Fréttablaðið - 04.04.2009, Síða 12
12 4. apríl 2009 LAUGARDAGUR
HAAG, AP Dómari hjá stríðsglæpa-
dómstólnum í Haag hefur hafn-
að því að falla frá máli er snýr
að þremur króatískum hershöfð-
ingjum sem eru sakaðir um að
hafa myrt, ofsótt og hrakið Serba
úr Króatíu árið 1995.
Hershöfðingjarnir Ante Got-
ovina, Mladen Markac og Ivan
Cermak eru álitnir hetjur í
heimalandi sínu fyrir framgöngu
sína í Júgóslavíustríðinu. Sak-
sóknari við stríðsglæpadómstól-
inn er hins vegar á öndverðum
meiði og segir þá hafa átt þátt í
að myrða og hrekja úr landi þús-
undir Serba.
Verjendur þremenninganna
fóru fram á að málin yrðu látin
niður falla þar sem saksóknari
hefði ekki náð að koma fram með
nægar sannanir á því ári sem
liðið er frá því að réttarhöldin
hófust. - kh
Stríðsglæpadómstóll SÞ:
Ekki fallið frá
máli Króata
FRÍTT PÁSKAEGG!
EFNAHAGSMÁL Hætt hefur verið
við að koma fasteignaveðlánum
hjá bönkum og lífeyrissjóðum í
skjól hjá Íbúðalánasjóði eins og
rætt var um í vetur. Í staðinn er
búið að samræma úrræði fyrir
einstaklinga og heimili í greiðslu-
erfiðleikum vegna fasteignaveð-
lána. Nú á að vera tryggt að allir
lántakendur fasteignaveðlána
njóti sambærilegra úrræða vegna
greiðsluerfiðleika og Íbúðalána-
sjóður veitir.
Sex úrræði verða nú virk fyrir
þá sem eiga í greiðsluerfiðleik-
um vegna fasteignaveðlána hjá
bönkum og lífeyrissjóðum. Þetta
fólk getur samið um dreifingu á
vanskilum í allt að einu og hálfu
ári, tekið verður aukið tillit til
aðstæðna við rýmingu í kjölfar
nauðungarsölu og veittur rým-
ingarfrestur allt að þremur mán-
uðum frá söludegi. Með frystingu
greiðslna vegna sölutregðu verð-
ur komið til móts við þá sem hafa
keypt fasteign en ekki getað selt
fyrri eign, með skuldbreytingu
vanskila verður hægt að bæta
vanskilum við höfuðstól eða með
því að gefa út nýtt skuldabréf. Þá
getur lántakandi fengið frest á
greiðslum í allt að eitt ár í senn
með möguleika á framlengingu
í allt að þremur árum auk þess
sem mögulegt verður að lengja
lánstíma.
Gylfi Magnússon viðskipta-
ráðherra segir að brýnt sé að
taka á vanda heimilanna og telur
að þessi samræmdu úrræði séu
gott og ábyrgt skref í þá átt.
Þetta skref stefni ekki stöðug-
leika eða afkomu lánastofnana í
hættu. „Þótt ég sé almennt ekki
hlynntur samráði fyrirtækja get
ég ekki annað en verið hlynntur
þessu samkomulagi,“ segir hann
og telur líklegt að samkeppnis-
yfirvöld samþykki þetta „óvenju-
lega skref. Ég get ekki ímyndað
mér annað,“ segir hann.
Samkomulag um samræmd
úrræði var undirritað í gær. Gylfi
segir að það nái ekki til myntkörfu-
lána. „Unnið er að hliðstæðu
samkomulagi sem tekur á vanda
þeirra sem eru með myntkörfulán.
Það hefði verið gott að geta undir-
ritað það í dag en ég á von á að það
geti orðið á næstu dögum.“
Guðmundur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs,
segir að samkomulagið komi ekki
í veg fyrir að Íbúðalánasjóður
kaupi skuldabréf af bönkum,
sparisjóðum eða lífeyrissjóðum
ef áhugi er fyrir hendi. Sjóðurinn
hafi til að mynda nýlega keypt
bréf af Sparisjóður Keflavíkur. Sá
möguleiki haldist opinn áfram.
ghs@frettabladid.is
Samræmd úrræði í
greiðsluerfiðleikum
Hætt hefur verið við að koma fasteignaveðlánum í skjól hjá Íbúðalánasjóði. Í
staðinn er búið að samræma úrræði fyrir fólk í greiðsluerfiðleikum. Unnið er
að samræmingu vegna myntkörfulána og verður hún kynnt á næstu dögum.
Í ÞJÓÐMENNINGARHÚSINU Samkomulag um samræmd úrræði vegna fasteigna-
veðlána var undirritað af ráðherrunum Ástu R. Jóhannesdóttur, Gylfa Magnússyni,
Guðmundi Bjarnasyni, framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs, Jónu Björk Guðnadóttur
frá Samtökum fjármálafyrirtækja, Hrafni Magnússyni, framkvæmdastjóra Landssam-
taka lífeyrissjóða, og Hlyni Jónssyni, formanni skilanefndar SPRON. FRÉTTBLAÐIÐ/PJETUR
VILJA NATO Á BÁL SÖGUNNAR Grímu-
klæddir menn kynda bál á götu í Strass-
borg í mótmælaaðgerðum gegn sextíu
ára afmælisleiðtogafundi NATO.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSTÓLAR Enn hefur enginn sótt
um greiðsluaðlögun til Héraðs-
dóms Reykjavíkur á grundvelli
nýrra laga sem Alþingi sam-
þykkti á þriðjudag. Eins og komið
hefur fram telur dómsmála-
ráðuneytið að umsækjendur um
greiðsluaðlögun byggða á þessum
tilteknum lögum verði á bilinu
100 til 200. Er það mat byggt á
fjölda gjaldþrotaúrskurða hjá ein-
staklingum. Þess má geta að þótt
slíkir úrskurðir hafi aðeins verið
198 talsins á árinu 2008 voru svo-
kölluð árangurslaus fjárnám 26
falt fleiri eða alls 5.200. Dóms-
málaráðuneytið segir mat sitt á
væntanlegum fjölda umsækjenda
óbreytt. Þessi lög ná til þeirra
sem eru alls ófærir um að borga
af fasteignalánum og er þeim
skipaður umsjónarmaður. - gar
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Engir enn sótt
um aðlögun
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR
Úrskurð dómara þarf fyrir greiðslu-
aðlögun.
Samíska í hættu
Samísk tungumál eru á lista Samein-
uðu þjóðanna yfir tungumál í hættu,
þar af teljast þrjú samísk tungumál
í alvarlegri hættu. Þetta eru austur-
samíska og lulesamíska. Verst stendur
þó pitesamíska þar sem aðeins eru
eftir tuttugu einstaklingar sem tala
það mál.
SAMALAND