Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 64
32 3. apríl 2009 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Annað kvöld verður frum-
sýnd leik- og danssýning í
Hafnarfjarðarleikhúsinu
sem Álfrún Helga Örnólfs-
dóttir og Friðrik Friðriks-
son standa fyrir. Sýninguna
kalla þau Húmanimal.
Verkefnið hlaut styrk frá leiklistar-
ráði og er nú komið á svið fyrir
sameiginlegt átak.
Er maðurinn skepna? Í Húman-
imal er á ögrandi hátt tekist á við
dýrskraftinn innra með mannin-
um og leyndardómar kyneðlisins
rannsakaðir. Húmanimal er sýn-
ing sem er að springa úr dýrsleg-
um frumkrafti, kynlífi og bælingu.
Svo segir í kynningartexta verks-
ins sem gefur aðeins til kynna á
hvaða slóðir hópurinn hefur leitað
við efnisleit.
Ég og vinir mínir kallar hópurinn
sig sem stendur að sýningunni. Í
honum eru leikarar, dansarar, tón-
listarmaður og hönnuður. Í rann-
sóknum sínum á hvötum mannsins,
samböndum og ástinni hafa þau
komist að kynlegum niðurstöðum
um manndýrið, líkamann og ekki
síst föt. Leikendur eru þau Álfrún
Helga Örnólfsdóttir, Dóra Jóhanns-
dóttir, Friðgeir Einarsson, Jörund-
ur Ragnarsson, Margrét Bjarna-
dóttir og Saga Sigurðardóttir.
Tónlist er í höndum Gísla Gald-
urs Þorgeirssonar en leikmynd og
búninga sér Rósa Hrund Kristjáns-
dóttir um. Umsjón með sviðshreyf-
ingum annast Margrét Bjarna-
dóttir og Saga Sigurðardóttir, en
leikstjórar verkefnisins eru þeir
Friðrik Friðriksson og Friðgeir
Einarsson.
Húmanimal mun deila sviðinu
í Hafnarfjarðarleikhúsinu fram
eftir vori með Dubbeldusch.
pbb@frettabladid.is
Mannskepnan og klæðin
LEIKLIST Hópurinn á sviði í Húmanimal. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Áhugamenn um viðgang ljóðsins efna til hátíðar-
halda á Akureyri nú um helgina þar sem ljóðið
verður í fyrirrúmi. Hátíðina kalla þeir Litlu ljóða-
hátíðina og er stefnt að því að hún verði árlegur
viðburður nyrðra. Hún fer fram í húsnæði Populus
Tremula í Gilinu.
Á Litlu ljóðahátíðinni er ljóðið í fyrirrúmi og lagt
upp með að bjóða í hvert sinn upp á fjölbreytt efni.
Á dagskránni verða tvö ljóðakvöld. Á hátíðinni lesa
nokkur af fremstu ljóðskáldum samtímans upp úr
verkum sínum. Að auki verður boðið upp á fyrir-
lestra um ljóðlist laugardaginn 4. apríl.
Markmiðið er að gefa heilsteypta mynd af
íslenskri ljóðlist ár hvert, og bjóða upp á spennandi
viðburði fyrir unnendur ljóðsins. Markmiðið með
hátíðinni er að festa í sessi árlegan bókmenntavið-
burð á Norðurlandi, utan hefðbundins kynningar-
tíma bókmenntanna. Að auki er það markmið með
hátíðinni að bjóða upp á sérstaka menningartengda
dagskrá yfir vetrarmánuðina á Akureyri. Það eru
þeir Gunnar Már Gunnarsson, Atli Hafþórsson
og Hjálmar Stefán Brynjólfsson sem standa fyrir
hátíðinni, en þeir eru allir áhugamenn um ljóðlist og
menningarstarf á Akureyri.
Á Litlu ljóðahátíðinni verður lögð áhersla á að
kynna ljóðskáld úr öllum aldurshópum, af helstu
skáldakynslóðum til að gefa þverskurð af ljóðlist á
Íslandi síðustu áratugi. Sérstök áhersla er lögð á að
fá ljóðskáld af öllu landinu á hátíðina, en ekki ein-
göngu rithöfunda af norðausturhorninu.
Í kvöld kl. 21 flytur Eiríkur Örn Norðdahl vídeó-
ljóðagjörning, og þau Ingunn Snædal, Jón Laxdal og
Þórarinn Eldjárn flytja ljóð sín.
