Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI FÖSTUDAGUR 3. apríl 2009 — 81. tölublað — 9. árgangur BJÖRG BJÖRNSDÓTTIR Gaman að elda og lesa alls konar uppskriftir • matur • tíska Í MIÐJU BLAÐSINS FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 2009 Spilar í Cannes Barði Jóhannsson fer með Bang Gang á virta kvikmynda- hátíð. FÓLK 36 MILT Í dag verður allhvöss norð- austan átt nyrst á Vestfjörðum, annars hæg austlæg átt. Rigning eða skúrir um mest allt land. Hiti 2-14 stig mildast í uppsveitum á Suður- og Vesturlandi. VEÐUR 4 9 10 8 4 2 Blómstra hjá Stefáni Bestu frjáls- íþróttastelpur landsins eru í stöðugri framför hjá þjálfaranum Stefáni Jóhannssyni. ÍÞRÓTTIR 42 VEÐRIÐ Í DAG BANKAHRUNIÐ Stjórnir bankanna brutu í bága við lög þegar þær seldu starfsmönnum sínum hluti í bönkunum í gegnum einkahlutafé- lög, að mati Stefáns Más Stefáns- sonar, lagaprófessors við Háskóla Íslands. Undantekning í hlutafélaga- lögum leyfir að starfsmönnum sé lánað til kaupa í fyrirtækjum sínum. „Einkahlutafélag er auðvitað ekki starfsmaður fyrirtækisins,“ segir Stefán. Hann setur þó þann fyrirvara að um lán hafi verið að ræða, í skilningi hlutafélagalaga. Í 104. grein laganna segir að starfsmennirnir eða tengd félög megi fá lán til að kaupa hlutina, en Stefán kveður að umrædd tengd félög séu tengd fjármála- fyrirtækinu, ekki starfsmönnun- um. Þekkt dæmi um að starfsmaður banka hafi stofnað félag til slíkra kaupa er af Hreiðari Má Sigurðs- syni, fyrrum forstjóra Kaupþings. Hann stofnaði félag í eigin nafni og fékk lán upp á 3,5 milljarða til þessa. Alls fengu starfsmenn í Kaupþingi fimmtíu milljarða að láni til hlutabréfakaupa. Starfskjarastefna banka kveð- ur á um með hvaða hætti umbun til æðstu starfsmanna skuli vera. Samkvæmt starfskjarastefnu Kaupþings var starfsmönnum leyft að kaupa þessa hluti „til þess að samræma hagsmuni starfsmanna við langtímahagsmuni hluthafa“. Aðalfundur hvers banka sam- þykkir starfskjarastefnu hans. Spurður hvort stjórnir bankanna hafi farið á svig við samþykkt- ir aðalfunda með þessum lánum, segir Vilhjálmur Bjarnason, for- maður Félags fjárfesta, að sam- þykktir aðalfunda á Íslandi séu ekki merkilegar: „Aðalfundir sam- þykktu aldrei neitt, þetta var mjög hrátt.“ Spurður hvernig lán til hluta- félaga standist stefnu sem miði að því að samræma hagsmuni banka og starfsmanna, þegar starfsmenn séu ekki endilega í persónulegum ábyrgðum fyrir einkahlutafélaginu, segir Vilhjálmur: „Þarna er ekkert verið að tengja hagsmuni starfs- manna og bankans saman, þarna er verið að velta allri áhættunni yfir á bankana. [...] Félag getur ekki verið aðili að kjarasamningi.“ En þetta mun ekki hafa verið skilningur bankanna, því í skýr- ingum við ársreikning Landsbanka 2007 er tekið fram að lánað hafi verið til félaga í eigu æðstu stjórn- enda. Annars er hvergi minnst á lán til einkahlutafélaga í starfs- kjarastefnum bankanna, eftir því sem næst verður komist. Refsing fyrir brot á viðkomandi grein hlutafélagalaga getur varðað allt að tveggja ára fangelsi, að sögn Stefáns Más. - kóþ Prófessor telur lán til félaga starfsfólks fara gegn lögum Lagaprófessor telur að stjórnir bankanna hafi ekki mátt lána einkahlutafélögum starfsmanna hluti í bönk- um. „Ekkert verið að tengja hagsmuni starfsmanna og bankans saman,“ segir Vilhjálmur Bjarnason. Æskulýðsstarf í uppnámi „Forgangsröðun meirihlutans kemur ekki aðeins til með að bitna á börnum og fjölskyldum samtímans, heldur er hún verulega kostnaðarsöm þegar til lengri tíma er litið,“ skrifar Sóley Tómasdóttir. UMRÆÐAN 24 EFNAHAGSMÁL „Ég er eindregið þeirrar skoðunar að Samkeppnis eftirlitið hafi mjög mikilvægu hlutverki að gegna á tímum eins og við lifum núna. Jafnvel meira en í góðu árferði því það skiptir miklu máli að endur- reisn efnahagslífsins verði með þeim hætti að hér rísi atvinnulíf þar sem er virk og öflug samkeppni,“ segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlits- ins (SE), segir brýnt að fjölga starfsmönnum stofnunar- innar. „Það er einfaldlega þannig í dag að við verðum að forgangsraða talsvert mikið.