Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 42
Saga litla vaknar kát og glöð en
fullorðna fólkið er flest áhyggju-
fullt, annars hugar og upptekið í
dagsins önn. Þetta er efni nýrrar
barnabókar sem nefnist Saga um
tilfinningar og er eftir Valgerði
Ólafsdóttur þróunarsálfræðing.
„Þetta er bók til að lesa fyrir
barn en hún er með leiðbeiningum
fyrir fullorðna sem vísa frá stelp-
unni í sögunni að barninu. Skila-
boðin til hinna fullorðnu eru þau að
hlusta djúpt á það sem bærist innra
með barninu hverju sinni. Tilfinn-
ingar eru eðlilegur og sjálfsagð-
ur hluti af manneskjunni á öllum
aldri en okkur hinum eldri er tamt
að skera á tilfinningar barna. Um
leið erum við að taka eitthvað frá
þeim,“ segir Valgerður.
Að hennar sögn þarf fólk ekki
að óttast að missa tökin á uppeld-
inu þótt það beiti mjúkum aðferð-
um. „Við eigum ekki að láta allt
eftir börnum þó að við hlustum á
þau. Þar verða að vera skýr mörk.
Ef við erum með svangt barn í búð
og það heimtar lakkrís þá segjum
við við það: „Ég heyri að þig langar
í lakkrís en þetta er ekki rétti tím-
inn.“ Aðalatriðið er að hafa virð-
inguna fyrir líðan barnsins að
leiðarljósi.“
Valgerður segir okkur fullorðna
fólkið þurfa að varast að dæma
börn út frá okkur sjálfum. „Barna-
barn mitt segir stundum: „Ég vil
ekki vera hjá þér amma, ég vil
vera hjá pabba.“ Mér dettur ekki í
hug að móðgast. Bak við þessi orð
er bara einföld og saklaus ósk lít-
ils barns um að vera annars stað-
ar en það er. Galdurinn er að leyfa
því að hafa þá ósk því barn á rétt á
öllum sínum tilfinningum.“
Valgerður er með námskeið í til-
finningaleikni. Fólk getur farið inn
á síðuna www.medvitaduppeldi.is
til að fræðast betur um þau.
- gun
3. APRÍL 2009 FÖSTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● blátt áfram
Valgerður vill örva umræður um tilfinningar barna og hefur gefið út bók sem er gott
hjálpartæki til þess. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Við sjáumst,“ kallaði Saga og vinkaði til
konunnar sem veifaði á móti.
Virðingin þarf að
vera leiðarljósið
HK er fyrsta íþróttafélag lands-
ins sem skyldar sína þjálfara
til að sækja námskeið um
verndun barna hjá Blátt áfram
og er í framhaldinu að útbúa
siðareglur. Karl Sigurðsson er
formaður blakdeildar HK.
„Ástæða þess að ég fór á nám-
skeið um verndun barna var sú
að við fengum þjálfara sem beittu
andlegu ofbeldi. Út frá því fórum
við í samvinnu við Blátt áfram,“
segir Karl, sem alltaf er kallaður
Kalli. „Í raun ættu allir sem eiga
mikil samskipti við börn að fara á
svona námskeið og ekki síst karl-
menn því þeir eru oftar gerendur í
ofbeldi en konur. Fyrir mann eins
og mig, sem aldrei hefur kynnst
slíku, var þetta alveg nýtt. Maður
fer að horfa á umhverfið öðrum
augum, því þessi ofbeldisheimur
er ekki vel sýnilegur.“
Beðinn um að lýsa aðeins nám-
skeiðinu svarar Kalli: „Fólk byrj-
ar á að fá vinnubók til lestrar og
verkefni til að ljúka áður en það
mætir á námskeiðið sem stendur
í þrjá tíma. Þar er horft á mynd-
band og farið yfir spurningar sem
vakna. Ekki segir Kalli námsefnið
eingöngu snúast um kynferðislegt
ofbeldi, þótt dæmin sem sýnd séu
fjalli mest um það. „Ofbeldið á sér
margar hliðar og sú andlega er
ekki best,“ tekur hann fram.
Kalli segir HK vera með blak-
deild, handboltadeild, fótboltadeild,
borðtennisdeild og körfuboltadeild.
Það hafi, fyrst allra íþróttafélaga,
skyldað þjálfara sína til að mæta á
þetta námskeið, bæði til umhugs-
unar fyrir þá sjálfa og til verndar
börnum sem séu í þeirra umsjá.
„Þjálfari er fyrirmynd barnanna
og leiðtogi og þjálfunin snýst ekki
bara um íþróttina því líkamanum
fylgir alltaf sál,“ bendir Kalli á að
lokum. - gun
Þjálfarinn er leiðtogi
og fyrirmynd barna
„Það er hollt fyrir börn sem eiga á einhvern hátt erfitt líf heima að komast á æfingu hjá góðum þjálfara sem leiðbeinir þeim og
hjálpar,“ segir Karl. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Prentsmiðjan Oddi ehf
Veisluturninn - veislusalir, fundir og ráðstefnur
Mundu eitt, lesandi góður. Ekki halda að þú sért
slæmt foreldri ef börnin leita ekki einmitt til þín
eftir aðstoð ef þau lenda í vandræðum. Gott er að
þau viti að það er alltaf gott að leita sér hjálpar hvar
sem hana er að finna og þú átt jafnvel eftir að geta
verið til staðar fyrir vini barna þinna. Eins og þú
vonar að þeirra foreldrar verði fyrir þín börn. Þess
vegna er einnig mikilvægt að opna umræðu um
kynferðislegt ofbeldi við allar fjölskyldur í kringum
börnin og saman getið þið skipst á skoðunum um
hvernig best sé að bregðast við.
Fyrir þau börn í umhverfi þínu sem ekki fá stuðn-
ing og fræðslu heima hjá sér þarft þú, kæri lesandi,
ef til vill að vera aðilinn sem fræðir barnið. Ef það
er yngra barn, gætir þú til dæmis lesið fyrir það
barnabókina Mínir einkastaðir, næst þegar það
kemur í heimsókn. Barnið fær þá tækifæri til að
átta sig á, ef eitthvað skildi vera að brjótast um í
kollinum á því, að þetta er ekki eitthvað sem er í
lagi. Þá segir það þér jafnvel þarna frá eða seinna.
Ef foreldrar barnsins bregðast illa við, þá varst
þú bara að fræða barnið þitt, og barnið þeirra var í
heimsókn! Aldrei halda að þú sért að gera eitthvað
slæmt eða illt með fræðslu fyrir börnin á heimilinu.
Oftast fá börn þessa fræðslu of seint frekar en of
snemma. Sigríður Björnsdóttir
Fræðslan er alltaf til góða
Mikilvægt er að opna umræðu um kynferðislegt ofbeldi fyrir
allar fjölskyldur. NORDICPHOTOS/GETTY