Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 3. apríl 2009 11
FJÖLDI SJÓSUNDSGESTA
VIÐ YLSTRÖNDINA
jan. feb. mars samtals
2008 239 225 244 708
2009 1.034 1.124 1.490 3.648
SAMFÉLAGSMÁL Fjöldi gesta sem
stunda sjósund við ylströndina í
Nauthólsvík hefur fimmfaldast
á einu ári, að sögn Árna Jóns-
sonar, deildarstjóra í útivistar-
miðstöð Nauthólsvíkur. „Ég tel
hiklaust að kreppan eigi sinn
þátt í þessu,“ segir hann. „Bæði
tel ég að fólk hafi meiri tíma
núna og eins held ég að fólk sæki
í ögrandi áskoranir.“ Það sem
af er þessu ári hafa 3.648 lagst
til sunds en á sama tíma í fyrra
höfðu 708 brugðið sér í sjóinn
á Ylströndinni. „Við höfum því
ákveðið að fimmþúsundasti gest-
urinn í ár fái ókeypis kaffi til að
taka með sér í pottinn eftir sjó-
sundið,“ segir Árni. - jse
Sund við ylströnd:
Sjósundfólki
fjölgar ört
SJÓBÖÐ Í NAUTHÓLSVÍK Sjósundgesta-
komum á ylströndina fer hríðfjölgandi
og mun gestur númer 5.000 fá kaffi til
að hafa með í heita pottinn.
UMFERÐ „Fatlaðir eiga sama rétt
til aðgengis og annað fólk og því
er mikilvægt að þessi mál séu í
sem besta lagi,“ segir í tilmælum
Umferðarráðs til sveitarfélaga og
umferðaryfirvalda um að bæta
merkingar og aðgengi á bílastæð-
um fatlaðra.
Ráðið vill láta hækka sektir á
ófatlaða sem leggja í stæði fatl-
aðra og skorar á þá sem ekki hafa
rétt til að nýta sér þessi stæði til
að virða rétt þeirra sem séu háðir
þeim. Þá segir að miða þurfi
stærð og umhverfi stæðanna við
að þau nýtist auðveldlega öllum
fötluðum. „Bæði þurfa yfirborðs-
merkingar og skilti að vera sýni-
leg, þannig að enginn vafi leiki á
að um slíkt stæði sé að ræða.“ - gar
Tilmæli frá Umferðarráði:
Ekki misnota
stæði fatlaðra
SKIPULAGSMÁL Íbúa í Dalshrauni
í Hafnarfirði hefur verið gert að
rýma heimili sitt innan tveggja
vikna. Íbúinn hafði sótt um
húsaleigubætur til bæjarins og
skráningu lögheimilis í Dals-
hrauni. Lagði hann fram þing-
lýstan leigusamning máli sínu til
stuðnings. Bæjaryfirvöld segja
hins vegar að umrætt húsnæði sé
á athafnasvæði og ekki ætlað til
íbúðar. „Íbúðin er því ólögleg og
ber að rýma hana án tafar. Verði
það ekki gert innan tveggja vikna
mun skipulags- og byggingarfull-
trúi gera tillögu til skipulags- og
byggingarráðs um beitingu dag-
sekta.“ - gar
Íbúi í Dalshrauni í Hafnarfirði:
Úthýst í stað
húsaleigubóta
ORKUMÁL Bæjarráð Reykjanesbæjar segir mjög gott
að fyrirhuguð stækkun Reykjanesvirkjunar raski
litlu af óhreyfðu landi.
VSÓ ráðgjöf hefur unnið frummatsskýrslu um
stækkun virkjunarinnar og telur Reykjanesbær
skýrsluna fullnægjandi. Notast á við núverandi
borplön við gerð nýrra borhola og nýta núverandi
aðkomuleiðir. Stækka á stöðvarhús um tvö þúsund
fermetra og byggja sjö hundruð fermetra skiljustöð
mjög áþekka þeirri sem fyrir er. „Nýjar lagnir frá
borholum verða að mestu leyti í sömu lagnastæðum
og allt þetta veldur því að rask og sjónræn áhrif
vegna framkvæmdanna verður í lágmarki,“ segir í
umfjöllun bæjarráðsins.
Fram kemur að draga eigi sem mest úr neikvæð-
um umhverfisáhrifum. „Þar ber helst að nefna
pækil virkjun sem nýtir jarðhitavökvann betur og
dregur úr þörf á upptöku úr jarðhitageyminum.
Með því að nýta núverandi mannvirki og leitast við
að staðsetja ný á röskuðum svæðum eru lágmörkuð
umhverfisáhrifin. Einnig er gert ráð fyrir niður-
dælingu affallsvökva aftur niður í jarðhitageyminn
til að draga úr þrýstingslækkun í borholum. Reikn-
að er með að loftmengun í byggð verði svipuð og
hún er núna.“ - gar
Reykjanesbær telur frummatsskýrslu um stækkun Reykjanesvirkjunar duga:
Segja lítil umhverfisáhrif af stækkun
VIÐ REYKJANESVIRKJUN Stækka á virkjunina með viðbyggingu
við stöðvarhúsið og fleiri borholum. MYND/SIGURÐUR H. MAGNÚSSON
DROTTNING OG HATTUR Elísabet
Englandsdrottning skoðar mexíkóska
muni í Buckingham-höll ásamt Felipe
Calderón, forseta Mexíkó. Munirnir eru
úr safni konungsfjölskyldunnar.
NORDICPHOTOS/AFP