Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 6
6 3. apríl 2009 FÖSTUDAGUR SKÓLAMÁL Sex ára drengur hefur orðið fyrir alvarlegu einelti af hendi annars drengs í Hamra- skóla í Grafarvogi frá áramótum, að sögn föður þolandans. Drengur- inn hefur verið stunginn til blóðs með blýanti, barinn og klórað- ur svo á honum hefur séð. Faðir drengsins er óánægður með við- brögð skólayfirvalda. Hann ákvað að senda drenginn ekki í skóla í gær, þar sem nóg væri komið af afskiptaleysi forráðamanna skól- ans, sem ylli því að drengurinn yrði að þola endurtekna líkamlega áverka, sem væru ekki síður and- legir, í kjölfarið. „Drengurinn kom fyrst í skólann í janúar eftir að hafa búið í Lond- on með okkur foreldrunum,“ segir faðir inn, sem biðst undan nafn- birtingu drengsins vegna. „Hann varð fljótlega fyrir áreiti af hendi jafnaldra síns. Þegar búið var að slá hann þrisvar í andlitið báðum við um fund með skólastjóranum og móður gerandans. Þau lofuðu bæði að tekið yrði á þessu. Gerand- inn var síðan látinn hitta skólasál- fræðing. Síðan kemur að atvikinu sem drengurinn er stunginn til blóðs í bakið með blýanti. Þetta átti sér stað í skólastofunni. Afleysinga- kennari var þá að kenna bekknum. Hún skammaði gerandann, en til- kynnti atvikið ekki.“ Faðirinn segir að haldinn hafi verið annar fundur með skólastjór- anum og þar verið ítrekað að þetta einelti gagnvart drengnum gengi ekki lengur, en ekkert hafi gerst. „Hann kom heim fyrir um það bil tíu dögum með handlegginn allan rispaðan eftir árás af hendi hins drengsins. Svo næ ég í hann í skól- ann í dag og þá er búið að kýla hann í magann. Nú er staðan sú, að það er búið að kýla hann níu sinnum, þar af einu sinni til blóðs í andlit, auk blýants- stungunnar og handleggsáverk- ans. Það er nákvæmlega ekkert gert. Þarna er verið að eyðileggja líf. Það ætlum við ekki að láta ná fram að ganga. Við ætlum ekki með drenginn aftur í skólann að óbreyttu.“ Foreldrarnir hafa leitað til menntamálaráðuneytisins, mennta- sviðs Reykjavíkur og fleiri vegna málsins. Faðirinn segir aðstandendur hafa sótt drenginn í skólann á hverjum einasta degi. Það hafi ekki dugað til. Sleppa verði hendinni af honum þegar inn á skólalóðina sé komið og þá sé öryggi hans í höndum starfs- manna skólans. Það hafi brugðist. „Drengurinn kemur heim og talar um gerandann. Hann dreymir hann á nóttunni. Honum líður hræðilega illa. Við erum ráðþrota.“ jss@frettabladid.is Sex ára drengur var stunginn og barinn Sex ára drengur sem verið hefur í Hamraskóla í Grafarvogi frá áramótum hefur orðið fyrir hrottalegu einelti af hendi jafnaldra síns. Drengurinn hefur verið stunginn til blóðs með blýanti, barinn og klóraður. Foreldrarnir eru ráðþrota. BLÝANTSSTUNGA Drengurinn var stunginn með blýanti til blóðs í gegnum fötin. Atvikið átti sér stað á föstudegi en afleysingakennari tilkynnti það til skólayfirvalda á mánudegi. ÁVERKAR Á HANDLEGG Svona kom drengurinn leikinn heim til sín eftir einn skóladaginn. SKÓLAMÁL „Það er búið að vinna heilmikið í þessu máli og vinnsla er í gangi. Þetta er í ákveðnu ferli,“ segir Yngvi Hagalínsson, skólastjóri Hamraskóla, um ein- eltismálið sem greint er frá hér fyrir ofan. Yngvi segir að málinu hafi, auk vinnslunnar í skólanum, verið vísað til menntasviðs Reykja- víkur og Þjónustumiðstöðvar Grafarvogs. „Það er gert til að fá fleiri að því að skoða málið og meta,“ útskýrir hann. Spurður hvort skólayfirvöld hefðu ekki þurft að grípa til aðgerða til að stöðva eineltið, sem staðið hefur undanfarnar vikur, sagði Yngvi að búið væri að stöðva