Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 74
42 3. apríl 2009 FÖSTUDAGUR
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Tvær af fremstu
frjálsíþróttakonum landsins, Ásdís
Hjálmsdóttir og Helga Margrét
Þorsteinsdóttir, eiga það sam-
eiginlegt að blómstra undir leið-
sögn Stefáns Jóhannssonar hjá
Ármanni. Stefán hefur fjögurra
áratuga reynslu í faginu og eru
stelpurnar því í góðum höndum.
Þær Ásdís og Helga Margrét eru
báðar búnar að setja Íslandsmet í
sínum greinum, spjótkasti og sjö-
þraut, og fram undan er spennandi
sumar þar sem þær ættu að geta
gert enn betur gangi allt upp.
„Þær eru báðar með höfuðið
í lagi til þess að ná langt. Ég hef
mikla reynslu í því hvort höfuðið
hjá íþróttamönnum sé í lagi eða
ekki,“ segir Stefán um þær Ásdísi
og Helgu.
Kemur mjög vel saman
„Þeim kemur mjög vel saman. Þær
lyfta saman og svo kemur Helga
inn í spjótið hjá Ásdísi. Þær bakka
hvor aðra alveg svakalega vel upp
sem er mjög skemmtilegt og létt-
ir líka undir með mér. Aðalverkið
hjá mér er að halda aftur af þeim,“
segir Stefán.
„Ég er búinn að þjálfa í fjörutíu
ár. Ég byrjaði bara með þau allra
yngstu sautján ára gamall og svo
var ég 21 árs þegar ég byrjaði með
stálpaða unglinga. Ég fékk liðagigt
og hætti allri íþróttaiðkun og þetta
tók við,“ segir Stefán. „Ég hef verið
með marga mjög góða og efnilega
en þær eru með þeim efnilegri.“
Ásdís getur kastað lengra í sumar
Ásdís Hjálmsdóttir byrjaði tíma-
bilið á því að verða fyrsta konan
til þess að kasta nýja spjótinu
yfir sextíu metra og bætti um leið
Íslandsmet sitt frá því í fyrra.
„Ásdís er orðin 23 ára og ég er
búin að vera með hana síðan hún
var sextán ára. Það skemmtilega
við hana Ásdísi er að hún hefur
gefið sér tíma í að þróa þetta hjá
sér,“ segir Stefán.
„Ég sagði við hana í byrjun að
ég myndi vilja þróa þetta á mörg-
um árum því spjótkastið er mikil
tækniíþrótt og hana þarf að þróa.
Það er ekki hægt að fara einhverja
skyndileið og það er ekki hægt að
sleppa einhverjum hreyfingum.
Hún er ennþá alveg inni á því
að hún er ekki útlærð í þessu.
Hún hefur alltaf náð öllu
því sem við einbeitum
okkur að og ég er viss
um að hún heldur
því áfram og þá
kemur bætingin,”
segir Stefán.
„Ég er í engum
vafa um það að hún getur
kastað enn lengra í sumar.
Ef hún væri komin á toppinn
hefði ég verið óánægður með
svona byrjun.“
Ásdís er sömuleiðis
ánægð með þjálfarann sinn. „Hann
er búinn að þjálfa mig frá 2001,
þegar hann fór að taka eftir mér
og sá að ég gæti eitthvað. Hann
fór að taka mig á einkaæfingar og
hjálpa mér. Hann hefur ekki losn-
að við mig síðan,“ segir Ásdís í
léttum tón.
„Hann er frábær þjálfari og
býr yfir alveg gríðarlegri þekk-
ingu. Hann hefur mikla reynslu
frá því að hafa þjálfað alveg ótrú-
lega marga afreksmenn í öllum
greinum. Hann er ekki bara frá-
bær þjálfari heldur einnig góður
vinur.“
Draumabyrjun á sumrinu
Ásdís ætlar sér mikið í sumar.
„Þetta var alveg draumabyrjun
en ég veit að ég á nóg eftir,“ segir
Ásdís. Ég kastaði ekki neitt frá-
bærlega. Þetta var líka ekki eins
og margir halda, að ég hafi hitt á
eitthvert draumakast. Þetta var
alls ekki þannig. Ég náði einu kasti
í gegn og ég er sannfærð um að
það er nóg eftir. Nú þurfum við
Stebbi bara að halda mér heilli í
sameiningu því þá verður
þetta gaman í sumar.“
Ásdís hefur kom-
ist í gegnum erfið
meiðsli á undan-
förnum misserum
og Stefán segir
hugarfar hennar
skipta þar miklu
mál. „Þegar fólk er
að tala um að þurfa að
hvíla eftir uppskurði
eða meiðsli þá fussar hún bara.
Eftir uppskurðinn sem hún fór
í var hún byrjuð að æfa tveimur
dögum seinna,“ segir Stefán, sem
hefur líka lært í gegnum öll þessi
ár að bregðast rétt við ef hans fólk
meiðist.
„Ef ég er með einhver smá-
meiðsli þá kíkir Stebbi alltaf á
mig fyrst. Það er alltaf Stebbi sem
reddar málunum,“ segir Ásdís.
