Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 4
4 3. apríl 2009 FÖSTUDAGUR
SEÚL, AP Norður-Kóreumenn hafa
byrjað að setja eldsneyti á eld-
flaug sem þeir áforma að skjóta út
yfir Kyrrahaf á næstunni. Þetta
fullyrðir Bandaríkjaher. Hægt er
að skjóta eldflauginni á loft þrem-
ur til fjórum dögum eftir að byrj-
að er að dæla á hana eldsneyti.
Barack Obama Bandaríkjafor-
seti ræddi málið við Lee Myun-
bak, forseta Suður-Kóreu, í Lond-
on í gær, þar sem G20-fundurinn
er haldinn. Þeir sammæltust um
þörfina á samræmdum viðbrögð-
um yrði af skotinu. Obama hefur
sagt að skjóti Norður-Kóreumenn
eldflauginni á loft verði litið á það
sem ögrun sem kalli á viðbrögð
öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna.
Norður-Kóreumenn segjast með
skotinu ætla að koma gervihnetti
á braut um jörðu. Aðrar þjóðir
telja tilganginn með skotinu fyrst
og fremst vera að prófa nýja teg-
und langdrægra flugskeyta.
Skjóta á flauginni yfir Japan og
hafa Japanar hótað því að skjóta
hana niður þegar hún berst að
ströndum þeirra. Þeir munu þegar
hafa gert varúðarráðstafanir til að
bregðast við því ef brak úr flaug-
inni skyldi falla þar til jarðar.
Norður-Kóreumenn segja að það
myndi jafngilda stríðsyfirlýsingu
að skjóta flaugina niður og hóta
því að eldi og brennisteini muni
rigna yfir Japan verði það gert.
- sh
Þjóðarleiðtogar áhyggjufullir á meðan N-Kóreumenn halda áfram að ögra:
Eldsneyti sett á eldflaugina
SAMMÁLA Obama ræddi við forseta
Suður-Kóreu í London og taldi nauð-
synlegt að koma á friði og stöðugleika á
Kóreuskaga. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Nýttu þér framúrskarandi þekkingu
og þjónustu ásamt úrvalinu á stærsta
varahlutalager landsins fyrir allar
tegundir bíla.
Gerðu vel við bílinn þinn!
100.000
vörunúmer.
1 símanúmer.
N1.ISN1 440 1000
Á B Y R G Ð
V A R A H L U T I R
3 ÁRA
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
16°
17°
15°
20°
14°
17°
19°
19°
13°
13°
20°
18°
12°
28°
9°
17°
18°
10°
Á MORGUN
8-13 m/s vestan til,
annars mun hægari.
SUNNUDAGUR
8-13 m/s á Vestfjörðum,
annars mun hægari.
HELGARHORFUR
Á morgun verða
mildar suðlægar
áttir ríkjandi með
skúraveðri sunnan-
lands og vestan fram
yfi r hádegi en síðan
eru góðar horfur á
að hann þorni að
mestu upp. Norðan-
og austanlands
verður þurrt og bjart
með köfl um, sýnu
bjartast austan til.
Á sunnudag verður
keimlíkt veður en þó
kólnar á Vestfjörðum
í norðaustan átt með
éljum.
9
4
2
5
4
2
8
8
10
8
6
5
6
13
7
3
6
3
4
6
6
6
6
9
9
8
5
6
0
7
3
8
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
EFNAHAGSMÁL „Ef það er vilji til að gera allt
sem hægt er til að flýta efnahagsbatanum
þá þarf að efla Samkeppniseftirlitið veru-
lega til að takast á við þær aðstæður sem
komnar eru upp,“ segir Páll Gunnar Páls-
son, forstjóri Samkeppniseftirlitsins (SE).
Páll telur að fjölgun starfsmanna úr rúm-
lega tuttugu í þrjátíu á næstu misserum
myndi gera SE kleift að
takast á við öll verkefni
með skilvirkum hætti.
„Við höfum ekki legið á
því hversu mikilvægt það
er að SE fái meira svig-
rúm. Við höfum kallað
eftir því við fjárveitinga-
valdið að veita stofnuninni
meira fé til að hægt sé að
sinna fleiri verkefnum,“
segir Páll Gunnar. „Það er
einfaldlega þannig í dag að
við verðum að forgangs-
raða talsvert mikið. Þó að
starfið gangi vel er ýmis-
legt sem við þurfum að
setja aftar í röðina.“
„Ég er eindregið þeirrar
skoðunar að SE hafi mjög
miklu hlutverki að gegna
á tímum eins og við lifum
núna. Jafnvel meiru en í
góðu árferði því það skiptir miklu máli að
endurreisn efnahagslífsins verði með þeim
hætti að hér rísi atvinnulíf þar sem er virk
og öflug samkeppni,“ segir Gylfi Magnússon
viðskiptaráðherra, sem jafnframt er í leyfi
sem stjórnarformaður SE á meðan hann
gegnir ráðherraembætti.
