Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 18
18 3. apríl 2009 FÖSTUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ Golfáhugi Íslendinga hefur aukist gríðarlega síðustu ár. Forsvarsmenn Golfsam- bands Íslands gerðu þó ráð fyrir að iðkendum myndi fækka um tíu prósent í ár en annað virðist ætla að koma á daginn. „Við hjá Golfsambandinu gerðum ráð fyrir tíu prósent færri iðkend- um í sumar út af efnahagsástand- inu. Töldum það óhjákvæmilegt, jafnvel þótt kostnaðurinn við golfið sé álíka mikill og við aðra líkamsrækt. En það virðist vera mikil stemning fyrir golfinu. Við heyrum jafnvel frá stærstu klúbb- unum á höfuðborgar svæðinu að það verði mjög svipuð þátttaka í sumar og síðustu ár. Og það er að okkur skilst fín þátttaka í nágranna- sveitarfélögunum,“ segir Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands (GSÍ). Tíu prósent í golfi Hörður segir að tölur um fjölda klúbbmeðlima muni ekki liggja fyrir fyrr en síðar í mánuðin- um. „En okkar tilfinning er sú að það verði ekki fækkun í klúbbun- um. Það mun kannski ekki fjölga í þeim en það verður heldur ekki fækkun,“ segir Hörður. „Vonandi ná klúbbarnir líka að hvetja fólk til að halda áfram þótt fjárhagsstaða þess sé erfiðari. Ég er sannfærð- ur um að klúbbarnir munu reyna að koma til móts við sína félaga eins og þeir mögulega geta. Það er mikil vægt fyrir þá að halda fólki inni yfir þennan erfiða hjalla,“ segir Hörður. Á síðasta ári voru skráðir golf- iðkendur hér á landi, það er þeir sem voru skráðir í klúbb, rúmlega fimmtán þúsund talsins. Í könn- un sem Capacent gerði kom hins vegar fram að í kringum 35 þús- und Íslendingar höfðu spilað golf fimm sinnum eða oftar það ár. Það jafngildir því að um tíu prósent þjóðarinnar hafi leikið golf. Færri styrktaraðilar Hörður segir núverandi efnahags- ástand koma niður á GSÍ eins og öðru. „Við höfum misst styrktar- aðila okkar og tekjur. Það er mun erfiðara að fá samstarfsaðila nú en áður. Landsbankinn hafði ekki bol- magn ti l að styðja við Knatt- spyrnusamband- ið og við fengum sömu skilaboð frá Kaupþingi – að bankinn gæti ekki verið stuðn- ingsaðili okkar í ár. Hann hefur verið aðalstuðningsaðili Golfsam- bandsins í sjö eða átta ár og við höfum átt mjög farsælt samstarf,“ segir Hörður. „Nú verðum við að draga úr útgjöldum, fækka keppnis- ferðum og svo framvegis. En við munum ekki fækka mótum frá því sem verið hefur, heldur þvert á móti reyna að fjölga þeim.“ 75 ára afmæli GR Hörður segir að ekkert verði til sparað þegar kemur að Íslands- mótinu í höggleik sem í ár fer fram á Grafarholtsvelli í tilefni af 75 ára afmæli Golfklúbbs Reykja- víkur. „Við gerum ráð fyrir að fá fleiri áhorfendur á golfmótin í ár og munum reyna að gera allt til að hvetja menn til að koma og fylgjast með. Nú virðist vera mikil ásókn á flesta íþróttaviðburði.“ Aukinn áhugi útlendinga GSÍ er aðili að verkefninu Golf Ice- land, ásamt fyrirtækjum í ferðaþjón- ustu. Ætlunin með því er að auglýsa og efla kynningu erlendis á golfi hér á landi. „Nú er Ísland inni hvað það varðar og við erum að sjá töluverð- an árangur af því. Við teljum að það sé svigrúm til að taka á móti aðil- um í ferðaþjónustu. Ferðamenn sem koma hingað til lands vilja kannski spila golf fyrir hádegi, á þeim tíma sem Íslendingar fara síður að spila, og gera eitthvað annað eftir hádegi. Svo erum við líka að reyna að selja ferðamönnum þá hugmynd að spila miðnæturgolf,“ segir Hörður. „Við gerum ráð fyrir að það verði tölu- verð aukning ferðamanna á þessu ári og heyrum það á ferðaskrifstof- unum að það er talsvert bókað af golfferðum.“ kristjan@frettabladid.is Engin fækkun í golfinu HÖRÐUR ÞORSTEINSSON „Þetta hefur verið frekar kaldur og harður vetur en það hefur engu að síður verið mjög mikið að gera í Básum. Aðsóknin hefur verið meiri nú en síðustu ár og við finnum sér- staklega fyrir aukningu á milli níu og fjögur á daginn,“ segir Ólafur Már Sigurðsson golfkennari og einn eigenda golfskólans Pro Golf sem einnig rekur æfingasvæðið Bása í Grafarholti. Ólafur Már segir að mikil aukn- ing hafi einnig orðið í golfkennslu hjá Pro Golf og þá sérstaklega í hópakennslu. Ólafur Már býst við mikilli umferð á golfvöllum höfuðborgar- svæðisins í sumar, jafnvel meiri en undanfarin ár. „Ef við skoð- um Golfklúbb Reykjavíkur sem dæmi hafa einhverjir þegar hætt í klúbbnum. Eitthvað af því fólki er í öðrum klúbb- um og sumir spiluðu kannski bara örfáa hringi á ári. Á móti kemur að það hefur verið langur bið- listi í klúbbinn og nýtt fólk verið tekið inn. Það