Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 4
4 4. apríl 2009 LAUGARDAGUR
BETRA START MEÐ
EXIDE-RAFGEYMUM
15%
afsláttur
Upplýsingar í síma 515 1100
Sendið pantanir á pontun@olis.is
Eigum fyrirliggjandi mikið úrval rafgeyma frá Exide, ýmsar
stærðir og gerðir fyrir bíla, báta og önnur tæki. Gæðafram-
leiðsla sem reynst hefur afar vel við íslenskar aðstæður.
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
20°
15°
16°
22°
15°
15°
20°
18°
15°
15°
20°
14°
15°
28°
13°
17°
17°
11°
Á MORGUN
Víðast 3-8 m/s.
MÁNUDAGUR
8-13 m/s á Vest-
fjörðum, annars 5-10 m/s.
ÁGÆTAR
HELGARHORFUR
Þessa helgina horfi r
vel með veður. Vind-
ur hægur af suðri í
dag og milt. Einhver
úrkoma kann að
falla sunnan til og
vestan en allt bendir
til að það verði
lítilsháttar og dragi
úr úrkomulíkum
eftir því sem líður á
daginn. Á sunnudag
verður svipað veður
nema að þá snýst
hann í norðaustan á
Vestfjörðum og við
það kólnar.
6
6
5
6
8
6
5
6
3
4
2
6
8
6
5
5
5
5
4
6
5
5
6
6
6
4
2
8
7
4-1
6
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
DÓMSMÁL Olíufélögin þrjú, Ker,
Skeljungur og Olíuverslun Íslands,
voru í gær dæmd til að greiða
Vestmannaeyja-
bæ tíu milljónir
króna í skaða-
bætur vegna
verðsamráðs við
útboð bæjarins
í olíukaup árið
1997. „Þetta er
fyrst og fremst
viðurkenning á
því hversu frek-
lega var brotið gegn okkur,“ segir
Elliði Vignisson bæjarstjóri.
Bærinn fór fram á tæplega
sautján milljónir króna í bætur
en fékk sem áður segir aðeins tíu,
með vöxtum og dráttarvöxtum
frá febrúar 2004. „Þetta er heldur
lægri upphæð en skaði okkar var,“
segir Elliði. „En upphæðin er svo
sem ekki stóra málið í þessu. Mór-
alska hliðin finnst mér ekki skipta
minna máli en þessar krónur. “
Jafnframt segir í dómnum að
telja megi að tjón Vestmannaeyja-
bæjar af ótvíræðu samráðinu hafi
í raun verið meira en hagnaður
olíufélaganna af því.
Elliði segir niðurstöðuna traust-
vekjandi. „Í þessum væringum í
viðskiptalífinu eftir bankahrunið
er líka gott að sjá að það er hægt
að treysta dómskerfinu til að tak-
ast á við mál af þessu tagi,“ segir
hann.
Elliði á fastlega von á því að
málið verði áfrýjað til Hæsta-
réttar. - sh
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmir Vestmannaeyjabæ skaðabætur:
Olíufélögin borgi tíu milljónir
ELLIÐI VIGNISSON
SKAÐABÓTASKYLD Olíufélögin þrjú
höfðu með sér víðtækt samráð um
margra ára skeið eins og samkeppnis-
yfirvöld komust að á sínum tíma.
STJÓRNMÁL L-listi fullveldissinna
hefur hætt við að bjóða fram til
Alþingis í komandi kosningum.
Þetta var ákveðið á fundi hreyf-
ingarinnar í gær.
Fulltrúar listans treysta sér
ekki til að uppfylla skilyrði sem
ólýðræðislegar aðstæður skapa
nýjum framboðum, og nefna í því
samhengi þaulsetu Alþingis, sem
skapi sitjandi þingflokkum óeðli-
legt forskot, fimm prósenta þrösk-
uldinn svokallaða og kröfuna um
126 frambjóðendur í öllum kjör-
dæmum. Enn fremur hafi þeir
átt von á kúvendingu sjálfstæðis-
manna og vinstri grænna í afstöð-
unni til Evrópusambandsins. - sh
Þingframboðum fækkar:
L-listinn hættir
við framboð sitt
BANKAHRUNIÐ Einkahlutafélög í
eigu nokkurra æðstu stjórnenda
Landsbankans fengu lánað til
hlutabréfakaupa í bankanum.
Þetta kemur fram í ársreikningi
bankans frá 2007. Mun minna fé
mun vera um að ræða en Kaup-
þing og Glitnir lánuðu til sinna
starfsmanna, eða rúmlega 100
milljónir króna. Lánin runnu til
framkvæmdastjóra innan bank-
ans, en bankastjórarnir Halldór
J. Kristjánsson og Sigurjón Árna-
son voru ekki í þessum hópi.
Stefán Már Stefánsson, laga-
prófessor við Háskóla Íslands,
telur að stjórnir bankanna
þriggja hafi brotið lög með lán-
veitingum til einkahlutafélaga í
eigu starfsmanna. - shá
Landsbankinn:
Bankastjórar
tóku ekki lán til
hlutabréfakaupa
DÓMSMÁL Lögfræðingurinn Borg-
ar Þór Einarssonar tapaði í gær
máli sem hann höfðaði gegn
Skattstjóran-
um í Reykjavík
vegna árlegrar
framlagningar
álagningarskrár
þar sem upplýs-
ingar um tekju-
skattgreiðslur
hans og annarra
eru til sýnis.
Borgar telur
að þótt kveðið
sé á um það í lögum að leggja skuli
skrána fram á hverju ári gangi það
samt gegn stjórnarskrárákvæðum
um friðhelgi einkalífs. Dómurinn
telur rétt að birting skráarinnar
geti falið í sér skerðingu á frið-
helgi einkalífs, en engu að síður sé
slík skerðing heimil löggjafanum.