Helga er með skemmtilegt viðhorf
Helga Margrét Þorsteinsdóttir
hefur verið að gera góða hluti í sjö-
þrautinni undanfarið, hefur orðið
Norðurlandameistari unglinga og
bætti Íslandsmetið í fyrra.
„Helga er búin að vera hjá mér
í tvö ár má segja. Hún er mjög
fjölhæf og hefur líka mjög
skemmtilegt viðhorf. Hún
á þó eftir að læra mjög
margt,“ segir Stefán.
„Hún hefur verið örlítið
meidd undanfarið og það
er eitt sem hún á eftir að
læra. Það er að hvíla
meiðslin og alla liði og
vöðva í kringum þau.
Hún er svolítið bráð
ennþá og á eftir að
læra það,“ segir
Stefán um Helgu
og hún sjálf vitnar
líka um það.
„Hann þarf að halda í
taumana á mér og það geng-
ur svona misvel,“ segir
Helga. „Þetta er fínn karl.
Ég er búin að bæta mig mjög
mikið hjá honum og þá sérstak-
lega þegar kemur að tæknileg-
um atriðum. Maður gerir sér ekki
alveg grein fyrir því hvað hann
veit mikið. Hann er frábær þjálf-
ari og er tilbúinn að gera allt fyrir
mann,“ segir Helga en hún segir
að Stefán sé sem dæmi tilbúinn að
koma á æfingar næstum því hve-
nær sem er sólarhringsins.
„Maður getur alltaf treyst á
hann,“ segir Helga og skellir upp
úr þegar hún er spurð hvort hann
hafi einhvern tímann öskrað á
hana. „Hann er mjög þægilegur í
umgengi. Hann hefur aldrei nokk-
urn tímann öskrað á mig enda er
þetta samvinna,“ segir Helga.
Meira efni en margur veit
Stefán segir Helgu vera mikið
efni. „Ég er alveg hundrað
prósent viss um að hún bætir
sig mjög vel í sumar. Hún er
kannski meira efni en marg-
ur veit,“ segir Stefán. Helga
er í öðru sæti í heiminum
í sjöþraut sautján ára og
yngri og ellefta í heim-
inum nítján ára og
yngri.
„Sjöþrautin er mjög erfið
því margar tæknigrein-
ar eru í henni. Hún er
líka fyrir sprengjur eins
og Helgu því ef hún nær
tæknihliðinni býður það
upp á mjög góðan árangur,“
segir Stefán og nú er bara
að sjá hvað stelpurnar hans
gera í sumar. ooj@frettabladid.is
Blómstra undir leiðsögn Stefáns
Ármenningarnir Ásdís Hjálmsdóttir og Helga Margrét Þorsteinsdóttir settu báðar Íslandsmet á síðasta ári
og ætla sér að bæta metin enn frekar í ár. Þær njóta góðs af 40 ára þjálfarareynslu Stefán Jóhannssonar.
SÁTTAR MEÐ SINN MANN Ásdís Hjálmsdóttir, Helga Margrét Þorsteinsdóttir og þjálfari þeirra Stefán Jóhannsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Alan Shearer, nýráðinn
stjóri Newcastle, gerir sér fylli-
lega grein fyrir því að það verður
síður en svo auðvelt að bjarga lið-
inu frá falli.
Shearer hefur verið ráðinn
stjóri tímabundið hjá félaginu
og hefur aðeins átta leiki til þess
forðast fallið.
Newcastle er í fallsæti sem
stendur og tvö stig eru í næsta
lið fyrir ofan sem er Blackburn.
Fyrsta verkefnið er ekki auðvelt
en Chelsea kemur í heimsókn á
laugardaginn.
„Okkar bíður gríðarlega hörð
barátta. Það gera sér allir grein
fyrir því hversu erfitt verkefn-
ið er. Við munum mæta tilbún-
ir í slaginn,“ sagði Shearer eftir
sína fyrstu æfingu með liðið,
sem hann sagði hafa verið afar
jákvæða.
„Stuðningsmennirnir þekkja
mig vel og gera sér grein fyrir
því að ég mun gefa 100 prósent í
verkefnið 24 tíma á dag, sjö daga
vikunnar. Vonandi dugar það til
því það myndi særa mig og þús-
undir stuðningsmanna liðsins ef
það færi niður um deild.“ - hbg
Alan Shearer:
Þetta verður
mjög erfitt
SHEARER Svarar hér spurningum blaða-
manna. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
NFL Útherji Cleveland Browns,
Donte Stallworth, er í vond-
um málum. Hann keyrði niður
mann í Miami á dögunum og lést
maðurinn.
Nú hefur komið í ljós að
áfengis magnið í blóði Stallworth
var vel yfir leyfilegum mörk-
um. Hann hefur verið ákærður
og gæti mest fengið fimmtán ára
fangelsisdóm fyrir manndráp.
Stallworth flúði ekki af vett-
vangi þegar slysið átti sér stað.
Hann beið hjá manninum og ját-
aði fúslega að hafa keyrt bílnum.
- hbg
Donte Stallworth ákærður:
Gæti farið í
15 ára fangelsi