Fréttablaðið - 04.04.2009, Page 39

Fréttablaðið - 04.04.2009, Page 39
LAUGARDAGUR 4. apríl 2009 39 heilmikið um starfsemi HR og þann styrkleika sem skólinn býr yfir. Ég og Marie urðum fljótlega mjög áhugasöm og þannig byrjaði það ferli sem skilaði okkur hing- að til Íslands, í starf konrektors og aðstoðarmanns.“ HR og MIT, með þátttöku Johns, unnu saman að endurskipulagn- ingu verkfræðinámsins í HR á vordögum 2008. Út frá því starfi myndaðist mikill vinskapur milli Svöfu og þeirra hjóna, en hún lagði að sögn Johns hart að honum að taka að sér stöðu konrektors. „Ég hef ekki enn fundið aðferð til að segja nei við hana Svöfu vinkonu mína,“ segir John og skellir upp úr. „Hún er svo sannfærandi og full af ástríðu fyrir starfi sínu. Ég er ekki átján ára lengur og hef lifað tím- ana tvenna í þessum geira, en hún er bara þannig gerð að maður vill allt fyrir hana gera.“ Nýjar reglur og aðferðir Verkefni starfandi konrektors fela meðal annars í sér stefnumótun, þróun aðgerðaáætlana, uppbygg- ingu innviða, eflingu rannsókna og framþróun námsins í HR. Auk þess hefur konrektor yfirumsjón yfir leiðsögn við deildarforseta, rektor og akademíska starfsmenn, uppbyggingu á sterku starfsliði, eflingu alþjóðlegra tengsla og innra og ytra mati á rannsóknum og námi við skólann. „Rektorsstarfið er mjög umfangsmikið og tímafrekt. Með tilkomu konrektors ætti rektor- inn að hafa meiri tíma til að sinna mikilvægum málum af meiri kost- gæfni. Ég hef verið í starfinu í rúmlega tvo mánuði og sá tími hefur reynst vel sem eins konar reynslutímabil, og deildarforset- arnir þurfa til að mynda að venj- ast því að hafa einn stjórnanda til viðbótar við rektorinn. Ég mun eyða miklum tíma í að hanna nýjar reglur og aðferðir, og ætla mér að ganga hratt og vel til verks. Þegar betur fer að ára í samfélaginu verður að tryggja að skólinn sé í stakk búinn fyrir nýja tíma. HR er ungur háskóli sem er sterkur á mörgum sviðum, en það er alltaf möguleiki að gera enn betur.“ Ísland þarfnast ímyndarvinnu Í ljósi efnahagshrunsins spyr blaðamaður hvort það hafi ekki vaxið þeim hjónum í augum að flytjast, að hluta til hið minnsta, til Íslands og þeirrar óvissu sem ríkir í þjóðfélaginu. Hjónin svara því neitandi. „Hingað til höfum við aðallega fylgst með þessum atburðum úr fjarlægð og erum því eins langt frá því að vera sérfræð- ingar í þessum málum og hugs- ast getur, ég vil ítreka það,“ segir John, „en ég verð að segja eins og er, ég finn ekki mikið fyrir þessu í daglegu lífi hér á Íslandi. Ég held líka að ástæða þess sé ekki sú að ég sé ónæmur fyrir slíkum hlut- um. Fólkið sem ég hef samskipti við daglega virkar fremur jákvætt og langt frá því að vera dauft í dálkinn. Við gerum okkur full- komlega grein fyrir því að margir hafa misst vinnuna, og guði sé lof að Íslendingar hafi ekki þurft að kljást við slíkt ástand fyrr. En við finnum fyrir mikilli jákvæðni allt í kringum okkur, til dæmis þegar við ferðumst um í leigubílum eða förum út að borða á veitingastaði sem eru fullir af fólki,“ segir John. „Og það eru ekki bara útlending- ar sem borða á þessum stöðum,“ bætir Marie við. „Leigubílaferðir eru reyndar mjög mikilvæg upplýsingaveita í hverju landi,“ segir John. „Þegar ég verð forsætisráðherra Íslands ætla ég að senda alla leigubílstjóra á námskeið í sögu og menningu landsins. Eða kannski ættu leigu- bílstjórarnir frekar að uppfræða forsætisráðherrann,“ segir John og hlær. „En að öllu gamni slepptu þá tel ég, án þess að þykjast vera sér- fræðingur í þessum málum, að það verði nokkuð langur tími þar til efnahagslífið nær sér á strik. Lík- lega heil kynslóð. Það breytir því ekki að Ísland