það. „ Það er u a l lta f tvei r einstaklingar inni í kennslu- stofunni og mikil gæsla úti á velli,“ bætir hann við. Spurður hvernig standi þá á því að þolandinn hafi verið kýldur í magann í fyrradag segir Yngvi erfitt að tjá sig um einstök mál af þessu tagi. Spurður hvort eitthvað hafi séð á gerandanum eftir samskipti drengjanna segir skólastjórinn svo ekki vera. Varðandi blýants- stunguna segir Yngvi að í því til- viki hafi vinnuferli skólans brugð- ist, þar sem atvikið hafi ekki verið tilkynnt til skólayfirvalda strax. - jss Skólastjóri Hamraskóla í Grafarvogi um meðferð eineltisins: Málið er í ákveðnu ferli HAMRASKÓLI Olweusar-verkefnið gegn einelti er ekki og hefur ekki verið í Hamraskóla. Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is íðaboxSk Pacific 600190 x 63 x 39 cm340 L54.900.- FRAMSÓKN Framsóknarmenn í Suðvestur opna kosningamiðstöð sína að Digranesvegi 10 í Kópavogi, föstudaginn 3. apríl milli kl. 17 og 19. Boðið verður upp á veitingar. Allir velkomnir. Dúnmjúkar BRÚÐARGJAFIR Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is Við hjá Lín Design erum í essinu þegar kemur að brúðkaupsgjöfum. Vörulína okkar er hönnuð á Íslandi þar sem íslensk náttúra spilar stórt hlutverk. Allt okkar efni er sérvalið svo úr verð- ur vara sem gefur mýkt og hlýju. Brúðhjón sem eru með gjafalista hjá Lín Design fá gjöf frá versluninni ef keypt er af listanum. Hlý og persónuleg þjónusta SJÁVARÚTVEGUR „Forsætisráðherra sagði það afdráttarlaust að það ætti að fara í aðgerðirnar en er alveg áhyggjulaus um afleiðing- arnar og það er eins óábyrgt og það getur orðið,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins. Hann spurði Jóhönnu Sigurðar- dóttur forsætisráðherra á Alþingi í gær hvaða áhrif það hefði á greiðslugetu sjávarútvegsfyrir- tækjanna ef farin yrði svokölluð fyrningarleið. Samkvæmt henni myndi ríkið yfirtaka veiðiheim- ildirnar á allt að tuttugu árum. Þær myndu því fyrnast um fimm prósent á ári hjá þeim sem nú hafa þær. „Það eina sem ég uppskar var að hún lof- aði að fara þessa leið en ég var ekki að spyrja um það,“ segir Guðlaugur. „Þetta er mjög sérstakt því miðað við þær forsendur sem liggja fyrir, og hefur meðal ann- ars verið greint frá í Fréttablað- inu, þá þýðir þetta það að sjávar- útvegsfyrirtækin, sem skulda á bilinu 400 til 500 milljarða, munu ekki ráða við þessa skattheimtu og fara í þrot og ekki nóg með það heldur taka bankana með sér.“ Jóhanna segir í samtali við Fréttablaðið að vel sé hægt að fara þessa leið án þess að sjávar- útvegsfyrirtækin kikni undan og að hún taki málflutningnum um afleiðingar fyrningarleiðarinnar sem hræðsluáróðri þeirra sem eru leiðinni mótfallnir. Til dæmis hafi útgerðin mætt um þrjátíu prósenta skerðingu aflaheimilda árið 2007 og fyrningarleiðin sé afar hófstillt- ur niðurskurður í því samhengi. „Það verður farið í þetta í sam- vinnu við útgerðina og með þeim hætti að það ættu allir að getað lifað við það,“ segir hún. - jse Stjórnarandstæðingur segir forsætisráðherra ekki hirða um afleiðingar fyrningarleiðarinnar: Segir forsætisráðherra sýna ábyrgðarleysi GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON HVAÐ ER FYRIR STAFNI? Forsætisráð- herra segir andstæðinga fyrningarleiðar vera með hræðsluáróður. Hana sé hægt að fara án þess að knésetja útgerð og banka. Hljópst þú apríl í ár? Já 10,8% Nei 89,2% SPURNING DAGSINS Í DAG Telur þú að hvalveiðar muni eyðileggja uppbyggingu hvala- skoðunarfyrirtækja? Segðu skoðun þína á vísir.is KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.