Fréttablaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 39
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 2009 5blátt áfram ● fréttablaðið ●
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Foreldrar ættu að setjast niður
með börnum sínum og segja þeim
sögur af sér frá því að þeir voru
unglingar.
Allir fullorðnir hafa lent í að-
stæðum sem voru ekki góðar; þeir
hafa stolið úr búð, brotið rúðu og
svo framvegis. Ef ekki, er hægt
að búa til slíka sögu. Segðu ungl-
ingunum þínum sögu af því að þú
hafir lent í vandræðum og hvert
þú leitaðir eftir hjálp. Hver hjálp-
aði þér þegar þú þorðir jafnvel
ekki að leita hjálpar hjá foreldr-
um þínum.
Þegar við segjum unglingunum
okkar slíka sögu, þá komast þeir
nær okkur og við niður af stallin-
um sem börn setja foreldra sína
oft upp á. Unglingarnir eru jafnvel
þegar búnir að lenda í einhverj-
um aðstæðum þar sem þeir gerðu
það sem foreldarnir voru búnir
að banna þeim að gera, rétt eins
og við sjálf gerðum á þessu ævi-
skeiði. En þeir gerðu það og geta
síðan ekki sagt frá vegna þess að
það var búið að banna þeim þetta
og þeir vita að foreldarnir verða
fyrir vonbrigðum eða jafnvel
reiðir.
Ef við erum búin að gefa börn-
unum okkar leyfi og segja þeim
að það sé oftast þannig að ungl-
ingar lendi í einhverjum vand-
ræðum er líklegra að þau leiti til
okkar með vandann. Mikilvægt
er að segja þeim að það sé aldrei
þeim að kenna ef þau lenda í of-
beldi og geta ekki sagt nei. Ungl-
ingar gætu upplifað það síðar að
þeir hefðu átt að geta stöðva það
og átta sig oft ekki fyrr en þeir
eru lentir í aðstæðunum. Hvern-
ig þeir hefðu átt að bregðast við
og sitja þá eftir með skömmina
yfir því að hafa ekki getað stöðv-
að það eða sagt nei. Að hafa lent í
einhverju og ekki vitað hvert átti
að snúa sér til að fá hjálp.
Unglingar eru hugrakkir þegar
þeir leita til fullorðinna og það er
erfitt því þeir vilja ekki valda for-
eldrum sínum vonbrigðum.
Sigríður Björnsdóttir
Rætt um bernskubrekin
við börnin á heimilinu
Foreldrar ættu að deila með börnum
sínum reynslusögum frá unglingsárun-
um. NORDICPHOTOS/GETTY
Félagasamtökin Blátt áfram vinna
að því að efla forvarnir gegn kyn-
ferðislegu ofbeldi á börnum á Ís-
landi. Barnahús tekur við þegar
skaðinn er skeður ásamt því að
sinna leiðbeiningarskyldu til al-
mennings og barnaverndar-
nefnda.
„Það má segja að starfsemi
Barnahúss sé fjórþætt. Við tökum
könnunarviðtöl fyrir barnavernd-
arnefndir þegar grunur leikur á
kynferðismisnotkun og önnumst
skýrslutökur fyrir dómstóla. Í
Barnahúsi eru síðan framkvæmd-
ar læknisskoðanir auk þess sem
börn og unglingar sem sætt hafa
kynferðisofbeldi hljóta meðferð,
en það er veigamesti þáttur starfs-
ins,“ segir Ólöf Ásta Farestveit,
forstöðumaður Barnahúss.
„Við vinnum eingöngu eftir
beiðnum frá barnaverndarnefndum
og dómstólum en sinnum auk þess
leiðbeiningarskyldu til almennings
og barnaverndarnefnda. Ef fólk er
í vafa eða ef einkenni koma í ljós
veitum við upplýsingar og ráðgjöf
og hafa starfsmenn Blátt áfram
bent fólki á að hafa samband við
okkur.“
Barnahús sinnir allri lands-
byggðinni og segir Ólöf mikil-
vægt að öll börn sem sæti kyn-
ferðismisnotkun komi í Barnahús
til að hljóta sérhæfða þjónustu og
meðferð auk þess sem þannig sé
hægt að hafa fylgjast með um-
fangi kynferðisofbeldis. Börn og
forráðamenn þeirra geta með til-
vísun barnaverndarnefnda fengið
alla þjónustu á einum stað þeim að
kostnaðarlausu. Barnahús sinnir
börnum frá þriggja og hálfs árs
aldri, eða yngri ef ástæða er til,
til átján ára. - ve
Taka könnunarviðtöl
og sinna meðferð
Meðferð barna og unglinga sem sætt hafa kynferðisofbeldi er veigamesti þátturinn í
starfi Barnahúss. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Annar í Páskum
13. apríl
Páskadagur
12. apríl
Laugardagur
11. apríl
Föstud. langi
10. apríl
Skírdagur
9. apríl
ÁRBÆJARLAUG
BREIÐHOLTSLAUG
GRAFARVOGSLAUG
KLÉBERGSLAUG
LAUGARDALSLAUG
SUNDHÖLLIN
VESTURBÆJARLAUG
kl. 10-18 kl. 10-18 kl. 08-20.30 kl. 10-18 kl. 10-18
kl. 10-18 Lokað kl. 08-20 Lokað kl. 10-18
kl. 10-18 Lokað kl. 08-20.30 Lokað kl. 10-18
Lokað Lokað kl. 11-15 Lokað kl. 11-17
kl. 8-22 kl. 10-18 kl. 08-20 kl. 10-18 kl. 08-22
kl. 10-18 Lokað kl. 8-19 Lokað kl. 10-18
kl. 10-18 Lokað kl. 08-20 Lokað kl. 10-18