Fréttablaðið - 03.04.2009, Síða 38
3. APRÍL 2009 FÖSTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● blátt áfram
„Stígamót eru fyrstu formlegu samtökin á Íslandi sem takast á
við það vandamál sem kynferðisofbeldi er, og hafa boðið upp á
ráðgjafar- og upplýsingaþjónustu í tæp tuttugu ár,“ segir Karen
Linda Eiríksdóttir hjá Stígamótum. Þar er boðið upp á einstakl-
ingsráðgjöf, ráðgjöf fyrir pör og aðstandendur og sjálfshjálpar-
hópa.
„Einnig höfum við boðið upp á fræðslu til framhaldsskóla, fé-
lagasamtaka og stofnana en hugmyndafræði Stígamóta er skil-
greind sem hjálp til sjálfshjálpar og markast öll starfsemi af
þeirri sýn.“
Stígamót voru stofnuð 8. mars árið 1990 á Alþjóðlegum bar-
áttudegi kvenna, eftir að íslensk kvennasamtök og félög tileink-
uðu daginn baráttunni gegn kynferðisofbeldi á Íslandi árið áður.
Starfsemi Stígamóta hefur vaxið jafnt og þétt og segir Karen að
meðal annars hafi þjónustan við landsbyggðina verið aukin síð-
ustu ár gegnum verkefnið Stígamót á staðinn. Einnig hafa sam-
tökin lagt aukna áherslu á mansalsmál og eru í samstarfi við
sambærileg samtök bæði á erlendum og innlendum vettvangi.
Blátt áfram eru sjálfstæð félagasamtök sem stofnuð voru árið
2004 með það að markmiði að efla forvarnir gegn kynferðislegu
ofbeldi á börnum á Íslandi. Karen segir mikilvægt að vekja at-
hygli á kynferðisofbeldi og stuðla að opinni umræðu um þessi mál.
„Við starfskonur Stígamóta glöddumst því mjög þegar Blátt
áfram steig fram á sviðið og lagði áherslu á forvarnir enda
mikilvægt að fleiri raddir veki athygli á málaflokknum.“ - rat
Mikilvægt að stuðla
að opinni umræðu
Karen Linda Eiríksdóttir hjá Stígamótum segir mikilvægt að fleiri raddir veki
athygli á kynferðisofbeldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Börn og umhverfi
Námskeið fyrir ungmenni á 12. aldursári og eldri. Kennsla skiptist
á 4 kvöld og fer fram í húsnæði Reykjavíkurdeildar Laugavegi 120.
5. hæð, kl. 17-20.
Á námskeiðinu er farið í ýmsa þætti sem varða umgengni og framkomu
við börn. Rætt er um árangursrík samskipti, aga, umönnun og hollar
lífsvenjur, leiki og leikföng. Lögð er áhersla á umfjöllun um slysavarnir
og algengar slysabætur í umhverfinu ásamt ítarlegri kennslu í skyndi-
hjálp. Að auki fá þátttakendur innsýn í sögu og starf Rauða krossins.
Næstu námskeið:
Námskeið 1: 29. - 30. apríl og 4. - 5. maí
Námskeið 2: 6. - 7. og 11. - 12. maí
Námskeið 3: 13. - 14. og 18. - 19. maí
Námskeið 4: 20. - 22. og 25. - 26. maí
Námskeið 5: 27. - 28. maí og 1. - 2. júní
Námskeið 6: 3. - 4. og 8. - 9. júlí
Námskeiðsgjald er kr. 7500. Innifalið: Námsgögn, hressing og skyndihjálpar-
útbúnaður. Leiðbeinendur eru leikskólakennarar og hjúkrunarfræðingar.
Þátttakendur fá staðfestingarskírteini að námskeiði loknu.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 545 0400 og ernal@redcross.is
eða á heimasíðu okkar www.raudikrossinn.is/reykjavik
a
j ní
Fullt
Fullt
0408
Forvarnaverkefnið Blátt áfram
er fimm ára. Formaður þess,
Sigríður Björnsdóttir, er ánægð
með þann árangur sem þegar
hefur náðst en vill gera enn
betur.
