Fréttablaðið - 03.04.2009, Side 68
36 3. apríl 2009 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> SJÚK Í SKYNDIBITA
Emily Blunt segist vera sjúk í ost-
borgara. Í viðtali við bandaríska dag-
blaðið USA Today segist leikkonan
nú vera í heilsuátaki, en eiga í mesta
basli með að halda sig frá borgur-
unum. Emily, sem er 26 ára, lék ný-
lega í myndinni Sunshine Cleaning
ásamt Amy Adams, en segist fyrst hafa
kynnst frægðinni eftir leik sinni í The
Devil Wears Prada. „Þegar starfsmaður í
Pottery Barn-verslun greip skrækjandi í
höndina á mér áttaði ég mig á að hlut-
irnir hefðu breyst,“ segir Emily.
Antidote er þriðja plata Ebergs, en
á bak við það nafn er Einar Töns-
berg. Síðasta Eberg-plata, Voff,
voff, var frábær poppplata, ein af
bestu plötum ársins 2006 og inni-
hélt smelli á borð við Love Your
Bum og Inside Your Head. Það
sem einkenndi Voff, voff var góðar
lagasmíðar og djarfar og nútíma-
legar útsetningar. Það sama á
við um Antidote þó að á henni sé
ekki gengið jafnlangt í skringi-
legum útsetningum. Í staðinn er
lögð meiri áhersla á að ná flottum
hljómi. Yfirbragðið er fágaðra.
Auk Einars sjálfs, sem semur lög
og texta, forritar, syngur og spilar
á hljóðfæri, koma við sögu nokkr-
ir gestir. Bird (Janie Price) syngur
og spilar á selló eins og á Voff, voff,
Rósa úr Sometime syngur eitt lag,
Nói Steinn, Luke Watson og Arnar
Þór Gíslason spila á trommur og
Barði í Bang Gang semur og vinn-
ur lagið Reykjavík með Einari.
Antidote er á heildina litið fín
poppplata. Það eru mörg góð lög
á henni, m.a. titillagið, hið mjög
svo Air-lega Been Thinking of
You, One Step at a Time, Febru-
ary Sky, Daybreak og Reykjavík.
Þetta er ein af þessum plötum sem
hafa sterkan heildarsvip. Í fyrsta
rennsli finnt manni hann næst-
um því of sterkur og lögin renna
saman, en við frekari hlustun
koma sérkenni hvers lags betur í
ljós. Trausti Júlíusson
Sígilt popp í nú-
tímalegum búningi
TÓNLIST
Antidote
Eberg
★★★★
Eberg fylgir eftir hinni frábæru Voff,
voff með fínni plötu. Nútímaleg
tónlist með sterkar rætur í sígildri
popplagahefð.
Bandaríska alríkislögreglan,
FBI, rannsakar nú netleka á
ókláruðu eintaki hasarmyndar-
innar X-Men Origins: Wolverine.
Myndin verður frumsýnd eftir
mánuð og því eru framleiðendur
hennar sérlega ósáttir við lekann,
sem búið er að skrúfa fyrir.
„Sá sem setti myndina inn á
netið og allir sem munu gera
það í framtíðinni verða sóttir til
saka,“ sagði í yfirlýsingu frá 20th
Century Fox. Í eintakið sem birt-
ist á netinu vantaði tæknibrellur,
tónlist og nokkur atriði.
Hugh Jackman fer með aðal-
hlutverkið í Wolverine, sem er
byggð á einni af þekktustu per-
sónunum í X-Men-myndunum.
Wolverine
lekið á netið
WOLVERINE X-Men Origins: Wolverine
var lekið á netið mánuði fyrir frumsýn-
ingardag.
Sápuóperan Guiding Light, eða
Leiðarljós, hættir göngu sinni
hjá bandarísku sjónvarpsstöð-
inni CBS í haust vegna dvínandi
áhorfs. Leiðarljós, sem hefur
verið sýnt í Ríkissjónvarpinu,
hefur verið lengst allra sápu-
ópera í loftinu, eða í 72 ár sam-
fleytt, og því er um mikil tíma-
mót að ræða.
Á farsælum ferli sínum hafa
þættirnir unnið 69 Emmy-verð-
laun og jafnframt komist í
Heimsmetabók Guinness fyrir
seiglu sína. Þegar þeir ljúka
göngu sinni 18. september munu
rúmlega 15.700 þættir hafa farið
í loftið.
Leiðarljósið
slokknar
Tónlistarmaðurinn Sigurjón Brink spilar á
tvennum tónleikum norðan heiða um helg-
ina ásamt píanóleikaranum Pálma Sigur-
hjartarsyni. Í kvöld verða þeir á Kaffi Amor
á Akureyri og á laugardagskvöld spila þeir
á Mælifelli á Sauðárkróki. Síðustu tónleik-
ar þeirra voru á Hverfisbarnum á fimmtu-
dagskvöld og myndaðist þar fín stemning
eins og svo oft áður.
Sigurjón hefur mestmegnis spilað á
Reykjavíkursvæðinu í gegnum árin en núna
er landsbyggðin að koma sterk inn. „Þetta
hefur færst svolítið í aukana núna. Margir
staðir hugsa þetta svona frekar en að hafa
stór bönd og þarna myndast þessi akkúst-
íska stemning,“ segir hann. „Við lesum sal-
inn og tökum við óskalögum og reynum
að búa til eins mikla stemningu og hægt
er.“ Fyrsta sólóplata Sigurjóns er síðan
væntanleg eftir mánuð með lögum eftir
hann og Guðmund Jónsson úr Sálinni. - fb
Spila fyrir norðan
SIGURJÓN BRINK Tónlistarmaðurin snjalli spilar
norðan heiða um helgina.
Hljómsveitin Bang Gang
spilar í Listasafni Reykja-
víkur í kvöld á tónlistar-
hátíðinni Nokia on Ice.
Sveitin hefur einnig bókað
sig á kvikmyndahátíðina í
Cannes sem verður haldin
í maí.
Tónleikarnir í kvöld verða þeir
fyrstu hjá Bang Gang á árinu en
sveitin var sérlega dugleg í fyrra
þegar hún spilaði á um fjörutíu
tónleikum víðs vegar um Evrópu.
„Þetta verður skemmtilegt. Það er
líka gaman að spila í Listasafninu,
það er skemmtilegur staður,“ segir
Barði Jóhannsson. Með honum á
sviðinu verður sama gengi og ferð-
aðist með honum um Evrópu, þeir
Arnar Guðjónsson og Nói Steinn
úr Leaves, Hrafn Thoroddsen úr
Ensími og bassaleikarinn Stephan
Bertrand, ásamt ljósa- og sjónlista-
manninum Frank Esposito. „Þegar
við héldum útgáfutónleikana í
fyrra komst ljósamaðurinn okkar
ekki með en hann verður með núna
þannig að þetta verður ennþá flott-
ara,“ segir Barði.
21. maí spilar Bang Gang síðan
á Cannes-hátíðinni í Frakklandi
og hefur þar stórt svið út af fyrir
sig við ströndina. „Þetta verð-
ur mjög skemmtilegt því ég hef
aldrei spilað í Cannes. Ég hef oft
spilað í borgunum í kring en aldrei
í Cannes.“ Barði fékk giggið eftir
að skipuleggjandi tónleikanna
hafði samband við höfundarréttar-
fyrirtæki hans Universal og óskaði
eftir kröftum hans. Kvikmyndaá-
hugi Barða lék þar lykilhlutverk
því tónlist hans hefur hljómað í
þó nokkrum bíómyndum í gegnum
tíðina og þótti hann því kjörinn í
verkefnið.
Fleiri spennandi verkefni eru
í gangi hjá Barða, þar á meðal
ný plata sem hann tók upp með
írska tónlistarmanninum Craig
Walker. Lag af henni, Bright
Lights Big City, hljómar einmitt
í nýjustu mynd frönsku leikkon-
unnar Catherine Deneuve, La fille
du RER, sem verður frumsýnd í
næstu viku.
Einnig verða tónleikar sem
dúettinn Lady & Bird, hliðarverk-
efni Barða, hélt með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands gefnir út á geisladiski
í haust á vegum EMI úti um allan
heim. freyr@frettabladid.is
Barði hitar upp fyrir Cannes
SPILA Í LISTASAFNINU Í KVÖLD Barði Jóhannsson ásamt Hrafni Thoroddsen í tónleikaferðinni í fyrra. Þeir félagar verða í sviðsljós-
inu í Listasafni Reykjavíkur í kvöld.
Ný́jan
kaptein
í́ brú́na
Framboðsfundur á Prikinu
hefst kl. 23.00 í kvöld.
Veigar að hætti kapteinsins
Miðasala í síma 555 2222 og á