Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.04.2009, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 04.04.2009, Qupperneq 22
22 4. apríl 2009 LAUGARDAGUR UMRÆÐA Fjölmiðlafrumvarpið Ísland hefur orðið fyrir árás – ekki hernaðarárás, heldur fjár- málaárás. Afleiðingarnar eru jafn banvænar þrátt fyrir það. Fleiri verða veikir, lifa í örvæntingu og deyja fyrir aldur fram ef þjóðin neitar ekki að greiða til baka megnið af þeim lánum sem prangað hefur verið inn á hana á síðustu átta árum. En leiðin til bjargar er þyrnum stráð. Vold- ugir skuldunautar á borð við Bandaríkin og Bretland munu siga áróðursmeistur- um sínum, sem og Alþjóðagjaldeyrissjóðn- um og Alþjóðabankanum, á Íslendinga og krefjast þess að þeir verði hnepptir í skuldafangelsi með því að þvinga þá til að greiða skuldir sem þessar þjóðir myndu aldrei greiða sjálfar. Til að komast út úr skuldafeninu verða Íslendingar að átta sig á hvers konar efnahagsástand sjálfseyðingar íslenskir bankamenn hafa skapað. Þrátt fyrir að hafa eytt nærri hálfri öld í að rannsaka þjóðir í erfiðri skuldastöðu hef ég sjaldan eða aldrei séð neitt í líkingu við ástandið á Íslandi. Hér á landi hafa bankarnir steypt sér í svo gríðarlegar skuldir að verðgildi krónunnar mun rýrna til frambúðar og leiða af sér verðbólgu næstu áratugina. Skuldaleikurinn Í gegnum söguna hafa skuldugar þjóðir oftast farið þá leið að losa sig við skuld- irnar með hjálp verðbólgu, þ.e. borgað skuldirnar með „ódýrum peningum“. Ríkis stjórnir prenta peninga og viðhalda fjárlagahalla til þess að hækka verðlag og þannig er meira fjármagn í boði, en vöruframboð óbreytt. Þessi verðbólga og gengis fall minnka skuldabyrðina svo framarlega sem laun og aðrar tekjur hækka samhliða. Ísland hefur snúið þessari lausn á hvolf. Í stað þess að auðvelda hina hefðbundnu skuldaleiðréttingu hefur verið sköpuð paradís lánardrottna og hinni sígildu flóttaleið skuldsettra þjóða lokað. Þjóðin hefur fundið leið til að steypa sér í skuld- ir með hjálp verðbólgunnar, í stað þess að vinna sig úr þeim með henni. Með verð- tryggingu skulda hefur Ísland komið upp einstöku kerfi fyrir banka og aðra lánar- drottna sem stóreykur tekjur þeirra af lánastarfsemi, á kostnað launa og tekna af raunverulegri atvinnustarfsemi. Það er eðlilegt að fólk greiði lán sem tekin hafa verið á heiðarlegan hátt. Venju- lega er gert ráð fyrir að fólk taki lán – og bankar láni – til vænlegra fjárfest- inga, sem skili arði sem síðan er hægt að nýta til að greiða lánið til baka auk vaxta. Þannig hafa bankar starfað um aldaraðir og þannig hefur orðið til ímynd hins var- kára bankamanns sem neitar fjölmörgum þeirra sem sækjast eftir lánum frá honum. Þannig var það að minnsta kosti einu sinni. Fáir sáu fyrir sér að aðgangur að lánsfé yrði svo greiður að þau vanskil sem við sjáum í dag væru óhjákvæmileg. Í Bandaríkjunum er þannig þriðjungur þeirra sem tóku húsnæðislán með nei- kvæða eiginfjárstöðu. Það þýðir að lánin eru orðin hærri en virði eignanna sem þau hvíla á. Lausn nýfrjálshyggjunnar á þessu vandamáli er að selja eignir með gríðar- legum afföllum til alþjóðlegra arðræn- ingja og brjóta niður félagslegt kerfi þjóða, einmitt þegar þær þurfa mest á því að halda. Þetta gildir þó aðeins um litlu þjóðirnar. Þær þjóðir sem hæst hrópa á Íslend- inga að greiða lán spákaupmann- anna eru