býr yfir mörgum tækifærum og gríðarlegum auð- lindum. Hversu mörg lönd myndu til dæmis ekki vilja vera í sporum Íslands þegar kemur að jarðorku. Landið er í svo einstakri aðstöðu hvað þetta varðar að það verður hreinlega að gera sér mat úr því,“ segir John. „Það má heldur ekki vanmeta mikilvægi öflugrar ímyndar- vinnu,“ bætir Marie við. „Við hjónin höfum nánast umbreyst í ferðaskrifstofu fyrir Íslands að undanförnu því við erum sífellt að tala um landið við alla sem við hittum. Þegar við minnumst á hversu stórfenglegt okkur þyki land og þjóð og þessi miklu og athyglisverðu samskipti MIT og HR þá hvá nánast allir. Utan Íslands virðast flestir halda að eyjan hafi hreinlega sokkið í sæ og hér sé alls ekkert að gerast. Þetta er stórt vandamál sem við verðum öll að horfast í augu við og reyna að breyta. Ísland þarfn- ast þess meira nú en nokkru sinni fyrr,“ segir Marie. Mikilvægi menntunar John tekur fram að á tímum sem þessum megi mikilvægi menntun- ar alls ekki gleymast, þótt hart sé í ári. „Menntun er jafn mikilvæg á Íslandi nú og fyrir hrunið, ef ekki enn mikilvægari. Það þarf að ganga úr skugga um að þeir mörgu sem eru að missa atvinnuna um þessar mundir eigi kost á frekari menntun ef þeir kjósa svo. Ég er ekki að segja að allir þurfi að fara í háskóla, en ef fólk hefur til dæmis ekki lokið menntaskólaprófi á að leita allra leiða til að gera því það kleift. Hið sama gildir ef fólk vill bæta við mastersgráðum. Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að þetta er ekki einfalt verkefni, en það er engu að síður bráðnauð- synlegt. Ein af stærstu auðlind- um landsins er þetta bráðgáfaða og nokkuð vel menntaða fólk sem það byggir. Það skiptir miklu máli að fjárfesta í þessu fólki.“ Ljóðskáld og listamenn Að sögn Marie líkar þeim hjónum lífið á Íslandi afar vel. „Þetta er undraverður staður. Mennirnir eru sterkbyggðir og kvenfólkið svo fallegt að það ætti í raun að vera fyrirmynd kvenna um allan heim. Okkur virðist sem allir Íslending- ar séu ljóðskáld og listamenn inn við beinið. Það er list úti um allt, og landið sjálft er í raun risastórt listaverk. Það sjáum við bara með því að líta út um gluggann á skrif- stofunni okkar.“ Menntun er jafn mikilvæg á Íslandi nú og fyrir hrunið, ef ekki enn mikilvægari. Það þarf að ganga úr skugga um að þeir mörgu sem eru að missa atvinnuna um þessar mundir eigi kost á frekari menntun ef þeir kjósa svo. „Það var mikil heppni fyrir okkur að fá John til starfa,“ segir Svafa Grön- feldt, rektor Háskólans í Reykjavík. „Við höfum unnið að því að efla mjög akademíska uppbyggingu HR á undanförnum árum. Ráðning hans er liður í að flýta þeirri upp- byggingu, því á næstu árum munu háskólarnir gegna enn þýðingar- meiri stöðu í samfélaginu en verið hefur. Við vildum ekki slá þessu á frest eða hætta við þetta, vegna þess að nú fremur en nokkru sinni fyrr þurfa skólarnir að efla akadem- ískan styrk sinn,“ segir Svafa. Hún segir John hafa allt til að bera í starf konrektors. „Hann kemur hingað með þekkingu og reynslu sem við höfum ekki. John vann með okkur að því að byggja upp verkfræðideildina síðastliðið vor og er vel inni í íslensku menntakerfi og meðvitaður um stöðu okkar.“ MIKIL HEPPNI AÐ FÁ JOHN TIL STARFA Dásemdardýrð Lifðu núna Fáðu þér flottan tónlistarsíma í næstu verslun Vodafone Nokia 5800 XpressMusic • 12.000 kr. inneign* • 5 lög í tónlistarverslun Vodafone 5.500 kr. á mán. í 12 mán. Nokia 5310 XpressMusic • 12.000 kr. inneign* • 5 lög í tónlistarverslun Vodafone 3.000 kr. á mán. í 12 mán. *1.000 kr. á mán í 12 mán. *1.000 kr. á mán í 12 mán.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.