Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar
Í dag er föstudagurinn 3. apríl,
93. dagur ársins.
6.38 13.31 20.25
6.19 13.16 20.14
eingöngu nýjar vörur í okkar verslunum
Þý
sk
ir
da
ga
rVið eigum í stríði segja þeir, að vísu ekki hernaðarlegu held-ur fjármálalegu en það ber að sama brunni; meðalaldur styttist, fólk flýr land, félagsleg vandamál aukast og þar fram eftir götunum.
Þetta þarf auðvitað ekki að koma
á óvart; það sem sætir hins vegar
furðu er að þótt þetta eigi að heita
nútímalegt stríð, þar sem skulda-
vöndlar og jöklabréf hafa leyst
byssustingi og sprengjuvörpur
af hólmi, dregur baráttan í orði
kveðnu merkilega mikinn dám af
því hvernig orrustur voru háðar
fyrir tæpri öld: víglínan var mörk-
uð, grafnar skotgrafir þar sem
hvorki þokaði fram né aftur.
SEM betur fer hefur blóði ekki
verið úthellt á Íslandi, ekki bók-
staflega að minnsta kosti. En að
fylgjast með pólitískri umræðu
á Íslandi árið 2009 er á stundum
engu líkara en að lesa bókina Tíð-
indalaust á vesturvígstöðvunum,
sem lýsir hryllingi fyrri heims-
styrjaldar, þegar blóði heillar
kynslóðar var úthellt í tilgangs-
lausum orrustum án þess að víg-
staðan breyttist. „Ferskt blóð á
vígvöllinn,“ var til dæmis slag-
orð tveggja ungra frambjóðenda
í prófkjöri eins flokkanna. Þetta
lýsir dálítið nöturlegri sýn á
stjórnmálaþátttöku; að bjóða sig
fram sem pólitískt byssufóður í
þráteflinu á þingi.
ÞAÐ hefur verið auðvelt að rýna
í umræðurnar á þingi undanfarna
daga með þessum gleraugum; þar
sem karpið breytist í skotgrafa-
hernað, ræðupúltið er vélbyssu-
hreiður þar sem hægt er að láta
flokkslínuna dynja á andstæðing-
um þínum og vonast til að smám
saman mjakist maður áfram. En
þegar ég fylgdist með umræðum
á Alþingi um lagafrumvarp um
endur greiðslur til kvikmyndar-
gerðarmanna, og sá alþingismann
bresta fyrirvaralaust í söng í
pontu, varð mér hugsað til annarr-
ar bókar sem gerist í fyrri heims-
styrjöldinni.
ÉG veit sannarlega ekki af hverju
vitfirringarnir eru reiðir yfir að
vera þar,“ sagði góði dátinn Svejk
eftir að honum var fleygt út af
geðveikrahælinu. „Maður fær að
skríða allsber um gólfið, ýlfra eins
og sjakali og bíta hvern sem maður
vill. Ef maður leyfði sér annað
eins úti á götu yrði fólk standandi
hissa og hrópaði á lögregluna,
þarna þykir þetta sjálfsagt. Það
er allt svo frjálslegt þar, að engan
lýðræðissinna hefir nokkru sinni
dreymt annað eins frelsi.”
Að ýlfra eins
og sjakali