Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 2
2 3. apríl 2009 FÖSTUDAGUR MENNTUN Til greina kemur að höfuð stöðvum alþjóðlegs flug- skóla verði fundinn staður á Keflavíkurflugvelli. Ef af verð- ur gætu orðið til á annað hundr- að störf fyrir tæknimenn, flug- virkja, flugmenn og fleiri. Það er hollenska fyrirtækið ECA sem kannar nú möguleika á uppbyggingu á Miðnesheiði, segir Hjálmar Árnason, fram- kvæmdastjóri samgönguskóla Keilis. Hann segir lítið um málið að segja á þessu s t i g i , e nd a Keflavíkur- flugvöllur aðeins einn af þeim stöðum sem forsvarsmenn flugskólans hafi skoðað. Málið er á algeru byrjunar- stigi, segir Hjálmar. Til standi að stofna flugskóla fyrir lengra komna nemendur, og kenna á ýmsar tegundir loftfara, allt frá flugdrekum að þyrlum og þotum. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins ætla forsvarsmenn ECA að taka ákvörðun um staðsetn- ingu á næstu vikum. Meðal staða sem keppa við Keflavíkurflugvöll um hylli félagsins er Goose Bay á austurströnd Kanada. Keilir vinnur þessa dagana að uppbyggingu alþjóðlegs flugskóla á Miðnesheiði. Hjálmar segir skól- ann stefna að því að laða erlenda nemendur að náminu. Verði af stofnun skóla ECA á Keflavíkur- flugvelli verði það í samstarfi við Keili, og gæti mögulega flýtt fyrir þeirri útrás. ECA hefur á undanförnum árum rekið alþjóðlega þyrlu- leigu, og leigir meðal annars Atl- antshafsbandalaginu fjölmargar þyrlur sem notaðar eru í Afgan- istan. Þá hefur fyrirtækið tekið að sér þjálfun herflugmanna ýmissa þjóðríkja. Stefnt er að því að halda þeirri starfsemi áfram, en slík þjálfun mun, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, fara fram í þeim löndum sem kaupa munu þjónustuna. Verði af uppbyggingu flugskóla fyrirtækisins á Keflavíkurflug- velli yrði flugmönnum kennt á fjölmargar tegundir flugvéla og þyrla. Þá er stefnt að því að fyrir- tækið leigi erlendum flugherjum ýmiss konar æfingabúnað, sem notaður yrði í þeim löndum sem leigja búnaðinn. Ef af verður mun viðhald á fjölmörgum flugvél- um félagsins að líkindum færast hingað til lands. Mikil leynd hvílir yfir áhuga ECA, og segja heimildarmenn Fréttablaðsins gríðarlega hags- muni í húfi fyrir það land sem verði fyrir valinu fyrir uppbygg- ingu flugskólans. Málið hefur verið kynnt fyrir Össuri Skarphéðinssyni, utanríkis- og iðnaðarráðherra, en er ekki á hans borði, segir Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður ráðherra. brjann@frettabladid.is Vilja nýjan flugskóla á Keflavíkurflugvöll Til greina kemur að höfuðstöðvar háþróaðs flugskóla verði á Keflavíkurflug- velli. Hollenskt fyrirtæki undirbýr stofnun og yrði kennt á allt frá flugdrekum upp í orrustuþotur. Á annað hundrað starfa gæti skapast á Suðurnesjum. FLUG Forsvarsmenn hollenska fyrirtækisins ECA líta meðal annars til þess að góð aðstaða er á Miðnesheiði, bæði íbúðarhúsnæði og stærðarinnar flugskýli. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA íslenskur ríkisborgari www.okkarsjodir.is Við þökkum fyrir hreinsanirnar í Fjármálaeftirlitinu og Seðlabankanum en verkinu er ekki lokið. Það þarf að taka til í lífeyrissjóðunum. Við viljum endurskoðun á lífeyrissjóðakerfinu strax. Yfir 18.000 manns hafa þegar skrifað undir, stefnum á 25.000. Lífeyrissjóðirnir eru okkar eign! Jóhanna! Nú er valdið í þínum höndum! EFNAHAGSMÁL Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra var bjart- sýnn fyrir hönd þjóðarinnar á fundi viðskiptanefndar í gær og sagði útlit fyrir að hún myndi rísa fyrr en aðrar þjóðir upp úr kreppunni. „Nú er ég farinn að heyra í erlendum blaðamönnum sem horfa öfundaraugum til Íslands; það gerðist náttúrlega ekki áður,“ sagði hann. „Þá eru þeir einfaldlega að benda á það að við erum byrjaðir að taka á okkar málum þó að við séum ekki nándar nærri búnir að leysa öll okkar vandamál.