fólk vill jafnvel spila meira en það sem var að hætta og því býst ég við að umferðin um vell- ina eigi eftir að aukast til muna,“ segir Ólafur Már og bætir við: „Svo er alltaf tölu- verð nýliðun í golfinu og byrj- endanámskeiðin hjá okkur eru til dæmis alltaf full. Það fólk skilar sér síðan út á vellina. Ætli við megum ekki segja að árið í ár verði golf- árið mikla.” Golfárið mikla runnið upp GSÍ mun í ár standa fyrir liðakeppni, hliðstæðri Ryder-bikarkeppninni kunnu, þar sem golfklúbbar í Reykja vík munu etja kappi við lands- byggðina. Þeir kylfingar sem fá flest stig í mótaröðinni munu vinna sér inn sæti í liðunum. Hugmyndin er enn í vinnslu en gera má ráð fyrir að einhverjir klúbbar á höfuðborgar- svæðinu muni leika fyrir hönd lands- byggðarinnar. Íslenska liðakeppnin verður lokahnykkur golfsumarsins. ÍSLENSKUR RYDERÁTTATÍU DÓMARAR Svo virðist sem golfáhuginn sé alltaf að aukast á Íslandi. GSÍ hefur staðið fyrir dómaranámskeiðum undan- farin ár sem tíu til fimmtán manns hafa sótt. Í ár er þegar búið að halda tvö námskeið og hafa um 140-150 manns sótt þau. Að sögn Harðar Þorsteinssonar, framkvæmdastjóra GSÍ, munu áttatíu manns þreyta dómaraprófin. Hinir sem sitja námskeiðin vilja hins vegar afla sér frekari þekkingar á golfíþróttinni. ÓLAFUR MÁR SIGURÐSSON Hann segir fjöldann allan af fólki hafa komið í Bása í vetur þótt kalt hafi verið í veðri. Böðullinn og skækjan? „Til að hafa Atla Gíslason, þingmann Vinstri grænna, góðan var frumvarpi hans um vændi böðlað athugunar- laust úr allsherjarnefnd þingsins …“ BJÖRN BJARNASON ALÞINGIS- MAÐUR bjorn.is 1. apríl Háseta vantar á bát „Nokkur sæti eru enn laus á framboðslistum XP, persónu- kjöri Lýðræðishreyfingarinnar í kjördæmum landsins.“ ÁSTÞÓR MAGNÚSSON, TALSMAÐUR LÝÐRÆÐISHREYFINGARINNAR lydveldi.blog.is 1. apríl GRÍÐARLEGUR ÁHUGI Vinsældir golfsins hafa aukist með hverju árinu sem líður. Fjöldi fólks leggur leið sína í Bása til að æfa sveifluna fyrir sumarið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ■ Hofsós er einn elsti verslunar- staður landsins. Þar búa um 200 manns. „Á Plássinu (sem svo er kallað) við höfnina er að finna fjölda eldri húsa, sem hafa verið gerð upp á undanförnum árum og setja skemmtilegan svip á þorpið. Þar stendur Pakkhúsið, gamalt bjálkahús frá einokunartímanum, og er það eitt elsta timburhús landsins, reist 1777. Húsið er friðlýst og í eigu Þjóðminjasafns Íslands og hefur það verið endurgert og er nú sem næst sinni upprunalegu mynd. Gamla kaupfélagsbyggingin hefur fengið nýtt hlutverk, en hún hýsir nú svokallað Vesturfarasafn, sem tileinkað er vesturförum og vesturferðum sem voru í hámarki um síðustu aldamót,“ segir meðal annars um Hofsós á kynningarvef Norðurlands vestra. HOFSÓS Kr. 21.995* Nýja S2120 ryksugan frá Miele er lágvær, létt, kraftmikil og með stórum poka. Hún fæst í rauðu og bláu. Parketbursti að andvirði kr. 8.650 fylgir frítt með. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur Sparaðu með Miele TILBOÐ *tilboð gildir á meðan birgðir endast. Þú sparar kr. 8.650 „Ég var að koma úr píanótíma sem fjögurra ára, hálf-kúbversk dóttir mín var í,“ segir Hrafn. „Og það er afar skemmtilegt að sjá hvernig þessi blanda af íslenskri seiglu og kúbverskum rytma tekur á sig form í tónheimum. Það er hún Hanna Valdís Guðmundsdóttir sem er að kenna henni og það fer bara vel á því að ein af okkar bestu barnastjörnum kenni þessum fjögurra ára ofurhuga sem syngur með kennara sínum lögin úr Kardemommubænum.“ Hanna Valdís söng á barnsaldri inn á hljómplötu við miklar vinsældir árið 1972. Hún lék einnig Kamillu í leikritinu Karde- mommubærinn á sínum tíma. „En svo er ég að reyna að koma því í kring að myndin mín Opinberun Hannesar verði fáanleg á DVD-disk,“ segir Hrafn, sem er kominn á flug. „Ég er afar stoltur af þessu verki mínu og tel að fólk muni sjá það í öðru ljósi þegar það er komið á DVD. Svo er ég að velta því fyrir mér hvernig ég geti fundið farveg fyrir þá skoðun mína að Ísland gangi úr Schengen. Þegar við gengum í Schengen voru landamæri Íslands komin til Austur-Evrópu, við þurfum ekkert að láta þá sjá um okkar landamæravarnir, við eigum að gera það sjálf á Íslandi. Við eigum að taka upp okkar eigin utanríkisstefnu og Ísland á í framtíðinni að verða griðland fyrir dularfulla menn eins og Vladimír Ashkenazy og Bobby Fischer.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? HRAFN GUNNLAUGSSON KVIKMYNDALEIKSTJÓRI Íslensk seigla og kúbanskur rytmi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.