“ Hann segir að ef vilji sé til að flýta efnahagsbatanum þurfi að efla SE veru- lega. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir blasa við að samkeppnisyfirvöld þurfi að geta sinnt sínu hlutverki nú sem endranær. „Það reynir á margar grunneiningar í stjórnsýslunni í þessu árferði. Ef reynir á SE sérstaklega þá þarf að fara yfir það.“ Steingrímur segist engu geta svarað um hvort fjárveit- ingar til stofnunarinnar verði auknar. - shá / sjá síðu 4 Samkeppniseftirlitið hefur mikilvægu hlutverki að gegna í atvinnuuppbyggingu: Fjölgun starfsmanna nauðsyn Ungur í anda Heimir Guðjóns- son er fertugur. TÍMAMÓT 28 BLÁTT ÁFRAM Fræðsla og forvarnir í alheimsforvarnamánuði Sérblað Blátt áfram FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Ég fékk uppskriftina frá góðri konu í Frakklandi sem er af ítölsku bergi brotin. Rísottó er ítalskur réttur svo þetta ætti að vera ekta,“ segir Björg Björnsdóttir, verkefnis-stjóri við Háskóla Íslands. Hún segist gjarnan elda rísottó og fari útkoman þá oftast eftir því hvað hún eigi í ísskápnfi Alveg ekta ítalskt rísottó Björg Björnsdóttir gefur lesendum uppskrift að ítölskum rísottórétti sem hún segir einstaklega hentugt að elda á föstudegi og borða svo yfir helgina því hann bragðist svo vel daginn eftir. 250 g risotto-hrísgrjón (helst ítölsk) 2 l kjúklinga- eða kalk-únasoð er gert ráð fyrir lifur og hjörtum úr fiðurfé) Saffran verið bætt út í er steikt fleskið sem h f RISOTTO À LA CORRADINI FYRIR 4 NÚÐLUR úr tófú og heilsujurtinni konny-aku eru það nýjasta hjá Nings. Núðlurnar eru kalk- og próteinríkar en kolvetna- og hitaeiningasnauðar og í þeim er ekkert kólesteról, ekkert glúten og enginn sykur. Björg Björnsdóttir segir ítalskt rísottó heppilegt í kreppunni þar sem nota megi það sem til er í ísskápnum út í. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN til 19. apríl Hinn árvissi 4ra rétta „Allt í steik“ seðill gleður bragðlaukana. Skyldumæting fyrir alla sem unna góðum mat á góðu verði. HRÁSKINKA „PROSCIUTTO“með fíkjum, salati og ferskum parmesanostiRJÓMALÖGUÐ HUMARSÚPAmeð humarfrauði MARINERAÐUR KÁLFAHRYGGUR Á BEINImeð ristuðu g 1 2 VELDU MILLI ÞRIGGJA AÐALRÉTTA Nýr A la Carte hefst 20. apríl! Vegna mikillar eftirspurnar er LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suður- nesjum gerði víðtæka leit í gær að rúmlega tvítugum Belga, Gill- es Claessens, sem strauk úr varðhaldi lög- reglu. Grun- ur leikur á að hann hafi fíkni- efni innvortis. Hann slapp úr varðhaldi þegar verið var að færa hann til rannsóknar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Maðurinn er ekki tal- inn hættulegur. Mikið var lagt upp úr að finna Claessens í gær; setti lögregla upp vegatálma í grennd við Reykjanesbæ. Tengsl hans við Íslendinga eru ókunn. Maðurinn var ófundinn þegar Fréttablaðið fór í prentun. - shá Grunaður um fíkniefnasmygl: Víðtæk leit að strokufanga GILLES CLAESSENS STÚDENTAR Í VANDA Stúdentar óttast að þeir verði margir án tekna í sumar, enda litla vinnu að hafa auk þess sem þeir eiga þá hvorki rétt á atvinnuleysisbótum né námslánum. Stúdentahreyfingin Röskva efndi til setuverkfalls við skrifstofu rektors í gær og krafðist þess að skólinn byði upp lánshæft nám í sumar til að koma til móts vanda stúdenta. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.