Spurður hvort stofnunin sé undirmönnuð
segir Gylfi að hún gæti án efa notað fleiri
starfsmenn. „Þröngur fjárhagur hins opin-
bera gerir fjölgun hins vegar erfiða.“
Gylfi telur að öflugt samkeppniseftirlit
ýti undir fjölgun starfa. „Rannsóknir á
kreppunni miklu í Bandaríkjunum benda til
að veiking samkeppnisreglna og leyfisveit-
ingar til stórra samruna töfðu endurreisn-
ina og lengdu kreppuna um mörg ár.“ Tíma-
bundna fjölgun starfsmanna telur Gylfi
aðeins eitt af því sem kemur til greina. „Það
má efla stofnunina með fjárheimildum til að
kaupa sérfræðivinnu.“
Páll Gunnar segir gríðarlega mikilvægt
að stofnunin hafi kost á að nýta sérfræði-
þekkingu utan stofnunarinnar. Verkefnin
séu svo fjölbreytt og flókin. „Við höfum
reynt að nýta alla þekkingu sem hægt er að
draga að. Það hefur gengið vel en við þurf-
um meira svigrúm til þess.“ SE hefur í dag
úr rúmlega 300 milljónum króna að spila á
ári. Nýlega var farið fram á fimmtíu millj-
óna króna aukafjárveitingu á þessu ári.
svavar@frettabladid.is
Samkeppniseftirlit getur
flýtt fyrir endurreisninni
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir dæmin sanna að ástæða sé til að styrkja samkeppnisyfirvöld á
tímum efnahagsþrenginga. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins vill fjölga starfsmönnum úr tuttugu í þrjátíu.
GYLFI MAGNÚSSON
PÁLL GUNNAR
PÁLSSON
VIÐ VINNU Því er haldið fram að aldrei reyni eins mikið á samkeppnisyfirvöld eins og í endurreisn atvinnu- og
efnahagslífs. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TYRKLAND, AP Tyrkneska ríkis-
útvarpið TRT segist hafa hafið
útsendingar á armensku. Kvað
það vera gert sem teikn um vilja
Tyrkja til sátta við Armena í
tengslum við væntanlega heim-
sókn Baracks Obama Bandaríkja-
forseta til Tyrklands.
TRT hóf á miðvikudag einnig
útvarpsútsendingar á kúrdísku, en
sjónvarpsútsendingar á því máli
hófust í janúar. Tyrknesk yfirvöld
vilja að Obama komi í veg fyrir að
Bandaríkjaþing samþykki álykt-
un þar sem dráp Tyrklandshers á
Armenum í lok heimsstyrjaldar-
innar fyrri eru fordæmd sem
þjóðarmorð. Að sögn tyrkneskra
ráðamanna myndi slík samþykkt
spilla fyrir tilraunum til að bæta
samskiptin við Armeníu. - aa
Tyrklandsheimsókn Obama:
Tyrkir senda út
á armensku
LÖGREGLUMÁL Sjötíu og þrír voru
staðnir að hraðakstri á Kársnes-
braut í Kópavogi í gær en þar var
staðsett ómerkt lögreglubifreið
sem er búin myndavélabúnaði.
Á einni klukkustund fyrir
hádegi fóru 205 ökutæki þessa
akstursleið og því óku 36 pró-
sent ökumanna of hratt eða yfir
afskiptahraða.
Þá voru 66 ökumenn staðnir
að hraðakstri á Hringbraut í
Hafnarfirði á þriðjudag. Á einni
klukkustund eftir hádegi fóru
127 ökutæki þessa akstursleið og
því óku 52 prósent ökumanna of
hratt.
- kg
Hraðamælingar lögreglu:
Hraðakstur á
Kársnesbraut
DÓMSMÁL Annþór Kristján Karls-
son hefur verið dæmdur í fjög-
urra ára fang-
elsi fyrir að
skipuleggja
smygl á hálfu
fimmta kílói
af amfetamíni
og hálfu kílói
af kókaíni til
landsins. Hæsti-
réttur hefur
staðfest dóm
héraðsdóms
þess efnis.
Efnin komu til landsins í hrað-
sendingu frá Þýskalandi. Vit-
orðsmaður Annþórs, Tómas
Kristjánsson, starfaði hjá hrað-
sendingarfyrirtækinu. Hann
hlaut tveggja og hálfs árs fang-
elsisdóm. Tveir bræður hlutu
eins og hálfs árs fangelsisdóm
fyrir aðild sína að málinu í héraði
en áfrýjuðu ekki. - sh
Hæstiréttur staðfestir dóm:
Annþór í fang-
elsi í fjögur ár
ANNÞÓR KRISTJÁN
KARLSSON
GENGIÐ 02.04.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
193,5032
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
118,52 119,08
174,22 175,06
158,33 159,21
21,252 21,376
17,964 18,07
14,626 14,712
1,187 1,194
177,32 178,38
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR