Fréttablaðið - 03.04.2009, Side 60
28 3. apríl 2009 FÖSTUDAGUR
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Unnur Steindórsdóttir
Vatnskoti 2, Þykkvabæ,
sem lést miðvikudaginn 25. mars, verður jarðsungin
frá Þykkvabæjarkirkju, laugardaginn 4. apríl, klukkan
14.00. Þeir sem vilja minnast hennar er bent á orgel-
sjóð Þykkvabæjarkirkju.
Gunnar Guðmundsson,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Ragnar Skjóldal
bifreiðastjóri, Helgamagrastræti 6,
Akureyri,
lést á Kristnesspítala miðvikudaginn 1. apríl.
Kristín S. Ragnarsdóttir Jakob Jóhannesson
Ragnar S. Ragnarsson Inga Úlfsdóttir
barnabörn og langafastrákarnir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Skúli Magnússon
flugstjóri, Strikinu 4, Garðabæ,
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 31.
mars. Útförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudag-
inn 14. apríl kl. 13.00.
Jean Magnússon
Díana E. Skúladóttir Louis Hoogedeure
Margrét L. Skúladóttir Einar Einarsson
Skúli K. Skúlason Sigurlaug S. Einarsdóttir
Stefán M. Skúlason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sambýlismaður minn, sonur,
bróðir, mágur og frændi,
Sigurbjörn Ófeigur
Hallgrímsson
húsasmíðameistari, Hólagötu 9
Vestmannaeyjum,
lést föstudaginn 27. mars sl. á gjörgæsludeild
Landspítalans. Útför hans fer fram frá Landakirkju í
Vestmannaeyjum þann 7. apríl nk. kl. 13.00.
Hafdís Óskarsdóttir
Hallgrímur Óskarsson Sólrún Sigurbjörnsdóttir
Óðinn Þór Hallgrímsson Helga Sigurðardóttir
Fanney Ósk Hallgrímsdóttir Guðbjörn Guðmundsson
Ægir Óskar Hallgrímsson Berglind Magnúsdóttir
og systkinabörn.
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
Jónfríðar Gunnarsdóttur,
Sóltúni 2, áður til heimilis að Ferjubakka 4.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hjúkrunarheimilisins
Sóltúns fyrir góða umönnun og alúðlegt viðmót.
Ólöf Björg Einarsdóttir Grétar Hartmannsson
Gunnur Inga Einarsdóttir
Helgi Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegs eiginmans míns, föður,
tengdaföður og afa,
Inga Sævars Oddssonar
Asparási 1, Garðabæ.
Sérstakar þakkir færum við göngudeild hjartabilunar
og hjartadeild 14G á Landspítalanum við Hringbraut.
Þuríður Antonsdóttir
Hrafnhildur Ingadóttir Barði Ágústsson
Oddur Ingason
Gunnar Ingason Svanhildur Kristinsdóttir
Ómar Ingason Aníta Berglind Einarsdóttir
og barnabörn.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu samúð,
vináttu og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Gísla Óskarssonar
vélstjóra, Sóleyjargötu 3, Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks
Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja fyrir einstakan
kærleika og hlýju í veikindum hans. Guð blessi ykkur
öll.
Kristín Haraldsdóttir
Guðný Svava Gísladóttir Sigurður Einarsson
Sigrún Olga Gísladóttir
Styrmir Gíslason Hólmfríður Ása Sigurpálsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
sonur og bróðir,
Ólafur Jósef Sigurjónsson,
Hraunbæ 174, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Hringbraut miðvikudaginn
1. apríl. Útförin fer fram frá Seljakirkju miðvikudaginn
8. apríl kl. 11.00.
Jessica Sigurjónsson
Jósef Natan Ólafsson
Hjördís Sigurðardóttir
Björgvin Konráðsson Sigurbjörg Árnadóttir
Jónína Konráðsdóttir Gunnar Gunnarsson
Konný B. Leifsdóttir Grétar Einarsson
Hinrik Sigurjónsdóttir
Friðrik Sigurjónsson Þuríður Gunnarsdóttir.
„Ég ætla ekki að segja að ég sé spenntur fyrir þessu en
málið snýst um að vera ungur í anda og ég tel mig vera það,“
segir Heimir Guðjónsson, þjálfari meistaradeildarliðs FH í
knattspyrnu, glaðlega þegar hann er spurður hvernig fer-
tugsafmælið fari í hann. Hann er í Kaplakrika þegar við-
talið fer fram, strákarnir streyma að enda æfing að hefjast
og í dag eru hlaup og lyftingar á dagskrá. „Það verður að
reyna að koma þessum mönnum í form fyrir sumarið,“ segir
Heimir ákveðinn en er samt beðinn að skauta létt yfir ævi-
ferilinn til þessa, í tilefni af tímamótunum.
„Mínar æskustöðvar eru í Vesturbænum. Ég gekk í Mela-
skóla og Hagaskóla, byrjaði svo ungur að æfa fótbolta með
KR og á ekkert nema góðar minningar frá því.“
-Þykir ekki toppurinn að vera Vesturbæingur og KR-
ingur?