“ Sagði hann að víðast hvar væru ríki ekki komin jafn langt í þessari vegferð og minnti jafnframt á auðlindir þjóðarinnar. Það væri því ýmis- legt sem benti til þess að Ísland risi á lappirnar fyrr en aðrar þjóðir. - jse Viðskiptaráðherra: Íslendingar fyrstir á lappir DÓMSTÓLAR Maður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið. Sakarefnin voru umferðarlaga- og fíkniefnabrot. Maðurinn var á síðasta ári stöðvaður undir stýri og reynd- ist undir áhrifum fíkniefna, auk þess sem rúm 180 grömm af maríjúana fundust hjá honum. Við húsleit á heimili hans fundust rúm níu grömm af efninu til við- bótar. Hann afplánar eldri dóm. Maðurinn hefur áður hlotið ell- efu refsidóma fyrir ýmiss konar brot. Auk fíkniefnanna sætti hann upptöku á rafbyssu sem fannst í fórum hans. - jss Skilorðsbundinn dómur: Með maríjúana og rafbyssu VIÐSKIPTI Viðræður hafa staðið yfir síðan fyrir áramót um leiðir til að vinda ofan af krónustöðum erlendra aðila í Seðlabankanum. Ein þeirra leiða sem mögulegt er að verði farnar á næstu vikum er sú að eigendur um fimmtungs krónubréfa leysi þau út og kaupi skulda- og hlutabréf íslenskra fyrirtækja með sterka alþjóðlega tengingu. Fyrirtæki sem nefnd hafa verið eru Landsvirkjun, Norðurál, Marel Food Systems og Össur. Stefnt er að því að skuldabréfin verði greidd til baka eftir allt að fimm ár í erlendum gjaldeyri en vonir standa til að þá heyri gjald- eyrishöftin sögunni til. - jab / sjá síðu 22 Fjárfest fyrir tugi milljarða: Erlendir aðilar verji krónum innanlands 1,8 milljónir fyrir vegstæði Eigendum jarðanna Móbergs og Ásgrímsstaða á Fljótsdalshéraði hafa verið úrskurðaðar samtals ríflega 1,8 milljónir króna í bætur vegna lands sem fer undir endurbyggingu Borgarfjarðarvegar frá Lagarfossi að Sandi í Hjaltastaðaþinghá. Að auki á Vegagerðin að greiða þeim 1,5 millj- ónir króna í málskostnað og ríkinu eina milljón. EIGNARNÁM Fá sama rétt Sænska þingið hefur samþykkt lög um hjónavígslur samkynhneigðra með miklum meirihluta atkvæða. Lögin gefa samkynhneigðum sama rétt og gagnkynhneigðum hvað hjónavígslu varðar. Lögin taka gildi um næstu mánaðamót. Sænska kirkj- an tekur afstöðu til laganna í haust. Fram að því geta samkynhneigðir aðeins fengið borgaralega vígslu. SVÍÞJÓÐ STJÓRNMÁL Hart var tekist á um breytingar á stjórnar- skránni við aðra umræðu málsins á Alþingi í gær. Óánægja sjálfstæðismanna með frumvarp hinna stjórnmálaflokkanna fjögurra er megn. Hófu for- maður og varaformaður flokksins gærdaginn á að útskýra viðhorf sitt á fundi með blaðamönnum. Sögð- ust þau geta fallist á eina grein frumvarpsins; þá er fjallar um hvernig breyta á stjórnarskránni. Annað vildu þingmenn flokksins ekki sjá að svo stöddu enda tíminn knappur fram að kosningum og vert að nýta hann til umræðna um brýnni viðfangsefni stjórn- málanna. Engu að síður lýstu þau Bjarni Benediktsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir flokk sinn viljugan til að breyta stjórnarskránni. En það þyrfti að bíða betri tíma. Í frumvarpinu, sem allt bendir til að verði