Fréttablaðið - 03.04.2009, Page 8

Fréttablaðið - 03.04.2009, Page 8
8 3. apríl 2009 FÖSTUDAGUR 1 Hvað heitir eiginkona forsætis ráðherra Bretlands? 2 Hver veiddi risaurriða í Varmá á fyrsta veiðidegi ársins í fyrradag? 3 Á hverju vill Ólafur F. Magnús son að Dagur B. Egg- ertsson biðjist afsökunar? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 46 STJÓRNMÁL Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, geldur varhug við frum- varpi fjármálaráðherra um stofnun eigna- umsýslufélags. Því er ætlað að taka yfir rekstur „þjóðhags- lega mikilvægra“ fyrirtækja sem lent hafa í miklum rekstrarerfiðleikum og eru að hluta eða öllu leyti komin í eigu fjármálastofnana. Bjarni segir að stjórnvöldum séu veittar of víðtækar heimildir til að meta hvaða fyrir- tæki teljist þjóðhagslega mikilvæg. Í frumvarpinu eru þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki sögð sinna mikilvægum almanna- eða öryggishagsmunum og að stöðvun þeirra myndi valda verulegri röskun í þjóðfélaginu öllu. Þá er kveðið á um að Seðlabankinn og aðilar vinnumarkaðarins veiti umsögn um þau viðmið sem leggja skuli til grundvallar því að fyrirtæki geti talist þjóðhagslega mikilvæg í skilningi laganna. Bjarni segir þingsins en ekki annarra að ákvarða slíka skilgreiningu. „Það sem maður óttast fyrst og fremst er að það er lífsskoðun vinstrimanna að mörg fyrirtæki séu betur komin undir hatti stjórn- valda heldur en í höndum einstaklinganna. Þegar svona hugmyndir með svona opnar skilgreiningar koma fram þá er ástæða til að hafa allan varann á.“ Þó að Bjarni sé til viðræðu um breytingu á frumvarpinu er hann þeirrar skoðunar að bankarnir geti annast rekstur fyrirtækja í vanda og endurskipulagningu þeirra. Ekki hafi komið fram efnisleg rök fyrir hinu gagnstæða. - bþs Formaður Sjálfstæðisflokksins hafnar óbreyttu frumvarpi um eignaumsýslufélag: Óttast áform um ríkisumsjá fyrirtækja BJARNI BENEDIKTSSON Kveðst óttast þá lífsskoðun vinstrimanna að fyrirtæki séu betur komin hjá hinu opinbera en einstaklingum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON REYKJAVÍK Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi segir óþarfa af Ólafi F. Magnús- syni að viðhafa stóryrði og taka gagnrýni á kaup á Lauga- vegi 4 til 6 til sín eingöngu og vísar til viðtals við Ólaf í blað- inu í gær. „Ég var ekki að saka Ólaf einan um peningaeyðslu, heldur Sjálfstæðisflokkinn fyrir að kaupa Ólaf til fylgilags við sig,“ segir Dagur. Hann hafi viljað draga fram að nú sé búið að eyða átta hundrað milljónum í hús sem hefðu annars verið friðuð.Um leið sé verið að skerða mjög mikil- væga þjónustu í borginni. „Ég var einfaldlega að segja að sjálfstæðismenn hafa reynst einstaklega óábyrgðir í meðferð peninga borgarbúa á þessu kjör- tímabili, en hann ákvað að taka það til sín.“ - kóþ Dagur svarar fulltrúa F-lista: Óþarfa stóryrði hjá Ólafi F. EFNAHAGSMÁL Átta hæfir umsækj- endur sóttu um stöðu seðlabanka- stjóra. Þeirra á meðal eru Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabanka- stjóri, Þorvaldur Gylfason hag- fræðingur og Ásgeir Jónsson, for- stöðumaður hjá Kaupþingi. Aðrir sem sóttu um voru hag- fræðingarnir Jóhann Rúnar Björgvinsson, Már Guðmunds- son, Rannveig Sigurðardóttir, Tryggvi Pálsson og Yngvi Örn Kristinsson. Sextán sóttu um stöðu aðstoðar- seðlabankastjóra. Fimm af þeim sóttu einnig um stöðu seðla- bankastjóra. Skipað verður í stöð- urnar í maí. - bj Sóttu um í Seðlabankanum: Skipa banka- stjóra í maí DAGUR B. EGGERTSSON EFNAHAGSMÁL Ekki hefur náðst samkomulag milli bankanna og þeirra sem áttu framvirka gjald- eyrissamninga fyrir fall fjár- málakerfisins. Deilt er um á hvaða gengi samningarnir verða gerðir upp og ljóst er að það getur munað tugum milljarða hvert við- miðunargengið verður. Um fimmtán lífeyrissjóðir