„Það var það að minnsta kosti þá, hvernig sem það er núna.
Ýmsir gefa sig út fyrir að vera Vesturbæingar en færri vita
að Vesturbærinn er í raun bara innan ramma Hofsvallagöt-
unnar, Suðurgötunnar, Hringbrautarinnar og Ægisíðunnar.“
Þegar hann sér að blaðamaður verður efins á svipinn bætir
hann við hlæjandi: „Það er þannig í mínum huga, sjáðu til,
svo geta aðrir haft einhverjar meiningar um það.“
-Var sem sagt rígur milli hverfa í Vesturbænum?
„Já, já, mikill rígur. Þar voru haldin hverfamót í fótbolta
þótt innan KR væri.“
-Varstu snemma góður?
„Það verða aðrir að dæma um en ég fór í gegnum yngri
flokkana í KR með góðum árgangi. Þar voru góðir leikmenn
eins og Rúnar Kristinsson, Þormóður Egilsson, Hilmar
Björnsson og fleiri og við vorum með mjög sigursælt lið í
gegnum yngri flokkana.“
-Þú hefur samt leitað á önnur mið?
„Já, ég spilaði uppi á Skaga ´98 og ´99 þegar Logi Ólafsson
var með ÍA og kom með honum til FH árið 2000. Ég sé ekki
eftir því í dag. Þá var FH í næstefstu deild en hefur verið
í uppsveiflu síðan. Ég var fyrirliði þegar FH varð Íslands-
meistari 2004 og varð svo aðstoðarþjálfari hjá Óla Jóhanns
og tók við liðinu þegar hann fór til landsliðsins. Ég tók við
góðu búi og það gekk vel hjá okkur í fyrra þegar FH varð Ís-
landsmeistari á dramatískan hátt í lokaumferðinni.“
-Fótboltinn hefur sem sagt alltaf verið þínar ær og kýr.
„Hann hefur verið stærsta áhugamálið fyrir utan fjöl-
skylduna. Konan mín er Áróra Hrönn Skúladóttir, kennari
við Salaskóla, og við eigum samanlagt fjóra stráka. Auðvit-
að leggur maður rækt við að ala börnin sín vel upp og reyna
að búa til góða einstaklinga. Við erum komin með innanhúss-
lið og það er jákvætt!“
-Ætlarðu að halda upp á daginn?
„Nei, ég hef ekki tíma þessa stundina. Það er aldrei að vita
nema maður haldi einhverja veislu þegar nær dregur sumri
en ég ætla ekki að vera með miklar yfirlýsingar um það, að
minnsta kosti ekki í blöðunum!“
gun@frettabladid.is
HEIMIR GUÐJÓNSON: FERTUGUR Í DAG
Tel mig vera
ungan í anda
HEIMIR GUÐJÓNSSON ÞJÁLFARI HJÁ FH Hefur nóg að gera og er sáttur
við lífið og tilveruna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
timamot@frettabladid.is
MARLON BRANDO LEIKARI VAR
FÆDDUR ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1924.
„Ekki setja samasemmerki á
milli upphæðarinnar á launa-
seðlinum þínum og hæfileika
þinna.“
Marlon Brando var bandarískur og
meðal stórstjarna tuttugustu aldar
í leiklist, og var margfaldur Óskars-
verðlaunahafi.
Harry S. Truman
Bandaríkjaforseti skrif-
aði undir Marshall-
aðstoðina þennan dag
árið 1948. Hún var
sett á laggirnar til að
styrkja stríðshrjáðar
þjóðir í Evrópu eftir
seinni heimsstyrjöldina
og styðja og efla efna-
hagslegan uppgang í löndum
álfunnar. Aðstoðin var skipulögð
af bandaríska utanríkisráðuneyt-
inu og átti meðal annars að vera
liður í að auka samvinnu milli
Evrópu og Bandaríkjanna. Hug-
myndasmiðurinn var þáverandi
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
George Marshall, sem sjóðurinn
var kenndur við en
miklar deilur sköpuð-
ust um tilganginn þótt
hann virtist göfugur.
Alls þáðu sextán
þjóðir boð Bandaríkj-
anna um aðstoð, þar á
meðal Íslendingar sem
högnuðust einna mest
á henni ef miðað er
við höfðatölu því uppbygging-
in á Íslandi eftir seinni heims-
styrjöldina var Marshall-aðstoð-
inni að miklu leyti að þakka.
Hún tryggði að hjól atvinnulífs-
ins fóru að snúast, innflutning-
ur og útflutningur hófst að nýju
eftir stríðið og líf fólks fór í fastar
skorður.
ÞETTA GERÐIST: 3. APRÍL 1948
Marshall-aðstoðin veitt
AFMÆLI
EIRÍKUR
GUÐNA-
SON,
fyrrverandi
seðlabanka-
stjóri, er
sextíu og
fjögurra ára
í dag.
RAGNA
RÓBERTS-
DÓTTIR
myndlistar-
kona er
sextíu og
fjögurra ára
í dag.