Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 72
40 3. apríl 2009 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is Guðbjörg Gunnarsdóttir og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir fengu algjöra draumabyrjun með Djurgården í fyrrakvöld þegar liðið sigraði Stattena, 7-0, í 1. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar. „Þetta er þvílíkt gott að byrja svona vel, sérstaklega þar sem þetta lið tapaði fyrsta leik í fyrra. Þetta var mikilvægur sigur fyrir sjálfstraustið. Þessi deild er þannig að þú getur unnið alla og líka tapað fyrir öllum. Þú verður bara að eiga góðan leik því það er ekkert lið sem getur ekki spilað fótbolta í þessari deild,” segir Guðbjörg. „Það var alveg eitthvað að gera hjá mér en ég geri ráð fyrir því að það verði meira að gera hjá mér í næstu leikjum,“ segir Guðbjörg og bætir við. „Það er gaman fyrir markmann að spila í þessari deild því þetta er eins og í ensku deildinni þegar það er alltaf mikið að gera hjá öllum markmönnum,“ segir Guðbjörg en hún og liðið ætlar sér að gera góða hluti á tímabilinu. „Okkur var spáð fimmta sætinu en það gæti verið af því að okkur gekk ekkert svakalega vel í æfingaleikj- unum fyrir mót. Við ætlum að sjálfsögðu að vera í toppbaráttunni,“ segir Guðbjörg. Guðbjörg og Guðrún Sóley eru þegar komnar með viðurnefni innan liðsins. „Við erum kallaðar GG- in innan liðsins því þjálfarinn skrifar alltaf skammstafanir leikmanna upp á töflu og upphafsstafir okkar eru eins,“ segir Guðbjörg í léttum tón. „Við erum loksins farnar að halda hreinu og Gunna hefur hjálpað mikið til við það. Ég held að við séum báðar að fara vera 90 mínútna manneskjur í sumar,“ segir Guðbjörg. „Þjálfarinn er að vísu búinn að hliðra aðeins til fyrir Gunnu því það er brjál- uð samkeppni í vörninni en ég hef fulla trú á því að hún sé búin að festa sig í sessi í vörninni,“ segir Guðbjörg sem kann vel við lífið í Svíþjóð „Sænskan er öll að koma og maður er farinn að babla eitthvað. Þær eru alltaf að kenna mér eitthvað og svo reyni ég að kenna Gunnu það,“ segir Guð- björg sem segist líka þurfa að komast inn í móralinn þarna. „Þeir eru ofurstundvísir. Ég hélt að ég væri alveg stundvís miðað við Íslendinga en ég er það ekki miðað við Svía,“ segir Guðbjörg létt að vanda. GUÐBJÖRG GUNNARSDÓTTIR: GG-IN BYRJA VEL MEÐ DJURGÅRDEN Í SÆNSKU KVENNADEILDINNI Ætla að vera 90 mínútna manneskja í sumar FÓTBOLTI „Okkur gekk vel án ykkar,“ voru skilaboð skosku dag- blaðanna til þeirra Barry Fergu- son og Allans McGregor. Þeir voru settir á bekkinn eftir að hafa brot- ið agareglur skoska landsliðsins aðfaranótt sunnudags þegar þeir sátu lengi við drykkju. Landsliðs- þjálfarinn George Burley hefur fyrirgefið þeim en greinilegt er að það hefur skoska þjóðin ekki gert. Þegar nöfn þeirra Fergusons og McGregors voru lesin upp af vallar þuli Hampden Park skömmu fyrir leik í gær var púað mikið á þá. Þeir svöruðu með því að mynda V-merki með fingrunum sínum og snúa lófanum að sér þegar ljós- myndarar tóku myndir af þeim er þeir settust á varamannabekk- inn. Það jafngildir því að sýna ein- hverjum upprétta löngutöng. „Up yours, Scotland,“ sagði The Scottish Sun í túlkun sinni á atvik- inu í gær. Blaðið gengur svo skref- inu lengra og gaf út sérstakt átta síðna aukablað aðeins um hlut Barry Ferguson. Dálkahöfundar í skosku press- unni eru langflestir sammála um að skaðinn liggi fyrst og fremst í ímynd skoska landsliðsins. Undan- farna mánuði og ár hefur hún hlot- ið æ meiri skaða enda var leikur- inn í fyrrakvöld fyrsti sigur skoska landsliðsins á Hampden Park undir stjórn George Burley og sá fyrsti síðan 2007. Hann er nú búinn að stýra lið- inu í ellefu leikjum og vinna tvo – báða gegn Íslandi. Hann tók ákvörðun um að reka tvímenning- ana úr landsliðshópnum en leyfði þeim svo að sitja á bekknum eftir að þeir báðust fyrirgefningar. „Málinu er lokið af minni hálfu. Við snúum okkur nú að öðru. Þeir fá nú hreinan skjöld og það mikil- vægasta er að halda leikmanna- hópnum saman. Við hlökkum til leiksins í Ósló,“ sagði Burley. Hann sagði einnig að Ferguson kæmi áfram til greina í landsliðið. „Það eru engin vandamál með Barry núna. Ég sé enga ástæðu fyrir því að hann geti ekki spilað með lands- liðinu í framtíðinni og gegnt einnig fyrirliðastöðunni.“ Þótt skoska pressan sé á þeirri skoðun að það hafi verið fyllilega rétt ákvörðun að taka þá Ferguson og McGregor úr byrjunarliðinu benda margir á að þetta atvik gefi til kynna að Burley hafi ekki tekist að viðhalda nægilega miklum aga í leikmannahópnum. Margir vilja meina að hann hefði aldrei átt að taka Ferguson og McGregor aftur inn í hópinn. Þessir tveir sigrar á Íslandi og markalaust jafntefli við Noreg á heimavelli hefur sett Skota í lykil- stöðu í riðlinum. Þeir voru duglegir að hampa markahetjunum sínum í gær, þeim Ross McCormack og Ste- ven Fletcher en báðir eru þeir ungir og lítt reyndir landsliðsmenn. Þeim Craig Gordon markverði og Alan Hutton, varnarmanni Tottenham, var einnig hælt á hvert reipi. Það jákvæða við hegð- un þeirra Ferguson og McGregor, segir í skosku dagblöðunum, er að þeir ungu og óreyndu leikmenn sem var falið það hlutverk að fylla í skarð landsliðsfyrirliðans stóð- ust fyllilega undir þeim vænting- um sem hægt var að gera til þeirra og rúmlega það. Drykkjufélagarnir í ónáð hjá Skotum Þó svo að Skotland hafi unnið 2-1 sigur á Íslandi í fyrrakvöld er umfjöllun um mál þeirra Barry Ferguson og Allans McGregor ekki minni en um sigurinn mikilvæga. Landsliðsþjálfari Skotlands, George Burley, er búinn að fyrirgefa leikmönnunum en slíkt hið sama verður ekki sagt um skosku þjóðina. Í ÓNÁÐ Ein skærasta knattspyrnustjarna Skota, Barry Ferguson (6), hefur heldur betur fallið í áliti hjá löndum sínum eftir að hann datt í það eftir leikinn gegn Hollandi um síðustu helgi. Var baulað á hann á Hampden á miðvikudag. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Götublaðið The Scottish Sun greindi frá því í gær að sjö leikmenn hefðu verið á fylleríi eftir leik Skotlands og Hollands á laug- ardaginn – ekki bara þeir Barry Ferguson og Allan McGregor. George Burley landsliðsþjálfari rak fyrst tvímenningana úr lands- liðshópnum fyrir að brjóta agaregl- ur en hætti við eftir að þeir báð- ust afsökunar. Samkvæmt frétt The Sun gerðist það fyrst eftir að fimm aðrir leikmenn viðurkenndu að þeir hefðu líka verið að drekka. Þeim fannst það ekki sanngjarnt að aðeins hinir tveir yrðu að taka á sig sökina. Hinir fimm voru Scott Brown, Alan Hutton, Steven Fletcher, Steven Whittaker og Gary Teale. Þeir þrír fyrstnefndu voru í byrjun- arliðinu og sá síðastnefndi kom inn á sem varamaður. Fletcher skoraði sigurmark Skota í leiknum. - esá Ekki bara Ferguson og McGregor í glasi: Sjö leikmenn á fylleríi ÞYRSTUR Scott Brown var meðal þeirra leikmanna skoska landsliðsins sem drekktu sorgum sínum í Hollandi. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Ross McCormack var maður leiksins að mati skosku fjölmiðlanna sem gáfu leikmönn- um skoska liðsins einkunnir fyrir frammistöðu sína gegn Íslandi í fyrrakvöld. Minnst sjö dagblöð gáfu leik- mönnum einkunnir. McCorm- ack fékk átta í einkunn hjá öllum þeirra. Þrjú þeirra gáfu Craig Gordon einnig átta, þrjú gerðu eins með Craig Gordon og Darren Fletcher fékk átta í einkunn hjá einu þeirra. Aðrir leikmenn fengu ekki jafn háa einkunn hjá skosku blaða- mönnunum, ekki heldur Fletcher sem skoraði sigurmark leiksins. - esá Skoskir fjölmiðlar um frammistöðu leikmanna: McCormack þótti bestur SKOTLAND-ÍSLAND EIRÍKUR STEFÁN ÁSGEIRSSON skrifar frá Glasgow eirikur@frettabladid.is Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is G ra fí ka 2 0 0 8 GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA TEPPI Á STIGAGANGINN FÓTBOLTI Fyrsti leikur sænska liðsins Linköping í sænsku deild- inni fór fram í gærkvöldi. Þá sótti Linköping lið Sunnana heim og vann góðan 3-0 sigur. Margrét Lára hóf leikinn á bekknum en spilaði síðustu 13 mínútur leiksins. Hún náði ekki að skora að þessu sinni. - hbg Sænski kvennaboltinn: Lið Margrétar Láru vann MARGRÉT LÁRA Lék fyrsta leik sinn í sænska boltanum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN > Embla samdi við Val Knattspyrnukonan Embla Sigríður Grétarsdóttir hefur ákveðið að söðla um og ganga í raðir Vals frá KR. Embla sagði í samtali við Vísi á dögunum að hún fengi ekki þá samkeppni á æfingum hjá KR sem hún leitaði eftir. Hún ætlaði sér stóra hluti á árinu og stefndi á landslið- ið í sumar. Þess vegna hefði hún ákveðið að fara í annað félag. Embla hefur leikið með KR í ellefu ár og spilað rúmlega 240 leiki fyrir félagið. Hún er fjórði leikjahæsti KR- ingurinn frá upphafi, að því er segir á heimasíðu félagsins. KÖRFUBOLTI Teitur Örlygsson framlengdi í gær samning sinn við Stjörnuna um tvö ár. Teitur náði frábærum árangri með Stjörnuna í vetur sem meðal ann- ars vann bikarkeppnina. „Hérna líður mér mjög vel. Það er svo gott fólk í kringum þetta lið að mér fannst ekki spurning um að halda áfram,“ sagði Teitur. „Það verður mikil áskorun að toppa þennan vetur. Við ætlum að reyna að mæta tilbúnir til leiks næsta haust og erum að horfa í kringum okkur eftir fleiri leik- mönnum.“ Stjarnan mun missa leikstjórn- andann Ólaf Sigurðsson í sumar en hann er að flytja út. Teitur segir alla leikmenn sem vilji taka þátt í gleðinni vera velkomna í Garðabæinn. „Staðan er þannig í þjóðfélag- inu að það eru ekki miklir pen- ingar til svo við eigum eftir að sjá hvernig þetta verður með leik- mannamálin,“ sagði Teitur, sem segist vera mikið betri þjálfari núna en þegar hann var að þjálfa Njarðvík. „Það var góð reynsla. Öll mín einbeiting er öðruvísi núna og allt skýrara.“ - bb Teitur áfram með Stjörnuna: Líður vel í Stjörnunni TEITUR ÖRLYGSSON Spenntur fyrir fram- haldinu í Garðabænum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.