undanskildar. Þar eru fremstar í flokki þær þjóðir sem eru skuldsettastar, Bandaríkin og Bretland, undir stjórn manna sem dytti aldrei í hug að leggja slíkar byrðar á eigin þegna. Um leið og þessar þjóðir lækka skatta og auka á fjar- lagahallann reyna þær að kúga peninga út úr smærri og veikburða þjóðum, líkt og þær stunduðu gagnvart Þriðjaheimsríkj- um á 9. og 10. áratug síðustu aldar. Fjármálastríðið Á síðustu árum hefur Ísland orðið fyrir árásum alþjóðlegra lánardrottna. Þeir hafa náð að sannfæra hóp lukkuriddara um að leiðin til auðs og hagvaxtar væri í skuldsetningu, en ekki ráðdeild. Bankar og spákaupmenn í innsta hring alþjóðafjár- málakerfisins höfðu það að meginstarfi að selja skuldir og þurftu að búa sig undir það efnahagslega hrun sem sagan sýnir að fylgi óhjákvæmilega í kjölfar slíkrar ofurskuldsetningar. Það gerðu þeir með því að sá fræjum hugmyndafræði sem leit á keðjuverkandi skuldsetningu sem góða hagstjórn. Stefna stjórnvalda í Bandaríkjunum er að koma á stöðugleika og forðast kreppu með því að færa niður skuldir til jafns við lækkandi markaðsverð, en ekki síður að ná greiðslubyrði húsnæðislána niður á viðráðanlegt stig, þ.e. innan við 32% af tekjum heimilanna. Í öðrum löndum er einnig verið að færa niður skuldir svo fólk og fyrirtæki geti staðið í skilum. Á Íslandi er verðtryggingin hins vegar að belgja út skuldir og steypa húseigendum í neikvæða eiginfjárstöðu. Það fyrsta sem Íslendingar verða að gera er að átta sig á að landið hefur orðið fyrir efnahagslegri árás útlendinga, sem studdir voru af íslenskum bankamönnum. Til að hafa sigur reyndu þessir lánar- drottnar að sannfæra þjóðina um að skuldir væru framleiðsluhvetjandi og að hagkerfið efldist, þar sem verðmæti þess ykist – þ.e. eignir yxu umfram skuldir. Þannig var gert ráð fyrir að verð myndi aldrei lækka og við myndum aldrei standa eftir með skuldirnar einar og neikvæða eiginfjárstöðu. Þeir gerðu sitt besta til að sannfæra þjóðina um að það væri slys sem gerðist aðeins einu sinni á öld eða svo, en ekki óhjákvæmileg afleiðing gríðarlegrar skuldsetningar með samsettum vöxtum án tekjuaukningar sem stæði undir vaxta- greiðslum. Þessari hugmyndafræði er nú fylgt eftir með því að telja íslenskum almenningi trú um að honum standi ekkert annað til boða en að borga skuldirnar sem örfáir ein- staklingar hafa steypt sér í, skuldir sem safna vöxtum að öðrum kosti. Þjóðin þarf einfaldlega að gera sér grein fyrir því að þær skuldir sem krafist er að hún greiði eru meiri en hún getur ráðið við. Hvernig eiga Íslendingar að borga? Íslendingar verða að gera sér grein fyrir því fyrr en seinna að ekki er hægt að greiða þessar skuldir og um leið halda uppi sanngjörnu samfélagi. Óhjákvæmilegt er að afskrifa skuldir á einhvern hátt. Hversu mikið er ekki hægt að segja til um fyrr en vitað er hver skuldar hverjum og hversu mikið. En Ísland er sjálfstætt ríki og getur sett hver þau efnahagslög sem því hentar, svo framarlega sem þau mismuna ekki fólki eftir þjóðerni. Alþjóðlegir lánardrottnar munu mót- mæla harðlega. Markmið þeirra er að halda fjármálaheiminum utan alþjóðalaga og gera innheimtu skulda óháða lýðræðis- legum reglum. Þannig reyna alþjóðlegar fjármálastofnanir að hindra stjórnvöld í að koma böndum á óhefta lánastarfsemi og eignaupptöku. Málpípur fjármagnseigenda saka þannig stjórnvöld um að hefta