voru með fram- virka gjaldeyris- s a m n i nga í öllum þremur bönkunum og við fall bank- anna voru þeir samningar nei- kvæðir um sem svaraði 70 millj- örðum króna. Á móti kemur áttu sjóðirnir skuldabréf á bankana upp á rétt rúmlega 100 milljarða króna. Ekki er sjálfgefið að lífeyris- sjóðir eigi bréf í sömu bönkum og gjaldeyrissamningarnir eru í og Arnar Sigurmundsson, stjórn- armaður í Landssamtökum líf- eyrissjóða, segir að líka sé hægt að skuldajafna um 40 til 50 pró- sent af skuldabréfunum gegn samningunum. Sjóðirnir myndu samkvæmt þessu skulda bönkun- um um 20 til 30 milljarða vegna samninganna, en eiga 50 til 60 inni hjá þeim í skuldabréfum, sé litið heilt yfir, sem séu kröfur í þrotabú. Þá er hins vegar gert ráð fyrir að framvirku samningarnir séu gerðir upp á genginu sem var þegar bankarnir féllu, en á það hafa bankarnir ekki fallist. Arnar segir lögfræðiálit styðja kröf- una. „Það er orðinn víðtækur skiln- ingur á því að þegar bankarnir féllu voru þeir ófærir um að sinna þessu. Þær viðræður sem í gangi eru hafa beinst að því að ná lend- ingu sem tæki mið af þeirri stað- reynd.“ Arnar segir að ef gjald- eyrissamningarnir hefðu farið í nýju bankana, líkt og ætlað var, hefði vandamálið ekki komið upp. Ákveðið hafi þó verið að skilja þá eftir hjá skilanefndunum. Hrafn Magnússon, formaður Landssamtakanna, segir afnám banns um málsókn gegn fjár- málafyrirtækjum ekki breyta miklu. Gert sé ráð fyrir að það sé bankanna að sækja í málinu, en reynt sé að ná samningum um það og sáttatillaga lífeyrissjóðanna gangi út á gengisvísitöluna 175. Hjá sjávarútvegsfyrirtækjum er neikvæð staða á samningunum um 17 milljarðar og heldur minna hjá byggingarfyrirtækjum. Fjárfestingarfyrirtækið Kjalar hefur krafist þess að samningar þeirra verði gerðir upp á gengi Evrópska seðlabankans í október, nær tvöföldu gengi hins íslenska. Kristinn Hallgrímsson lögmaður segir fyrirtækið munu hefja mál- sókn um leið og færi gefst. kolbeinn@frettabladid.is Engin niðurstaða um gjaldeyrissamninga Ekki hefur náðst samkomulag um framvirka gjaldeyrissamninga. Lífeyrissjóðir hafa lagt fram sáttatilboð. Fyrir þingi liggur frumvarp um afnám lögsóknar- banns gegn fjármálastofnunum. Kjalar hyggur á málsókn um leið og færi gefst. FULLTRÚAR LÍFEYRISSJÓÐANNA Arnar Sigurmundsson og Hrafn Magnússon funda með fjármálaráðherra í febrúar, ásamt öðrum fulltrúum lífeyrissjóðanna. Samningar standa yfir um hvaða gengi ráði uppgjöri framvirkra gjaldeyrissamninga. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR KRISTINN HALLGRÍMSSON LÖGREGLAN „Ég er smeykur um að við séum ekki búin að sjá fyrir endann á þessu,“ segir Gísli Jökull Gíslason, ritstjóri Lögreglublaðs- ins, um mótmæli á Íslandi. Með vaxandi atvinnuleysi komi ef til vill nýr hópur til mótmæla, örvæntingarfullt fólk og reitt. Mótmæli þess geti orðið hættu- legri en þegar mótmælin voru annars vegar pólitísk og hins vegar með ofbeldismönnum. „Hvorki aðgerðasinnar né ofbeldismennirnir höfðu misst eigur sínar þegar þeir mót- mæltu og höfðu því kannski ekki mikla ástæðu til að vera reiðir. En atvinnulaust fólk, sem getur kannski ekki staðið undir afborg- unum eða séð fjölskyldu sinni farborða, það gæti verið hættu- legt,“ segir Gísli. - kóþ Lögreglumaður um horfurnar: Óttast mót- mæli hjá at- vinnulausum MÓTMÆLI Ritstjóri Lögreglublaðsins óttast frekari mótmæli. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Þyrla hrapaði Tíu manns eru taldir af eftir að þyrla hrapaði í Norðursjó síðdegis í gær. Björgunarlið leitar enn að sex farþegum. Þyrlan var af gerðinni Super Puma og var á leið í land frá olíuborpalli þegar hún hrapaði um 56 kílómetrum austan við Skotland. Minnst sextán manns voru um borð. NORÐURSJÓR VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.