Borgar segist munu áfrýja málinu
til Hæstaréttar. - sh
Álagningarskrár áfram birtar:
Skattstjóri sigr-
ar Borgar Þór
BORGAR ÞÓR
EINARSSON
ORKUMÁL Bryndís Hlöðvers dóttir,
aðstoðarrektor Háskólans á Bif-
röst, er nýr stjórnarformaður
Landsvirkjunar. Á aðalfundi
fyrir tækisins, sem fram fór í
gær, var kjörin ný stjórn þess
til eins árs. Bryndís tekur við af
Ingimundi Sigurpálssyni, for-
stjóra Íslandspósts, sem verður
almennur stjórnarmaður.
Aðrir í stjórn Landsvirkjunar
eru Sigurbjörg Gísladóttir, efna-
fræðingur við Umhverfisstofnun,
sem verður varaformaður, Páll
Magnússon, bæjarritari í Kópa-
vogi, og Stefán Arnórsson, próf-
essor við Háskóla Íslands. - shá
Landsvirkjun:
Breytingar
gerðar á stjórn
MENNING „Það ber að hneigja sig
og beygja fyrir fyrirtækjum
sem gleyma ekki mikilvægi
menningar starfsemi á tímum
sem þessum,“ segir Jón Þór Þor-
leifsson, skipuleggjandi tónlistar-
hátíðarinnar Aldrei fór ég suður
sem verður haldin á Ísafirði í
sjötta sinn um næstu helgi.
Dagskrá hátíðarinnar var
kynnt í gær með plokkfisksveislu
á veitingastaðnum Karamba
við Laugaveg. Sérstaklega voru
teknar fram þakkir til aðal-
styrktar aðilanna; Vodafone og
Flugfélags Íslands. - kg
Aldrei fór ég suður:
Kynning með
plokkfisksveislu
KYNNING Gestir gæddu sér á plokkfiski
og öðrum veigum á Karamba í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SJÁVARÚTVEGUR Verulegur ágrein-
ingur er um hina svokölluðu
fyrningarleið milli stjórnarflokk-
anna og útgerðarmanna. „Ég bara
trúi því ekki að þeir muni fara
þessa leið, ég hef meiri trú á skyn-
semi sjávarútvegsráðherra en
svo,“ segir Friðrik J. Arngríms-
son, framkvæmdastjóri Landsam-
bands íslenskra útgerðarmanna
(LÍÚ).
Spurður hvort LÍÚ muni
bregðast við með einhverjum
aðgerðum verði þessi leið farin
segir hann: „Já, við munum örugg-
lega gera það en ég á bara alls
ekki von á því að nokkur ábyrgur
stjórnmálamaður muni láta verða
af þessu.“
Formenn og aðrir fulltrúar
þingflokkanna ræddu hver á eftir
öðrum við stjórnarmenn LÍÚ og
Samtaka fiskvinnslustöðva (SF)
á fundum í gær og gerðu grein
fyrir stefnum sínum í sjávar-
útvegsmálum.
Báðir stjórnarflokkarnir hafa
lýst því yfir að þeir stefni að því
að innkalla aflaheimildirnar en
LÍÚ hefur sagt slíkt ríða sjávar-
útvegsfyrirtækjunum að fullu
og jafnvel svo að bankarnir fylgi
með í fallinu.
„Við höfum ekkert útfært þetta í
smáatriðum hvað varðar upphæð-
ir né annað,“ segir Guðbjartur
Hannesson, þingmaður Sam-
fylkingar og fulltrúi flokksins á
fundinum í gær, aðspurður hvaða
áhrif hann teldi innköllun þessa
hafa á greiðslugetu sjávarútvegs-
fyrirtækjanna. „Enda teljum við
að hvorki ég né einstakir þing-
menn Samfylkingar séum bestu
menn til að úfæra þessi smá-
atriði, það verður að gera það í
sátt við alla aðila, banka og með
samvinnu bestu sérfræðinga. Það
sem við höfum hins vegar gert er
að verða við kröfu fólks um að
reyna að koma á sátt um fiskveiði-
kerfið.“
Einar Valur Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihússins
Gunnvarar í Hnífsdal, sagði í sam-
tali við Fréttablaðið að aðgerðir
sem þessar væru aðför að lands-
byggðinni og að þeim myndi fylgja
miklar bætur til þeirra sem verða
af heimildunum. Guðbjartur úti-
lokar ekki að útgerðarmönnum
verði greiddar bætur við innköll-
un aflaheimildanna. Ekki náðist
í Steingrím J. Sigfússon sjávar-
útvegsráðherra eftir fundinn.
jse@frettabladid.is
LÍÚ mun bregðast
við með aðgerðum
Framkvæmdastjóri LÍÚ trúir ekki að stjórnarflokkarnir láti verða af hugmyndum
sínum um afturköllun aflaheimilda. Geri þeir það grípi útvegsmenn til aðgerða.
Samfylkingin hefur ekki útfært hugmyndir sínar en vill ná sátt um kerfið.
GERT AÐ ÞEIM GULA Sjómenn eru samtaka þegar þeir gera að þeim gula en miklar
deilur eru um það hvernig staðið skuli að því að sækja hann. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
FRIÐRIK J.
ARNGRÍMSSON
GUÐBJARTUR
HANNESSON
GENGIÐ 03.04.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
194,7375
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
118,77 119,33
175,34 176,2
159,52 160,42
21,416 21,542
18,056 18,162
14,734 14,82
1,1885 1,1955
178,1 179,16
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR