Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 30
2 föstudagur 3. apríl
núna
✽ stjörnufans
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Anton Brink
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
helgin
MÍN
Ég á átta vikur eftir,” segir Ragn-heiður Guðfinna Guðnadóttir
sem á von á sínu öðru barni hinn
27. maí. „Meðgangan fer alveg
meiriháttar í mig og betur en
sú fyrri. Nú er ég þroskaðri, veit
meira hvað ég er að gera og er
meðvitaðri um hreyfingu og heil-
bigði,“ segir Ragnheiður en vill
ekki gefa upp kynið. Ragnheiður
er á fyrsta ári í sálfræði í Háskóla
Íslands og segir óléttuna fara vel
með náminu. „Þetta gengur vel,
það er bara eins og ég fái meðbyr
úr maganum. Tekur þetta á en er
samt bara gaman.“
Þrátt fyrir að vera ófrísk hefur
Ragnheiður ekkert slakað á í rækt-
inni og tekur vel á því í World
Class á hverjum degi. „Mér líður
svo vel þarna og Dísa og Bjössi
halda örugglega að ég muni bara
fæða þarna inni. Það skiptir bara
svo miklu máli að stunda hreyf-
ingu og heilbrigðan lífsstíl. Það er
ekki eins og maður sé með sjúk-
dóm og þurfi að hætta hreyfa sig
og borða óhollan mat. Mér líður
hvergi betur en eftir að hafa hreyft
mig með skemmtilegu fólki og sla-
kað á í gufunni á eftir. Það full-
komnar daginn.” - iáh
DRUNGALEG Mörgum brá í brún
þegar ofurfyrirsætan Agyness Deyn
mætti á frumsýningu Valentino-
myndarinnar The Last Emperor í
New York á dögunum. Deyn klædd-
ist svörtum skósíðum kjól með hettu
og síðri silfurkeðju um hálsinn og
þótti heldur drungaleg til fara.
H ún kemur þrisvar til fjórum sinnum í viku til að tékka
á hvort allt sé í lagi og fær sér
stundum að borða,“ segir Hildur
Eik Ævarsdóttir spurð um Evu
Longoria, en Hildur Eik vinnur
á stað í eigu leikkonunnar í
Los Angeles sem heitir Beso.
„Þetta er eiginlega spænskur
veitingastaður, en á efri hæð-
inni er svona „lounge“ sem
heitir Kiss. Það koma marg-
ar stjörnur á þennan stað,
en Eva Longoria er nátt-
úrlega andlit staðarins og
margir sem koma bara til að
sjá hana. Hún er alltaf vel til
höfð, virðist vera mjög almenni-
leg og kemur oft með Victoriu og
David Beckham með sér,“ útskýr-
ir Hildur, sem vinnur einnig fyrir
fyrirtækið SBE sem á mikið af
klúbbum, veitingastöðum og
hótelum í LA.
„Ég vann á „lounge“-stað
sem heitir S Bar og var hannað-
ur af Philippe Starck, en honum
var nýlega lokað. Á þennan stað
kom fólk mikið til að sjá hönnun-
ina og prófa kokkteilana sem eru
hvergi annars staðar til í heim-
inum, enda sat ég á skólabekk í
margar vikur til að læra þetta allt.
Núna vinn ég aðallega á Foxtail
sem var valinn einn af hundrað
bestu klúbbum heims. Ég vinn
mest á barnum, en sé líka um að
koma stórum viðskiptavinum úr
skemmtanabransanum á staðina
þar sem þeir eyða jafnvel 1.500
dollurum í eina kampavínsflösku.
Meðal fastagesta þar eru Adam
Sandler, Ashton Kutcher, Paris
Hilton, Britney og Kanye West,“
bætir hún við.
Hildur Eik er ekki aðeins um-
kringd stórstjörnum í vinnunni
því þar sem hún stundar líkams-
rækt æfa meðal annars Ryan Gosl-
ing, Taye Diggs, Jodie Foster
og Jack Black. Sjálf hefur
hún leikið og setið fyrir í
myndatökum síðan hún
flutti til LA árið 2006, nú
síðast með rapparanum
Ludacris og rokkaranum
Tommy Lee. Aðspurð
segist hún ekki stefna
á að flytja aftur til Ís-
lands í bráð. „Ég sakna
alltaf Íslands en hér á
ég heima. Það er ekk-
ert yndislegra en að vakna við
sólskinið á hverjum degi og
fara út í göngutúr með Tedda
hundinn minn. LA er
ekki bara skemmti-
leg borg, heldur
hefur hún upp
á svo margt að
bjóða. Maður
getur farið í
f j a l l g ö n g u r, á
ströndina, keyrt í
klukkutíma og farið á
skíði eða skellt sér til
Vegas.“ - ag
Hildur Eik Ævarsdóttir er umvafin stórstjörnum í Los Angeles:
VINNUR Á SKEMMTI-
STAÐ EVU LONGORIA
Ánægð í LA Hildur Eik er ánægð með lífið í Los Angeles en hún vinnur á
hinum vinsæla stað Beso, sem margar stjórstjörnur í Hollywood sækja.
UNNUR ELÍSABET GUNNARSDÓTTIR DANSARI
„Ég vona að mér verði boðið í pitsu á föstudagskvöldið og á laugardags-
kvöldið fer ég á Húmanímal í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Á sunnudagskvöldið
er mér svo boðið í mat til bróður míns og mágkonu. Annars ætla ég að nýta
hverja stund með fjölskyldunni og yndislegu dóttur minni.”
Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir:
Kynið er leyndó
Eva Longoria
Ófrísk Ragnheiður Guðfinna á von á sínu
öðru barni 27. maí.
Eivör aftur til Íslands
Færeyska söngkonan Eivör Páls-
dóttir er komin til landsins og held-
ur tónleika á Nasa í kvöld klukkan
22. Langt er síðan söngkonan
hefur haldið sólótónleika, en á
næstu dögum mun hún í fyrsta
sinn ferðast um landið með eigin
hljómsveit. Eivör mun taka vel valin
lög af sínum fyrri plötum auk þess
sem hún mun gefa tónleikagestum
forsmekkinn að væntanlegri plötu
sinni sem kemur út í október.
Rauðu konurnar
„Þessi hópur er opinn öllum konum
24 ára og eldri og snýst um að
skemmta sér, en láta gott
af sér leiða um leið,“ segir
Tobba Marinósdóttir fjöl-
miðlafræðingur sem er einn
af stofnendum hópsins Rauðu
konurnar. „Startpartíið okkar er á
föstudaginn kl. 8.30 á Pósthúsinu-
Vínbar og er flott dagskrá í boði
og frítt inn. Tilgangurinn er að
kynna okkur og skemmta íslensk-
um konum frítt,“ bætir hún við, en
hópurinn mun svo standa fyrir alls
konar atburðum í framtíðinni svo
sem fyrirlestrum, „singles-nights“,
þemapartíum og mörkuðum.
þetta
HELST