Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 10
10 3. apríl 2009 FÖSTUDAGUR
STJÓRNSÝSLA Þrátt fyrir að fyrir-
sjáanleg sé fjölgun fjárnáms-
beiðna og annarra verkefna hjá
sýslumönnum var fjármagn til
þeirra skorið niður í fjárlögum
ársins.
„Fjárheimildir voru lækkaðar
hér eins og annars staðar þegar
fjárlögin voru ákveðin,“ svarar
Sigríður Eysteinsdóttir, deildar-
stjóri hjá fullnustudeild Sýslu-
mannsins í Reykjavík, spurð hvort
embættið hafi fengið meira fjár-
magn eða fleira starfsfólk.
Eins og fram kom í Fréttablað-
inu í gær gætu tafir hjá dómstól-
um og sýslumönnum nýst þeim
sem hyggjast skjóta eignum undan
kröfuhöfum með því að færa þær
yfir á maka sína eða aðra. Slíkir
gjörningar eru að hámarki riftan-
legir í tvö ár. Fjölgun verkefna hjá
sýslumönnum flýtir að sjálfsögðu
ekki fyrir úrvinnslu slíkra mála.
Varðandi nýliðinn marsmánuð
segir Sigríður að uppboðum hafi
fjölgað en kveðst enn ekki hafa
tekið saman yfirlit um önnur
verk. Hún segir að þrátt fyrir
minna fjármagn og aukin verkefni
anni starfsfólk Sýslumannsins í
Reykjavík því sem gera þurfi. „Ég
held að enn sem komið er sé það
ekki farið að hafa áhrif að neinu
leyti. Við höfum ráðið við allt sem
við fáum inn.“ - gar
Þrátt fyrir aukinn málafjölda voru fjárveitingar til sýslumanna skornar niður:
Verkefnin sliga ekki sýslumann enn
SÝSLUMAÐURINN Í REYKJAVÍK Fjármála-
kreppan þvingar sífellt fleiri í þrot og
uppboðum fjölgar svo embættið hefur í
nógu að snúast. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs-
aldri, Gytis Kepalas, hefur verið
dæmdur í tveggja ára fangelsi
fyrir líkamsárás og rán.
Honum var einnig gert að
greiða fórnarlambi sínu 764 þús-
und krónur í miskabætur.
Kepalas réðst að karlmanni
á sjötugsaldri í húsasundi við
Laugaveg í október, sló hann
nokkrum sinnum í andlitið og
tók af honum seðlaveski, sem í
voru 100 þúsund krónur svo og
farsíma. Árásarmaðurinn var
í félagi við óþekktan mann við
athæfið.
Fórnarlambið hlaut brot í
augntóftargólfi, tvo skurði á
kinn, mar á augnvefi og áverka á
brjóstkassa. - jss
Maður á þrítugsaldri:
Tveggja ára
dóm fyrir árás á
sjötugan mann VIÐSKIPTI MP Banki hefur ekki enn fengið svar frá Fjármála-
eftirlitinu
(FME) um það
hvort samþykki
fáist fyrir
kaupum bank-
ans á útibúa-
neti SPRON og
Netbankanum.
Samkeppnis-
eftirlitið hefur
þegar veitt
undanþágu frá
samkeppnislögum svo hægt sé að
opna útibú SPRON.
Styrmir Þór Bragason, for-
stjóri MP Banka, segir að dragist
svar FME lengur muni það lík-
lega tefja opnun útibúa SPRON.
Til stóð að höfuðstöðvar bankans
og tvö útibú yrðu opnuð næst-
komandi mánudag. - bj
MP Banki bíður svars frá FME:
Gæti seinkað
opnun SPRON
STYRMIR ÞÓR
BRAGASON
DÓMSTÓLAR Lögreglustjórinn á
Selfossi hefur ákært tvo menn
fyrir líkamsárásir.
Öðrum mannanna er gefið
að sök að hafa skallað mann á
Draugabarnum á Stokkseyri í
ágúst á síðasta ári. Fórnarlamb-
ið hlaut talsverða áverka í and-
liti.