„Apríl er alheimsforvarnamánuð-
ur gegn ofbeldi og því vildum við
taka þátt með öðrum samtökum í
heiminum til að vekja fólk til um-
hugsunar um ofbeldi og hvernig
megi varast það,“ segir Sigríður
Björnsdóttir, formaður forvarna-
verkefnisins Blátt áfram sem hún
stofnaði fyrir fimm árum með
systur sinni Svövu. „Á þessum
tíma höfum við aflað okkur ágætis
þekkingu á þessum málaflokki, við
sjáum þörfina á fræðslu og vitum
hvert við viljum stefna,“ segir Sig-
ríður.
Á þessum árum hefur henni
hins vegar komið á óvart hversu
lítil þekking er í raun í samfélag-
inu á kynferðislegu ofbeldi gegn
börnum, sérstaklega í þeim starfs-
stéttum sem starfa með börnum.
Eitt markmiða samtakanna
Blátt áfram er að auka fræðslu
fullorðinna og hefur það verið gert
með námskeiðum undir yfirheitinu
Verndarar barna. „Sem betur fer
er fólk opið fyrir því að fræðast en
oft á tíðum veldur óttinn við mál-
efnið því að fólk lokar augunum
og vill ekkert vita,“ segir Sigríð-
ur, sem vill nota jákvæða fræðslu
og kenna fólki leiðir til að koma í
veg fyrir ofbeldi.
Byrjað var að halda námskeið-
in formlega í september í fyrra.
Síðan hafa hátt í fjögur hundruð
manns sótt þau. „Við höfum það
markmið að fræða fimm prósent
fullorðinna í hverju bæjarfélagi og
höfum þegar náð því markmiði á
Vestfjörðum,“ upplýsir Sigríður og
heldur áfram. „Við settum okkur
háleit markmið sem við héldum í
fyrstu að væru of metnaðarfull en
áhuginn er meiri en við þorðum
að vona og það heldur okkur gang-
andi,“ segir Sigríður og bætir við
að hún hafi heyrt af fólki og ungl-
ingum sem hafi fengið fræðslu
hjá Blátt áfram og í framhaldinu
brugðist rétt við og komið þannig
í veg fyrir ofbeldi. „Það er stærsti
sigurinn,“ segir Sigríður en bætir
við að enginn hægðarleikur sé að
halda úti starfi á borð við það sem
unnið er á vegum Blátt áfram.
„Við værum ekki búin að vera
starfandi í svona langan tíma ef
einstaklingar og bæjarfélög hefðu
ekki stutt jafn dyggilega við bakið
á okkur og raun ber vitni,“ segir
Sigríður þakklát.
„Við þurfum þó einnig stöðugt
að minna á okkur,“ tekur Sigríður
fram en markmið Blátt áfram um
þessar mundir er að ná til kenn-
ara í skólum í Reykjavík. „Það
hefur gengið ágætlega enda þarf
oft ekki nema einn áhugasaman
kennara til að auka áhuga allra
hinna á aukinni fræðslu til kenn-
ara, lífsleiknifræðslu fyrir ungl-
ingana og brúðuleikhúsi fyrir
börnin,“ útskýrir Sigríður.
Næst á dagskrá er að fræða
starfsfólk sem vinnur með fötluð-
um börnum en Blátt áfram fékk
styrk frá félagsmálaráðuneytinu
til þess. „Þetta ætlum við að gera
á öllu landinu en fötluð börn eru
í helmingi meiri hættu á að verða
fyrir kynferðislegu ofbeldi,“ segir
Sigríður, sem sjálf reynir að afla
sér aukinnar fræðslu með því að
fara á ráðstefnur erlendis auk
þess sem Blátt áfram er í sam-
starfi við Háskólann í Reykjavík.
Þar fylgjast þau með því sem er
að gerast í rannsóknum á Íslandi
bæði varðandi lýðheilsu og lög-
fræðilegu hliðina á kynferðis-
legu ofbeldi.
En hvert er langtímamark-
mið Blátt áfram? „Að verða at-
vinnulaus og óþörf,“ segir Sig-
ríður glettin en sér þó ekki fram
á það í nánustu framtíð. „Meðan
við sjáum þörfina og fáum styrki
til að að halda áfram okkar starfi
þá gerum við það,“ segir hún og
bendir fólki á heimasíðu verkefn-
isins www.blattafram.is - sg
Höfum háleit markmið
Sigríður Björnsdóttir, formaður Blátt áfram, segir langtímamarkmið sitt að fræða
það marga á landinu að hún sjálf verði óþörf. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Er barniÐ Þitt í Öruggum hondum?
ste
lp
an
á
m
yn
di
nn
i e
r m
ód
el
.