Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 28
Tikka masala keila
Fyrir 4
1 kíló ný keila skorin í jafna bita
1 dós hrein jógúrt
1 msk. rifið ferskt engifer
1 msk. saxaður ferskur hvítlaukur
1 msk. saxað ferskt rautt chili
1/2 tsk. malað kóríander
1/2 tsk. malað cummin
salt og pipar
Allt hrært saman og hellt yfir
keiluna.
Látið liggja í 2-3 klst. og fiskbitarnir
eru síðan þræddir á grillspjót með
papriku og/eða rauðlauk.
Pönnusteikt í 5-10 mín.
Borið fram með hýðisgrjónum,
raita-agúrkusósu og naanbrauði.
Raita-agúrkusósa
1 dós hrein jógúrt
10 cm biti af agúrku
1 msk. ólífuolía
saxaður hvítlaukur á hnífsoddi
mynta á hnífsoddi
fáfnisgras (esdragon) á hnífsoddi
1 msk. sítrónusafi
salt og pipar.
Agúrkan er rifin á rifjárni og öllu
blandað saman.
UPPSKRIFT HAUKS
Veitingastaðurinn Saffran var
opnaður 15. mars síðastliðinn í
Glæsibæ í Álfheimum. Eigendur
staðarins eru þeir Haukur Víðis-
son matreiðslumaður og Jay
Jamchi. „Jay er hálfur Rússi
og hálfur Persi en hefur búið í
Bandaríkjunum þar sem hann
kynntist konu sinni sem er íslensk
og besta vinkona konu minnar,“
útskýrir Haukur. Hugmyndin um
veitingastaðinn vaknaði með þeim
Jay fyrir um ári.
Haukur lýsir staðnum sem
léttum og ferskum hvunndags-
stað. „Svo eru pínu indversk áhrif
enda notum við tandoori-pott.
Einnig bjóðum við upp á persnesk-
an mat en saffran er mikið notað
hjá Persum,“ segir Haukur. Þeir
bjóða einnig upp á speltbökur sem
eru nokkurs konar pitsur úr heil-
hveitispelti og möluðu íslensku
hveiti. „Við reynum að nota eins
mikið af íslenskum vörum og
við getum,“ segir Haukur, sem
býður upp á ferskan fisk á hverj-
um degi.
Mikið er notað af íslensku skyri
og jógúrt í sósurnar á Saffran og
til marks um vinsældir staðar-
ins síðustu vikur hafa um áttatíu
kíló af skyri verið notuð í hverri
viku.
„Staðurinn hefur farið alveg
ævintýralega vel af stað. Það
hefur verið mjög mikið að gera
og við önnum varla eftirspurn,“
segir Haukur. Saffran er opið frá
níu á morgnana til níu á kvöldin
en í sumar verður opið til klukk-
an tíu. solveig@frettabladid.is
Nota 80 kíló af skyri á viku
Á hinum nýja veitingastað Saffran ríkir hversdagsleg, létt og fersk stemning undir áhrifum frá Mið-
Austurlöndum. Haukur Víðisson matreiðslumaður eldaði keilu í tikka masala fyrir lesendur Fréttablaðsins.
Haukur Víðisson matreiðslumaður á Saffran segir staðinn hafa farið ævintýralega vel
af stað. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Nokkurra áhrifa frá Mið-Austurlöndum
gætir á veitingastaðnum Saffran.
KANELSNÚÐAR eru alltaf góðir með kaffinu. Myllan hefur nú hafið
framleiðslu á kanelsnúðum sem eru mjúkir og ljúffengir. Í snúðunum
eru sex prósent trefjar og engin transfitusýra.
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt til
að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silf-
urplett.Við eigum líka fægilög,fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
HELGIN