Hinnum manninum er gefið
að sök að hafa í fyrra ráðist á
mann í Káragerði á Eyrarbakka
og sparkað í andlit hans. Sá
sem sparkað var í hlaut veru-
lega áverka, meðal annars brot
í augntóftarbotni. Hann gerir
kröfu um ríflega 728 þúsund
krónur í skaðabætur. - jss
Tveir menn ákærðir:
Skölluðu og
spörkuðu
MÁLIN SKEGGRÆDD Ísraelskur gyð-
ingur í landnemabyggð á Vesturbakka
Jórdanar ræðir eldfimt ástandið í
síma en sleppir þó ekki takinu af
vélbyssunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
4
10
4
0
0
0
|
l
an
d
sb
an
ki
nn
.is
152 / SELFOSS
Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is
Kúplingar
LONDON, AP Leiðtogar svokallaðra
G20-ríkja samþykktu á fundi
sínum í London í gær að verja
1.100 milljörðum dollara, eða um
130 þúsund milljörðum króna,
í aukin fjárframlög til Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins og Alþjóða-
bankans. Fjármununum er ætlað
að koma til aðstoðar þjóðum sem
eru í kröggum vegna efnahags-
ástandsins í heiminum.
Þá var ákveðið að ráðast í mikla
herferð gegn skattaparadísum um
heim allan. „Tími bankaleyndar
er liðinn,“ sagði Nicolas Sarkozy
Frakklandsforseti að fundinum
loknum. Þar var meðal annars
ákveðið að búa til svartan lista
yfir þau lönd sem skýla skattsvik-
urum og beita þau hörðum viður-
lögum sem neita að taka upp nýjar
alþjóðlegar reglur um gagnsæi á
fjármálamörkuðum.
Leiðtogarnir náðu einnig sam-
komulagi um að gera breytingar á
hlutverki fjármálaráðs sem þegar
situr. Það fær nú aukið eftirlits-
hlutverk og er gert að fylgjast
með þróun efnahagslífs í heimin-
um og gera viðvart um öll aðsteðj-
andi vandamál.
Sarkozy, ásamt öðrum leið-
togum Evrópuríkja, hafði talað
fyrir því að ráðið yrði enn valda-
meira og fengi að ráðskast með
regluverk aðildarríkja, þeirra á
meðal Bandaríkjanna. Sú hug-
mynd hlaut ekki nægan hljóm-
grunn.
Barack Obama Bandaríkjafor-
seti, sem á fundinum tekst á við
sitt fyrsta stóra verkefni í utan-
ríkis málum, fékk ekki heldur
stuðning annarra ríkja við það að
verja háum fjárhæðum í innspýt-
ingar í hagkerfi til atvinnusköpun-
ar eins og gert hefur verið í Banda-
ríkjunum og Bretlandi. Frakkar og
Þjóðverjar mótmæltu hugmynd-
inni harðlega, en fyrir lá að hún
nyti ekki víðtæks stuðnings utan
Bretlands og Bandaríkjanna.
Fundurinn þykir að öðru
leyti hafa heppnast afar vel.
„Við höfum stigið skref af áður
óþekktri stærðargráðu í átt til
endurreisnar og þess að fyrir-
byggja að svona nokkuð hendi á
ný,“ sagði Obama að fundinum
loknum. Angela Merkel, kansl-
ari Þýskalands, tók í sama streng
þegar hún kallaði niðurstöðuna
„mjög, mjög góða, nánast sögu-
lega málamiðlun“.
Áfram var mótmælt í London
í gær en mótmælin voru þó öllu
rólegri en á miðvikudag, þegar á
annað hundrað manns voru hand-
teknir. stigur@frettabladid.is
Tími skattaskjóla og
bankaleyndar liðinn
Leiðtogar stærstu efnahagsvelda veraldar hafa samþykkt að verja ríflega
þúsund milljörðum dala til hjálpar þjóðum í vanda vegna heimskreppunnar.
GAMAN Á G20 Barack Obama slær á létta strengi við kollega sína frá Ítalíu og
Rússlandi, Silvio Berlusconi og Dmitry Medvedev. Á myndinni má einnig sjá Recep
Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta, Saud al-Faisal, utanríkisráðherra Sádi-Arabíu, Abhisit
Vejjajiva, forsætisráðherra Taílands, Hu Jintao Kínaforseta, Gordon Brown, forsætis-
ráðherra Bretlands, og Meles Zenawi, forsætisráðherra Eþíópíu. NORDICPHOTOS/AFP
Við höfum stigið skref
af áður óþekktri stærðar-
gráðu í átt til endurreisnar og
þess að fyrirbyggja að svona
nokkuð hendi á ný.
BARACK OBAMA
BANDARÍKJAFORSETI