Fréttablaðið - 03.04.2009, Síða 48
8 föstudagur 3. apríl
✽ Ilmandi gott
útlit LÉTTUR FARÐI SEM ENDIST ALLAN DAGINN Doublewear Light stay-in-place er léttari útgáfan af söluhæsta fljótandi farða Estée Lauder til þessa. Hann er einstaklega léttur og gefur náttúrulega, örþunna og mjúka áferð
með góðum raka án þess að þú glansir. Farðinn endist í allt að fimmtán tíma án
þess að dofna eða smitast í föt svo þú getur haldið áhyggjulaus út í daginn.
É g lagði aðaláherslu á unga og upprennandi hönnuði
svo sem Eygló, Dead, Munda,
Helicopter og Bóas Kristjánsson,“
segir Charlie Strand ljósmynd-
ari um fyrirlestur sinn í Norræna
húsinu í síðustu viku. Rúmlega
sextíu manns mættu á fyrirlestur
Charlies og hljómsveitirnar Ultra
Mega Technobandið Stefán og
Sykur spiluðu fyrir gesti kvölds-
ins, en Charlie gaf út bókina
Project: Iceland síðastliðið sumar.
Project: Iceland er ljósmyndabók
um frumkvöðla í íslensku tónlist-
ar- og menningarlífi. Hann er nú
með aðra bók í smíðum sem fjall-
ar um íslenska tísku.
„Í næstu bók fer ég aftur til
uppruna míns sem stílista og
fjalla um framúrstefnulega hönn-
un. Ég sýndi þrjár myndir úr nýju
bókinni af hönnun Örnu Sigrún-
ar Haraldsdóttur og tvær fyrir-
sætur sýndu fatnað hennar. Líkt
og Project: Iceland hefur bók sem
þessi aldrei verið gerð á Íslandi
áður og ég stefni á að gefa hana
út fyrir næstu jól,“ bætir hann við.
- ag
Charlie Strand hélt fyrirlestur í Norræna húsinu:
KYNNIR VÆNTAN-
LEGA TÍSKUBÓK
Brosmildar Ólöf Elín Gunnlaugsdóttir og
Unnur Ýrr Helgadóttir voru brosmildar í
Norræna húsinu á þriðjudagskvöldið.
Fróðlegur fyrirlestur Kristjana Guð-
brandsdóttir og Ilmur Dögg Gísladóttir
mættu á fyrirlestur Charlie Strand.
Góð stemning Sólveig Johnsen og
Heiðdís Rós voru meðal gesta í Norræna
húsinu.
Ný bók kynnt Charlie Strand kynnti á fyrirlestri sínum meðal annars væntanlega bók
sína um íslenska hönnun.
Framúrstefnuleg hönnun Tvær fyrirsætur sýndu hönnun Örnu Sigrúnar
Haraldsdóttur á þriðjudagskvöldið.
Fyrir þá sem er illa við að nota svitalyktareyða
sem margir hverjir eru fullir af ilm- og rotvarnarefn-
um, er kominn lífrænn lyktareyðir frá Origins, sem
hentar jafnt konum sem körlum og er vottaður 100
prósent lífrænn af USDA organic. Hann inniheldur
meðal annars lífrænt edik sem er þekkt fyrir hreins-
andi eiginleika sína, en ilmurinn samanstendur af olíum
úr negul, sítrónum, Ylang Ylang, lavender, mandarínu,
pathouli, pálmarós og engifer. White Willow Bark og lav-
ender alkóhól vernda hreinleika vörunnar og halda svita-
lykt í skefjum.
NÁTTÚRULEGUR
SVITALYKTAREYÐIR
KVENLEGT LÁTLEYSI
Femme l‘eau fraîche er létt út-
gáfa af hinum vinsæla Femme-
ilmi frá Boss. Ilmurinn er bæði
kvenlegur og fíngerður með
frísklegum keim með mildum
hjartatónum hvítra blóma. Topp-
tónninn er hrífandi, ávaxta-
kennd blanda
tangerínu og
sólberja, en
grunntóninn
mynda krem-
kenndir tónar
viðar og rafs.
Femme l‘eau
fraîche er kjör-
inn ilmur fyrir
hin ýmsu tæki-
færi og veitir
áreynslulausan
þokka á komandi
sumardögum.
BLÓMLEGUR VORBOÐI
Daisy frá Marc Jacobs
er sannkallaður vorboði,
umvafinn baldursbrám í
fallegu glasi. Ilmurinn er
bæði ferskur og kvenleg-
ur án þess að vera of fág-
aður. Hjartatónar fjólu
fléttast saman við topp-
tóna villtra jarðarberja og
moskus- og vanillu-grunntón.
Daisy minnir óneitanlega á sum-
arið, sólina og lyktina af nýút-
sprungnum blómum; ilmur sem
hentar konum á öllum aldri.
FERSKT OG SUMARLEGT
Ocean Lounge er nýi
sumarilmurinn frá
Escada, bæði
ferskur og gríp-
andi. Ilmurinn
fangar full-
komlega blæ
sumarfrísins
þar sem sólin
er að setjast
við ströndina,
drykkirnir
flæða og tónlist-
in dunar. Ocean
Lounge saman-
stendur af
ríkulegum topptón-
um frískandi sumar-
aldina, miðtónar
minna á blóm og
grunntónarnir eru
frá rafi, tonka-
baunum, vanillu
og tekki. Ilmur
sem klikkar
ekki í sólinni í
sumar.
Spennandi
sumarilmur