hinn frjálsa markað, þegar þau eru í raun eina aflið sem getur komið í veg fyrir að heilu þjóðirnar verði hnepptar í skuldafangelsi. Með því að fara fram á greiningu á því hver skuldar hverjum hvað getur Ísland komið boltanum í fang lánardrottnanna og látið þeim eftir að svara því hvernig í ósköpunum Íslendingar eigi að fara að því að borga og hverjar efnahagslegar afleið- ingar þess verði. Hvernig geta Íslending- ar borgað á næstu árum án þess að lands- menn tapi unnvörpum eignum sínum og félagslega kerfið verði lagt í rúst? Hvern- ig geta Íslendingar greitt skuldir sínar án þess að keyra sig í þrot, leggja niður þjóð- félag félagslegs jafnréttis og koma hér á samfélagi örfárra ofurríkra lánardrottna og svo örsnauðs almennings? Það er raun- veruleg hætta á að hér myndist ný stétt fjármagnseigenda sem stjórna muni land- inu næstu öldina eða svo. Íslendingar hafa verið prettaðir. Eiga þeir að líta á það sem skyldu sína að greiða þjóðum sem hafa ekki í hyggju að greiða nokkurn tíma sínar eigin skuldir? Svo lán- ardrottnar fái greitt þurfa þeir að sann- færa skuldunauta sína um að þeir geti í raun og veru borgað, þ.e. borgað án þess að leggja samfélagið í rúst, selja auðlind- ir sínar eða koma á gríðarlegri stéttaskipt- ingu fjármagnseigenda og skuldara. Lánin eða lífið? Íslendingar verða að líta til langs tíma. Hvernig á efnahagskerfið að lifa af og vaxa til framtíðar? Verðtryggingu lána verður að afnema. Gjaldeyrislán verður að færa yfir í krónur á lágum, óverðtryggðum vöxtum eða afskrifa að hluta eða öllu leyti. Markmiðið á að vera að fella niður skuldir sem valda efnahagslegu tjóni. Leiðarljósið er heilbrigt efnahagskerfi í heild sinni. Þeir sem heimta mest eru ekki þeir sem skulda mest, heldur þeir sem hafa lánað mest. Markmið þeirra er að tryggja völd sín í samfélaginu. Umfram allt vilja þeir hámarka vald skulda umfram verðmætasköpun. Þess vegna er verðtrygging lána notuð til að tryggja að bankarnir hagnist á hruni efnahags- lífsins, en ekki almenningur, sem greiða þarf jafnt skuldirnar sem og kostnaðinn af hækkandi verðlagi og hruni krónunnar. Lánadrottnar um allan heim eru í óða önn að færa niður skuldir í takt við lækkandi fasteignaverð. Á Íslandi hafa bankarnir hins vegar fengið að hækka skuldabyrðina um 14% á síðasta ári, á meðan fasteigna- verð hefur lækkað um 21%! Því verra sem efnahagsástandið er, því sterkari eru lán- veitendurnir. Þetta er ávísun á efnahags- legt sjálfsmorð þar sem dýpkandi kreppa hneppir æ fleiri í skuldafangelsi. Ísland getur tekið forystu og orðið fyrir- mynd annarra þjóða í efnahagslegu jafn- rétti. Aldrei hefur verið betra tækifæri til að taka afstöðu til þess um hvað standa á vörð – óyfirstíganlegar skuldir eða fram- tíð íslensks samfélags? Munu stjórnvöld verja þegna sína fyrir afætum fjármála- heimsins, eða munu þau færa þeim íslenska hagkerfið á silfurfati? Það er spurningin sem íslensk stjórnvöld verða að svara. Höfundur er sérfræðingur í alþjóðafjár- málum, hefur verið ráðgjafi Hvíta húss- ins, bandaríska innanríkisráðuneytisins og varnarmálaráðuneytisins og vinnur að tillögu að nýrri skattalöggjöf fyrir Banda- ríkin. Þetta er fyrri greinin af tveimur eftir Hudson sem birtast í Fréttablaðinu. Sú seinni birtist innan fárra daga. Stríðið gegn Íslandi MICHAEL HUDSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.