Á morgun kl. 14 verður málþing um ljóðlist í Pop-
ulus Tremula: Kristján Kristjánsson útgefandi
ræðir um útgáfa ljóða á 21. öldinni og Þorvaldur
Þorsteinsson rithöfundur flytur erindið Ljóðlist 2.0-
2.1 (frá upphafningu til upphafs and back again).
Annað kvöld kl. 21 safnast menn aftur saman í
Populus Tremula og þá flytja ljóð sín þeir Aðal-
steinn Svanur Sigfússon, Gyrðir Elíasson, Magnús
Sigurðsson og Þorsteinn frá Hamri.
Ókeypis er á alla viðburðina og allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir. pbb@frettabladid.is
Litla ljóðahátíðin á Akureyri
BÓKMENNTIR Ingunn Snædal
les ljóð sín í kvöld.
BÓKMENNTIR Þorsteinn frá
Hamri kemur fram á morgun
og les ljóð sín.
Neðan úr kössunum standa tveir grannir fætur og höfuð. Lára
Stefánsdóttir, dansari og danshöfundur, er að vinna að verki ásamt
ungum dönsurum sem lítur ekki dagsins ljós fyrr en í sumar. Þá
verður verkið lagt
saman við verk frá
fimm öðrum Norður-
löndum á fertug-
ustu listdanshátíð-
inni í Kupio, sem er
virtasta og stærsta
danshátíð á Norður-
löndum.
Hlutur Láru og
krakkanna er partur
af svokölluðu Keðju-
verkefni.
Keðja er verk-
efni sem ætlað er að
styrkja stöðu dans-
ins gagnvart öðrum
listgreinum og þátt-
um menningarlífs-
ins í Norður-Evrópu
(Íslandi, Danmörku,
Noregi, Svíþjóð,
Finnlandi og Lithá-
en).
Að baki þessum markmiðum liggur sú von að í gegnum Keðju
verði til sterkt tengslanet sem verði gert kleift að vaxa og dafna
og ná til fleiri landa í Norður-Evrópu.
Verkefnið Keðja hófst í nóvember 2007 og því lýkur í desember
2010. Það nýtur stuðnings Evrópusambandsins og norrænna sjóða
og er stærsta verkefni sinnar tegundar í dansheiminum á þessu
svæði.
Sex stórir viðburðir munu verða haldnir í fimm borgum Norður-
landa auk Vilníus á þrem árum. Hver viðburður hefur sitt eigið
tema og í öllum tilvikum er markmiðið að styrkja stöðu dans-
ins gagnvart öðrum listgreinum eða þáttum menningarlífsins í
Norður-Evrópu.
Til að líta til með Láru kom hingað í vikunni yfirhöfundur
verksins, Isto Turpeinen. Hann hefur ferðast á milli Norðurland-
anna og unnið með hverjum hópi og endaði hér.
Krakkarnir héðan slást í hóp nær fimmtíu ungra dansara í
sumar. Dagskráin á hátíðinni er gríðarlega metnaðarfull: þang-
að koma mörg stór nöfn sem spanna danssöguna síðustu fjörutíu
ár. Meðal þeirra má nefna Íslandsvinina Mats Ek sem ól hluta af
æsku sinni hér og Jirí Kylián frá Nederlands Dans Theatre.
Verkið sem slegið verður saman úr atriðum frá löndunum sex
kallast Corridor. Og það er ekki það eina sem dansararnir ungu
munu njóta: í tengslum við sýningar Keðjunnar verður málþing
þar sem 150 atvinnumenn víða að úr heiminum koma saman og
deila ráðum sínum og reynslu í dansmenningu fyrir unga lista-
menn. pbb@frettabladid.is
Keðjan er lifandi
LISTDANS Stelpurnar úr Listdansskólanum læfa verk
sitt og Láru fyrir förina til Finnlands í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
kl. 20
Þriðja þverfaglega stefnumótið á Opið – til eru hræ,
sem haldin er í Kling og bang á Hverfisgötu, verður í
kvöld. Sýningin er vinnuaðsetur þeirra Evu Signýjar
Berger, Katrínar I. Jónsdóttur, Rakelar McMahon og
Unu Bjarkar Sigurðardóttur. Markmiðið er að opna
vettvang fyrir skapandi einstaklinga svo þeir fái tæki-
færi til að deila verkum sínum með öðrum. Þátttaka
er öllum opin, bara að mæta með verkin sín á DVD-
disk, því áherslan er á á vídeólistamenn. Vídeóið
byrjar að rúlla kl. 20 og er aðgangur ókeypis.