sam- þykkt gegn vilja sjálfstæðismanna, er gert ráð fyrir að stjórnlagaþing starfi frá miðju næsta ári og setji lýðveldinu nýja stjórnarskrá. Þorgerður Katrín sagði af og frá að hægt væri að fallast á slíkt; ekki kæmi til greina að Alþingi afsalaði sér valdinu til stjórnarskrárgjafar. Á hinn bóginn gæti hún hugsað sér að einhvers konar stjórn- lagaþing yrði Alþingi ráðgefandi við endurskoðun stjórnar skrárinnar. Þá sagði hún óráð að kveða á um þjóðaratkvæða- greiðslu í stjórnarskránni, rétt væri hins vegar að fjalla um slíka atkvæðagreiðslu í almennum lögum. - bþs Sjálfstæðismenn geta hugsað sér eina breytingu á stjórnarskránni að svo stöddu: Fallast ekki á valdaafsal Alþingis ÞORGERÐUR OG BJARNI Þau segja flokk sinn viljugan að breyta stjórnarskránni. Það bíði betri tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Bergþóra, er þetta spurning um fjarnám eða fjárnám? „Í versta falli gæti þetta endað með líffæranámi.“ Háskólastúdentar sjá fram á stórfellt atvinnuleysi yfir sumarmánuðina og vilja að boðið verði upp á sumarannir við Háskóla Íslands. Bergþóra Snæbjörns- dóttir situr í stjórn Stúdentaráðs Háskóla Íslands. DÓMSTÓLAR Þrír karlmenn hafa verið dæmdir fyrir tilraun til að smygla inn í landið rúmu kílói af maríjúana í niðursuðudósum. Fíkniefnin voru í pakka sem sendur var frá Póllandi á nafn- greindan einstakling í Kópavogi. Í sendingunni, sem tollgæsl- an hafði stöðvað við hefðbundið eftir lit, voru sex niðursuðudósir sem virtust innihalda kjötbúðing og niðursoðna ávexti; fjögur stór súkkulaðistykki, tveir kaffi- pakkar, sjö túnfiskdósir og þrjár kökur. Við rannsókn lögreglu á dósunum fundust fíkniefnin í þeim. Sá sem þyngsta dóminn fékk á að sitja inni í fimm mánuði. Annar mannanna á sæta fang- elsi í fjóra mánuði. Sá þriðji var dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af fjóra á skilorði. - jss Þrír karlmenn dæmdir: Földu fíkiefnin í niðursuðudós ÞJÓÐKIRKJAN Sóknarnefnd Sel- fosskirkju hefur ritað biskupi Íslands bréf og óskað eftir því að séra Gunnar Björnsson snúi ekki aftur til starfa við kirkjuna. Hæstiréttur sýknaði séra Gunnar nýverið af ákæru um kynferðis- lega áreitni gegn sóknarbörnum sínum og hefur biskup tjáð honum að hann geti hafið störf að nýju 1. maí. Eysteinn Ó. Jónasson, formaður nefndarinnar segir að bréfið hafi raunar verið ritað og sent biskupi í desember síðastliðnum eftir að sýknudómur féll í héraði. Það hafi verið merkt trúnaðarmál og beðið um að það yrði ekki opnað nema ef Hæstiréttur sýknaði Gunnar einnig. Séra Gunnar játaði því við meðferð málsins að hafa strokið stúlkunum og kysst þær í leit að andlegum styrk. Dómurinn komst að því að hann hefði þó ekki brot- ið lög. „Okkur fannst þetta samt feikinóg til þess að það væri ekki æskilegt að hann væri að koma þarna aftur í hóp barnanna,“ segir Eysteinn. Málinu hafi lykt- að þannig að orð stæði á móti orði og þá yrði að leyfa börnunum að njóta vafans. Biskup hefur ekki svarað bréfi sóknarnefndarinnar. Verði ekki fallist á beiðni nefndarinnar á Eysteinn von á því að málinu verði skotið til úrskurðarnefnd- ar Þjóðkirkjunnar. - sh Sóknarnefnd Selfosskirkju skrifar biskupi vegna máls Gunnars Björnssonar: Vilja séra Gunnar ekki aftur VILL BÆTUR Séra Gunnar vill skaða- og miskabætur fyrir að hafa verið settur í tímabundið leyfi á meðan mál hans var til meðferðar hjá yfirvöldum. HJÁLMAR ÁRNASON SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.