýnir málverk á
Sólon. Verkin eru unnin með olíu á striga.
Elena fæddist 1984 í Úkraínu og byrjaði að
teikna mjög ung. Hún flutti til Íslands 1999
og ári síðar hóf hún að nota olíuliti. Til 5.
janúar.
Listasafn Einars Jónssonar | Lokað í des-
ember og janúar. Höggmyndagarðurinn
við Freyjugötu er alltaf opinn.
Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning á
verkum Drafnar Friðfinnsdóttur (1946–
2000). Sýningarlok 17. desember. Opið
alla daga nema mánudaga kl. 12–17.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús |
Bandarísk list á þriðja árþúsundinu. Margir
af fremstu listamönnum Bandaríkjanna,
sem fæddir eru eftir 1970, eiga verk á sýn-
ingunni. Sýningarstjórarnir eru í fremstu
röð innan hins alþjóðlega myndlistarvett-
vangs. Sýningin hefur farið víða um heim,
m.a. til New York og Lundúna.
Norræna húsið | Sýningin Exercise in
Touching, Æfing í að snerta, er opin alla
daga nema mánudaga kl. 12–17. Sýnd eru
verk Borgny Svalastog sem eru unnin í
ýmsa tækni. Sýningin stendur til 17. des-
ember.
Ófeigur listhús | Skólavörðustig 5. Mál-
verkasýning Ómars Stefánssonar. Sýn-
ingin stendur til áramóta og er opin á
verslunartíma.
Skaftfell | Haraldur Jónsson sýnir í Skaft-
felli, menningarmiðstöð á Seyðisfirði.
Bjargey Ólafsdóttir sýnir vinnuteikningar;
„ég missti næstum vitið“, á vesturveggn-
um. Til 23. des. www.skaftfell.is.
Þjóðminjasafn Íslands | Á Veggnum í
Þjóðminjasafninu stendur yfir jólasýning
með myndum tvíburabræðranna Ingi-
mundar og Kristjáns Magnússona. Mynd-
irnar fanga anda jólanna á sjöunda ára-
tugnum. Margt í þeim ætti að koma
börnum í jólaskap og fullorðna fólkið þekk-
ir þar vafalaust hina sönnu jólastemningu
bernsku sinnar.
Í Myndasal Þjóðminjasafnsins eru til sýnis
þjóðlífsmyndir úr safni hins þjóðþekkta
Guðna Þórðarsonar í Sunnu, blaðamanns,
ljósmyndara og ferðamálafrömuðar.
Myndirnar tók hann við störf og ferðalög á
tímabilinu 1946–60. Þær eru eins og tíma-
sneið frá miklu umbrotaskeiði í sögu þjóð-
arinnar.
Í Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir
sýning á útsaumuðum handaverkum list-
fengra kvenna frá fyrri öldum. Sýningin
byggist á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson
textíl- og búningafræðings. Myndefni út-
saumsins er fjölbreytt, m.a. sótt í Biblíuna
og kynjadýraveröld fortíðarinnar.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Nú stend-
ur yfir á Bókatorgi í Grófarhúsi, Tryggva-
götu 15, 1. hæð sýningin „… hér er hlið
himinsins“ sem Borgarskjalasafn Reykja-
víkur vann í tilefni af 20 ára vígsluafmæli
Hallgrímskirkju. Sýningin er opin virka
daga kl. 11–19 og um helgar kl. 13–17. Að-
gangur ókeypis, allir velkomnir. Til 7. jan.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla
daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð-
leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og
sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu-
leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á
www.gljufrasteinn.is Sími 586 8066.
Landsbókasafn Íslands, Háskóla-
bókasafn | Í spegli Íslands er lítil sýning í
forsal þjóðdeildar safnsins. Þar er sagt frá
ferðasögum til Íslands í gegnum aldirnar.
Sú þrá að þekkja og nema … Sýning til
heiðurs Jónasi Jónassyni frá Hrafnagili –
150 ára minning. Jónas var prestur, rithöf-
undur, þýðandi og fræðimaður, eins og
verk hans Íslenskir þjóðhættir ber vott
um. Sýningin spannar æviferil Jónasar.
Upp á Sigurhæðir – Matthías Jochumsson
var lykilmaður í þjóðbyggingu 19. aldar.
Menn þekkja best sálmana, þjóðsönginn
og Skugga-Svein, en skáldpresturinn sá
eftir sig 28 bækur, þar af 15 frumsamdar.
Sýningin stendur yfir til 31. desember. Sjá
einnig heimasíðu safnsins www.landsboka-
safn.is.
Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns
| Í húsnæði Seðlabankans á Kalkofnsvegi 1
hefur verið sett upp ný yfirlitssýning á ís-
lenskum gjaldmiðli og öðru efni í eigu
safnsins. Þar er einnig kynningarefni á
margmiðlunarformi um hlutverk og starf-
semi Seðlabanka Íslands. Gengið er inn
um aðaldyr bankans frá Arnarhóli. Að-
gangur er ókeypis. Sýningin er opin mán.–
fös. kl. 13.30–15.30.
Þjóðmenningarhúsið | Að vanda eru fjöl-
breyttar sýningar í sölum Þjóðmenningar-
hússins. Þær eru: Íslensk tískuhönnun,
með fatalínum frá níu merkjum eða hönn-
uðum í samhengi við íslenska náttúru.
Berlin Excursion, bókagerðarlist frá forlagi
rithöfunda og myndlistarmanna frá Berlín.
Fyrirheitna landið og Handritin að auki.
Þjóðminjasafn Íslands | Skoðunarferð um
grunnsýningu Þjóðminjasafnsins er ævin-
týralegt ferðalag gegnum 1.200 ár sem
hefst í skipi landnámsmanna og lýkur í
flughöfn nútímans. Fjölbreyttar sýningar,
fræðsla og leikir fyrir alla fjölskylduna.
Skemmtileg safnbúð og notalegt kaffihús.
Opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17.
Skemmtanir
Slysavarnadeildin Hraunprýdi | Jóla- og
afmælisfundur hefst með borðhaldi í Skút-
unni þriðjudaginn 12. des. kl. 19.30. Margt
skemmtilegt verður á fundinum, m.a.
Brynja Valdís með uppistand, Carlos Sanc-
hes dansar salsa-sóló og að venju glæsi-
legt happadrætti. Miðar verða seldir í
versluninni Gjafahúsi, Strandgötu 11, 7.–10.
des.
Fréttir og tilkynningar
Fjölskylduhjálp Íslands | Bráðum koma
blessuð jólin. Fjölskylduhjálpin hvetur
landsmenn til að gefa fatnað, leikföng og
borðbúnað vegna opnunar flóamarkaðar í
lok nóvember í Eskihlíð 2–4 Rvík í þágu
efnalítilla fjölskyldna. Tökum á móti mið-
vikudaga eða eftir samkomulagi kl. 13–17.
Svarað í síma 892 9603.
Happdrætti bókatíðinda | Númer dagsins
11. desember er: 527.
Frístundir og námskeið
Lesblindusetrið | Sérsniðið hraðlestrar-
námskeið fyrir 9–13 ára krakka. Hvers
virði er aukinn lestrarhraði? Gefðu
barninu þínu tækifæri á að skara fram úr
með því að tvöfalda, jafnvel margfalda,
lestrarhraða sinn. Leiðbeinandi er Kol-
beinn Sigurjónsson, Davis-ráðgjafi hjá
Lesblindusetrinu í Mosfellsbæ. Sími
566 6664.
staðurstund
Söfn
Hátíð í bæ í
Þjóðminjasafni
Fyrirlestur
Grímuhefðir
Grænlendinga
Söfn
Jólahrollur í hádeginu – upplestr-
arsería í Þjóðmenningarhúsinu
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
M.M.J. Kvikmyndir.com
eeee
Blaðið
eeee
Þ.Þ. Fbl.
80.000
gestir!
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir
The Holiday kl. 8 og 10:30
Saw 3 kl. 8 og 10.15 B.i. 16 ára
Hnotubrjóturinn og Músakóngurinn kl. 6
Deck the Halls kl. 6
The Holiday kl. 5, 8 og 10:50
Casino Royale kl. 5, 8 og 10.50 B.i. 14 ára
Casino Royale LÚXUS kl. 2, 5, 8 og 10.50
Hnotubrjóturinn og Músakóngurinn kl. 3.40
Hátíð í bæ / Deck the halls kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10
Borat kl. 10.20 B.i. 12 ára
Mýrin kl. 5.40 og 8 B.i. 12 ára
Skógarstríð m.ísl.tali kl. 3.40
JÓLAMYNDIN Í ÁR
Cameron
Diaz
Kate
Winslet
Jude
Law
Jack
Black
Frábær fjölskyldu- og gamanmynd
sem kemur öllum í gott jólaskap
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA HAFIN Á MIDI.IS
Showed with english
subtitles at Regnboginn
Frábær rómantísk gamanmynd frá Nancy
Meyers leikstjóra What Women Want og Something´s Gotta Give.